Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 39 LISTIR Tónleikar í minningu Helga Pálssonar tónskálds SÉRSTAKIR Kópa- vogstónleikar verða í Tónleikaröð Tíbrár í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, í dag, upp- stigningardag, kl. 20.30. Sú hefð hefur skapast að efna til tón- leika í tilefni af afmæli bæjarins og eru þeir jafnan með efni tengt listalífí Kópavogs með einum eða öðrum hætti. Að þessu sinni verða tónleikar í tilefni 100 ára afmælis Helga Pálssonar tónskálds, föður listamannsins Gerðar Helgadóttur. A fyrri hluta tónleikanna verða eingöngu flutt verk eftir Helga, en síðari hluti þeirra er tileinkaður verkum annarra tónskálda úr Kópavogi. Þórunn Guðmundsdóttir syngur við undirleik Ingunnar Hildar Hauksdóttur lög eftir Helga Páls- son, Þorkel Sigurbjömsson, Ingi- björgu Þorbergs, Sigfús Halldórs- son, Hjálmar H. Ragnarsson og ís- lensk þjóðlög í útsetningu Fjölnis Stefánssonar. Helgi Pálsson var fæddur 2. maí 1899 á Norðfirði, útskrifaðist úr Samvinnuskólanum, var síðan á Spáni eitt ár og kynnti sér fisk- verslun, var um árabil kaupfélags- stjóri á Norðfirði en fluttist þá til Reykja- víkur og hóf störf hjá Sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna, þar sem hann starfaði lengst af. Helgi stundaði al- hliða tónlistamám í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Kontra- punkt hjá dr. Franz Mixa, tónsmíði hjá dr. Victor Urbancic. Hann lagði sérstaka rækt við Kammertónllist, samdi strengjakvar- tetta og svítur fyrir stroksveit en einnig fyrir fiðlu og píanó. Helgi samdi þónokkuð af sönglögum. Helgi vakti fyrst verulega at- hygli árið 1942 fyrir verk fyrir fiðlu og píanó „Stef með tilbrigðum“ sem flutt var af þeim Birni Olafs- syni og Arna Kristjánssyni á Kammermúsíkkvöldi í nóvember það ár. I minningargrein um Helga, sem rituð er af Páli ísólfs- syni, og birtist í Morgunblaðinu, fimmtudaginn 14. maí 1964, segir m.a.: „Helgi Pálsson var maður gæddur miklum gáfum, og hann lét sig allt varða sem gerðist í heimin- um. Músíkgáfan var þó sterkust í lífi hans og henni fylgdi mikill strangleiki og sjálfskrítik. Hann var að eðlisfari hlédrægur maður. Ég þekki engin verk eftir Helga Pálsson, sem ekki voru vandlega unnin og hefluð að öllum frágangi. Hann byggði list sína að miklu leyti á íslensku þjóðlögunum, sem hann útsetti oft fagurlega, en Helgi var hugmyndaríkur og laus við all- an einstrengingshátt hvað stíl snerti. Eru mörg verka hans hin áhrifaríkustu og bera vott um mikla sköpunarhæfileika." Kór Menntaskólans í Kópavogi Kópavogstónleikunum lýkur með söng Kórs Menntaskólans í Kópavogi undir stjóm Sigrúnar Þorgeirsdóttur. í 25 ára sögu Menntaskólans í Kópavogi hefur kór starfað lengst af. Öflugt kór- starf var á fyrri hluta 9. áratugar- ins, en þá stjómaði nemandi skól- ans, Gunnsteinn Ólafsson, kómum. Um tíma var lögð áhersla á upp- setningu söngleikja þar sem kórinn tók jafnan þátt. Haustið 1996 var ákveðið að koma aftur á hefð- bundnum kór við skólann. í janúar 1997 tók núverandi stjómandi, Sig- rún Þorgeirsdóttir, við kómum, sem hefur haldið tónleika og tekið þátt í kóramóti framhaldsskólanna í Reykholti í febrúar 1998 og á Unglist í október 1998, auk þess að syngja við útskriftir og önnur tæki- færi í skólanum. I apríl sl. fór kór- inn í söngferð til Isafjarðar. Helgi Pálsson tónskáld Morgunblaðið/Sig. Fannar GUNNAR Grönz meö tvö verka sinna. Alþýðulist í Galleríi Garði Selfoss. Morgunblaðið. GUNNAR Grönz opnar mál- verkasýningu í Galleríi Garði á Selfossi á morgun, föstudag. Gunnar er fæddur í Vestmanna- eyjum 1932 en fluttist til Selfoss árið 1942. Hann gefur að mestu leyti stundað málaraiðn, ekki gengið í listkúnstskóla, heldur lært af líf- inu og snillingum í litum og formi og verður því ávallt al- þýðulistmálari. Gunnar hefur verið virkur í Myndlistarfélagi Árnesinga frá stofnun þess, haldið einkasýning- ar og einnig tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin stendur til lO.júní. Agatha Kristjáns- dóttir sýnir í Tjarnarsal AGATHA Kristjánsdóttir opn- ar sína 17. málverkasýningu í Tjamarsal Ráðhúss Reykja- víkur laugardaginn 15. maí kl. 14. Myndirnar em unnar með olíu. Agatha hefur aflað sér þekkingar í gegnum sjálfsnám og hin ýmsu námskeið. Hún hefur verið meðlimur í mynd- listaklúbbi áhugamanna um árabil. Sýningin stendur til 27. maí. Súrefnisvörur Karin Herzog Kynning á morgun, föstudag, kl. 14—18 (Sauðárkróks Apóteki, Sauðárkróki, Vesturbæjar Apóteki, Melhaga, Ingólfs Apóteki, Kringlunni, Hafnarfjarðar Apóteki, Hafnarfirði. - Kynningarafsláttur - Burtfararprófstónleikar Asgeirs Asgeirssonar ÁSGEIR Ásgeirsson djassgítarleikari. BURTFARARTÓN- LEIKAR Ásgeirs Ásgeirssonar djass- gítarleikara verða haldnir í sal Tónlist- arskóla FÍH, Rauða- gerði 27, sunnudag- inn 16. maí kl. 19:30. Meðspilarar Ás- geirs á tónleikunum verða Mattías Hem- stock trommur, Gunnar Hrafnsson kontrabassi og Kjartan Valdemars- son píanó. Á efnisskránni eru, auk frumsam- inna laga, lög eftir: Charlie Parker, John Coltrane, Kenny Wheeler og Herbie Hancock. Ásgeir hefur stundað nám á gítar við Tónlistarskóla FÍH frá árinu 1992, undir handleiðslu Bjöms Thoroddsens, Eðvarðs Lárussonar, Hilmars Jenssonar, Sigurðar Flosasonar og Kjartans Valde- marssonar. S E N D I N G FRÁ LÍFEYRISSJÓÐI VERKFRÆÐINGA TIL SJÓÐFÉLAGA Lífeyrissjóður verkfræðinga hefur sent sjóðfélögum sínum yfirlit yfir móttekin iðgjöld á tímabilinu 1. júlí - 31. desem- ber 1998. Hafi einhver ekki fengið yfirlit, en dregið hefur verið af launum hans í Lífeyrissjóð verkfræðinga, eða ef yfirlitið er ekki í samræmi við frádrátt á launaseðlum, þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu sjóðsins nú þegar og eigi síðar en 31. maí nk. Verði vanskil á greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðsins geta dýrmæt réttindi glatast. GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu launþegar, innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits, ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrssjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi at- hugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyris- sjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyr- issjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna. Lífeyrissjóður verkfræðinga Engjateigi 9, 105 Reykjavík sími 568-8504 - fax 568-8834 Netfang: lvfi@isgatt.is - Veffang: www.centrum.is/lvfi DUCAT0 Verð kr. 1.580.000 án VSK VSK IoíIq Athugaðu hvað er innifalið í þessum verðum, það mun koma þér verulega á óvart. SEICENTO Verð kr. 795.000 án VSK. PALI0 Verð kr. 1.036.000 án VSK. Istraktor BÍLAR FVRIR ALLA SMIDSBÚD 2 - GARÐABÆ - SÍIX/II 5 400 800
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.