Morgunblaðið - 16.12.1999, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ecco
fyrir alla
fjölskylduna
Verð 8.995,-
Stærðir: 41-46
Verð 7.995,-
Stærðir: 41-46
Verð 6.495-7.495,-
Stærðir: 36-46
Verð 11.990,-
Stærðir: 36-41
Verð 8.495,-
Stærðir: 36-41
Verð 6.995-7.995,-
Stærðir: 22-35
Opið öll kvöld
til kl. 22.00
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA KRINGLAN
við Snorrobrau) - Reykjovík Krínglunni 8-12 - Reykjovík
Sími 551 8519 Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Morgunblaðið/Linda Ásdísardóttir
Kristín Eiríksdóttir afhenti Signrði Steindórssyni gjöfina.
Stórgjöf til Eyrar-
bakkakirkju
Eyrarbakka-Sunnudaginn 12. des-
ember var aðventukvöld í Eyrar-
bakkakirkju. Sr. Úlfar Guðmunds-
son, sóknarprestur og prófastur í
Árnesprófastsdæmi, stjórnaði sam-
komunni. Kirkjukórar Eyrarbakka-
og Stokkseyrarkirkna sungu við
undirleik Hauks Gíslasonar, organ-
ista. Ung stúlka, Hildur Sigur-
grímsdóttir, Iék jólaiög á fiðlu við
undirleik organistans. Ræðumaður
kvöldsins var Óskar Magnússon,
fyrrverandi skólastjóri.
Við athöfnina afhenti Kristín Ei-
ríksdóttir, leikskólastjóri, fyrir
hönd Kvenfélags Eyrarbakka, for-
manni sóknarnefndar, Sigurði
Steindórssyni, 800 þúsund kr. að
gjöf til kirkjunnar. Sigurður þakk-
aði fyrir þessa gjöf og sagði hana
ekki vera það eina sem Kvenfélag
Eyrarbakka hefði gert fyrir
kirkjuna, því félagið hefði alltaf
sýnt kirkjunni mikla vinsemd og áð-
ur gefið henni stórar gjafir.
Kvað hann þessa gjöf koma sér
ákaflega vel því enn væri nokkuð
eftir að greiða í orgelinu sem sett
var upp í kirkjunni fyrir fáum ár-
um. Einnig væri alltaf þörf á fé til
viðhalds enda kirkjan meira en ald-
argömul.
Kvenfélag Eyrarbakka var stofn-
að 1888 og er því með elstu starf-
andi félögum landsins og hreint
ekki nein ellimörk á því að sjá.
Haustveðrið
í Stykkishólmi
í kaldara lagi
Stykkishólmi-Í Stykkis-
hólmi hófust fyrst sam-
felldar veðurathuganir á
íslandi árið 1845. Það
var Árni Thorlacius
kaupmaður sem byrjaði
að skrá upplýsingarnar
niður um veðrið og því
liggja fyrir upplýsingar
um veður í Hólminum í
154 ár.
Því eru veðurathugan-
ir í Stykkishólmi mikil-
vægar fyrir allan saman-
burð. í Stykkishólmi er
veðrið tekið á þriggja
tíma fresti, nema á nótt-
unni. Hjón Sigurður
Kristinsson og Sesselja
Sveinsdóttir ásamt
börnum sjá um af lesa af
mælunum og hafa gert
það síðustu 4 ár og áður
höfðu þau einnig sinnt
veðurathugunum í nokk-
ur ár.
Fréttaritara hefur
fundist haustið nokkuð
úrkomusamt og hlýtt.
Leitað var til þeirra
hjóna og Veðurstofu um
upplýsingar um hvemig
veðrið hafi verið í raun.
Þá kom í ljós að veðrið
hefur verið mjög venju-
bundið miðað við árs-
tíma og í nóvember var
úrkoman 37,7 mm sem er aðeins 42%
af meðaltali árannal931-1960, en
það tímabil er notað til samanburðar.
Fyrsti snjórinn féll
2. nóvember
í september var meðalhiti í Stykk-
ishólmi 7,2 gráður, í október 4,9
gráður og í nóvember 1,9 gráður og
er meðalhiti þessa mánuði frá 0,3
gráðum til 0,7 gráðum undir meðal-
hita og haustið því í kaldara lagi. Ur-
koman í september var 64 mm og er
það 84% af meðalúrkomu. Október
var aftur á móti úrkomusamur. Þá
mældist 100 mm úrkoma sem er 15%
meira en í meðalári. Fyrsti snjórinn
á þessu hausti kom 2. nóvember. A
þessu sést að varlega er hægt að
treysta veðurminninu og því örugg-
ara að hafa staðfestar tölur tU sam-
burðar.
Afmælisveisla VÍS á Hornafirði
Höfn -Vátryggingafélag Islands
fagnar 10 ára afmæli félagsins á
þessu ári. Haldið hefur verið upp á
afmælið allt þetta ár á mismunandi
stöðum á landinu á misjöfnum tima
ársins. Af tilefni afmælisins bauð
umboðsmaður VIS á Höfn, Svava
Kristbjörg Guðmundsdóttir, til
fagnaðar í húsakynnum félagsins í
Landsbanka íslands. Þar var margt
um manninn, léttar veitingar í boði
og ýmislegt til skemmtunar, ljúf
tónlist leikin af Heiðari Sigurðssyni
og upplestur Guðjóns Sigur-
valdasonar leikstjóra. Það var því
sannkölluð hátíðarstemmning hjá
VÍS á Hornafirði.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Amason
Þau þurfa að fara að líta á veðurmælana á
þriggja stunda fresti. Það hafa þau gert feðg-
inin Sigurður Kristinsson og Hildur Sigurð-
ardóttir síðustu fjögur árin.
Ný hafna-
nefnd
skipuð
í SEPTEMBER á þessu ári skiluðu
af sér sameiginlegu nefndaráliti
tvær nefndir um gjaldskrá hafna og
um framtíðarskipan hafnamála. Báð-
ar þessar nefndir voru skipaðar af
samgönguráðuneytinu.
í nefndarálitinu komu fram hug-
myndir um grundvallarbreytingar á
skipan hafnamála hér á landi þar
sem áhersla var lögð á sjálfstæði
hafna og minni ríkisafskipti. Nefnd-
arálit þetta er að finna á vefslóð ráð-
uneytisins www.stjr.is/sam eða vef-
slóð Siglingastofnunar www.sigling.-
is/.
Ráðuneytið hefur nú afráðið að
framhald skuli verða á þeirri vinnu
sem að framan greinir. Til þess að
svo megi verða hefur ráðuneytið
ákveðið að skipa nefnd sem undirbúi
og semji frumvarp til nýrra hafna-
laga.
Verkefni þessarar nefndar verður
að útfæra þær hugmyndir sem fram
komu í skýrslunni frá því í septem-
ber. Nefndinni er því ætlað að skila
af sér frumvarpi til laga með grein-
argerð sem leggja megi fram til
kynningar á Alþingi helst á vorþingi
ef mögulegt er.
Nefndin skal leitast við í vinnu
sinni að hafa náið samráð og sam-
starf við sem flesta hagsmunaaðila
er hafnamál snerta þannig að sjónar-
mið þeiira komi skýrt fram.
í nefndina eru skipaðir Einar K.
Guðfinnsson, alþingismaður, sem
jafnframt er formaður hennar, Árni
Þór, formaður Hafnasambands
sveitarfélaga, Guðmundur Bjarna-
son, bæjarstjóri Fjarðabyggðar,
Hörður Blöndal, hafnastjóri Hafna-
samlags Norðurlands, og Kristinn
Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæj-
ar. Með nefndinni munu einnig
starfa Hermann Guðjónsson, for-
stjóri Siglingastofnunar, og Jóhann
Guðmundsson, skrifstofustjóri í
samgönguráðuneytinu. Ritari nefnd-
arinnar verður Sigurbergur Björns-
son, forstöðumaður hjá Siglinga-
stofnun Islands.