Morgunblaðið - 08.05.1999, Síða 24

Morgunblaðið - 08.05.1999, Síða 24
IfllNSIA AVCtfllNCmOMII HI./lU.C 24 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ 3/^jddu uilc'/s&zji j d^J/j u/j Jrujjjdu j ÍI/jjj-^jJujju pyj yj'd Jqduujjj # dfjb'si dd 'pý d ídJjj^fcddiij'jv j'A'jrijJ konjs' uppdk*jjjju/ up uyiuyjjJUjjJup p]újju^ju> piu/ujJU JJjJU J| JdPJO, /Jjoztii þzss nó íátzi ... þér er til setunnar boðið Opiö mán.- fim. 10.00 - 18.30 fös. 10.00- 19.00 lau. 10.00-18.00 KRINGMN VIÐSKIPTI Á Iverð á markaði í London (lme) d Dollarar hvert tonn iJJ 1. r 19 naí 23. júní 11. ág. 25. s 98 1998 1998 19 ept. 12. r 98 19. íóv. 18. des 5. feb. 16. mars 18 1998 1999 1999 Álverð fer hækkandi VERÐ á áli hefur farið hækkandi á síðustu vikum og þrátt fyrir að stað- greiðsluverð hafi lækkað lítillega síðustu daga, standa vonir manna til enn frekari hækkana. Þessar hækk- anir ganga þvert á spá Alþjóða- bankans í ársbyrjun en þar var spáð áframhaldandi umframframleiðslu áls, verðlækkunum næstu 2 árin og að álverð færi ekki að hækka aftur fyrr en árið 2001. Að sögn Einars Guðmundssonar, staðgengils forstjóra hjá ÍSAL, má rekja verðhækkunina undanfarið til minnkandi álbirgða á heimsmarkaði. Astæður minnkandi birgða eru ekki með öllu ljósar en víst er að nokkurra áhrifa gætir í kjölfar lok- ana á verksmiðjum hjá tveimur af stærstu álframleiðendum heims. Lokanimar voru aðgerð til að bregðast við verðlækkun á áli. Af- kastageta verksmiðjanna samanlagt var um 120.000 tonn á ári en til samanburðar má geta að afkasta- geta verksmiðju Isals er 160.000 tonn og að áætlað var að umfram- framleiðsla á heimsmarkaði árið 1999 yrði um 600.000 tonn. Auk minnkunar á framboði er eft- irspum eftir áli að aukast og ýmsar skýringar hafa verið nefndar því til skýringar. Til dæmis nefndi Einar að stríðið í fyrrverandi Júgóslavíu hefði áhrif á spákaupmennsku. Fjárfestar kaupi ál í von um aukna eftirspum og þar af leiðandi enn hærra verð. Einar sagði verðhækkunina hafa mikla þýðingu fyrir ÍSAL og minnti á að Landsvirkjun yrði líka fyrir áhrifum þar sem orkuverð væri háð álverðinu. Hann sagðist þó gjarnan vilja sjá hærra verð. Viðskiptablað Morgunblaðsins Fólk Ráðinn fram- kvæmda- stjóri Ný- sköpunar- sjóðs ~| • STJÓRN Nýsköp- yBBðjjHk unarsjóðs atvinnulífs- VH ins réð í gær Úlfar Steindórsson við- U| 2 skiptafræðing í starf sjóðsins í stað Páls ---»ti- kr. Pálssonar sem Úlfar Steln- nýlega sagði starfi dórsson Sjnu |ausu Alls bárust 20 umsóknir um starfið en umsóknarfrestur rann út síöastliö- inn miðvikudag. Úlfar Steindórsson er 42 ára gam- all og hefur hann undanfarin þrjú ár veriö framkvæmdastjóri Union Is- landia, dótturfyrirtækis SÍF í Barcelona á Spáni. --------------- Leiðrétting Ekki í stjórn Burnham í TILEFNI af frétt sem birtist í síð- asta Viðskiptablaði Morgunblaðsins skal teldð fram að Hannes Smárason hjá íslenskri erfðagreiningu á ekki sæti í stjóm Bumham International á íslandi. Arthur Levitt stjórnarformaður SEC í Bandaríkjunum Varar við hættum sam- fara netviðskiptum NÝVERIÐ varaði Arthur Levitt, stjórnarformaður Securities and Exchange Commission (SEC) í Bandaríkjunum, við hættum samfara hlutabréfaviðskiptum á Netinu og hvatti fjárfesta til að gæta fyllstu varúðar við kaup og sölu bréfa á Netinu. SEC er stofnun á vegum al- ríkisins sem hefur eftirlit með pen- ingamarkaði og setur reglur um starfsemi verðbréfamiðlara. Levitt hélt ræðu í Washington á þriðjudag og benti þar m.a. á þann mikla fjölda nýrra fjárfesta sem net- viðskiptin hafa haft í för með sér. Handhægar hóþrýstidælur fyrir heimilið og bílinn! Turbostútur og sápukútur fylgja Verðkr. 11.900,- stgr. VERSLUN FYRIR ALLA I Sagði hann að reynsluleysi margra þeirra væri áhyggjuefni. Hann upp- lýsti að meira en sjö milijónir Banda- ríkjamanna stunduðu nú hlutabréfa- viðskipti á Netinu og væri svo komið að verslun á Netinu svaraði til fjórð- ungs þeirra viðskipta sem einstakir fjárfestar stunda á markaðnum. Einnig kom fram í ræðu Levitts að um það bil 15.000 nýir verðbréfa- reikningar væru opnaðir daglega á Netinu, að því er segir í Financial Times. Levitt hefur boðað hert eftirlit með netviðskiptum en að auki hefur verið birtur listi með vamaðarorðum til fjárfesta og verðbréfamiðlara á heimasíðu SEC. „Þetta er í rauninni það sama og við höfum brýnt fyrir okkar við- skiptamönnum en eins og fram hefur komið er alltaf ákveðin áhætta sem fylgir þessu frelsi,“ segir Þorsteinn Gunnar Ólafsson, verðbréfamiðlari hjá Kauphöll Landsbréfa. Hann bætir við að fólki sem ekki hefur áhuga á viðskiptum beint gegnum Netið bjóðist að sjálfsögðu áfram þjónusta verðbréfamiðlara: „Við höf- um sett upp handbók á Netinu og hvetjum alla okkar viðskiptamenn til að lesa hana áður en þeir fara út í netviðskipti og að skoða fyrirtækin vel áður en þeir fara út í kaup, láti ekki glepjast af miklum sveiflum og hækkunum. Að auki verðum við með námskeið á næstu vikum til að fræða viðskiptamenn okkar um markað- inn,“ segir Þorsteinn. Hjá Ragnari Þórissyni, verðbréfa- miðlara hjá Verðbréfastofunni, feng- ust þær upplýsingar að mikilvægast væri að þeir sem vilja eiga viðskipti með hlutabréf á Netinu skiptu við ábyrg netfyrirtæki. „Fjöldi þeirra fyrirtækja sem bjóða upp á viðskipti á Netinu vex stöðugt og eru nú t.d. um 200 slík í Bandaríkjunum. Af þessum fjölda eru aðeins fáein það sem kalla má örugg,“ segir Ragnar. Verðbréfastofan hefur fengið sérs- leyfi fyrir þjónustu netfyrirtækisins E-trade en það er eitt stærsta fyrir- tækið á þessu sviði. Að sögn Ragnars er gert ráð fyrir að viðskiptamönnum Verðbréfastofunnar muni gefast kostur á að stunda netviðsldpti í ís- lensku umhverfi strax næsta haust. -------------♦♦♦--------- Virgin má ekki fljúga til Chicago London. Reuters. BREZKA Virgin Atlantic-flugfélagið hefur sakað bandarísk flugmálayfir- völd um ósveigjanleika og heldur því fram að keppinautar félagsins hafi komið í veg fyrir fyrirætlanir þess um áætlunarflug milli London og Chicago. Bandaríska flutningamálaráðu- neytið sagði að Virgin hefði verið of seint á sér að sækja um leyfi til flug- taks og lendinga á O’Hare-flugvelli og gæti því ekki tekið upp daglegar ferðir í sumar. Talsmaður Virgin lét í ljós von- brigði með ákvörðunina. Hann sagði að ráðuneytið hefði vel getað veitt leyfið og átti við þá stefnu þess að hleypa nýjum félögum að á flugvöll- um þar sem umferð er mikil. Hann kvað „alvitað" að United- flugfélagið hefði staðið í vegi fyrir Virgin en talsmaður United hefur neitað þessu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.