Morgunblaðið - 24.04.1999, Side 57

Morgunblaðið - 24.04.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 57 MINNINGAR ALDARMINNING SIGRÍÐUR G UÐMUNDSDÓTTIR HJARTARSON + Sigríður Guð- mundsdóttir Hjartarson fæddist í Úthlíð í Biskups- tungum 31. mars 1907. Hún lést í Kanada 5. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðmundur Iljart- arson og Sigrún Ei- ríksdóttir. Sigríður átti fímm systkini og er eitt þeirra nú á lífí. Útför hennar fór fram frá útfar- arkapellu Gimlibæj- ar. Jarðsett var í kirkjugarði bæjarins. Gimli er kauptún norðan Winnipeg í Kanada á vesturströnd samnefnds vatns og hefur frá 1875 verið heimkynni Islendinga, sem fiskað hafa á vatninu. Þar í bæ hef- ur um langt skeið verið starfrækt elliheimilið Betel. Vistlegt og dáð athvarf hafa Kanadabúar af ís- lensku ættemi átt í þessu heimili aldraðra. Margir íslendingar sem ferðast um Kanada hafa löngum heimsótt Betel, þar sem þeir hafa átt frændur. Þá em kunn hátíða- höld Vestur-íslendinga sem þeir árlega í byrjun ágúst efna til að Gimli og nefna Islendingadaginn. í ársbyrjun 1940 hóf sú er hér er minnst að starfa á elliheimilinu Betel og 1953 var hún ráðin for- stöðukona þess. Hélt hún því starfi til ársloka 1975. Er heilsu Sigríðar tók að hraka fékk hún vist í Betel og þar andaðist hún. Eftir að Auð- björg systir hennar varð ekkja flutti hún í Betel og annaðist syst- ur sína en hún (Begga) lést fyrir tveim áram. Sigríður eða Sigga eins og hún var nefnd greiddi götu margra Is- lendinga, sem leituðu frænda þar vestra, svo að hún varð því mörgum hérlendis kunn og því þótti rétt að minnast hennar í Morgunblaðinu. Sigríður, sem var elst bama for- eldra sinna, fæddist í Úthlíð í Bisk- upstungum 31. mars 1907. Foreldr- ar hennar voru: Guðmundur Hjart- arson að Austurhlíð í Tungum og Sigrún Eiríksdóttir fædd að Mið- býli á Skeiðum. Hún var lærð yfir- setukona. Árið 1913 fluttu þau hjón til Kanada með þrjú börn en skildu tvö þau yngstu eftir hjá ættingjum. Þau voru: Guðrún, ólst upp í Aust- urhlíð en varð síðar húsmóðir að Dalsmynni í Biskupstungum, og Hjörtur, ólst upp hjá föðursystur í Reykjavík; starfaði um skeið sem löggæslumaðm* en lengst af sem forstjóri Kirkjugarða Reykja- víkur. Þau hjón Sigrún og Guðmundur dvöldu fyrsta árið í Kanada í Rauðarárdal en urðu að flytja þaðan undan flóði til Bay End (As- ham Point). A árinu 1924 hélt fjölskyldan út á skagann Peonan, sem teygir sig út í Winnipegvatn gegnt kauptúninu Steep Rock, skammt frá Reykjavíkurbyggð. Á skaganum stunduðu þau nautgriparækt og veiðar í vatninu, og naut fjölskyld- an ýmiss kaupskapar, þjónustu og skólanáms fyrir börnin í Steep Rock. Fyrir utan Sigríði urðu börnin sex á heimilinu úti á skag- anum og að vetrinum varð vegna skólagöngu að starfrækja heimili í Steep Rock. Sigríður varð því snemma á ævinni að leggja fyrir sig umönnun. Upp úr 1930 hélt hún til vinnu og náms í Winnipeg. Systkini Sigríðar þar vestra vora: Ólafur, Hjörtur (annar), Auðbjörg (Begga), Eyvindur, Eiríkur og Guðmundur. Eins og fyn* greinir urðu foreldrar Sigríðar að skilja tvö böm eftir, er þau héldu til Kanada. Af börnunum lifir Sigiíði aðeins eitt, Eiríkur. Hann á heima í Steep Rock en kona hans, Hilda, dvelur á öldranarheimili. Mágkonur þrjár aðrar lifa hana: Eygló V. Hjaltalín (ekkja Hjartar) í Reykjavík, Dorothy (Eyvindur) og Lára (Guð- mundur), báðar í Winnipeg. I þrjátíu og fimm ár innti Sigríð- ur af hendi í Betel hjúkran, marg- þætta þjónustu og hjálpsemi, auk stjómunarstarfa. Sigríður var virk í mörgum félögum t.d. kvenfélagi, söngfélagi, Islendingafélagi. Hún var rómaður bridsspilari. Við aldur var hún orðin, er hún lærði að aka bíl og varð bíleigandi. Hún nýtti sér þessa tækni og kunnáttu með- an heilsan leyfði, til þess að rækja ýmsan félagsskap og tengsl við vini. Sigríður naut margskonar virðingar og þakklætisviðurkenn- inga fyrir alla hennar miklu hjálp- semi, t.d. var hún kosin Fjallkona íslendingadagsins 1968, boðið að heimsækja Island, sæmd heiðurs- félagatignum o.s.frv. Margir munu við dánarfregn Sigríðar (Siggu) Hjartarson minn- ast hennar sem merks Islendings. Þorst. Einarsson. JÓN BJARNASON + Jón Bjarnason fæddist á Hóli í Breiðdal í Suður- Múlasýslu 21. júní 1930. Hann lést 8. apríl síðastliðinn eftír langvarandi veikindi. Foreldrar lians voru Jóhanna Elísabet húsmóðir og Bjarni Methusalem Jónsson, bóndi, sem bæði eru látin. títför Jóns fór fram frá Stöðvarfjarðarkirkju 17. apríl. Nú þegar Nonni móðurbróðir minn er farinn frá okkur, en því verður ekki breytt, langar mig til að minnast hans í nokkrum kveðjuorð- um í þakkarskyni fyrir allar þær gleði- og ánægjustundir sem hann veitti okkur á liðnum árum þegar hann gisti hér á Sogaveginum, er hann var að leita sér lækninga. Hann hafði góðan húmor, var skemmtilegur, hreinskilinn og sá ávallt spaugilegu hliðarnar á tilver- unni. Hann var mikill dýravinur og fjárglöggur. Lengst af stundaði Jón sjó og beitningar í Vestmannaeyjum. Hann var þrjá vetur við nám á Eið- um. Þrátt fyrir erfið veikindi lét hann aldrei bugast. Það kennir okk- ur að meta lífið á annan hátt. Nú er Nonni kominn yfir móðuna miklu til afa og ömmu, Siggu móð- ursystur og fólksins okkar sem far- ið er á undan okkur. En við munum öll hittast síðar. Minning lifir um góðan mann sem við söknum. Ég vil votta systkinum, vinum og ættingjum samúð mína. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Þín frænka, Sigrún Ragnarsdóttir. GUÐRUN MAGNÚSDÓTTIR Keldudalur er falleg jörð, vel í sveit sett í miðju héraði sunnan og vestanvert í Hegi*a- nesi. Jörðin dregur nafn sitt af dragi eða dalverpi sem markast af fallegum klettaborg- um norðvestanvert við bæjarhúsin. Frá þess- um kléttum er mjúkm* hallandi til suðurs og suðausturs síðan í mjúkum sveig til suð- vesturs sem endar í keldum og kílum sem renna saman við Ey- lendið austan Héraðsvatnanna. I hásuðri frá Keldudal rís lág kletta- borg þar sem bærinn Egg stendur. í klettarofinu norðan Keldudals allt fram að Egg hefur safnast frjósam- ur jarðvegur um árþúsundin. Daldragið myndar mikið skjól og liggur vel við sól og mildum sumar- vindum. Suðvestanáttin getur þó verið stríð þegar hún rennir sér yfir vesturfjöllin og kemur óheft austur yfir Eylendið. Keldudalur er vildar- jörð í nútíma búskap en var nokkuð erfið áður en framræslan kom til fyrir og eftir miðja öldina. Víðsýni er mikið í Keldudal. í suðaustri blasir við Tungufjall eins og falleg uppsett heyfúlga, hvergi stærri á byggðu bóli, vel mænd sem ver sig fyrir öllum veðram. Við viss birtu- skilyrði verður fjallið hrífandi fag- urt. í hásuðri skartar Mælifells- hnjúkur. Fjallahringurinn lokast í vestri með Staðaröxlinni séð frá Keldudal, en í vestrinu er mest prýðin af Grísafellinu, Kaldbak og Sauðafelli. Ái’ið 1942 fluttust að Keldudal hjónin Páll Sigurðsson og Guðrún Magnúsdóttir. Þau gengu í hjóna- band 1922 og hófu búskap á Berg- stöðum í Svartárdal, síðan í Kolgröf á Efribyggð, þá bjuggu þau í Aust- urhlíð I Blöndudal, síðan í Dæli í Sæmundarhlíð og í Holtskoti í Seyluhreppi frá 1935 og þar til þau fluttust að Keldudal. Páll var þá tekinn að reskjast, orðinn 62 ára gamall, en Guðrún var 19 árum yngri og á besta skeiði. Páll var þingeyskrar ættar, fæddur á Þór- oddsstað í Köldukinn. Hann ásamt bræðram sínum Árna í Ketu í Hegranesi og Kristjáni á Brúsa- stöðum í Vatnsdal útskrifuðust vor- ið 1906 frá Hólaskóla. Systir þeirra bræðra var Margrét húsfreyja á Brenniborg, kona Stefáns Stefáns- sonar. Foreldrar Stefáns í Brenni- gerði, Sigurðar á Brúnastöðum og Hólmfríðar. Guðrún Magnúsdóttir var frá Kleifum í Kaldbaksvík á Ströndum, fædd 24. apríl 1899. 100 ár era því liðin frá fæðingu hennar og tilefni þessara skrifa. Systir Guðrúnar, Guðbjörg, varð eiginkona Jóns Eð- valds Guðmundssonar á Sauðár- króki en féll frá á besta aldri frá tveim ungum dætram. Yngsti bróð- ir þeirra systra barst til Skagafjarð- ar í frumbernsku og hefur gefið „Héraðinu" líf og lit. Bróðirinn heit- ir Óskar Magnússon í Brekku, skógarbóndi mikill, kominn á níræð- isaldur. Það er auðvitað skemmtileg blanda að Páll frá Heiðarhúsum á Flateyjardalsheiði og Guðrún frá Kleifum í Kaldbaksvík á Ströndum skyldu blanda blóði í miðjum Skagafirði, en svona er lífið marg- slungið og ófyrirséð. Haustið 1942 fluttist móðir mín, Lovísa Björnsdóttir, með mig, tveggja ára gamla síðan í apríl þá um vorið, til Sauðárkróks og var fyrsta veturinn í því húsi í Skógar- götunni sem Sigga Hannesar (Björnsd.) átti lengi heima í. Vorið 1943 fluttist móðir mín í Rússland í eitt herbergi og eldhús hjá Sigur- geiri kaupmanni og Ásdísi konu hans. Hún tók kostgangara, seldi fæði við erfiðar aðstæður, sér og sínum til framfærslu. Þetta sumar varð það hlutskipti mitt að fara til vandalausra, þein*a Páls og Guð- ránar í Keldudal. Þau urðu mér sem foreldrar og ólu mig upp fram yfir ferm- ingu. Guðrún varð fóstra mín. Kærleikur hennar var umvefjandi og okkur samdi óskap- lega vel. Hún varð mér betri en besta móðir og milli okkar bundust strengh* djúprar elsku og væntumþykju sem entust meðan báðar lifðu. Þau Páll og Guð- rán voru ákaflega myndarleg hjón. Páll bar sig afar vel, mikill á vöxt og bar persónu er sópaði að, félagslyndur, þrifa- bóndi, glettinn og vel greindur. Guðrún var afar glæsileg kona, stórvaxin, samsvaraði sér vel, afar andlitsfríð, bar með sér traustleik- ann og góðvildina. Eftir henni var tekið hvar sem hún fór, með trausta skapgerð og dagfarspráð. Synir þeirra hjóna, Gestur, Hólmar og Reynir, voru allir heima í Keldudal og unnu á búinu er ég kom í heimilið. Guðrán Gréta Tóm- asdóttir kom til Páls og Guðránar er þau bjuggu í Holtskoti og ólst upp á heimilinu. Þetta lýsir þeim hjónum vel og hjartahlýju þeirra, þrátt fyrir lítil efni og fátækt fram- an af árum, en börn þeirra urðu sjö, og við fósturdæturnar tvær. Páll hafði þrjá um sextugt er hann gekk mér í fóðurstað, en tekinn að slakna til heilsu. Ég fylgdi honum mikið eftir og var honum góð snúnings telpa. Páll hafði létta lund og var gamansamur en síðari árin mæddu bústörfin meira á Guðránu fóstru minni, en hún var forkur dugleg. I Keldudal var á þessum árum lít- ið íbúðarhús, skiptist í eldhús, stofu, þvottahús, tvær geymslur, lítið her- bergi og hjónaherbergið, það þætti lítið rými í dag, fyrir sjö sálir. Stutt var í fjós, fjárhús og hesthúsið og hænur voru á bænum. Mikil sam- skipti vora við næstu bæi, ekki síst Ketu, þar sem Árni bróðir Páls bjó. Guðrán fóstra gerði mig læsa unga að aldri, en í barnaskóla gekk ég í Hróarsdal, en þar kenndi Anna Sig- urjónsdóttir kona Þórarins Jónas- sonar. Við vorum um tíu bömin í skólanum og ég gekk á milli bæj- anna sem ekki var löng leið, en und- h- klettum að fara, sem sagt var að byggju í álfar og huldufólk. Mikil virðing var borin fyrir þeim byggð- um í Hegranesi. Oft átti ég góðar stundir hjá fóstru minni er setið var við vatnsdæluna og vatninu dælt í bæinn. Þá samdi ég mín eigin lög og söng fyrir fóstra mína og lærði af henni kvæði. En öll ævintýri taka enda og bemskan fljótt að baki. Árið 1955 brugðu Páll og Guðrán búi og Hólmfríður dóttir þeirra tók við búsforráðum ásamt manni sínum Páli Sigurðssyni Vestfirðingi. Ég fór suður í vinnumennsku undir Akrafjalli, en fóstra mín sleppti aldrei af mér hendinni með elsku sinni og kærleika og fylgdist vel með hvernig mér vegnaði. Velgjörð- ai’fólk mitt brá búi 1962 og fluttist til Sauðárkróks. Þá varð samband mitt við Pál og Guðránu mjög náið á ný. Ég hafði árinu áður flust á Sauðárkrók eftir nokkurra ára dvöl á Suðurlandi. Páll lést í hárri elli 9. sept. 1967, en var fæddur 4. aprfl 1880. Guðrún fóstra mín lifði lengi eftir þetta og var mér sem besta móðir allt til hinstu stundar og var til heimilis hjá Hólmfríði dóttur sinni og Páli tengdasyni sínum. Þetta heimili var sem mitt annað heimili og Hólmfríður mér sem besta systir. Nú era liðin 100 ár frá fæðingu Guðránar fóstra minnar sem ég á svo mikið að þakka og öllu hennar fólki. Guðrún lést 26. júní 1988. Það var mín gæfa og gleði að eiga sæmdarkonuna Guðrúnu Magnús- dóttur að fóstru. Allir kærleiks- þræðirnir sem hún óf era óslitnir. Blessuð sé minning fóstru minnar og Páls í Keldudal. Ingibjörg (Stella) Guðvinsdóttir, Sauðárkróki. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð eða tölvusett. Sé handrit tölvu- sett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur ör- yggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamleg- ast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auð- veld úrvinnslu. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýju vegna and- láts og útfarar ÞORLEIFS EINARSSONAR jarðfræðings. Aðstandendur. t Dóttir mín og föðursystir okkar, JÓNA JÓSTEINSDÓTTIR, var kvödd í Fossvogskapellu miðvikudaginn 21. apríl. Þökkum auðsýnda vináttu og samúð. Emilía V. Húnfjörð. Lárus, Vilhjálmur, Kristján, Emilía og Jósep Vilhjáimsbörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.