Morgunblaðið - 13.05.1999, Page 64
64 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
„Eitthvað varð
að gera“
í ÞRIÐJA kafla
Egils sögu segir frá því
þegar konungur Firða-
fylkis í Noregi hyggst
safna liði til að styðja
menn á Mæri til bar-
daga móti Haraldi
hárfagra. Firðafylkis-
konungur sendir menn
á fund Kveld-Úlfs, afa
Egils, og kveður hann
' fylgis. Kveld-Úlfur
svaraði svo: „Það mun
konungi skylt þykja að
ég fari með honum, ef
hann skal verja land
sitt og sé herjað í
Firðafylki, en hitt ætla
ég mér all óskylt að
fara norður á Mæri og
berjast þar og verja land þeirra."
Það er mikið álitamál með hvaða
hætti á að blanda sér í átök annarra
þjóða eða milli ríkja. Það er þó að-
eins aðhlátursefni að smáríld taki
virkan þátt í deilum í öðrum heims-
homum eins og utanríkisráðherrann
þykist vera að gera.
En eitthvað þurfti að gera, segja
menn með þunga, og mætti ætla af
ákafanum að Framsóknarflokkurinn
ætti hlut í samvinnufélagi í Kosovo.
Látum svo vera að eitthvað hafi
þurft að gera. Þá voru í megindrátt-
um tveir kostir fyrir hendi. Annar er
sá samkvæmt gamalli venju að hlýða
skipunum að vestan þar sem utan-
ríkisstefna íslenska ríkisins er mótuð
og henda sprengjum á Afganistan,
Súdan, írak, Serbíu, Kosovo og
styðja við drulludela í Víetnam,
Chile, E1 Salvador, bara svo fáein
dæmi séu nefnd.
Gömlu „mennirnir" - sem sömdu
Islendinga inn í Nató - voru það
hyggnir að jánka stríðs-
brölti Bandaríkjamanna
með þögninni en blönd-
uðu sér ekki að öðru
leyti í stríðsleikina. Nú
eru aðrir tímar. Nú
vilja gamlir samvinnu-
skólamenn, þar sem ör-
ugglega var ekki
kenndur gæsagangur,
fara að stríða. I fyrsta
skipti í sögu Islendinga
höfum við lýst yfir stríði
við aðra þjóð, Serba.
Þeir eru óvinir okkar.
Hvers vegna erum
við nú í styrjöld í fyrsta
skipti í sögu Islendinga
og hvers vegna er
serbneska þjóðin óvinir
okkar? Jú, vegna þess að Bandarikj-
unum í stórveldatafli sínu er nauð-
synlegt að hjúpa yfirgang sinn og
Kosovo
Nú vilja gamlir
samvinnuskólamenn,
segir Jón Torfason,
fara að stríða.
hagsmunagæslu vítt og breitt um
heiminn blæju alþjóðasamþykkis. Og
forsvarsmenn okkar hlýða eðlilega
húsbóndanum. Þeir Skugga-Sveinar
sem stjóma herjum heimsins hafa
alltaf einhvem Ketil skræk að bald
sér.
Það kann að vera að ummæli
Kveld-Úlfs, sem vora höfð að yfir-
skrift í upphafi, túlki viðhorf gamalla
bænda. A Balkanskaga hafa hins
Jón
Torfason
vegar verið ýfð upp mörg gömul sár
undanfarin ár. A styrjaldaráranum
myrtu króatískir öfgamenn
6-800.000 Serba, um 40.000 gyðinga
og 40.000 sígauna. Serbum tókst á
móti að sálga 250-300.000 Króötum.
Eftir stríðið var fólk af þýskum upp-
rana hrakið nær algerlega úr þess-
um löndum. Þetta var fyrir liðlega 50
áram.
Á árunum 1945-1980 gusu oft upp
illindi milli þjóðerna í Júgóslavíu og
sífellt þurfti að halda niðri öfgahóp-
um úr einhverri fylkingiunni. A síðari
árum hefur svo soðið illilega upp úr.
Til dæmis vora um 2-300.000 Serbar
hraktir frá heimkynnum sínum í
Kraijna og öðram svæðum í Króatíu
á áranum 1995-1997.
Það kann vel að vera að „alþjóða-
samfélagið“ eigi ekki að horfa að-
gerðarlaust upp á að fólk sé hrakið
frá heimkynnum sínum eða myrt,
eins og það hefur látið átölulítið
þjóðarmorð á Tímor, í Kúrdistan,
Súdan og Rúanda svo nokkur nýleg
dæmi séu nefnd.
En hver er hinn kosturinn? Jú,
það stendur í Víga-Glúms sögu sem
stjómarherrarnir okkar hafa líklega
ekki lesið og segir þar frá viðbrögð-
um eiginkonu eins bardagakappans:
Þess er getið að Halldóra, kona
Glúms, kvaddi konur með sér „og
skulum vér binda sár þeirra manna
er lífvænir era úr hvorra liði sem
era“.
Þegar íslendingar urðu fullvalda
árið 1918 áttu menn þær hugsjónir
að frá Islandi væri aldrei farið með
rangsleitni gegn öðram þjóðum og
lýstu yfir hlutleysi í átökum annarra
ríkja. Islendingar ættu að hafa þessa
hugsjón í heiðri, þótt seint sé, og
semja nú þegar vopnahlé við Serba
en taka síðan virkan þótt í uppbygg-
ingu á stríðssvæðunum. T.d. mætti
hugsa sér að íslendingar tækju að
sér að endurreisa svo sem eina brú
eða bæta vegarkafla, sem hersveitir
Nató hafa eyðilagt, og bæta þar með
í einhverju fyrir afglöp sín.
Höfundur er íslenskufræðingur.
) VEISTU
AF HVERjU
- VIÐ FÁUM
HRUKKUR
MEÐ ALDRINUM?
Hú&in hægir á framleiöslu Q10,
efninu sem heldur húðinni sléttri.
Nú er hægt aö fá Q10 í dag-, nætur
og augnkremi frá Nivea Visage.
Veldu þab sem hentar þér og
húðinni þinni best.
Q10 frá Nivea Visage
andlitskrem sem virka!
NIVEA
Sex mikil-
vægir þættir
líftrygginga
ATRIÐI til athugun-
ar sem svar við grein er
birtist í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 8. apríl sl.
Eg vona að þið leyfið
mér að svara greininni
sem nýlega birtist í
Morgunblaðinu varð-
andi samanburð ASI á
tveimur spamaðarleið-
um, þar sem fram kem-
ur að það sé helmingi
hagstæðara fyrir hjón á
35. aldursári og með
362.000 ISK í mánaðar-
laun að velja 2,2% við-
bótarspamað en spam-
að tengdan líftryggingu Richard
á við Sun Life. Ekki er Clarke
hægt að svara þessari
grein efnislega þar sem að mjög
stóra forsendu vantaði í áðurnefnda
grein, sem er upphæð líftryggingar-
innar hjá Sun Life en hún virtist
vera nokkuð há. En í þessu sam-
bandi vil ég benda á sex mikilvæga
þætti sem ber að athuga:
Sveigjanleiki
Augljóst er að lífeyrisspamaður
nýtur skattaívilnunar þegar framlag
er greitt, en það þarf að greiða skatt
af hagnaðinum. Síðan kemur til
fjöldi takmarkana á því hvemig og
hvenær lífeyririnn er tekinn út.
Sparnaður hjá Sun Life er ekki á
neinn hátt háður slíkum takmörkun-
um. Lífeyrinn má taka út hvenær
sem er án þess að það komi niður á
fjárfestinum, þótt við mælum ekki
með því að hefja lífeyrisspamað með
það fyrir augum að leysa hann út
innan fárra ára heldur mælum við
eindregið með því að leysa hann ekki
út fyrr en að loknum spamaðartíma.
Kostnaður
Það kann að vera að kostnaðurinn
við lífeyrisspamaðinn sé lægri hjá ís-
lenskum lífeyrissjóðum en hjá Sun
Life en öll viðskipti þurfa að sýna
hagnað, annars verða þau ekki lang-
líf. Afgjald Sun Life af tryggingum
sínum er svipaður og hjá öðrum
breskum tryggingafélögum, en hann
er með því lægsta sem gerist í heim-
inum. Við vitum að við getum boðið
hagkvæma kosti og höfum sannað að
við getum boðið mjög álitlega ávöxt-
un til langs tíma með miklu öryggi.
Fjárfesting
Islenskum fjárfestingarfyrirtækj-
um hættir til að fjárfesta mest á Is-
landi og það kunna að vera góðar
fjárfestingar. En segja má að það sé
þröng fjárfestingarstefna að fjár-
festa mest í svo litlu broti af efna-
hagsumhverfi alls heimsins og þar af
leiðandi mjög áhættusöm stefna.
Einnig má benda á að Islendingar
leggja nú þegar 10% af árlegum
tekjum sínum til lífeyrissparnaðar
sem er að mestu festur á Islandi. Þar
með er verið að setja öll eggin í sömu
körfuna, eins og sagt er í Bretlandi.
Sun Life fjárfestir hins vegar um
allan heim og hefur úr að velja allan
efnahag heimsins. Sem
fyrirtæki á heimsmæli-
kvarða (móðurfélagið,
AXA, er 16. stærsta
fyrirtæki heims, stærra
en BP, Volkswagen,
AT&T, Daimler/
Chrysler og Nestlé) er-
um við í kjörstöðu til að
fylgjast með fjárfest-
ingum og hagrænum
breytingum í heiminum.
Slík dreifð fjárfesting
hlýtur að skila meiri
arði til langs tíma auk
þess að draga úr
áhættu.
Oryggi
AXA er stór aðili í
fjárfestingaheiminum. Það er 2.
stærsta fjárfestingafélag heims og
sýslar með USD 550.000 milljónir.
Líftryggingar
Enginn myndi setja
lífeyrissparnað sinn í
hendurnar á fyrirtæki,
segir Richard Clarke,
sem hefði ekki rétta
fólkið, búnaðinn og
stjórnunina.
Laugavegi 40,
sími 561 0075.
SJAÐU
Við störfum nú í 50 löndum og fjöldi
starfsmanna er 120.000.
Þeir sem fjárfesta hjá okkur njóta
þess öiyggis sem fylgir stóra fyrir-
tæki í hagkvæmum viðskiptum og
geta treyst á að við verðum ennþá til
eftir 100 ár og þá fær um að fjárfesta
fé þeirra og greiða þeim lífeyri. Hins
vegar era lög í Bretlandi sem
tryggja eigendum lífeyrissparnaðar
90% af eign sinni ef allt annað
bregst.
Árangur
Lítið bara á árangur Sun Life í
nærri 190 ár. Hinir nútímalegu ein-
ingatengdu sjóðir voru stofnaðir fyr-
ir 22 árum og árangurinn blasir við,
fjöldi verðlauna ár eftir ár. Takið til
dæmis Dreifða sjóðinn okkar sem
hefur fengið Micropal verðlaun St-
andard & Poors fyrirtækisins nærri
því hvert ár á þessum áratug og hef-
ur skilað árlegri ávöxtun sem nemur
hvorki meira né minna en 14,1% á
ári frá því að sjóðurinn var stofnað-
ur, 1. júlí 1979. (Tölur um árangur
eins og 1.3.’99 miða við að nettó
tekjur séu endurfjárfestar. Fyrri ár-
angur af fjárfestingum er ekki nauð-
synlega ávísun á árangur í framtíð-
inni. Verð á einingum sem endur-
spegla virði fjárfestinga getur jafnt
hækkað sem lækkað og er ekki
tryggt.)
Þjónusta
Góð frammistaða um allan heim
og góð stjórnun þeirrar þjónustu
sem við veitum kostar peninga. Full-
komin og ábyggileg tækni er ekki
ódýr og sama á við um bestu sér-
fræðinga í fjárfestingum og alla aðra
fagmenn sem starfa hjá trygginga-
fyrirtæki nútímans. Þetta kostar allt
peninga en er nauðsynlegt í vel
reknu fyrirtæki. Enginn myndi setja
lífeyrisspamað sinn í hendurnar á
fyrirtæki sem hefði ekki rétta fólkið,
búnaðinn og stjómunina. Einnig
þarf að greiða miðluranum á Islandi
sem veita þjónustu þar.
Þegar allt er til tekið höfum við
mikið að bjóða. Tölurnar segja ekki
allt. Kynnið ykkur málið hjá sjálf-
stæðum vátryggingamiðlurum á Is-
landi áður en þið takið ákvörðun.
Höfundur er nwrkaðsstjóri
Axa Sun Life Intemational plc.