Morgunblaðið - 08.05.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.05.1999, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Rasim Bega, 53 ára húsgagnasmiður frá Kosovo, hafði aldrei heyrt Islands getið fyrr en í gærkvöldi FULLTRÚAR Rauða kross Islands ræða við meðlimi Vesseli-fjölskyldunnar sem kemur til íslands í kvöld. Lengst til vinstri er Hólmfríður Gísladóttir og til hægri er Sigríður Guðmundsdóttir. Á ekkert nema lífsþróttinn Fimmtíu og tveir Albanar frá Kosovo eru væntanlegir til Is- lands í kvöld. Flótta- mannastofnun SÞ út- bjó lista yfír þá og varalista en ekki gekk þrautalaust að finna flóttamennina, margir voru farnir og aðrir ekki tilbúnir að fara til Islands. Skapti Hall- grímsson og Sverrir Vilhelmsson fylgdust með gangi mála í Makedóníu í gær og ræddu við flóttamenn sem sögðust sáttir við að fara til Islands. ÞAÐ gekk ekki þrautalaust að finna flóttamenn í Brazda-flóttamannabúð- unum í nágrenni Skopje í Makedóníu í gær til að flytjast til íslands. Flóttamannastofnun Sam- einuðu þjóðanna hafði útbúið lista fyrir starfsfólk Rauða kross Is- lands yfír það fólk sem til greina kæmi - og þar af voru 50 manns á forgangslista. í ljós kom þegar far- ið var að vínna í málinu að allir af 50 manna listanum voru farnir, og margir þeirra rúmlega 100 sem voru á varalista voru annaðhvort ekki tilbúnir að fara; dreymdi um að flytjast til Þýskalands eða Bandaríkjanna, eða voru þegar famir. Fimmtíu og tveir Albanar frá DRENGUR frá Kosovo sem býr ásamt fjölskyldu sinni heima hjá albanskri fjölskyldu í þorpinu Haradcinovo sem Morgunblaðsmenn heimsöttu í gærmorgun. talsmenn flestra ef ekki allra fjöl- skyldnanna tóku það fram að þeir væru að sjálfsögðu mjög sáttir við að fara til íslands en um tíma- bundið ástand væri að ræða; allir vildu helst fara aftur heim til Kosovo. Gengið var tjald úr tjaldi, fólk var ýmist ekki heima eða far- ið úr landi - jafnvel flutt fyrir löngu - en á endanum tókst að finna nógu marga til að flytja heim. Bróðir rafvirkjans skýtur upp kollinum Eftir að hafa gengið fram og til baka um einar búðimar, þær sem kenndar eru við Brazda, var hægt að telja nógu marga á að koma til íslands. „Ég veit ekkert um ísland hevrt Um þetta ■ BLESS, amma mín! Ungur drengur kveður ömmu sína og afa sem komu að Stankovec-flóttamannabúðunum í gær til að ræða við ætt- ingja sína. Þeir sem eru þar inni fá ekki að fara út en ættingjamir land,“ sagði Bega í samtali við Morgunblaðið. Skyndilega kemur maður að máli við íslenska hópinn sem hefur tengsl við eyjuna í norðri. Og hann vissi hvað hann vildi og allt hans fólk: „Við höfum heyrt svo margt gott um Island að við viljum ólmir komast þangað," sagði Ismail Beqiri, bróðursonur Nazmis Beqiris, rafvirkjans sem Rafiðnað- arsamband Islands tók upp á sína arma fyrir skömmu, þegar hann kom til landsins. í gærkvöldi var hins vegar ekki Ijóst hvort þrír bræður rafvirkjans - þar á meðal umræddur Ismail, bróðursonur Nazmis - fengju að fljóta með í dag. Bræðurnir eru þrír, í fjöl- skyldum þeirra eru alls 16 manns. Ein systir fylgir síðan með, ásamt manni og sex bömum. Það kemur því ekki í ljós hvort eitthvað af þessu fólki fær að koma með til Is- lands í dag. Er nokkuð áhyggjufullur Morgunblaðið ræddi nánar við Rasim Bega síðla dags í gær. Hver voru fyrstu viðbrögð hans við því að möguleiki væri á því að hann flyttist til Islands - og það strax á morgun? „Ég er nokkuð áhyggjufullur því ég veit ekkert um hvers konar land þetta er, veit ekkert um menninguna þar, en ég vissi að svo gæti að farið að best yrði fyrir mig að fara á einhvern stað sem ég þekkti ekkert og það geri ég fjölskyldu minnar vegna - til þess að henni líði sem best. Ég á engan annan kost - ég lít á þetta sem skilaboð frá Guði um að ég verði að fara þangað. Árið 1991 voru tveir synir mínir reknir úr húsinu mínu - eins og algengt er að serbneska lögreglan geri - og þeir komust til Þýskalands. Við höfum oft talað saman í síma en aldrei hist síðan en vonandi verður af því.“ Þar sem Rasim kveðst aldrei hafa heyrt um Island spurði Morg- unblaðið hann hvort ekki hefði ver- ið erfitt að ákveða með svo stuttum fyrirvara - aðeins hálfum sólar- hring - að þiggja boð um að flytj- ast til eyjunnar í miðju Atlantshaf- inu. „Nei, ég vil að fjölskylda mín öðlist betra líf, konan, börnin og við öll auðvitað. Við höfum átt í mikl- um vandræðum og ég á mér þann draum að fá að hitta syni mína tvo einu sinni enn. Draumur minn er því að komast til Þýskalands, eða núna - eftir þessa ákvörðun í kvöld - að þeir komi til mín til Islands. Nú er tækifæri fyrir þá að koma til íslands og jafnvel í frar íhaldinu að ég geti heimsótt þá til Þýska- lands.“ Vonast tíl að geta fengið vinnu sem húsgagnasmiður Rasim hefur starfað sem hús- gagnasmiður í Kosovo síðastliðin 23 ár og kveðst vonast til að geta fengið vinnu við sitt hæfi á íslandi. „Vinna mín er einnig áhugamál mitt, ég dýrka þetta fag og vil helst vinna við það áfram.“ Fjölskyldan er frá þorpi í nágrenni við höfuð- borg Kosovo, Pristina, En hvers vegna skyldi hann hafa yfirgefið þorp sitt, Ferezoy? „Vegna þess að ég óttaðist að vera drepinn. Serbar brenndu húsið mitt og allt sem ég átti. Ég missti allt - nú á ég ekkert eftir nema lífsþróttinn." Rasim og fjölskylda hans voru tvær vikur á ferðinni, eftir að hafa yfirgefíð þorp sitt, þar til þau komu til Brazda-búðanna í Makedóníu. „Við dvöldumst í skýlum hér og þar, ferðuðumst yfirleitt fótgangandi en fengum stundum far með fólki sem var á traktorum með vagna. Þetta var mjög erfiður tími, þessar tvær vikur; ég mun aldrei gleyma þessu þar til ég dey. Ættingjar koma líka Ljóst var í gærkvöldi að nokkrir ættingjar Albana sem þegar búa á Islandi fá að koma til landsins í dag; uppfylli þeir skilyrði sem slíkt fólk þarf að uppfylla til að fá að komast til landsina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.