Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Spá allt að
5% fjölgun
ferðamanna
FRÉTTIR
Ibúum landsins fjölgaði um rúmlega 1.200 manns í ár vegna aðflutnings
Aðflutningur fólks hefur ekki
verið meiri í rúman áratug
RÚMLEGA 1.200 manns fluttust til
landsins umfram þá sem fluttu af
landi brott á árinu 1999 og hefur að-
flutningurinn ekki verið jafnmikill í
meira en áratug eða frá árinu 1988
að því er kemur fram í frétt Þjóð-
hagsstofnunar um búsetuþróunina í
ár. Þá er áætlað að brottflutningur
fólks af landsbyggðinni umfram að-
flutta í ár hafi numið 1.340 manns,
sem er um 1,2% af íbúafjölda lands-
byggðarinnar, en það er nokkru
minni brottflutningur en verið hefur
síðustu fjögur árin.
Fram kemur að samkvæmt
bráðabirgðatölum Hagstofunnar um
mannfjölda 1. desember hafi þjóð-
inni fjölgað um rúmlega 3.400
manns milli ára og þar af um rúm-
lega 1.200 manns vegna aðflutnings
frá útlöndum. Brottfluttir umfram
aðflutta af landsbyggðinni voru
1.340, sem er heldur minna en síð-
ustu ár, en árin 1996-98 var brott-
flutningur af landsbyggðinni til höf-
uðborgarsvæðisins meiri en
nokkurn tíma áður, að því er fram
kemur.
í fréttinni er ennfremur að finna
íbúatölur einstakra landsvæða og
hlutfallslega þróun í íbúafjölda síð-
ustu tíu árin. Á þeim tíma hefur
fjölgun einungis orðið í Eyjafirði,
Áustur-Skaftafellssýslu, Árnessýslu
og á Suðumesjum, auk höfuðborg-
arsvæðisins, þar sem fjölgunin er
mest bæði hlutfallslega og í tölum.
Fólksfækkun er hins vegar mest á
Vestfjörðum, í Dölum og á sunnan-
verðum Austfjörðum.
Jafnfi-amt kemur fram að ef
Vilja að mál-
ið verði tekið
upp að nýju
KENNARAR við Tónlistarskóla
Garðabæjar samþykktu á fundi í
gærkvöldi yfirlýsingu vegna ráðn-
ingar skólastjóra við skólann:
„Fyrri yfirlýsing var ítrekuð þar
sem fram komu mótmæli gegn þeirri
málsmeðferð sem ráðning skóla-
stjóra við Tónlistarskóla Garðabæj-
ar hlaut hjá bæjaryfirvöldum. Bæj-
arstjórinn sniðgekk með öllu tillögu
skólanefndar um skólastjóraefni.
Kennarar skólans eru hneykslaðir á
þessu enda bera þeir fullt traust til
skólanefndarmanna sem hafa fylgst
grannt með innra starfi skólans.
Á fundi kennara með bæjarráði
kom fram að ráðning skólastjóra
grundvallaðist á meðmælum. Að svo
stöddu virðist sem hluti gagna eins
umsækjanda, þar á meðal meðmæli,
hafi ekki borist í hendur þeirra sem
um málið áttu að fjalla. Ef þetta
reynist rétt hljóta að hafa átt sér
stað alvarleg mistök. Að þessu sögðu
vilja kennarar að málið verði tekið
upp aftur frá grunni."
íbúaþróun síðustu fimm ára er borin
saman við fimm árin þar á undan er
ástandið nú verra á öllum landsvæð-
um landsbyggðarinnar nema á
Akranesi og í Dalasýslu. Þá segir að
ein athyglisverðasta breytingin sem
orðið hafi á íbúafjölda einstakra
svæða sé á Akranessvæðinu. Þar
hafi íbúum fjölgað um 266 frá árinu
1966 eða um 4,7%. Segir að áður en
ráðist hafi verið í stóriðjufram-
kvæmdir á Grundartanga hafi verið
áætlað að fyrirsjáanlegum breyting-
um á atvinnulífi svæðisins myndi
fylgja um 500 manna fjölgun, en
annars mætti búast við áframhald-
andi fækkun. Segir jafnframt að
þróunin renni stoðum undir nýlegt
mat Þjóðhagsstofnunar á stað-
bundnum áhrifum af byggingu ál-
vers í Reyðarfirði.
FERÐASKRIFSTOFURNAR spá |
3-5% fjölgun erlendra ferðamanna til
íslands á næsta ári. Þó eru taldar
blikur á lofti vegna mikilla kostnað- r
arhækkana.
Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðu-
maður innanlandsdeildar Samvinnu-
ferða-Landsýndar, segir að gengi ís-
lensku krónunnar sé sterkt og
þjónusta hafi hækkað innanlands.
Það komi hugsanlega til með að
hægja á fjölgun ferðamanna. Þó seg-
ir hún allt stefna í að það verði aukn- |
ing á árinu. Hún segir að einkum
virðast ætla að verða aukning í ráð-
stefnu- og hvataferðum til landsins.
„Menn hafa verið duglegir að spá
um fjölgun ferðamanna en það þarf
að fara gætilega í sakirnar. Verð
skiptir afar miklu máli og það er allt-
of hátt,“ segir Sigríður. Hún segir að
meðaltalshækkun milli ára á þjón-
ustu innanlands sé líklega í kringum
10%. Þá vegi hátt gengi íslensku
krónunnar einnig þungt. Á þessum |
árstíma í fyrra hafi þýska markið
t.a.m. jafngilt um 42 krónum en það
sé komið niður í 37 krónur núna.
Engu að síður virðist vera útlit fyrir
fjölgun ferðamanna.
Ulfar Antonsson, forstöðumaður
innanlandsdeildar Úrvals-Útsýnar,
segir að á undanförnum árum hafi
yfn-leitt verið á bilinu 3-7% fjölgun
ferðamanna til landsins milli ára.
„Við reiknum með því að það verði
a.m.k. 5% fjölgun á næsta ári. Því k
miður er orðið dýrara að komast til
íslands. íslenska krónan er sterk
þannig að t.d. norrænu gjaldmiðlarn- »
ir hafa lækkað um allt að 10% og þai'
að auki hafa orðið kostnaðarhækkan-
ir frá 3-4% og allt upp í 10% eða jafn-
vel meira. í sumum tilvikum er það
jafnvel orðið allt upp í 20% dýrara að
koma til Islands,“ segir Úlfar.
—-----------
Handteknir
vegna
ólöglegra
skotelda
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði af-
skipti af nokkrum mönnum í gær-
kvöldi sem höfðu ólöglega skotelda í
fórum sínum.
Tveir menn voru handteknir og
færðir til yfirheyrslu vegna málsins
og í framhaldinu lagði lögreglan hald
á töluvert magn af ýmiskonar ólög-
legum skoteldum.
Málið er í rannsókn lögreglunnar.
---♦nþ-4----
I roki og
rigningu
Það er ekki tekið út með sældinni
að stunda útivinnu á íslandi yfir há-
veturinn. Það máttu smiðirnir
reyna sem unnu í rigningu og roki á
þaki nýbyggingar í Grafarvogi í
gær.
Morgunblaðið/Golli
Sérblöð í dag
Viðskiptabiað
Morgunblaðsins
Helgi skoraði tvö
í Grikklandi C/2
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
Þorbjörn Jensson
glímir við meiðsli C/1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is