Morgunblaðið - 16.12.1999, Síða 81

Morgunblaðið - 16.12.1999, Síða 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 81 I DAG FRÉTTIR Q/\ÁRA afmæli. í dag, V/fimmtudaginn 16. desember, verður níræð Lilja Vilhjálmsdóttir, Garðbraut 15, Garði. Hún dvelur á Sjúkrahúsinu í Keflavík. BRIDS Hmsjóii Guðmundur I’áll Ariiarsou INDVERJINN Jaggy Shi- vdasani hefur getið sér gott orð sem spilari í Bandaríkj- unum og unnið þar til margi-a verðlauna. Hann þykir hugmyndaríkur og snjall spilari, og hafa spil eftir hann víða birst, en sennilega hefur Zia Ma- hmood fyrstur manna kom- ið Jaggy í sviðsljósið með því að skrifa um eftirfar- andi spil í The Bridge World árið 1983: Norður * DG54 ¥ 10 * G973 * KG82 Austur ¥ DG976 ♦ 10865 *543 Suður * K93 ¥ÁK4 * ÁK2 *ÁD109 Zia var í norður, en makker hans í þá daga, Ma- sood, varð sagnhafi í sex gröndum í suður. Jaggy hélt á spilum austurs og hafði lætt inn hjartasögn og þar kom vestur út gegn grandslemmunni. Masood sá að þetta var vond slemma, sem varla yunist nema drottningin kæmi niður í tígli. Hann tók hjartaútspilið og spilaði strax spaða að litlu hjónun- um. Vestur dúkkaði rétti- lega og aftur þegar Masood fór heim á lauf til að spila öðrum spaða að blindum. Síðan tók Masood alla laufslagina og Jaggy í aust- ur tók að henda ofan af hjartalitnum: Norður * 54 ¥ — * G973 * — Austur * — ¥ 96 ♦ 10865 * — Suður AK ¥ K4 ♦ ÁK2 * — I þessari stöðu tók Ma- sood hjartakóng og síðan AK í tígli. Áætlunin var frá upphafi sú að senda nú aust- ur inn á hjarta og fá send- Ingu frá tíunni annarri í tígli upp í G9. En Jaggy hafði fylgst vel með öllu og lét hjartaníuna undir kónginn. Það var því vestur sem komst inn á hjartaáttu og hann tók síðan tvo slagi á spaða. Þessi snjalla vörn Ind- verjans unga vakti athygli Zia 0g fjótlega eftir þetta hóf Jaggy að spila í Banda- Nkjunum. Vestur *Á8 V85 ♦D4 *-_ Vestur ♦ Á10876 ¥ 8532 ♦ D4 ♦ 76 Árnað heilla Ljósmynd: Nýja myndastofan. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 18. september í Kópa- vogskirkju af sr. Eðvarð Ing- ólfssyni Sigrún S. Gísladótt- ir og Örn M. Guðjónsson. Heimili þeirra er að Lerki- grund 3, Akranesi. Ljósmynd: Edda Sigurjóns. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. júní sl. í Digra- neskirkju af sr. Þórhalli Heimissyni Bryndfs Einars- dóttir og Einar Þór Jó- hannsson. Með þeim á myndinni er dóttir þeirra Marín Rún Einarsdóttir. Heimili þeirra er á Suður- götu 39b, Hafnarfirði. SKAK Umsjóii Margeir Pétursson STAÐAN kom upp í Evr- ópukeppni landsliða í skák í Batumi í Georgíu um mánaðamótin. Pólverjinn B. Macieja (2.540) var með hvitt, en ung- verska stúlkan Júdit Polgar (2.670) hafði svart og átti leik. 30. _ Hxf2! 31. Hxf2 _ Hxf2 32. De8+ (Ekki 32. Kxf2? _ Bxg3+ 33. Hxg3 _ Dxh5 og hvítur hefur tapað drottning- unni) 32. _ Hf8 33. De7 _ e5 34. Bxe5 _ Bxe5 35. Dxe5 _ Dxd3 og með peð yfir vann Júdit skákina um síðir. Röð efstu sveita á mót- inu varð: 1. Armenía 22% v. 2. Ungverjaland 22 v., 3. Þýskaland 21 v., 4.-8. Búlgaría, Rússland, Úkra- ína, Israel og Slóvenía 20% v., 9. Hvíta-Rússland 20 v., 10.-15. England, Hollandi, Tékkland, Bosnía-Her- segóvína, Sviss og Spánn 19% v. Svartur á leik. Með morgunkaffinu Ég skil að þér finnist óþægilegt að Magnús skuli vera með kynferðis- legt áreiti, en vandamálið er að ég skil hann líka mjög vel. LJOÐABROT Jólakveðja Yfir bústað ykkar breiði ár og friður vængi sína! Jólin þangað ljúfust leiði Ijós, er foldarbörnum skína! Ekki gull né auðlegð neina eg úr fjarlægð þangað sendi, en þá bæn, að ástin hreina ykkur leiði móðurhendi. Sæl og glöð ég sé í anda sólskinið hjá vinum mínum: Ljósin björt á borði standa, börnin leika að gullum sínum. Úti gylltar stjörnur stafa strauma, sund og hvítar hæðir, milli hreinna mjallartrafa máni jólablysið glæðir. Hulda STJÖRJVUSPA eftir Franees Drake BOGMAÐURINN Afmælisbarn dagsins: Þú ert maður fjölhæfur og metnað- argjarn en þarft að gæta þín að láta metnaðinn ekki teygja þig oflangt. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Þú ert í góðu skapi en skalt muna að það getur valdið vandræðum að hlægja þegar það á ekki við. Sittu á þér því oft má satt kyrrt liggja. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú getur ekki lengur horft framhjá efasemdum þínum varðandi atvinnuna. Gefðu þér allan þann tíma sem þú þarft til að grandskoða málin. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Aa Þú ert ekki í skapi til að standa í stórræðum svo gerðu bara það sem hugur þinn stendur til því það kemur dagur eftir þennan og þá tekurðu til hend- inni. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú ert aufúsugestur en þarft þessvegna að gæta þess að misbjóða ekki gestrisni fólks. Einhver ber upp óvænta bón sem kemur þér verulega á óvart. uón (23. júlí - 22. ágúst) Freistingamar eru margar þessa dagana og þú þarft oft að halda þér fast svo þú fallir ekki fyrir þeim. Hafðu jafn- vægi á öllum hlutum. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú þarft ekki að óttast það að fara eftir innsæi þínu í veiga- miklu máli því þegar til lengri tíma er litið er þín lausn sú rétta fyrir alla aðila. Vog trt (23. sept. - 22. október) A 414 Þú stendur eins og klettur í öllu því róti sem i kringum þig er. Láttu ekki neikvæðni ann- arra og óþolinmæði hafa áhrif áþig. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Kraftur þinn hrífur aðra með þér og þeir líta til þín um for- ustu sem þú skalt taka að þér en mundu alltaf að vera hóg- vær og lítillátur. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Ai - f Þú ert hæfíleikaríkur og verð- ur að finna athafnaþrá þinni farsælan farveg. Ræddu málin við þá sem þú treystir til að gefa þér heillarík ráð. Steingeit (22. des. -19. janúar) Forvitni er mikill kostur þegar hún heldur manni vakandi gagnvart daglegum venjum. Leyfðu henni að njóta sín. Vatnsberi f (20. janúar -18. febrúar) Csm Vertu ekki súr þótt eitthvað hafi farið öðruvísi en þú ætlað- ir. Það er aldrei svo að maður geti stjómað öllum hlutum svo haltu bara þínu striki. Fiskar mt (19. febrúar - 20. mars) Þú leysir störf þín vel af hendi og setur öðmm gott fordæmi. Framlag þitt fer ekki framhjá yfirmönnum þínum. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. U mh verfis vinir með tónleika UMHVERFISVINIR standa fyrir tónleikum í beinni út sendingu á Skjá 1 á fimmtudagskvöld milli klukkan 20.30 og 23. Yfirskrift tón- leikanna er Eigi að bakka og verða þeir tileinkaðir þeirri umræðu sem á sér stað um Fljótsdalsvirkjun og Eyjabakka. Mikill fjöldi hljómsveita og skemmtikrafta kemur fram, þeirra á meðal Sigurrós, Quarashi, Daníel Ágúst í Gus Gus, Maus, Ensími, KK, Magnús Eiríksson, Páll Óskar, Skapti Olafsson o.fl. Auk tónlistar verður talað mál í brennidepli, að sögn Jakobs Frí- manns Magnússonar, fram- kvæmdastjóra umhverfis vina. Aðilum sem mæla bæði með og á móti Fljótsdalsvirkjun hefur verið boðið að leggja orð í belg á sam- komunni. Til dæmis hefur þeim ráðherrum sem mæla með framkvæmdum við Fljótsdalsvirkjun, þeim Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, Finni Ingólfssyni, iðnaðarráðherra, Hall- dóri Ásgrímsyni, utanríkisráð- herra, og Siv Friðleifsdóttur, um- hverfisráðherra, verið boðið að leggja orð í belg. Þá hefur Einari Rafni Haralds- syni, formanni Afls fyrir Austur- land, verið boðið á samkomuna sem og skemmtikraftinum Jóni Gnarr og skáldinu Hákoni Aðalsteinssyni. Fær hver og einn um tvær mínútur til að tjá hug sinn til málsins, en * með þessu móti er tryggt að báðar hliðar málsins verði reifaðar, að sögn Jakobs. Tónleikarnir verða í myndveri Nýjabíós, Skipholti 31, Reykjavík og verða 200 miðar til ráðstöfunar á tónleikana hjá Umhverfisvinum í Síðumúla 34. 9 LÍNURNAR Nýkomnir ítalskir spariskór ✓ Stínafína - CHASSE Laugavegi 47, sími 551 7345
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.