Morgunblaðið - 08.05.1999, Blaðsíða 1
102. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
frá Kosovo koma
til Islands í dag
Segja NATO hafa
ráðist á sjúkrahús
Sprengjur lentu á eða við kínverska sendiráðið í Belgrad
Belgrad, Moskvu, Sameinuðu þjóðunum. Reuters.
SERBNESKIR embættismenn sögðu í gær, að NATO-flugvélar hefðu
skotið á sjúkrahús í borginni Nis og klasasprengju á markaðstorg. Sögðu
þeir, að 15 manns hefðu týnt lífi og um 70 særst. Þá lentu sprengjur á eða
við kínverska sendiráðið í Belgrad og voru óstaðfestar fréttir um mannfall.
FIMMTÍU og tveir flóttamenn frá
Kosovo koma til Islands í dag en þeir
voru allir í búðum nálægt Skopje,
höfuðborg Makedóníu. Tók nokkum
tíma að velja saman hópinn því að í
ljós kom, að fólkið á listanum, sem
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna hafði útbúið fyrir Rauða
kross íslands, var allt farið. Hér er
Hólmfríður Gísladóttir, deildarstjóri
félagsmála hjá Rauða krossinum, að
sýna einum flóttamanna, Rasim
Bega, kort af íslandi. Kemur hann
ásamt konu sinni og fjórum börnum
þeirra. Kvaðst hann vera nokkuð
áhyggjufullur því hann vissi ekkert
um landið eða menninguna en teldi
þó, að kannski væri það best fyrir
fjölskylduna að fara þangað, sem
þau þekktu ekkert til. Hægra megin
við Hólmfríði er Guðjón Bragason
frá félagsmálaráðuneytinu.
■ Á ekkert/6
*
1
Wales
þingkosningarnar í Skotlandi og
Wales hafa styrkt brezka sam-
bandið og meirihluti á báðum stöð-
um hefði verið sambandsslitum
andvígur.
Kosningamar á fimmtudaginn
voru mikil tímamót í brezkri sögu.
Kosið var til heimastjórnarþinga í
Skotlandi og Wales og þær kosning-
ar voru að hluta til hlutfallskosning-
ar. Nýkjörin þing koma saman 12.
maí; bæði í bráðabirgðahúsnæðum,
en framkvæmdir eru hafnar við
þinghús í Edinborg, sem á að kosta
um sex milljarða króna. Og nýtt
þinghús í Cardiff, sem á að kosta 1,2
milljarða, verður tekið í notkun eftir
tvö ár.
■ Sjá umfjöllun á bls. 34-35
Sprengja lenti á eða við kínverska
sendiráðið í Belgrad í gærkvöld og
var haft eftir Goran Matic, ráðherra
í Júgóslavíustjóm, að 26 starfsmenn
þess hefðu slasast en enginn þó al-
varlega. Óstaðfestar fréttir voru þó
um mannfall.
Zoran Zivkovic, borgarstjóri í Nis,
sagði, að flugskeytum hefði verið
skotið á sjúkrahús borgarinnar, á
bílastæði við það og á kennsluhús-
næði. Þá sagði lögreglan í borginni,
að klasasprengjum hefði verið varp-
að á markaðstorg og væm enn um
20 ósprangnar sprengjur á svæðinu.
Fréttamenn Reuters-fréttastofunn-
ar sáu þrjú lík á götu við torgið en að
sögn týndu 15 manns lífi og um 70
særðust.
Talsmaður NATO í Brussel sagði,
að svo virtist sem einhver mistök
hefðu orðið og sprengjumar lent
annars staðar en þeim var ætlað.
Harðar árásir
á herlið Serba
Herflugvélar gerðu harða hríð að
herafla Serba í Kosovo í gær og fyrri-
nótt og segja talsmenn bandalagsins,
að hann geti nú orðið lítið hreyft sig
úr stað. Ráðist var á skriðdreka,
stórskotaliðsvopn, loftvamabyssur
og landamærastöðvar. Þá var einnig
ráðist á brú og olíugeyma í þremur
borgum, vopnageymslu og þrjá her-
flugvelli. Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, hefur lagt blessun sína
yfir samkomulag G8-ríkjanna um
lausn á Kosovo-deilunni en í megin-
atriðum felst það í því, að Serbar
flytji her sinn frá Kosovo og alþjóð-
legt gæslulið komi til héraðsins. Igor
Ivanov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, sagði hins vegar, að útilokað
væri að senda NATO-lið til Kosovo
eins og bandalagið krefðist.
Spáir samningum
en ekki falli Milosevic
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, sagði í gær, að Slobodan
Milosevic, forseti Júgóslavíu, ætti að
fallast á skilyrði bandalagsins, að
öðram kosti yrði hann knúinn til
þess. Talsmaður efri deildar
júgóslavneska þingsins ítrekaði hins
vegar í gær, að aldrei yrði fallist á
vera NATO-liðs í Kosovo, það væri
það sama og missa héraðið. Zoran
Djindjic, einn leiðtogi stjómarand-
stöðunnar í Serbíu, spáði því í gær,
að samið yrði um lausn á Kosovo-
deilunni innan skamms, að erlent
herlið kæmi til héraðsins en Milos-
evic myndi halda velli. Kvaðst hann
vona, að hann yrði þó ekki við völd
nema í nokkra mánuði því að annars
ætti Serbía sér enga framtíð, yrði að
eins konar „írak“ í Evrópu.
Samsteypustj órnir
Skotlandi og
London. Morgunblaðið.
VIÐRÆÐUR Verkamannaflokks-
ins og frjálslyndra demókrata um
stjóm í Skotlandi hefjast væntan-
lega um helgina. Verkamannaflokk-
urinn er stærstur flokka en náði
hvorki meirihluta í Wales né
Skotlandi í þingkosningunum í
fyrradag og verður því að hafa sam:
starf við aðra á báðum stöðum. I
sveitarstjómarkosningunum á
Bretlandi fékk Verkamannaflokkur-
inn 36% atkvæða, en Ihaldsflokkur-
inn vann 1.323 fulltrúa, sem forðuðu
formanninum, William Hague, und-
an fallöxinni.
Kjörsókn á Englandi var aðeins
29% og hefur aðeins einu sinni áður
verið svo léleg en það var í fyrra. I
Wales var hún 38% en 59% í
Skotlandi.
Það kom á óvart í gær, að Verka-
mannaflokkurinn skyldi ekki ná
meirihluta í Wales en Velski þjóðar-
flokkurinn sótti mjög í sig veðrið
síðustu daga kosningabaráttunnar,
eins og reyndar sá skozki líka. Hins
vegar þótt löngu ljóst, að Verka-
mannaflokkurinn myndi ekki ná
meirihluta í Skotlandi.
I sveitarstjómarkosningunum
hlaut íhaldsflokkurinn 33% at-
kvæða og frjálslyndir demókratar
27. Bæði Verkamannaflokkurinn og
frjálslyndir töpuðu mönnum; 1.014
og 126. Tony Blair forsætisráðherra
lét sér samt vel líka úrslitin og benti
á, að hann ynni sigur á aðalstjórnar-
andstöðuflokknum á miðju kjör-
tímabili ríkisstjómarinnar, sem
ekki væri nú venjan. Þá sagði hann
Flóttamennirnir
Morgunblaðið/Sverrir
15 manns týndu lífí og 70 særðust í borginni Nis
Bylting í
Guinea-
Bissau
Lissabon. Reuters.
UPPREISNARMENN innan
hersins í Vestur-Afríkuríkinu
Guinea-Bissau náðu völdum í
landinu í gær. Gáfust þá upp
síðustu hersveitimar, sem
stutt höfðu Joao Bernardo Vi-
eira, forseta landsins.
Vieira hafði verið við völd í
Guinea-Bissau síðan hann
rændi þar völdum 1980 en fyr-
ir ári hófst uppreisn gegn hon-
um innan hersins. Fyrir hálfu
ári var samið um vopnahlé en
uppreisnarmenn rufu það í
fyrradag. Ráða þeir nú öllu
landinu. Fluttu þeir Vieira í
portúgalska sendiráðið í borg-
inni og er búist við að hann fái
hæli í Portúgal. Guinea-Bissau
var áður portúgölsk nýlenda.
Talsmaður uppreisnar-
manna sagði í gær, að þeir ætl-
uðu að koma á fullu lýðræði í
landinu og myndi bráðabirgða-
stjómin, sem var skipuð með
vopnahléssamningum í fyrra,
sitja áfram og undirbúa kosn-
ingar.