Morgunblaðið - 16.12.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.12.1999, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fundur utanríkisráðherra NATO-ríkja í Brussel Stuðningi lýst við sameig- inlega varnarstefnu ESB Reuters Frá fundi NATO-ráðherranna í gær. Efri röð: Halldór Ásgrímsson, ut- anríkisráðherra, Giuseppe Balbocci, sendiherra ítala hjá Sameinuðu Þjóðunum, Lidye Polfer, utanríkisráðherra Lúxemborgar, og Jozias van Aartsen, utanríkisráðherra Hollands. Neðri röð: Lois Michel, utan- ríkisráðherra Belgíu, Robertson lávarður, framkvæmdastjóri NATO, og Strobe Talbott, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. Brussel. AP, AFl’, Reuters. UTANRÍKISRÁÐHERRAR ríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) lýstu á reglulegum fundi sínum í Brussel í gær yfir stuðningi við áform um sameiginlega varnar- stefnu Evrópusambandsins (ESB). Fundurinn fagnaði áætlunum ESB-ríkja um að koma á fót sameig- inlegum hersveitum og segir í álykt- un frá í gær að þær muni „bæði styrkja getu ríkjanna til að taka þátt í verkefnum bandalagsins og auka getu ESB til eigin aðgerða." Emb- ættismaður innan NATO sagði við fréttamenn eftir fundinn að ráðherr- amir hefðu lýst vilja til að ESB fengi afnot af búnaði Atlantshafsbanda- lagsins við aðgerðir sem fram- kvæmdar væru án þátttöku NATO. Strobe Talbott, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagðist vænta þess að náið samráð og sam- starf yrði eftir sem áður milli Banda- ríkjanna og Evrópuríkja í öryggis- og vamarmálum. Talbott sat fund- inn fyrir Madeleine Albright utan- ríkisráðherra sem þurfti að vera í Washington vegna friðarviðræðna Israela og Sýrlendinga. George Robertson lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði í yfirlýs- ingu til fréttamanna að hann hefði á fundinum skynjað víðtækan stuðn- ing við það stefnumið hans að öll evrópsk aðildarríki NATO ættu að eiga þess kost að taka þátt í mótun sameiginlegrar varnarstefnu ESB. Embættismaður innan NATO, sem ekki vildi láta nafn síns getið, sagði einnig eftir fundinn að sam- staða hefði verið um að tillit yrði tek- ið til evrópsku NATO-ríkjanna sex sem standa utan ESB við mótun varnarstefnu sambandsins. Ríkin sex eru Tyrkland, Pólland, Island, Ungverjaland, Tékkland og Noreg- ur. Ráðamenn í þessum ríkjum hafa margir lýst yfir áhyggjum af því að leiðtogafundur ESB í Helsinki, sem haldinn var í síðustu viku, hafí ekki skýrt nægjanlega hvemig tryggja ætti aðild þeirra að hinni sameigin- legu varnarstefnu. Fundur utanríkisráðherranna fjallaði einnig um ástandið á Balk- anskaga og var lýst ánægju með batnandi ástand mála í Bosníu sem geri unnt að draga úr herstyrk NA- TO þar. Einnig var á fundinum vikið að umdeildu eldflaugavarnarkerfi sem Bandaríkin hafa haft áform um að koma sér upp til að verjast kjarn- orkuárás óvinveittra ríkja á borð við, Norður-Kóreu, írak og íran. Rússl- and og nokkur ríki innan NATO hafa verið andvíg því að Bandaríkin komi upp slíku kerfi. Auk þessa var fjallað um átökin í Tsjetsjníu en von er á framkvæmda- stjóra Öryggis- og samvinnustofnun- ar Evrópu, ÖSE, Knut Vollebæk, til Bmssel á morgun þar sem hann mun á síðari degi fundarins segja frá ástandinu í Tsjetsjníu. * Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra um ESB Frakkar buðust til að aflétta inn- flutningsbanni á skosku nautakjöti Hafa sent mis- vísandi skilaboð Málið vandræða legt fyrir Blair London. AFP, The Daily Telegraph. HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa gagnrýnt Evrópusambandslöndin á ráð- herrafundinum í Brassel fyrir að hafa sent frá sér misvísandi skila- boð um framtíð varnarsamstarfs- ins yfir hafið sem reynst hefði svo vel í meira en hálfa öld. Halldór sagði mikilvægt að traust og vinátta ríkti sem fyrr í samskiptum innan Atlantshafs- bandalagsins, NATO, og því hefði hann tjáð sig skýrt en vildi ekki segja að hann hefði verið beinlín- is harðorður. Aðspurður sagði Halldór að sex utanríkisráðherr- ar hefðu ekki sótt fundinn, sem væri mjög óvenjulegt, fastafund- irnir hefðu áður haft algeran for- gang. Sumir hefðu að vísu verið bundnir annars staðar en vafa- laust hefðu pólitískar ástæður verið að baki fjarvist annarra. Hann var spurður hvort hann væri sáttur við kaflana í lokayíir- lýsingu Brassel-fundarins þar sem reynt er að koma til móts við þau sex ríki NATO sem ekki era í ESB, hvort þeir dygðu til að draga úr áhyggjum og ótta við að til klofnings geti komið í NATO. „Ég tel að að það sé alls ekki ljóst. Yfirlýsingin er viðunandi að mínu mati, hún er a.m.k. ekki skaðleg en hún færir okkur lítið eða ekkert fram á við. Orðalagið er almennt en það opnar vissu- lega möguleika á því að tekið verði upp fyrirkomulag sem við getum sætt okkur við og verði í samræmi við yfirlýsingu sem gef- in var út í Washington í vor. Því er ekki að neita að bæði yfirlýs- ing Evrópusambandsins í Köln og eins núna í Helsinki era held- ur loðnar og í þeim eru ekki eins skýr skilaboð og á NATO-fundin- um í Washington. Ég tel að sambandið hafi á ýmsan hátt horfið frá Washing- ton-yfirlýsingunni og það sem frá því hefur komið hefur verið mis- vísandi og hefur skapað óvissu Eftir er að ganga frá því með hvaða hætti Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið muni vinna saman og hvaða aðgang sambandið geti hugsanlega haft að búnaði sem NATO hefur yfir að ráða,“ sagði Halldór Ásgríms- son. ÍHALDSMENN, bresk dagblöð og skoskir þjóðernissinnar gagnrýndu í gær Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fyrir að hafna tilboði Frakka um að innflutningur á skosku nautakjöti til Frakklands yrði heimil- aður. Blair var meðal annars gagn- rýndur fyrir að hafa hafnað tilboðinu án þess að ráðfæra sig við skoska heimastjórnarmenn. Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, sagði við fréttamenn í gær að frönsk stjórnvöld hefðu boð- ist til að aflétta innflutningsbanni á skosku nautakjöti sem væri af skepn- um fóðraðum á grasi eingöngu. Hann sagði að tilboðið stæði enn þrátt fyrir ákvörðun Breta. Bresk stjórnvöld svöraðu því til að ekki hefði verið um formlegt tilboð að ræða heldur uppástungu og að það hefði ekki verið talið skynsamlegt að samþykkja hana þar sem Bretar vildu að innflutningsbanni Frakka yrði aflétt af öllu bresku nautakjöti. Bresk blöð vora í gær sammála um að málið væri hið vandræðalegasta fyrir Blair en sum þeirra sögðu að út- spil Jospins væri tilraun hans til að „deila og drottna" í átökunum við Breta út af viðskiptum með nauta- kjöt. Frönsk stjórnvöld hunsuðu ákvörðun framkvæmdastjómar Evrópusambandsins í ágúst síðast- liðnum, þess efnis að innflutnings- banni á bresku nautakjöti skyldi af- létt í ríkjum ESB. Frakkar telja að enn sé ekki að fullu útilokað að neysla bresks nautakjöts geti valdið kúariðu í mönnum. Framkvæmda- stjórnin hefur gefið Frökkum frest fram á þriðjudag í næstu viku til að aflétta banninu, ella fari málið íyrir dómstól Evrópusambandsins. Samkvæmt frásögn The Daily Tel- egraph nær tilboð Frakka til naut- gripa af skosku nautgripakyni, t.d. Aberdeen Angus-kyni, sem nærast eingöngu á grasi og era um 70% allra nautgripa í Skotlandi. Formaður Skoska þjóðemis- flokksins (SNP), Alex Salmond, sagði að Blair hefði „svikið Skotland“ og krafðist þess að heimastjómin sendi frá sér yfirlýsingu um málið. Málið hefur að nýju vakið spumingar um hversu víðtækt sjálfsforræði Skotar hafi og því hefur verið haldið fram að það geti spillt sambandi stjórnvalda í London og Edinborg. 5$ f Fróbærir ksamkvæmiskjólar og dragtir til sölu eða leigu, í.öllum stærðum. Ath! eitt í nr. Fataleiga Garðabæjar Sími 565 6680 Opií 9-16, lou. 10-12 Svissneski þjóðarflokkurinn Blocher fær ekki ráðherrastól Bern. AP, AFP. CHRISTOPH Blocher, einum helsta leiðtoga Svissneska þjóðarflokksins (SVP), mistókst í gær að ná tilskild- um meirihluta á svissneska þinginu til að verða annar ráðherra flokksins1 í ríkisstjórn landsins. Svissneski þjóðarflokkurinn er einn fjögurra flokka sem mynda rík- isstjórnina og á aðeins einn ráðhema í henni en hinir flokkarnir tvo. í kosningum sem haldnar vora í haust varð Svissneski þjóðarflokkurinn annar stærsti flokkur á þingi næst á eftir jafnaðarmönnum og sóttist í kjölfarið eftir að fá annan af ráð- herrastólum jafnaðarmanna. Meirihluti 246 þingmanna þarf að samþykkja hvern og einn ráðherra í ríkisstjórninni. Blocher bauð sig í gær fram gegn samgönguráðherra jafnaðarmanna, Moriz Leuenberger, og innaríkisráðherranum Ruth Dreifuss en tapaði fyrir báðum í at- kvæðagreiðslu. Flokkamir fjórir sem mynda rík- isstjórn Sviss gerðu með sér sam- komulag árið 1959 um aðferð til að úthluta ráðherraembættum við stjómarmyndun. Kerfið hefur verið nefnt „töfralausnin" en kosningasig- ur Svissneska þjóðarflokksins í októ- ber síðastliðnum er sagður hafa raskað grandvelli þess. Bakan í hættu KANNANIR hafa sýnt að íta- lir vera æ minna hrifnir af evr- unni en nú hefur bæst við nýtt mál sem veldur andúð á ráðs- lagi embættismanna í Brassel. Þar á bæ hefur verið gefin út svonefnd gerð sem bannar ít- ölskum bökuram að nota hefð- bundna, viðarkynta ofna við að búa til böku, öðru nafni pitsu. ítalfr borða að meðaltali um sjö milljónir af bökum á dag og um 300.000 manns starfa við framleiðsluna. Bökumeistararnir segja að fari menn að nota rafmagns- eða gasofna í stað þeirra gömlu neyðist þeir til að láta nægja 350 gráða hita sem ekki sé nóg. I viðarkyntu ofnunum verði hitinn 450 gráður og þá verði bakan mjúk í miðjunni en stökk að utanverðu í samræmi við hefðirnar. Bannað að brenna fánann ÁFRÝJUNARDÓMUR í Hong Kong hefur úrskurðað að áfram skuli gilda bann við því að fánar borgarinnar og Kína séu brenndir þegar efnt er til mótmæla. Law Yuk-kai, talsmaður stofnunar sem fylg- ist með mannréttindum í borg- inni, sagði að niðurstaðan myndi skerða tjáningarfrelsi Hong Kong-búa sem njóta næstu hálfa öldina ákveðinna sérréttinda og innra lýðræðis þótt borgin teljist nú hluti Kín- verska alþýðulýðveldisins. Fulltrúar stjórnvalda í Hong Kong, þar sem æðstu menn era hlynntir kommúnista- stjórninni í Peking, vísuðu and- mælunum á bug. Eftir sem áð- ur gætu menn mótmælt að vild Strauss- Kahn yfir- heyrður DOMINIQUE Strauss-Kahn, fyrrverandi fjánnálaráðherra Frakklands, var í gær yfir- heyrður í fyrsta sinn vegna meints fjármálamisferlis sem olli því að hann varð að segja af sér embætti fyrir skömmu. Er fullyrt að Strauss-Kahn hafi þegið fé, um sjö milljónir króna, fyrir vinnu íyrir lána- sjóð stúdenta sem ekki var innt af hendi. Hugsanlegt er þó að hann hafi unnið verkið en ljóst er að ráðherrann fyrrverandi kom því í kring að dagsetning á bréfi frá sjóðnum með verk- beiðni var fölsuð. Handtökur í Jordaníu JÓRDANAR sögðust í gær hafa handtekið ellefu manns, allt innlenda borgara, en einn- ig íraka og Alsírmann sem hafi ráðgert hryðjuverk í landinu eftir að hafa hlotið þjálfun til slíkra verka í Afganistan. Þyk- ir ljóst að um sé að ræða sömu menn og Bandaríkjamenn segja að séu á snærum Saudi- Arabans Osamas bin Ladens sem hefst við í Afganistan und- ir verndarvæng Talebana- stjórnarinnar þar. Bin Laden er sagður hafa staðið fyrir hryðjuverkum gegn sendiráð- um Bandaríkjamanna í Kenýa og Tanzaníu í fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.