Morgunblaðið - 06.05.1999, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Framkvæmdastjóri
Atvinnuþróunarsjóöur Suðurlands auglýsir
eftir starfsmanni til að gegna stöðu fram-
kvæmdastjóra. Um viðamikið starf er að ræða
sem krefst mikils frumkvæðis og færni í mann-
legum samskiptum. Starfið er gefandi og veitir
mikla innsýn í atvinnulíf á Suðurlandi.
Helstu verkefni framkvæmdastjóra eru:
— Að móta, í samráði við stjórn, stefnu sjóðs-
ins í atvinnu- og byggðamálum á Suður-
landi.
— Að taka þátt í þróunarverkefnum á vegum
sjóðsins með þátttöku innlendra og erlendra
aðila á sviði skipulags- og byggðamála.
— Að móta og endurnýja þá vinnuferla sem
sjóðurinn vinnur eftir m.a. við verkefnamat
og arðsemis- og áhættumat þeirra verkefna
sem sjóðurinn bindur í fjármagn.
— Að vera leiðtogi þess ráðgjafahóps sem
vinnur innan vébanda sjóðsins.
— Að annast fjárvörslu og fjárstýringar á þeim
fjármunum sem sjóðurinn hefur umleikis.
Leitað er að starfsmanni sem hefur góða
menntun í rekstrarfræðum, er skipulagður í
vinnubrögðum, ertilbúinn að leggja á sig
mikla vinnu, hefur góða samskiptahæfileika
og á auðvelt með að tjá sig í ræðu og riti.
Starfsreynsla er nauðsynleg og framhalds-
menntun frá erlendum háskóla er æskileg.
Umsóknum ber að skila til Atvinnuþróun-
arsjóðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Sel-
fossi fyrir 22. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir formaður sjóðsins,
Sigurður Þór Sigurðsson í síma 482 1678 og
framkvæmdastjóri sjóðsins, Óli Rúnar Ástþórs-
son í síma 482 2419. Jafnframt er áhugasöm-
um aðilum bent á heimasíðu sjóðsins
www.south.is/atrs til frekari upplýsinga.
Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands var stofnaður 1980. Sjóðurinn er i
eigu sveitarfélaga á Suðurlandi. Um liðin áramót var eigið fé sjóðsins
liðlega 200 m. kr. Starfsmenn sjóðsins eru þrir. Hlutverk sjóðsins er að
styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Til að
rækja hlutverk sitt veitir sjóðurinn ráðgjöf, fjárhagslega styrki, áhættu-
fé og lán til áhugaverðra verkefna. Jafnframt hefur sjóðurinn frum-
kvæði að því að skilgreina og leita að nýjum atvinnutækifærum.
Sjóðurinn leggur áherslu á hraða, gæði og vönduð vinnubrögð við úr-
lausn verkefna. Sjóðurinn rækir hlutverk sitt í samstarfi við einstak-
linga, fyrirtæki, félagasamtök, önnur innlend atvinnuþróunarfélög, op-
inbera aðila og erlenda aðila á sviði skipulags- og atvinnumála.
Sjóðurinn leggur áherslu á vöxt og arðsaman rekstur, traust fyrir-
komulag við stjórnun, úrvals starfsmenn sem hafa áhuga, frumkvæði
og fá nægjanlega starfshvatningu til að veita viðskiptavinum sjóðsins
og samfélaginu fyrirmyndar þjónustu. Sjóðurinn leggur áherslu á að í
öllum samskiptum sinum við viðskiptavini verði gætt fyllsta trúnaðar.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Leikarar
Þjóðleikhúsið auglýsir lausar stöður leikara
við Þjóðleikhúsið frá og með 1. september nk.
Laun fara eftir kjarasamningi Leikarafélags
íslands við ríkissjóð.
Umsóknir berist til þjóðleikhússtjóra á skrif-
stofu Þjóðleikhússins, Lindargötu 7,
fyrir 21. maí nk.
Þjóðleikhússtjóri.
Óðinvé er vel staðsett veitingahús
f hjarta Reykjavíkur.
Frá éremótum helur Óðinsvé tekið
stakkaskiptum og leggur nú áherski
á ferskleika og frumlegheit í matar-
gerð. Öll starfsaðstaða er til fijrir-
myndar enda legqjum við ríka
Sherslu á að starfsfólk okkar sé
ekki síöur ánægt en viðskiptavirím'r.
Óðinsvé getur nú bætt við sig fólki í þjónustustörf í veitingasal
fyrirtækisins S kvöldin og um helgar.
Engrar starfereynstu er krafist, aðeins dugnaðar og samviskusemi.
Upplýsingar eru einungis veittar á
staðnum frá kl 14:00 - 7.00 frá og meða 1 sl 1j .
deginum í dag tit sunnudags.
Hrmig getum v'ið tekið matreiðstunema.
RESTAURANT
Ó Ð I N S V É
Þórsgata 1 ■ Sími: 552 5090
.við gerum gott kvöld betra!
NÁMSGAGNASTOFNUN
Vegna aukinna umsvifa í námsefnisgerð
óskar Námsgagnastofnun eftir að ráða
ritstjóra
Leitað er að starfsmönnum til að annast rit-
stjórn námsefnis fyrir grunnskóla, einkum í
heimilisfræði, samfélagsgreinum og upplýs-
inga- og tæknimennt. Aðrar námsgreinar geta
einnig komið til greina. Þá vantar ritstjóra í
fræðslumyndagerð.
Viðkomandi þurfa að hafa kennaramenntun
og kennslureynslu. Reynsla af útgáfustörfum
æskileg. Auk þessa þurfa þeir að vera reglu-
samir, skipulagðir, ákveðnir og hafa góða sam-
starfshæfileika.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu á reyklaus-
um vinnustað. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitirTryggvi Jakobsson,
útgáfustjóri, í síma 552 8088.
Umsóknir sendist Námsgagnastofnun, Lauga-
vegi 166, 125 Reykjavík, fyrir 15. maí 1999.
2. stýrimaður
óskast á frystitogarann Polar Sigli GR-50, sem
stundar karfaveiðar á Reykjaneshrygg. Æski-
legt að viðkomandi hafi reynslu af veiðum og
vinnslu á karfa.
Umsóknir sendist til Siglfirðings efh., Aðalgötu
34, 580 Siglufirði og þar eru einnig gefnar nán-
ari upplýsingar í síma 467 1518.
Siglfirðingur.
J a r ð vi n n u verkstjó ri
Maður með mikla reynslu á flestum sviðum
jarðvegsframkvæmda óskar eftir verkstjóra-
stöðu hjá traustu fyrirtæki.
Nánari upplýsingar í síma 895 7258.
Blaðbera vantar í Keflavík
Blaðberar óskast í Vallarhverfi og Vatnsholt
Nánari upplýsingar veitir umboðs-
maðurinn á staðnum, Elínborg
Þorsteinsdóttir í síma 4213463
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Atvinnutækifæri
aldarinnar?
Við sem reynt höfum vitum að svo er. Frábær
félagsskapur og einstakir tekjumöguleikar. 20
ára virt og vaxandi alþjóðlegt fyrirtæki. Já-
kvæðni og víðsýni er allt sem þarf. Við hjálpum
þér alla leið. Uppl. í s. 586 1850 og 899 9192.
Við borgum þér fyrir
að léttast!
26 manns vantar sem eru ákveðnir í að léttast
og auka orkuna, engin lyf, náttúrleg efni, ráð-
lagt af læknum.
Uppl. gefur Margrét í síma 699 1060.
Óskum eftir
vönum meiraprófsbílstjóra
og traktorsgröfumanni.
Nánari upplýsingar í síma 565 3140 og hjá
verkstjóra í síma 899 2303.
Klæðning ehf.,
Vesturhrauni 5, Garðabæ.
Viltu meira!
(miklu meira)
Þetta atvinnutækifæri er svo magnað að mig
skortir lýsingarorð!
Atorkusamir hafi samband strax í síma 897
6304 eða E-mail: dva@simnet.is.
Starfsmaður í
blikksmiðju
Óskum eftir að ráða blikksmið eða mann vanan
blikksmíðavinnu. Einnig óskum við eftir nema
í blikksmíði. Upplýsingar í síma 893 4640.
Matreiðslumenn
Óskum eftir að ráða matreiðslumann til starfa
nú þegar. Einnig vantar okkur framreiðslu-
mann. Góð laun í boði fyrir rétta aðila.
Upplýsingar í síma 421 4601.
Stýrimann og vélstjóra
vantar á 50 tonna bát með 408 hestafla
vél. Gerir út frá Norðurlandi.
Upplýsingar í síma 892 4108.
FUINJOIR/ MANNFAGNAÐUR
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
Aðalfundur Fiskeldis Eyjafjarðar hf. verður
haldinn á morgun, föstudaginn 7. maí 1999
kl. 15.30 að Fosshótel KEA, Akureyri.
Dagskrá fundarins samkvæmt samþykktum
félagsins.
Stjórnin.
Rauði kross íslands
Aðalfundur Hafnarfjarðardeildar RKÍ verður
haldinn miðvikudaginn 12. maí nk. kl. 17 í Bæj-
arhrauni 2.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Hafnarfjarðardeildar RKÍ.
Atvinnuþróunarfélag í
Garðabæ ATVG
Aðalfundurí kvöld, fimmtudaginn 6. maí kl. 20.00.
Fundarstaður ístraktor ehf., Smiðsbúð 2.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.