Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 80
80 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ Heimsmeistarakeppnin í skák í Las Vegas SKÁK Las Vegas, IVevada I DAG VKIMKAMH Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þakkir frá nemendum VELVAKANDA barst eftirfarandi bréf: „Fyrir nokkru var bekknum okkar boðið í veislu á McDonalds vegna þess að við gáfum pitsusjóðinn til ■ flóttamannanna frá Kosovo. Við viljum þakka Pétri Þ. Péturssyni fyrir frábæra hamborgara og falleg viðurkenningarskjöl. Við í Selásskóla gleymum aldrei hvað þetta var gam- an. 2. KA og kennarinn okkar Kristbjörg Asta Ingvarsdóttir. Um fugla og ketti ÉG vil koma því á fram- færi, vegna umræðna undanfarið um að kettir sæki í fugla, að ég á þrjár kisur og bý í Kleppsholt- inu. í fyrravetur og í vet- ur hef ég gefíð fuglunum að borða í garðinum hjá mér og hafa kisumar mín- ar ekki snert fuglana. Ná- grannakisur sem hafa sótt í blessaða fuglana hafa fengið vatnsskvettu frá mér svo þeir láti þá vera. Kettir nú til dags fá nóg að borða og eiga því ekki að þurfa að veiða sér til matar en ef fólk hugsar ekki nógu vel um kettina sína og lokar þá úti, sækja þeir kannski frekar í fugl- ana. Dýravinur. Tínum rusl LESANDI hafði sam- band við Velvakanda og vildi hann benda Breið- holtsbúum á, að nú þegar byrjað er að vora, væri gott að þeir tækju til hendinni og tíndu upp rusl og annað sem liggur á víðavangi eftir veturinn. Sammála UT af smágrein um stríðsleikfóng sem Kol- brún Inga Sæmundsdóttir skrifaði í Velvakanda sl. sunnudag, vil ég taka fram að ég er henni hjart- anlega sammála og hvet ég fólk til að kaupa ekki þessa vöru. Mér finnst það siðlaust að bjóða böraum upp á þetta. Móðir. Gott framtak hjá Kea-Nettó OFT er við afgreiðslu- kassana í verslunum sæl- gæti sem freistar bæði barna og fullorðna. Ég fór í KEA-Nettó á Akur- eyri í vikunni og við kass- ann var smápakkning af harðfíski sem kostar 100 kr. Var ég yfir mig hrifin og hugsaði mér að þetta mættu fleiri stórmárkað- ir taka sér til fyrirmynd- ar og fór ég út með 5 pakka af harðfiski í stað- inn fyrir 5 pakka af ópali eða þess háttar. Vil ég senda Kea-Nettó þakk- læti fyrir þetta framtak og vona að fleiri fylgi í kjölfarið. Anægður viðskiptavinur. Góð grein LESANDI hafði sam- band við Velvakanda og lýsti hann yfir ánægju sinni með greinina „Nátt- tröll“ sem birtist í Morg- unblaðinu þriðjudaginn 20. apríl. Er hann sam- mála öllu því sem sagt er í þessari grein - að ekki eigi að kaupa frið hvað sem það kostar. Ráðlegg- ur hann fólki að lesa þessa grein. Dýrahald Kettlingar óska eftir heimili GÓÐIR, bamvænir, kassavanir 7 vikna kett- lingar óska eftir góðu heimili. Upplýsingar í síma 565 3076 eða 862 8670. SKAK ITn.vjúii IHargeir l’éliirvsnii STAÐAN stórmótinu Hermanas á lauk um síð- ustu helgi. Ungverska stúlkan Jddit Polg- ar (2.677) var með hvítt, en Englend- ingurinn Michael Adams (2.716) hafði svart og átti leik. 36. - f3+! 37. Kxg3 - Dg4+! 38. kom upp á í Dos Spáni sem Kf2 - Dh4+ 39. Ke3 - Df4+ 40. Kd4 - De5+ 41. Ke3 - Rg4+ 42. Kd2 - Dxb2+ 43. Dc2 - Dxal 44. Hg6+ Kh7 45. Hxg4 - f2 og Júdit Polgar gafst upp. Michael Adams vann góðan sigur á mótinu. COSPER •r wmmm Jjjpp í tt ^|||P^ SVARTUR leikur og vinnur MAMMA það er komin rigning, má ég leika inni í stofu með nokkrum vinum mínum? Víkverji skrifar... HEIMSMEISTARAKEPPNIN í SKÁK 30. júlí-29. ágdst HANNES Hlífar Stefánsson verður meðal keppenda í næstu heimsmeistarakeppni FIDE. Töluverð óvissa hefur ríkt um keppnina, en í fréttatilkynn- ingu sem FIDE gaf út íyrir nokkrum dögum er staðfest að keppnin fari fram í Caes- ars Palace hótelinu í Las Vegas dagana 30. júlí til 29. ágúst. Heild- arverðlaun eru 3.000.000 dala, eða um 220 milljónir íslenskar krónur. .Jafn- vel þeir sem falla út strax í íýrstu umferð fá dágóða upphæð, eða 6.000 dali í sinn hlut. Þess ber þó að geta að 20% verðlaunanna rennur til FIDE. Alls taka 100 skákmenn þátt í heimsmeistarakeppninni, sem er útsláttarkeppni. I fýrstu umferð, sem hefst 1. ágúst, tefla 72 skák- menn tveggja skáka einvígi. Sig- urvegararnir 36 halda áfram í aðra umferð, en þá bætast jafn- framt 28 skákmenn til viðbótar í hópinn, þannig að 64 skákmenn taka þátt í annarri umferð. Þeir sem koma inn í keppnina í annarri umferð eru 23 stiga- hæstu skákmenn heims, auk þeirra fimm sem lengst náðu í síðustu heimsmeistarakeppni. Eftir aðra umferð fækkar þátt- takendum um helming í hverri umferð þangað til sjálft heims- meistaraeinvígið hefst 22. ágúst. I iýrstu fimm umferðunum eru háð tveggja skáka einvígi, en í sjöttu umferð eru tefldar fjórar skákir. Eins og í síðustu heims- meistarakeppni FIDE verða tefldar sex skákir í heimsmeist- araeinvíginu, sem jafnframt er sjöunda umferð keppninnar. Anatoly Karpov er núverandi heimsmeistari FIDE, en hann sigraði Viswanathan Anand í heimsmeistaraeinvíginu sem fram fór í Lausanne í Sviss. Kar- pov kom ekki inn í keppnina fyrr en í heimsmeistaraeinvíginu, en að þessu sinni er gert ráð fyrir að hann hefji þátttöku í annarri umferð. I síðustu heimsmeistarakeppni voru Islendingar í hópi þeÚTa þjóða sem flesta fulltrúa áttu í keppninni. Það voru aðeins 19 þjóðir sem áttu fleiri en einn keppanda og einungis 6 þeirra voru fjölmennari en Islendingar. Það voru stórmeistaramir Jó- hann Hjartarson, Margeir Pét- ursson og Helgi Áss Grétarsson sem þá héldu merki íslands á lofti í síðustu heimsmeistarakeppni. Að þessu sinni verður Hannes Hlífar Stefánsson eini íslenski keppandinn, en hann vann sér rétt til þátttöku með glæsilegum sigri á svæðismóti Norðurlanda í skák, sem fram fór i Danmörku síðastliðið haust. Hannes hefur náð mjög góðum árangri að und- anfómu og var kosinn Skákmað- ur Hellis 1998 fyrir frábæran ár- angur sinn á því ári. Kvennamót á sunnudag Nú á vormisseri hefur Taflfé- lagið Hellir gengist fyrir nokkrum skákmótum sem ein- göngu eru fyrir konur. Félagið hefur þegar haldið þrjú kvenna- skákmót frá áramótum og hefur þessu framtaki verið vel tekið af skákkonum, bæði þeim stúlkum sem eru virkastar svo og þeim sem ekki höfðu tekið þátt í skák- mótum í nokkurn tíma. Næsta kvennaskákmót verður haldið á sunnudaginn, 25. apríl, og hefst klukkan 13. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad kerfí með 10 mínútna umhugsun- artíma. Ekkert aldurstakmark er á þessum skákmótum Þátttaka er ókeypis. Verðlaun verða veitt fýrir þrjú efstu sætin á mótinu. Mótið er haldið í fé- lagsheimili Taflfélagsins Hellis, Þönglabakka 1 í Mjódd. Anna Björg Þorgrímsdóttir, Islandsmeistari kvenna 1996, sigraði á síðasta kvennamóti Hellis sem haldið var í mars. Voratskákmót Hellis hefst á mánudag Hið árlega voratskákmót Taflfé- lagsins Hellis hefst mánudaginn 26. apríl. Þetta er tveggja kvölda atskákmót og því lýkur mánudag- inn 3. maí. Umhugsunartími er 25 mínútur á skák. Mótið verður haldið í Helhsheimilinu í Þöngla- bakka 1, Mjódd. Samkvæmt aug- lýstri dagskrá er gert ráð íýrir þremur skákum hvort kvöld. Til greina kemur þó að hafa fjórar skákir seinna kvöldið þannig að alls verði tefldar sjö umferðii', ef keppendur kjósa það heldur. Keppendur ákveða hvor leiðin verður vahn áður en mótið hefst. Þátttökugjald er kr. 400 fyrir félagsmenn og kr. 600 fyrir utan- félagsmenn sextán ára og eldri. Þeir yngri greiða kr. 200 ef þeir eru í Helli, en annars kr. 400. Verðlaunapeningar verða fyrir þrjú efstu sætin. Bikarkeppnin í skák Skákfélag Hafnarfjarðar hefur ákveðið að halda Skákþing Hafn- arfjarðar dagana 4.-6. júní. Mótið gildir til stiga í Bikarkeppninni í skák sem fimm taflfélög á höfuð- borgarsvæðinu standa fýrir. Aðildarfélögin að keppninni eru: Taflfélag Garðabæjar, Taflfélag Kópavogs, Taflfélag Reykjavík- ur, Taflfélagið Hellir og Skákfé- lag Hafnarfjarðar. Einu móti í keppninni er lokið, en það var Meistaramót Hellis sem haldið var í febrúar. Stiga- röð efstu manna í Bikarkeppn- inni er þessi: 1. Sigurbjörn Björnsson 15 st. 2. Björn Þorfínnsson 12 st. 3. Jón Viktor Gunnarsson 10 st. 4. Stefán Kristjánsson 9 st. 5. Vigfús Oðinn Vigfússon 8 st. o.s.frv. Vigfús Oðinn Vigfússon er efstur í flokki skákmanna með minna en 2.000 skákstig, en Guð- jón Heiðar Valgarðsson er efstur unglinga. Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson AÐ er ánægjulegt hvað fer fjölgandi þeim stöðum í mið- borginni, þar sem hægt er að setj- ast inn og fá sér létta og góða mál- tíð, hvort sem er í hádeginu eða á kvöldin, án þess að kostnaðurinn íþyngi buddunni um of. Yfirleitt kostar máltíð vel innan við þúsund- kallinn á mann, sem ekki getur talist dýrt, t.d. miðað við það verð sem sett er á heimsendar pítsur. I grennd við Laugaveg er nú hægt að finna allmarga staði þar sem hægt er að setjast inn, t.d. á sunnudagsgöngu, og fá sér annað- hvort léttan hádegisverð eða kvöld- verð. Sólon Islandus er fyrir löngu bú- inn að festa sig í sessi sem eitt af helstu kaffihúsum borgarinnar og yfírleitt er hægt að treysta því að maturinn þar sé ágætur. Stemmn- ingin á Sólon minnir um margt á franskt bistro og eru réttir dagsins skráðir á stóra krítartöflu er hang- ir á vegg. Þá hefur veitingastaður- inn Vegamót við Vegamótastíg ávallt reynst Víkverja vel. And- rúmsloftið er þægilegt, þjónustan vinaleg en stundum dálítið hæg, og ef börn eru meðal gesta er þeim ávallt vel tekið og boðið upp á sér- rétti fyrir þessa ungu viðskiptavini. Maturinn er ágætlega fjölbreyttur og réttir dagsins yfirleitt vel þess virði að panta þá auk þess sem verðlag er mjög sanngjarnt. xxx Á HEFUR Víkverji í seinni tíð fallið fyrir Pastabarnum á horni Skólavörðustígs og Lauga- vegar. Þar er hægt að fá fyrir- myndar pastarétti, salöt og fleira auk þess sem brauðin sem boðið er upp á eru hreinasta afbragð. Skemmtilegur staður til að tölta inn á og fá sér kaffibolla eða lítinn rétt en einnig hefui' Víkverji stund- að það nokkuð að taka með sér matinn heim, ef hann er ekki í skapi til að elda eftir vinnudaginn, og aldrei orðið fyrir vonbrigðum. Það er greinilegt að staðurinn er rekinn af miklum metnaði og að hæfileikamenn eru við stjórn. XXX EN ÞAÐ er ekki einungis í sjálfri Reykjavík, sem skemmtilegir staðir hafa sprottið upp á síðustu árum þótt Reykvík- ingar gleymi stundum að horfa út fyrir eigin sjóndeildarhring. Þannig hefur t.d. verið rekið mjög skemmtilegt kaffihús í Hamra- borginni í Kópavogi, Rive Gauche, um tveggja ára skeið þar sem hægt er að fá eitthvert besta kaffi bæjarins og ágætis mat. Þá upp- götvaði Víkverji um daginn að í Mosfellsbæ er rekið stórkostlegt bakarí og hefur hann hvergi ann- ars staðar á íslandi fengið betri brauð en þar. Ostaunnendur hafa síðan lengi vitað af Ostahúsinu í Hafnarfirði, sem er vel þess virði að menn leggi lykkju á leið sína. Antikhúsgögn Gili, Kjalarnesi, s. 566 8963 Vönduð gömul dönsk húsgögn og antikhúsgögn. Ath. einungis ekta gamlir hlutir. Úrval borðstofuhúsgagna. Opið lau.-sun. kl. 15.00-18.00 og þri,- og fimkvöld kl. 20.30-22.30, eða eftir nánara samkomulagi í síma 892 3041, Ólafur. Hannes Hlífar Stefánsson Anna Björg Þorgrímsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.