Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 30. DÉSEMBER 1999 39
sjálfstæðum skoðunum og eigin
sannfæringu. Katrín Fjeldsted og
Ólafur Örn Haraldsson heyra svo
að segja til algjörra undantekninga.
Um frammistöðu stjórnarand-
stöðunnar mætti eflaust skrifa
langt mál, en það verður látið ógert
hér. Hún er sennilega sjálfri sér
verst, en eitt er víst að Sjálfstæðis-
flokkurinn á mest, ef ekki allt, þ.e.
vöxt sinn og viðgang, sundruðum
vinstriöfium að þakka. Það eru
bæði ný og gömul sannindi.
Snúum okkur nú aftur að þing-
fundinum á fímmtudaginn. Það er
ekki ofsagt að forseti Sameinaðs
Alþingis, Halldór Blöndal hafi farið
á kostum í pontu sinni. „Tölvu-
væddur“heili hans klikkað að vísu
þegar síst skyldi fyrir hann, en
þingheimi öllum hins vegar til
óblandinnar ánægju. Endur fyrir
löngu var þessari stofnun líkt við
„Gaggó Vest“ af þjóðkunnum
manni og er sú lýsing ef til vill ekki
svo fjarri sanni.
Hlátrasköllunum linnti ekki og
handagangurinn hófst á nýjan leik í
öskjunni, nánar tiltekið konfekt-
öskjunni. Konfektkassai- af stærstu
gerð gengu nú milli alþingismanna,
sem kunnu velflestir að meta þetta
fína gotterí. Okkur félögum úr Að-
gerðarhópi aldraðra, sem sátum
afgirtir upp á þingpöllum, varð
einkum starsýnt á Hjálmar Árna-
son, sem hesthúsaði hvern konfekt-
molann á fætur öðrum. Ég er alls
ekki frá því að stjómarsinnar hafi
verið iðnaðri við kolann eða réttara
sagt konfektið en stjórnarandstæð-
ingar. Hinir síðarnefndu tóku að
minnsta kosti langtum oftar til
máls, en hinir fyrrnefndu máttu ef
til vill ekki mæla vegna þess að
þeir vom með munninn fullan af
nammi.
Rétt er að undirstrika þá stað-
reynd hér að ekki hnutu neinir
molar af borðum alþingismanna til
okkar öldruðu áheyrendanna á
þingpöllunum. Þeir voru greinilega
sér líkir og sjálfum sér
næstir. Þeirra laun eru
hækkuð upp úr öllu
valdi, en öldruðu fólki
og öryrkjum er
skammtað úr hnefa.
Fjármálaráðherrann,
Geir Haarde, virðist
aldrei þreytast á því að
guma af óvenju miklum
tekjuafgangi á fjárlög-
um. í ljósi þeirra stað-
reynda hefði ekki verið
hægur vandi að bæta
kjör þeirra, sem minnst
hafa á milli handanna?
Hvað munar um einn
kepp í sláturtíðinni eða
með öðrum orðum mitt
í bullandi góðærinu?
Þar sem ég er líka kominn í jóla-
skap, vildi ég vinsamlega benda
stjórnarherrunum á
hvemig þeir geta
sparað útgjöld varð-
andi okkur eftirlauna-
fólkið og það meira
að segja stórlega.
Besta og sennilega
einasta ráðið til að
losna við það væri
hreinlega að stytta
því aldur. Væri það
ekki líka mikill léttir
að losna við þessa
öldruðu nöldurseggi,
sem aldrei vilja
þagna? Fyrir um það
bil tveimur árum
stakk ég upp á því í
greinarkorni að gaml-
ingjum yi-ði alls ekki leyft að lifa
lengur en til 75 ára aldurs. Um
svipað leyti tók samherji minn,
Halldór
Þorsteinsson
Alþingismenn
í jólaskapi
Árni Björnsson læknir, líka í sama
streng í þjóðkunnu málgagni, ef
mig misminnir ekki.
Ymsar leiðir eru vitanlega færar.
Eftir því sem fréttir herma voru
um það bil 60 gamalmenni svelt í
hel á sjúkrahúsi - eða húsum í
Englandi. Þetta er bara ein leið af
ótal mörgum. Kæru stjórnarherrar,
þið væruð manna vísastir til að rata
á aðrar aðferðir, sem væru í senn
bæði ódýrari og fljótvirkari. Kæru
stjórnarherrar, ég óska ykkur gleði
á jólum, friðai- og farsaældar á
komandi ári. Megið þið lengi lifa,
en auðvitað ekki lengur en til 75
ára aldurs, ella munduð þið brjóta
landslög, sem þið munið vitaskuld
aldrei láta um ykkur spyrjast.
Höfundur er skólastjórl Málaskóla
Halldórs.
ekki á því að deila sælgætinu með
okkur frekar en lífsgæðunum. Mis-
skipting þeirra fer því miður vax-
andi með hverjum degi sem líður.
Með leyfi að spyrja, hvaðan kom
þetta konfekt? Var kannski verið
að bera fé eða ígildi þess í dóminn,
sjálfan helgidóminn, Álþingi Islend-
inga, eða var það ef til vill keypt
fyrir fjármuni skattborgaranna?
Með öðrum orðum f'yrir fé alls al-
mennings í landinu.
Stjórnarherrarnir eru sjálfum
5úrd&íísvörur
Karin llerzog
v Vita-A-Kombi olía
AIDAM01A
RÝMINGARSALA
Við kveðjum öldina með því að selja eldri
árgerðir af fata-og skólager með allt að
afslætti
RUSSELL
ATHLETIC
frákl
BinaooDiis
CONVERT
<&>Columbia
"V Sportswear Company*
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeifijnni 19 - S. 568 1717-
FIMMTUDAGINN hinn 16.
þessa mánaðar voru 30 mál á dag-
skrá á Alþingi íslendinga, þeirra á
meðal málefni aldraðra og öryrkja,
nánar tiltekið afkoma þeirra og
launakjör. Það er ekki ofmælt að
það hafi verið heldur betur handa-
gangur í öskjunni eða öllu heldur
tölvunni, sem sýndi hvernig at-
kvæði féllu þennan sögulega
fimmtudagsmorgun. Það er ef til
vill ekki í frásögur færandi að fylg-
isspakir og flokksagaðir stjórnar-
sinnar hafi fellt sérhverja tillögu
eða breytingartillögu stjórnar-
andstöðunnar. Að þeirra dómi hef-
ur hún aldrei neitt gagnlegt né
skynsamlegt til málanna að leggja.
Mér er spurn hvort menn sem
aldrei ljá skoðunum andstæðinga
sinna eyra, geti með nokkrum rétti
kallað sig sanna lýðræðissinna.
Auðsætt er að við eigum enn mikið
ólært í þeim efnum. Á Alþingi ís-
lendinga fer sárgrætilega lítið fyi-ir
Molar
Rétt er að undirstrika
þá staðreynd hér, segir
Halldór Þorsteinsson,
að ekki hnutu neinir
molar af borðum al-
þingismanna til okkar
öldruðu áheyrendanna á
þingpöllunum.