Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Síðasta kvikmyndasýning aldarinnar í Háskólabíói
Morgunblaðið/Sverrir
Þorbjörn Orri og Karl eru skemmtilegir gæjar sem sýna góðar kvik-
myndir báðum megin árþúsundaskiptanna.
Undir lok
veraldar
KLUKKAN 23 í kvöld verður hald-
in í Háskólabíó sýning á kvikmynd
Wim Wenders „Until the End of the
World“ og verð-
ur það seinasta
sýning bíósins á
þessari öld. Val-
ið á kvikmynd-
inni sem Wend-
ers gerði árið
1991 er einkar
viðeigandi en
hún á að gerast í
lok ársins 1999,
og fjallar um
mann sem ferðast um allan heiminn
til að finna aðferð til að láta blinda
sjá en mamma hans er blind. Það
eru fínir leikarar í myndinni en
ferðalanginn leikur William Hurt
og lagskonu hans leikur Solveig
Dommartin, eiginkona leikstjór-
ans. Móðurina leikur hin franska
Jeanne Moreau og föður hans hinn
sænski Max von Sydow sem klikkar
aldrei. Öðrum ágætum leikurum
eins og Sam Neill, Rudiger Vogler
og Eddie Mitchell má einnig sjá
bregða fyrir.
I stcirtholunum
„Myndin er 158 mínútur á lengd
og teygir sig því langt inn í seinasta
dag aldarinnar," segja félagamir í
Hreyfimyndafélaginu sem stendur
fyrir sýningunni. Félagið hefur Ieg-
ið niðri um tima en þrír hressir ná-
ungar í bókmennta- og stjórnmála-
fræði í Hákólanum; Þorbjörn Orri
Tómasson, Karl Geirsson og Skorri
Gíslason, hafa verið að blása lífi í
það á nýju. Þeir sýndu mynd Rom-
ans Polanskis „Chinatown" í lok
nóvember og ásamt Endalokunum
er þær sýningar upphaf kröftugs
starfs innan félagsins að sögn Karls
og Þorbjarnar Orra.
„Við munum standa fyrir mánað-
arlegum sýningum á einhverri
góðri mynd auk þess að bjóða upp á
forsýningar á nýjum myndum fyrir
nemendur Iláskólans og jafnvel
standa fyrir tónleikum. Einnig er-
um við að skipuleggja þem sýningu
sem haldin verður í vor yfir heila
helgi á nokkrum myndum sem eiga
eitthvað áhugavert sameiginlegt,"
segja þeir. „Okkur langar að halda
alls konar uppákomur varðandi
kvikmyndir fyrirlestra, uin-
ræðukvöld og jafnvel kvikmynda-
hátíð,“ segja Karl og Þorbjörn Orri
stórhuga ungir menn sem eru að
ganga inn í nýja kvikmyndaöld.
Laugavegi 61, sími 552 4910
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 77^ -
T-
Mei^tara, t .
25.000 kr.pðkBlllJl,
tfytt
datnSta
pakkinn
14.000 fcr.
2000
20.000 krTafekinn
tcl deri$t ct3eins
eiura , 9
<x cevin.ni/
I tilefni árþúsundamótanna og allra íslandsmeistaratitlanna
hafa KR-flugeldar sett saman þrjá flugeldapakka sem eiga enga
sína líka. Þeir fást aðeins hjá KR-flugeldum.
Nú er rétta tækifærið til að dúndra almennilega!
Skjóttu nýrri kynslóð
upp á stjörnuhimininn!
KR selur flugelda í hæsta gæðaflokki
til styrktar ungum íþróttamönnum í hæsta gæðaflokki!
Sölustaðir:
"k KR-heimilið Frostaskjóli
"k Bílasalan Skeifunni 5
* Hagabúðin Hjarðarhaga
1 Barnapakkinn
2 Sparipakkinn
3 Bæjarins besti
4 Trölli
1.500 kr.
2.600 kr.
3.700 kr.
6.900 kr.
r-*r*'** 1 ujeco^* J
j