Morgunblaðið - 16.12.1999, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ
v64 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER1999
UMRÆÐAN
Byggðamál -
breyttar
áherslur
NÚ ER í tísku að
leggja sem flest egg í
eina körfu og sér þess
víða stað, m.a. í sam-
þjöppun byggðar, fyr-
irtækjarekstri og fjár-
málavaldi. Einokun
virðist heldur ekki
mjög varhugaverð sé
hún í hlutafélagsformi,
frjáls samkeppni lítið
kepppikefli og er orðin
aukaatriði í sumum
gi-einum.
Sé litið á samþjöpp-
un byggðarinnar á höf-
uðborgarsvæðinu
vaknar sú spurning
hvort skynsamlegt sé
að vista 70 til 80% þjóðarinnar á
mjög afmörkuðu landsvæði, sem er í
næsta nágrenni við virkar eldstöðvar
og gæti allt orðið óbyggilegt í einum
náttúruhamförum. Athyglisvert var
að það sjónarmið kom hvergi fram,
þegar þem-i spurningu var velt upp
fyrir stuttu, hvort heppilegra væri
að stækka byggðina þar til norðurs
eða suðurs!
Orkuöflun okkar er á sama veg að
mestum hluta á afmörkuðu svæði.
Þar á ég við virkjanir í Ámes- og
Rangárvallasýslum. Fyrir nokkru
var vakin athygli á að gosið hefði á
Veiðivatnasvæðinu seint á 15. öld og
þar áður um landnám. Því gæti verið
skynsamlegt að byggja leiðigarða við
virkjanir þar í grennd, til að minnka
áhættu við hugsanleg eldgos á næst-
unni. Til viðbótar má rifja upp að fyr-
ir um 8500 árum varð eitt mesta eld-
gos á nútíma á þessu svæði og rann
fram þunnfljótandi hraun með ná-
lægt 100 km hraða. Það þekur lands-
væðið milli Hvítár-Ölfusár og Þjórs-
ár og nær í sjó fram. Jafnframt eru á
þessum slóðum flekamótí jarðskorp-
unni eins og sprungur og misgengi
vitna um. Þar kann því ýmislegt að
gerast sem gæti haft afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir orkuöflun okkar.
Menntun skiptir máli
Menntun íslendinga og þekking á
umhverfi sínu hefur aukist síðustu
öldina. Það hefur leitt til þess að
landið brauðfæðir núna hátt í 300
þúsund íbúa, en áður hordrápu nátt-
úruöflin þjóðina iðu-
lega úr um 50 til 60 þús-
undum niður í um 30
þúsund manns án þess
vörnum væri við komið.
Hér búa nú um 270
þúsund manns sem
eiga líf sitt undir
breyttum skilyrðum.
Þakklátar mega þær
kynslóðir vera sem
hafa orðið þeirra lífs-
gæða aðnjótandi.
Mættu þau hafa það í
huga sem hamast sem
mest gegn nýtingu auð-
lindanna, eru jafnvel á
móti nýtingu jarðhita-
svæða, en lifa sjálf í
manngerðu umhverfi að mestu eða
öllu leyti.
Bætt skilyrði
dreifbýlis
Skynsamlegt væri fyi'ir okkur að
dreifa áhættunni með því að efla
byggð og atvinnuvegi og vinna orku
Þjóðfélagsmál
Skynsamlegt væri fyrir
okkur, segír Sverrir
Hjaltason, að dreifa
áhættunni með því að
efla byggð og atvinnu-
vegi og vinna orku víðar
en nú er gert.
víðar en nú er gert. Dýrt er að flytja
orku um langan veg, heppilegt er því
að nýta hana í grennd við fram-
leiðslustað þótt fleiri sjónarmið komi
auðvitað til álita. Fyrirtæki og fólk í
dreifbýli þarf bætt skilyrði, því þarf
að tryggja svipað verð á orku og
símaþjónustu um land allt og hætta
allri sérskattlagningu á dreifbýlið.
Þar má nefna menntunarkostnað og
kostnað við að sækja heilbrigðis-
þjónustu, svo og það fyrirkomulag að
fjórðungur þjóðarinnar, (raforku-
kaupendur RARIK og Orkubús
Sverrir
Hjaltason
Tónleikar
Heimabíó
Málfrelsi
I hvert sinn sem hönd þín nálgast BeoCenter 2300
opnast glerhurðirnar hljóðlega og dauft Ijós kviknar.
BeoCenter 2300 er fullkomið hljómflutningstæki
með geislaspilara og FM/AM útvarpi.
Það er alltaf notalegt að nálgast BeoCenter 2300.
BeoVision Avant 28" eða 32" breiötjaldssjónvarp
á rafknúnum snúningsfæti, með innbyggðu fjölkerfa
Nicam stereo myndbandstæki og öflugum hátölurum.
BeoVision Avant er næst því sem þú kemst að vera
í bíói án þess að fara að heiman.
BeoCom 6000 er ekki eingöngu þráölaus sími. Hann sýnir
þér hver er að reyna að ná í þig og þú ákveður hvort þú
svarar. Einnig geturöu tengt allt að 5 önnur símtól við sömu
línuna og haft þína eigin símstöð á heimilinu.
Með BeoCom 6000 fær fjölskyldan eitthvað til að tala um.
S
BeoCenter 2300 frá Bang & Olufsen: kr. 108.500
BeoVision Avant frá Bang & Olufsen: kr. 398.900
BeoCom 6000 frá Bang & Olufsen: kr. 29.990