Morgunblaðið - 13.05.1999, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Úttekt Neytendasamtakanna og verkalýðsfélaganna á GSM-gjaldskrám
Lítill munur á gjaldskrám
símafyrirtækjanna
„ÞEGAR GSM-sími er notaður í 60
mínútur á mánuði koma frelsispakk-
ar fyrirtækjanna best út,“ segir
Agústa Yr Þorbergsdóttir, starfs-
maður samstarfsverkefnis Neyt-
endasamtakanna og verkalýðsfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu, en hún
gerði nýlega úttekt á GSM-gjald-
skrám.
,Á eftir frelsispökkunum koma
frístundapakkarnir, frístundaáskrift
og frítal sem er í raun mjög eðlilegt
þar sem 60 mínútur á mánuði er
frekar lítil notkun. A heildina er lítill
munur á gjaldskrám fyrirtækj-
anna.“
Hún segir að þegar um sé að ræða
notkun í 150 mínútur á mánuði komi
Talfrelsi best út og það sé athyglis-
vert í ljósi þess að það er ætlað fyrir
minni notkun.
Þegar notendur eru famir að tala
í 250 minútur sem telst frekar mikið
er hagstæðast að vera með tímatal
200 og þar á eftir stómotendaáskrift
Símans GSM.
Dreifikerfí
Agústa segir að hjá Landssíman-
um nái dreifikerfíð til allra þéttbýl-
isstaða með yfir 300 íbúa og allra
stærstu sumarbústaðasvæðanna á
Suður- og Vesturlandi. Innan þjón-
ustusvæðis Símans GSM búa yfir
90% landsmanna.
Þá segir hún að dreifikerfi Tals
nái til höfuðborgarsvæðisins, Sel-
foss, Hveragerðis, Akraness,
Reykjaness og Vestmannaeyja en á
þessu svæði búa um 75% lands-
manna.
Stofngjald
„Stofngjaldið hjá Tali er 2.000
krónur og fær kaupandinn þá tal-
kort og símanúmer. Ef kort glatast,
skipt er um símanúmer eða þjón-
ustuleið kostar sú þjónusta 1.000
krónur og sömu upphæð ef þjón-
ustuleiðin er flutt á annan rétthafa
eða lokað er fyrir símann vegna van-
skila. Það kostar 500 krónur að loka
símanum tímabundið að ósk not-
anda.“ Agústa segir að hjá Lands-
símanum sé stofngjaldið 2.200 krón-
ur og fær þá notandinn símkort og
símanúmer. Stofngjaldið hjá GSM-
par aukakorthafa er 1.100 krónur en
það gildir aðeins í almennri áskrift.
Ef kortið glatast, skipt er um síma-
númer, eða þjónustuleið flutt á ann-
an rétthafa kostar það 1.245 krónur.
Opnunargjald ef lokað er fyrir sím-
ann vegna vanskila er 235 krónur.
Frelsi
Bæði Tal og Síminn GSM bjóða
upp á GSM-þjónustu þar sem notk-
unin er greidd fyrirfram. Þessi þjón-
usta er Talfrelsi og GSM-frelsi. Hjá
báðum fyrirtækjum er ekki um
bindingu að ræða og ekkert mánað-
argjald. Viðskiptavinurinn fær eng-
an símreikning og þarf ekki að
greiða aukalega fyrir talhólf, núm-
erabirtingu, móttöku á SMS og hægt
er að skrá númer í símaskrá. Hjá
Símanum GSM kostar startgjaldið
2.980 krónur í GSM-frelsi og hjá Tali
er startgjaldið 2.900 krónur.
títreikningarnir
„Þegar notkunin var reiknuð út
var ákveðið að miða við 50% notkun
á dagtaxta og 50% notkun á kvöld-
taxta. Hjá Símanum GSM er dag-
og kvöldnotkuninni skipt upp í 25%
innan GSM-kerfis, 68% í almenna
kerfinu og NMT og 7% í Tal GSM.“
Ágústa segir að hjá Tali sé dag-
og kvöldnotkun skipt upp í 10% inn-
an Tals og 90% í annað. í GSM-
frelsi er reiknað með 50% notkun á
daginn, 25% á kvöldin og 25% næt-
ur- og helgartaxta. Hverjum flokki
er síðan skipt upp í 10% notkun inn-
Gleðilegt sumar
Tilboðsdagar
fimmtudag - sunnudags
sAt
• Hjá okkur færðu faglega ráðgjöf
Allir runnar í pottum eru þriggja ára plöntur
Birki
Embla
Betula pubescens
60 - 80 cm
Verð áður 325,-
Nú 245,-
Afgreiðslutími:
Virkadagakl. 9.00-21.00
Um helgar kl. 9.00-18.00
Sorbus x hostii
100-125cm
Verð áður 2.160,-
Nú 1.295,-
Gjafabréf frá okkur
er góð gjöf
• Plöntulistinn okkar
auðveldar valið
GROÐRARSTOÐIN
—
STJÖKNUGRÓF18, SÍMIS8I 4288, FAX S8I 2228
Sækið sumarið til okkar
w
an Tals og 90% annað. Hjá GSM-
frelsi er dag-, kvöld og nætur/helg-
arnotkuninni skipt eins, en innan
hvers flokks er henni skipt upp í
25% innan GSM-kerfis, 68% í al-
menna og NMT og 7% í Tal.
Agústa segir að þótt verðsaman-
burðurinn sé settur upp í þessar
gefnu forsendur sé hann samt
aldrei alveg nákvæmur. Ástæðurn-
ar eru margar. „Hjá Tali er
dagtaxtinn klukkutíma lengri en hjá
Símanum GSM. Hjá Tali byrjar
helgartaxtinn í Tal-frelsi 4 klukku-
tímum fyrr en helgartaxti GSM-
frelsis. Hjá Tali er mínútuverð mælt
þannig að ávallt er borgað fyrir 20
sekúndur þegar hringt er en síðan
er talið á 20 sekúndna fresti. Þannig
borgar maður 40 sekúndur þó talað
sé í 31. Hjá Símanum GSM er mín-
útuverð mælt þannig að viðskipta-
vinurinn borgar 10 sekúndur fyrir
byrjun símtals en síðan er mælt á
sekúndufresti."
FRELSI
60 mín. 150 mín. 250 mín.
Ágústa bendir á að í Tímatals-
áskrift Tals séu frímínútur innifald-
ar. I verðsamanburðinum er þeim
dreift eftir forsendum hér að ofan.
Noti viðskiptavinurinn frímínúturn-
ar í að tala innan kerfis Tal í Tal, er
hann að tapa þar sem mínútan kost-
ar aðeins 10 krónur. í Tímatalsá-
skriftinni er sérstaklega borgað fyr-
ir að hringja í 118 eða símatorg,
þessi símtöl eru ekki innifalin í frí-
mínútunum.
Itarlegri upplýsingar fást hjá
N eytendasamtökunum.
60 mínútna notkun á mánuði
150 mínútna notkun á mánuði
Jill Miro lesgleraugu
—
JILL Miro lesgleraugu eru nú fá-
anleg á íslandi og það er Ýmus ehf.
sem sér um innflutning. Lesgler-
augun er hægt að fá í mörgum lit-
um og band fylgir öllum gleraug-
um í réttum lit. I fréttatilkynningu
frá Ýmus ehf. kemur fram að gler-
augun henti vel þeim sem eru með
sinkofnæmi og fást gleraugun í
styrkleika +1,0, +1,5, +2,0, +2,5
og +3,0. Gleraugun fást í flestum
apótekum og eru CE-merkt. Fram-
leiðandi er Optics GmbH en það er
alþjóðlegt fyrirtæki með aðsetur í
Þýskalandi. Fyrirtækið er einn
stærsti framleiðandi lesgleraugna í
Evrópu.