Morgunblaðið - 08.05.1999, Blaðsíða 24
IfllNSIA AVCtfllNCmOMII HI./lU.C
24 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
3/^jddu uilc'/s&zji j d^J/j
u/j Jrujjjdu j ÍI/jjj-^jJujju pyj
yj'd Jqduujjj # dfjb'si dd 'pý
d ídJjj^fcddiij'jv
j'A'jrijJ konjs' uppdk*jjjju/
up uyiuyjjJUjjJup p]újju^ju>
piu/ujJU JJjJU J| JdPJO,
/Jjoztii þzss nó íátzi
... þér er til
setunnar boðið
Opiö mán.- fim. 10.00 - 18.30
fös. 10.00- 19.00
lau. 10.00-18.00
KRINGMN
VIÐSKIPTI
Á Iverð á markaði í London (lme) d Dollarar hvert tonn
iJJ
1. r 19 naí 23. júní 11. ág. 25. s 98 1998 1998 19 ept. 12. r 98 19. íóv. 18. des 5. feb. 16. mars 18 1998 1999 1999
Álverð fer
hækkandi
VERÐ á áli hefur farið hækkandi á
síðustu vikum og þrátt fyrir að stað-
greiðsluverð hafi lækkað lítillega
síðustu daga, standa vonir manna til
enn frekari hækkana. Þessar hækk-
anir ganga þvert á spá Alþjóða-
bankans í ársbyrjun en þar var spáð
áframhaldandi umframframleiðslu
áls, verðlækkunum næstu 2 árin og
að álverð færi ekki að hækka aftur
fyrr en árið 2001.
Að sögn Einars Guðmundssonar,
staðgengils forstjóra hjá ÍSAL, má
rekja verðhækkunina undanfarið til
minnkandi álbirgða á heimsmarkaði.
Astæður minnkandi birgða eru
ekki með öllu ljósar en víst er að
nokkurra áhrifa gætir í kjölfar lok-
ana á verksmiðjum hjá tveimur af
stærstu álframleiðendum heims.
Lokanimar voru aðgerð til að
bregðast við verðlækkun á áli. Af-
kastageta verksmiðjanna samanlagt
var um 120.000 tonn á ári en til
samanburðar má geta að afkasta-
geta verksmiðju Isals er 160.000
tonn og að áætlað var að umfram-
framleiðsla á heimsmarkaði árið
1999 yrði um 600.000 tonn.
Auk minnkunar á framboði er eft-
irspum eftir áli að aukast og ýmsar
skýringar hafa verið nefndar því til
skýringar. Til dæmis nefndi Einar
að stríðið í fyrrverandi Júgóslavíu
hefði áhrif á spákaupmennsku.
Fjárfestar kaupi ál í von um aukna
eftirspum og þar af leiðandi enn
hærra verð.
Einar sagði verðhækkunina hafa
mikla þýðingu fyrir ÍSAL og minnti
á að Landsvirkjun yrði líka fyrir
áhrifum þar sem orkuverð væri háð
álverðinu. Hann sagðist þó gjarnan
vilja sjá hærra verð.
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Fólk
Ráðinn fram-
kvæmda-
stjóri Ný-
sköpunar-
sjóðs
~| • STJÓRN Nýsköp-
yBBðjjHk unarsjóðs atvinnulífs-
VH ins réð í gær Úlfar
Steindórsson við-
U| 2 skiptafræðing í starf
sjóðsins í stað Páls
---»ti- kr. Pálssonar sem
Úlfar Steln- nýlega sagði starfi
dórsson Sjnu |ausu
Alls bárust 20 umsóknir um starfið
en umsóknarfrestur rann út síöastliö-
inn miðvikudag.
Úlfar Steindórsson er 42 ára gam-
all og hefur hann undanfarin þrjú ár
veriö framkvæmdastjóri Union Is-
landia, dótturfyrirtækis SÍF í
Barcelona á Spáni.
---------------
Leiðrétting
Ekki í stjórn
Burnham
í TILEFNI af frétt sem birtist í síð-
asta Viðskiptablaði Morgunblaðsins
skal teldð fram að Hannes Smárason
hjá íslenskri erfðagreiningu á ekki
sæti í stjóm Bumham International
á íslandi.
Arthur Levitt stjórnarformaður SEC í Bandaríkjunum
Varar við hættum sam-
fara netviðskiptum
NÝVERIÐ varaði Arthur Levitt,
stjórnarformaður Securities and
Exchange Commission (SEC) í
Bandaríkjunum, við hættum samfara
hlutabréfaviðskiptum á Netinu og
hvatti fjárfesta til að gæta fyllstu
varúðar við kaup og sölu bréfa á
Netinu. SEC er stofnun á vegum al-
ríkisins sem hefur eftirlit með pen-
ingamarkaði og setur reglur um
starfsemi verðbréfamiðlara.
Levitt hélt ræðu í Washington á
þriðjudag og benti þar m.a. á þann
mikla fjölda nýrra fjárfesta sem net-
viðskiptin hafa haft í för með sér.
Handhægar
hóþrýstidælur
fyrir heimilið og bílinn!
Turbostútur og sápukútur fylgja
Verðkr. 11.900,- stgr.
VERSLUN FYRIR ALLA I
Sagði hann að reynsluleysi margra
þeirra væri áhyggjuefni. Hann upp-
lýsti að meira en sjö milijónir Banda-
ríkjamanna stunduðu nú hlutabréfa-
viðskipti á Netinu og væri svo komið
að verslun á Netinu svaraði til fjórð-
ungs þeirra viðskipta sem einstakir
fjárfestar stunda á markaðnum.
Einnig kom fram í ræðu Levitts
að um það bil 15.000 nýir verðbréfa-
reikningar væru opnaðir daglega á
Netinu, að því er segir í Financial
Times.
Levitt hefur boðað hert eftirlit
með netviðskiptum en að auki hefur
verið birtur listi með vamaðarorðum
til fjárfesta og verðbréfamiðlara á
heimasíðu SEC.
„Þetta er í rauninni það sama og
við höfum brýnt fyrir okkar við-
skiptamönnum en eins og fram hefur
komið er alltaf ákveðin áhætta sem
fylgir þessu frelsi,“ segir Þorsteinn
Gunnar Ólafsson, verðbréfamiðlari
hjá Kauphöll Landsbréfa. Hann
bætir við að fólki sem ekki hefur
áhuga á viðskiptum beint gegnum
Netið bjóðist að sjálfsögðu áfram
þjónusta verðbréfamiðlara: „Við höf-
um sett upp handbók á Netinu og
hvetjum alla okkar viðskiptamenn til
að lesa hana áður en þeir fara út í
netviðskipti og að skoða fyrirtækin
vel áður en þeir fara út í kaup, láti
ekki glepjast af miklum sveiflum og
hækkunum. Að auki verðum við með
námskeið á næstu vikum til að fræða
viðskiptamenn okkar um markað-
inn,“ segir Þorsteinn.
Hjá Ragnari Þórissyni, verðbréfa-
miðlara hjá Verðbréfastofunni, feng-
ust þær upplýsingar að mikilvægast
væri að þeir sem vilja eiga viðskipti
með hlutabréf á Netinu skiptu við
ábyrg netfyrirtæki. „Fjöldi þeirra
fyrirtækja sem bjóða upp á viðskipti
á Netinu vex stöðugt og eru nú t.d.
um 200 slík í Bandaríkjunum. Af
þessum fjölda eru aðeins fáein það
sem kalla má örugg,“ segir Ragnar.
Verðbréfastofan hefur fengið sérs-
leyfi fyrir þjónustu netfyrirtækisins
E-trade en það er eitt stærsta fyrir-
tækið á þessu sviði. Að sögn Ragnars
er gert ráð fyrir að viðskiptamönnum
Verðbréfastofunnar muni gefast
kostur á að stunda netviðsldpti í ís-
lensku umhverfi strax næsta haust.
-------------♦♦♦---------
Virgin má
ekki fljúga
til Chicago
London. Reuters.
BREZKA Virgin Atlantic-flugfélagið
hefur sakað bandarísk flugmálayfir-
völd um ósveigjanleika og heldur því
fram að keppinautar félagsins hafi
komið í veg fyrir fyrirætlanir þess
um áætlunarflug milli London og
Chicago.
Bandaríska flutningamálaráðu-
neytið sagði að Virgin hefði verið of
seint á sér að sækja um leyfi til flug-
taks og lendinga á O’Hare-flugvelli
og gæti því ekki tekið upp daglegar
ferðir í sumar.
Talsmaður Virgin lét í ljós von-
brigði með ákvörðunina. Hann sagði
að ráðuneytið hefði vel getað veitt
leyfið og átti við þá stefnu þess að
hleypa nýjum félögum að á flugvöll-
um þar sem umferð er mikil.
Hann kvað „alvitað" að United-
flugfélagið hefði staðið í vegi fyrir
Virgin en talsmaður United hefur
neitað þessu.