Morgunblaðið - 06.05.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 35
LISTIR
Nýráðnir stjórnendur fslensku óperunnar
Morgunblaðið/Amaldur
GERRIT Schuil, nýráðinn listrænn stjórnandi og aðalliljómsveif arstjóri fslensku óperunnar, og Bjarni
Daníelsson, nýráðinn framkvæmdastjóri, á spjalli við Garðar Cortes, fráfarandi óperustjóra.
Skemmtileg og ögrandi
verkefni framundan
NÝRÁÐNIR stjórnendur ís-
lensku óperunnar fagna þeirri
skipulagsbreytingu sem felur í sér
að í stað þess að einn óperustjóri
fari með alla yfirstjórn óperunnar
séu ráðnir tveir stjórnendur;
framkvæmdastjóri _ og listrænn
stjórnandi. Stjórn Islensku óper-
unnar gi’eindi frá því sl. föstudag
að ákveðið hefði verið að ráða
Bjarna Daníelsson í starf fram-
kvæmdastjóra og Gerrit Schuil í
starf listræns stjórnanda og aðal-
hljþmsveitarstjóra.
í stuttu samtali við Morgunblað-
ið hugðu þeir báðir gott til sam-
starfsins og sögðust hlakka mjög
til að takast á við verkefnin
framundan. Báðir eru þeir störfum
hlaðnir á öðrum vettvangi og þurfa
að ljúka þeim en Gerrit gerir ráð
fyrir að mæta óskiptur til starfa 1.
júlí nk. og Bjarni 1. október. Garð-
ar Cortes, fráfarandi óperustjóri,
sagði aðspurður að sér þættu þess-
ar skipulagsbreytingar eingöngu
af hinu góða. „Þetta eru góðir
strákar sem koma í minn stað,“
segir hann. Þó að hann verði áfram
í stjóm Óperunnar segist Garðar
ekki ætla að verða þar eins og grár
köttur en þeir Gerrit og Bjami
muni hins vegar eiga að honum
greiðan aðgang hvenær sem er.
Gerrit segir of snemmt að gefa
stórar yfiriýsingar um breytingar
á listrænni stefnu og verkefnavali
íslensku ópemnnar. Slíkt taki
eðlilega sinn tíma og sé einnig háð
því fjármagni sem til umráða sé
hverju sinni.
Islendingar eru fyrst og
fremst syngjandi þjóð“
Bjarni tekur undir það með
Gerrit að á þessari stundu sé best
að segja sem minnst um breyttar
áherslur en er á því að viðfangs-
efnin framundan verði skemmtileg
og ögrandi og möguleikarnir
margir. „íslenska óperan stendur
á vissum krossgötum og það mun
reyna á það á næstunni hvert hlut-
verk hennar verður, hvort hún öðl-
ast fastan sess í reykvísku menn-
ingarlífi. Auðvitað eru margir
möguleikar sem verður að skoða
og það sem við munum byggja á er
sá áhugi og velvilji sem óperan
nýtur eftir tuttugu ára brautryðj-
andastarf. Mér heyrist að menn
hafi áhuga á framtíð óperunnar og
margir vilji leggja henni gott lið,“
segir hann.
Gerrit kveðst vilja koma á sam-
starfi við hinn mikla fjölda góðra
söngvara sem starfandi eru hér á
landi, auk þess sem hann vonast til
þess að fá tækifæri til að fá „alla
þá frábæru söngvara íslenska sem
núna starfa erlendis til þess að
koma heim og syngja fyiúr okkur.
Ég veit að þá langar til þess og
áheyrendur hlakka til að heyra í
þeim. Allt er þetta fólk sem er á
samningi við óperuhús víða um
heim, svo þetta er spurning um
skipulag langt fram í tímann. Það
á eftir að taka okkur nokkur ár að
sýna fólki hvað við stöndum fyrir“,
segir hann og nefnir árið 2002 í því
sambandi. Gerrit hefur orð á því
hve mikið sé af hæfileikafólki á
sviði sönglistar á íslandi. „íslend-
ingar eru fyrst og fremst syngj-
andi þjóð,“ segir hann. „Við flytj-
um út söngvara í stórum stíl en
það verður líka gaman að fá tæki-
færi til að fá þetta fólk hingað
heim og auðvitað einnig að fá er-
lenda gestasöngvara hingað. Það
er jú mikilvægt að áhrifin séu
gagnkvæm," heldur hann áfram.
Stemmning rýmisins
í Ingólfsstræti 8
SÝNING á verkum
Finnboga Péturssonar
verður opnuð í Galleru
Ingólfsstræti 8 í dag,
fímmtudag, kl. 17. Hann
hefur skapað sér sér-
stöðu innan íslenskrar
samtímalistar með verk-
um sínum sem hafa vak-
ið töluverða athygli er-
lendis, segir í fréttatil-
kynningu frá gallerunu.
Finnbogi er að fást
við grunnform hljóð-
bylgjunnar á þessari
sýningu. Verk hans eru
unnin með stemmningu
rýmisins í huga og notar
hann hátalara, álplötur
og rafmagn.
Finnbogi er þátttakandi í
stórri alþjóðlegri samtímalista-
sýningu í Sete í Frakklandi og
opnar ásamt Rögnu Róbertsdótt-
ur og Kristjáni Guðmundssyni
sýningu í Galleri Artek í Helsinki
12. maí næstkomandi. Auk þess
tekur hann þátt í sýningu ásamt
Tony Cragg, Ulf Roloff og Rögnu
Róbertsdóttur í Galleri Stefan
Anderson, Umeá í Svíþjóð, í byrj-
un júní.
Verk Finnboga vöktu athygli á
listamessunni í Madrid og Stokk-
hóhni fyrr á þessu ári, í fram-
haldi af því hafa honum borist
fjöltnörg sýningartilboð.
Sýningin í i8 er opin fimmtu-
daga til sunnudaga frá kl. 14-18.
Myndverk á
Stokkseyri
í NÁVIST náttúrunnar er yfirskrift
sýningar Þórgunnar Jónsdóttur,
ljóðskálds, sem opnuð verður í kaffi-
húsinu Við fjöruborðið á Stokkseyri
á morgun, sunnudag. Á sýningunni
eru myndverk unnin með vatnslitum
á rekavið af ströndinni á Stokkseyri
og Eyrarbakka, auk steina víðsveg-
ar af landinu.
Þetta er fyrsta einkasýning Þór-
gunnar. Áður tók hún þátt í samsýn-
ingu í Listasafni Árnesinga á Sel-
fossi 1997.
Þórgunnur er fædd í Reykjavík
22. desember 1948. Eftir stúdents-
Söngnema-
tónleikar í
Fríkirkjunni
VORTÓNLEIKAR söngnemenda
Estherar Helgu Guðmundsdóttur
verða í Fríkirkjunni í Reykjavík í
kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30.
Flutt verða ýmis innlend og er-
lend sönglög undir stjórn Estherar
Helgu Guðmundsdóttur.
próf var hún um tíma í Myndlista- og
handíðaskóla íslands, stundaði síðan
nám í frönskum bókmenntum við
Háskóla Islands, og naut jafnframt
einkakennslu hjá Barböru Ámsson
listmálara. Þórgunnur dvaldi um níu
ára skeið í Kaliforníu þar sem hún
vann fyrir Joint Publications Rese-
arch Service. Ljóðabók hennar „The
Wheel of Time“ kom út hjá Janus
forlaginu í London 1997 og barna-
bókin Helga og hunangsflugan hjá
Máli og Menningu 1992.
Sýningin á Stokkseyri stendur til
7. júní.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning
í dag kl. 14-18 í
Breiðholts Apóteki, Mjódd
og Lyfjabúð Hagkaups,
Mosfellsbæ.
■ Kynningarafsláttur -
Vilt
þú
okkur
á lcjörclag
samhent vinnum við sigur
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík óskar eftir sjálfboðaliðum
til margvíslegra starfa á kjördag, laugadaginn 8. maí.
7
Þeir sem eru reiðubúnirtil þess að rétta fram hjálparhönd
eru beðnir um að hafa samband við hverfaskrifstofurnar,
Kosningamiðstöðina Skipholti 19 í síma 5626353 / 5626518
eða skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í síma 5151700.
Akstur á kjördag - getur þú verið á bíl?
ÁRAIMGU R/jTO’ALLA