Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mikil óvissa í rússneskum efnahagsmálum eftir brottvikningu Prímakovs
Hætta á stjórnlaga-
kreppu í Rússlandi
Stjórnlagakreppa vofír nú yfír í Rússlandi
eftir að Borís Jeltsín storkaði þinginu í
gær með því að víkja Jevgení Prímakov úr
embætti forsætisráðherra. Brottvikningin
veldur einnig mikilli óvissu í rússneskum
efnahagsmálum og gæti grafíð undan
þeim efnahagsbata sem náðst hefur undir
stjórn Prímakovs.
, Reuters
JEVGENI Prímakov skælbrosti og faðmaði Valentínu Matvienko að-
stoðarforsætisráðherra eftir að Borís Jeltsín vék honum úr embætti
forsætisráðherra í gær. Á bak við þau eru Gennadí Kúlík (t.v.) og
Vadím Gustov, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherrar.
SÚ ákvörðun Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta að reka Jevgení Príma-
kov forsætisráðherra er líkleg til að
leiða til uppgjörs milli forsetans og
dúmunnar, neðri deildar þingsins, og
eykur líkumar á því að þingkosning-
umverði flýtt.
Akvörðunin gæti einnig leitt til
stjómlagakreppu, orðið til þess að
Rússland yrði án forsætisráðherra
um tíma, auk þess sem forsetinn á yf-
ir höfði sér málshöfðun til embættis-
missis og yfir dúmunni vofir sú hætta
að forsetinn leysi hana upp.
„Eg hygg að forsetanum hafi orðið
á mjög mikil mistök,“ sagði Gennadí
Seleznjov, forseti dúmunnar, og
spáði harðvítugum átökum milh for-
setans og stjómarandstöðunnar, sem
er með meirihluta í þingdeildinni.
Heldur Jeltsín
þingrofsvaldinu?
Jeltsín tilnefndi Sergej Stepashín,
innanríkisráðherra og fyrsta aðstoð-
arforsætisráðhema, í forsætisráð-
herraembættið en dúman þarf að
samþykkja tilnefninguna með hrein-
um meirihluta atkvæða innan viku.
Hafni dúman tilnefningunni í þrem-
ur atkvæðagreiðslum verður forset-
inn að leysa hana upp og boða til
þingkosninga. Dagsetja verður kosn-
ingarnar þannig að nýja þingið geti
komið saman ekki síðar en fjórum
mánuðum eftir þingrofið. Þangað til
hefur forsetinn vald til að skipa for-
sætisráðherra.
Það flækir hins vegar stjórnar-
kreppuna að andstæðingar Jeltsíns í
dúmunni hafa lagt til að hún sam-
þykki málshöfðun á hendur forsetan-
um til embættismissis. Verði tillagan
samþykkt með tveimur þriðju at-
kvæðanna missir forsetinn vald sitt
til að leysa dúmuna upp þar til máls-
höfðuninni lýkur.
Til að forsetinn fái þetta vald aftur
þurfa hæstiréttur og stjómlagadóm-
stóll Rússlands að vísa ákæmnum á
hendur Jeltsín frá.
Hætta á stjórnlaga-
legu þrátefli
Fréttaskýrendur segja að hætta
sé á stjómlagalegu þrátefli, sem geti
lamað öll efstu þrep stjómkerfisins.
„Þegar dúman stendur frammi
fyrir svo óskynsamlegri ákvörðun af
hálfu forsetans kann hún einfaldlega
að samþykkja málshöfðunina og eftir
það blasir við stjómlagaleg kreppa,“
sagði rússneski hagfræðingurinn
Aiexej Zabotkine. „Ljóst er að for-
setinn getur ekki leyst dúmuna upp
verði hann ákærður til embættis-
missis. Hins vegar er ömggt að
dúman hafni öllum tilnefningum
hans í embættið og hann á þá að fá
rétt til að leysa dúmuna upp.“
Verði málshöfðunin samþykkt er
óljóst hvað gerist því í stjómar-
skránni em engin skýr ákvæði um
hvað gera eigi við slíkar aðstæður.
Jeltsín gæti vísað málinu til stjóm-
lagadómstólsins og falið honum að
skera úr um hvort hann hafi vald til
að leysa þingið upp við þessar að-
stæður. A meðan gæti hann iyrir-
skipað hlé á störfum þingsins og
skipað nýjan forsætisráðherra.
„Valdið er hugmyndafræði
hans“
Jeltsín er þekktur fyrir ófyrirsjá-
anlegar uppstokkanir á stjóm sinni
frá því hann komst til valda árið
1991. Hann hefur alltaf reitt sig á
eigið innsæi þegar hann tekur
ákvarðanir og margoft rekið undir-
menn sína eða hækkað þá í tign með
skömmum fyrirvara eftir að hafa
haldið sig til hlés, að því er virðist til
að sýna að hann hafi ekki misst tökin
á stjórnartaumunum þrátt fyrir van-
heilsu sína.
„Valdið er hugmyndafræði hans,
vinur, frilla og ástríða hans,“ sagði
eitt sinn fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi
Jeltsíns, Vjatsjeslav Kostikov, um
forsetann.
Jeltsín hefur nú enn einu sinni
sýnt að hann er tilbúinn að takast á
við andstæðinga sína bjóði þeir hon-
um birginn. Forsetinn kvaðst hafa
vikið Prímakov frá vegna þess að
stjóminni hefði ekki tekist að rétta
efnahaginn við en flestir telja að
pólitísk togstreita þeirra sé megin-
ástæða brottvikningarinnar.
Sá hann ofsjónum yfir
uppgangi Prímakovs?
Vinsældir og völd Prímakovs höfðu
aukist vemlega síðustu mánuðina og
ýmislegt þótti benda til þess að
Jeltsín sæi ofsjónum yfir uppgangi
forsætisráðherrans.
Stjóm landsins var að mestu í
höndum Prímakovs, sem er 69 ára og
ári eldri en Jeltsín, meðan forsetinn
var að ná sér af blæðandi magasári.
Ymislegt hefur bent til þess síðustu
vikur að Jeltsín hafi viljað taka á ný
við stjómartaumunum. Hann rak til
að mynda einn af helstu bandamönn-
um Prímakovs í stjóminni, sýndi for-
sætisráðherranum ókurteisi með því
að grípa fram í fyrir honum á ríkis-
stjómarfundi sem sýndur var í sjón-
varpi, gagnrýndi störf stjómarinnar
og skipaði sérstakan sendimann I
Kosovo-málinu og svipti forsætisráð-
herrann því hlutverki.
Með því að reka Prímakov storkar
Jeltsín einnig dúmunni og varar
hana við því að hann hyggist bregð-
ast hart við tilraunum hennar til að
svipta hann forsetaembættinu. And-
stæðingar hans í dúmunni vilja að
hann verði ákærður til embættis-
missis, m.a. fyrir að að beita her-
valdi til að kveða niður uppreisn
þingsins í Moskvu 1993 og hefja
striðið í Tsjetsjníu 1994.
Gæti aukið líkurnar
á málshðfðun
Með því að storka dúmunni tekur
Jeltsín hins vegar þá áhættu að fleiri
þingmenn snúist gegn honum í at-
kvæðagreiðslunni á þinginu um
málshöfðunina.
„Ég hygg að við fáum 400 atkvæði
en ekki aðeins þau 300 sem við þurf-
um [til að samþykkja málshöfðun til
embættismissis],“ sagði Seleznjov.
Þingforsetinn sagði of snemmt að
ræða líkurnar á því að dúman féllist
á að Stepashín yrði skipaður forsæt-
isráðherra. Margir telja þó líklegt að
jafnvel þingmenn, sem eru hlynntir
Stepashín, ákveði að greiða atkvæði
gegn tilnefningunni til að mótmæla
brottvikningu Prímakovs.
Stöðugleikanum
stefnt í hættu
Jeltsín tilnefndi Prímakov í for-
sætisráðherraembættið í september
eftir að hann rak forvera hans,
Sergej Kíríjenko, og dúman hafnaði
fyrsta forsætisráðherraefni hans,
Viktor Tsjemomyrdín.
Prímakov var eini forsætisráð-
herrann í Moskvu eftir hrun Sovét-
ríkjanna sem notið hefur stuðnings
meirihluta dúmunnar. Hann þykir
hafa náð verulegum árangri í að
koma á pólitískum og efnahagsleg-
um stöðugleika í landinu eftir glund-
roðann í kjölfar gengishruns
rúblunnar og fjármálakreppunnar í
ágúst. Þessum stöðugleika hefur nú
verið stefnt í hættu.
Fjármálasérfræðingar segja að
brottvikning Prímakovs valdi mikilli
óvissu um fi'amvinduna í efnahags-
málum Rússlands. Þeir segja „póli-
tíska leikfléttu" forsetans stefna
þjóðarhagsmunum Rússa í mikla
hættu og raska viðkvæmu jafnvægi
milli stjórnarinnar og þingsins sem
hafi stuðlað að efnahagsbatanum á
síðustu mánuðum.
„Þessi ákvörðun hefur valdið
ringulreið í efnahags- og stjómmál-
um landsins," sagði Roland Nash,
hagfræðingur fjármálafyrirtækisins
MFK Renaissance.
„Svo virðist sem pólitískir hags-
munir hafi verið teknir fram yfir þá
efnahagslegu,“ sagði yfirmaður vest-
rænnar fjármálastofnunar sem vildi
ekki láta nafns síns getið.
Hagfræðingar segja að þýðingar-
laust sé að ræða efnahagsstefnu
Stepashíns að svo stöddu vegna
óvissunnar um hvort dúman fallist á
tilnefninguna.
„Dúman er lömuð“
Atkvæðamiklir þingmenn í
dúmunni sögðu að brottvikningin ylli
óvissu um efnahagsstefnu stjórnar-
innar og ekki væri víst að dúman
samþykkti lagafrumvörp sem AI-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett
sem skilyrði fyi’ir því að lána Rúss-
um andvirði 330 milljarða króna á
einu og hálfu ári.
„Nýja stjómin þarf að samþykkja
frumvörpin. Efnahagsstefnan ræðst
af þeirri spurningu og við verðum að
vita hver afstaða nýju stjómarinnar
er,“ sagði Alexander Zhukov, for-
maður fjárlaganefndai- dúmunnar.
„Hvaða lög getum við rætt núna?
Dúman er lömuð,“ sagði Sergej
Ivanenko, varaformaður frjálslynda
flokksins Jabloko.
„Ég hygg að við höfum ekki rétt
til að ræða þessi frumvörp fyrr en
stjórnin hefur staðfest þau,“ sagði
Níkolaj Ryzhkov, leiðtogi vinstri-
flokksins Völd fólksins.
Stjórnin virtist
á réttriIeið
Brottvikningin kom á versta tíma
þar sem stjórn Prímakovs hafði ný-
lega náð samkomulagi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabank-
ann um ný lán með fyrirvörum um
að dúman samþykkti nýja skatta og
breytingar á bankalöggjöfinni.
„Svo virtist sem Prímakov og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn væra að ná
saman og því hefur nú verið fleygt út
í buskann," sagði Nash.
Andstæðingar Prímakovs höfðu
sakað hann um láta reka á reiðanum
í efnahagsmálum og forðast raun-
veralegar kerfisbreytingar þótt hon-
um hefði tekist að bæta efnahaginn.
Verðbólgan var 38% á mánuði í
september en var 3% á mánuði í
mars. Gengi rúblunnar lækkaði um
75% eftir atburðina í ágúst en hefur
haldist stöðugt gagnvart dollarnum
að undanförnu vegna aðgerða seðla-
bankans til að stemma stigu við fjár-
magnsflótta. Aðrar hagtölur benda
til þess að stjórnin hafi verið á réttri
leið. Iðnframleiðlan minnkaði um
6,6% á síðasta ári en er nú farin að
aukast aftur sem nemur 1,4% á ári,
samkvæmt hagtölum marsmánaðar.
Dyggur
stuðnings-
maður
Jeltsíns
Moskvu. Reuters.
SERGEJ Stepashín, sem í gær
tók við starfí Jevgení Prímakovs,
forsætisráðherra landsins, hefur
verið dyggur stuðningsmaður
Borísar Jeltsíns forseta og hefur
stutt hann ítrekað í þeim póli-
tfsku væringum sem einkennt
hafa stjórnar-
far í Moskvu
undanfarin
misseri. I síð-
ustu viku færði
forsetinn
Stepashín úr
stöðu innanrík-
isráðherra í
stöðu aðstoðar-
forsætisrá-
herra. Tveimur
dögum síðar, á
ríkissljórnarfúndi sem sýndur
var í beinni sjónvarpsútsend-
ingu, skipaði Jeltsín ráðherrum
að hliðra til fyrir Stepashín svo
hann gæti setið nærri hinum
fremstu meðal jafningja.
Stepashín var einn þeirra
embættismanna sem á sínum
tíma léku afar stórt hlutverk í
hinu örlagaríka stríði í Tsjetsjn-
íu. Stepashín var yfírmaður ör-
yggislögreglu Samveldisins
(FSB), arftaka KGB, er Jeltsín
skipaði hersveitum sfnum að
ráðast til atlögu gegn uppreisn-
arhreyfingu Tsjetsjena sem
börðust fyrir sjálfstæði héraðs-
ins frá Rússlandi. Eftir blóðug
málalok gíslatökunnar í borginni
Buddenovsk í suðurhluta Rúss-
lands árið 1995, sagði Stepashín
af sér embætti yfirmanns FSB,
en birtist svo aftur á sjónarsvið-
inu nokkru síðar sem fulltrúi í
samninganefnd Rússa við
Tsjetsjena.
Haukurínn með
rjóðu kinnarnar
Jeltsín forseti skipaði Stepas-
hín í embætti innanríkisráðherra
í mars á síðasta ári eftir að hafa
rekið ríkisstjórn Viktors
Tsjernómyrdíns, þáverandi for-
sætisráðherra. Eitt fyrstu mála
Stepashíns í innanríkisráðherra-
stólnum var vandinn sem enn
snýr að Tsjetsjeníu þar sem
krafíst er fulls lögformlegs sjálf-
stæðis frá Moskvu. Meðal ann-
arra mála hefur Stepashín þurft
að beita sér í málum þeirra íjöl-
mörgu rússnesku kaupsýslu- og
embættismanna sem orðið hafa
mannræningjum frá Tsjetsjníu
að bráð.
Stepashín er lögfræðingur að
mennt og hefur í rússneskum
fjölmiðlum verið nefndur „hauk-
urinn með ijóðu kinnarnar“,
vegna hlédrægninnar sem talin
er hylja hörku hans og metnað.
Fyrstu starfsárum si'num eyddi
Stepashín meðal hersveita inn-
anríkisráðuneytisins þar sem
hann gegndi stöðu eftirlitsmanns
á vegum kommúnistafíokksins.
Þaðan sneri hann sér að kennslu
í herskóla og lagði grunn að
doktorsgráðu sinni.
Á valdatíma Mikhails Gorbat-
sjovs bauð Stepashín sig fram í
þingkosningum og tók sæti sem
þingmaður frjálslyndra. Stepas-
hín tók við formennsku í örygg-
ismáladeild æðsta ráðs þingsins
áður en hann hóf störf fyrir ör-
yggislögregluna. Er það talið til
marks um traust og trúverðug-
leika Stepashíns í starfi að hann
var einn hinna örfáu embættis-
manna innan öryggislögreglunn-
ar sem hélt starfí sínu eftir mis-
heppnaða valdaránstilraun harð-
línumanna gegn Jeltsín forseta
árið 1993.
Reuters
Sergej
Stepashín