Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elsku maðurinn minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, HERMANN BJARNASON bóndi, Leiðólfsstöðum, Laxárdal, Dalabyggð, lést á St. Fransiskussjúkrahúsinu í Stykkishólmi föstudaginn 24. desember. Útförin fer fram í Dalabúð þriðjudaginn 4. janúar Jarðsett verður frá Hjarðarhólskirkju. Rútuferð verður frá BSÍ kl. 10.00 sama dag. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á St. Fransiskussjúkrahúsið í Stykkishólmi. Sigrún Guðný Jóhannesdóttir, Bjarni Hermannsson, Bogdís Una Hermannsdóttir, Ólafur Þorvaldsson, Unnsteinn Kr. Hermannsson, Ásta Kr. Guðmundsdóttir, Valdís S. Óskarsdóttir, Ólafur Pálmason, Pétur J. Óskarsson, Ása María Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, fósturmóðir okkar, systir, mágkona og frænka, ANNA ÖRNÓLFSDÓTTIR, Austurgerði 7, Reykjavík, áðurtil heimilis á Langholtsvegi 20, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 30. desember kl. 10.30. Kristján Tryggvi Jóhannsson, Þorvarður Árnason, Soffía Auður Birgisdóttir, Christine Carr, Þorvarður Örnólfsson, Anna Garðarsdóttir, Valdimar Örnólfsson, Kristín Jónasdóttir, Ingólfur Örnólfsson, Elína Hallgrímsdóttir, Arnbjörg Örnólfsdóttir, Þórhallur Helgason, Þórunn Örnólfsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir, Árni Kjartansson, Úlfhildur Örnólfsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Sigríður Ásta Örnólfsdóttir, systkinabörn og systkinabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, LAUFEYJAR EYVINDSDÓTTUR, Sandholti 21, > Ólafsvík. Steinþór Ómar Guðmundsson, Brynjar Kristmundsson, Sumarliði Kristmundsson, Ægir Kristmundsson, Þór Kristmundsson, Óðinn Kristmundsson, Matthildur Kristmundsdóttir, Laufey Kristmundsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Halldór Kristmundsson, barnabörn og t Jóhanna Jónsdóttir, Margrét Jónasdóttir, Kristín G. Jóhannsdóttir, Árný Bára Friðriksdóttir, Jóhanna Njarðardóttir, Sólrún Bára Guðmundsdóttir, Árni Guðjón Aðalsteinsson, Ólafur Helgi Ólafsson, Klaus Grunhagen, Ásta Pálsdóttir, . . 15.00. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐNASON frá Kirkjulækjarkoti, Engihjalla 7, Kópavogi, sem lést fimmtudaginn 23. desember sl., verður jarðsunginn frá Fíladelfíukirkjunni, Há- túni 2, þriðjudaginn 4. janúar og hefst athöfnin kl Hrefna Magnúsdóttir, Híldur Magnúsdóttir, Jóhann Birkir Steinsson, Hjálmar Magnússon, Sigrún Björg Ingþórsdóttir, Hans Guðni Magnússon, Auðbjörg Vordís Óskarsdóttir, Ingigerður Magnúsdóttir, Sigurhans Wíum, Daníel Magnússon, Benjamín Magnússon, Una Björg Gunnarsdóttir, Erling Magnússon, Erla Birgisdóttir, Hlynur Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ERNA ÞORKELSDÓTTIR + Erna Þorkels- dóttir fæddist í Borgarnesi 24. ágúst 1924. Hún lést 24. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Þorkell Teitsson, f. 11.10. 1891, d. 27.11. 1949, og Júlíana Sigurða- dóttir, f. 17.5. 1895, d. 7.11. 1976. Systk- ini Ernu eru: Oddný Kristín, f. 18.8. 1920; Þórunn, f. 7.10. 1926, d. 13.5. 1977; Jón Teitur, f. 14.2. 1937, d. í júlí 1945; Þorkell, f. 10.3.1941. Uppeldissystir þeirra er Jóna Þór- unn, f. 14.6.1914. Emagiftist 22.12.1951 Friðriki Laugdal Guðbjartssyni skipa- smiði, f. 26.11. 1919. Dæturþeirra Ég vildi bara skrifa þér smábréf og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og að hafa verið svona stór hluti af mér og því sem ég er. Ef þú bara vissir hve mikið ég á eftir að sakna þín. Það eina sem ég get hugsað um núna eru öll skiptin sem ég fékk að kúra á milli ykkar afa. Ég man þegar við fórum með bænirnar eru: 1) Eygló, f. 1.7. 1952, gift Magnúsi Sigfússyni, f. 26.1. 1951. Synir þeirra eru: Friðrik, f. 1974, og Jóhann Már, f. 1983. 2) Alda, f. 15.12. 1953. Dóttir hennar er Ema Kristín, f. 1974. 3) Ester, f. 27.12. 1954, gift Hirti Arsæls- syni, f. 16.4. 1955. Dætur þeirra eru: Snædís, f. 1975, Dag- björt, f. 1977, og Katrín, f. 1981. 4) Hrönn, f. 4.3. 1959, gift Benedikt Arthurssyni, f. 9.10. 1946. Sonur þeirra er Arnar Þór, f. 1995. Útfór Ernu fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. saman áður en ég sofnaði og þegar við hlustuðum á afa lesa Salómon svarta og hve mikið við hlógum öll og grétum saman. Ég man líka þeg- ar ég var að setja rúllur í hárið á þér og öll jólin sem við skreyttum saman jólatréð, þú settir seríuna á og ég hafði svo yfirumsjón með skrautinu. Það er svo margt sem ég man, það + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, stjúpmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, LAUFEYJAR ÞÓRMUNDARDÓTTUR, Reykholti, Borgarfirði. Séstarkar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi og á Sjúkrahúsi Akraness fyrir góða umönnun. Þóra Þórisdóttir, Grétar Samúelsson, Sigrún Þórisdóttir, Ámundi G. Ólafsson, Kristján Þór Þórisson, Aðalheiður Helgadóttir, Steinþóra Þórisdóttir, Halldór Einarsson, Steingrímur Þórisson, Jón Þórisson, Halldóra Þorvaldsdóttir og aðrir aðstandendur. + Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, afa og bróður, ÁRNA VALDIMARS SIGURJÓNSSONAR, Leifshúsum, Svalbarðsströnd. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deildar 11-E á Landspítalanum og lyflækningadeilda sjúkrahúsi Akureyrar fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. á Fjórðungs- Þóranna Björgvinsdóttir, Björgvin Árnason, Arnar Sigurjón Árnason, Anna Kristín Árnadóttir, Arndís Ósk Arnarsdóttir, Ásta Sigurjónsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR GYÐU ÁRNADÓTTUR frá fsafirði. Sérstakar þakkir til Kjartans B. Örvar, læknis, og starfsfólks lyflæknisdeildar St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, fyrir einstaka alúð og umönnun. Sigríður G. Sigurðardóttir, Guðmundur Kristjánsson, Ingibjörg M. Sigurðardóttir, Benedikt Þórðarson, Þórunn A. Sigurðardóttir, Árni B. Sigurðsson, Eygló Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. er svo margt sem ég á eftir að minn- ast. Þú varst alltaf til staðar og sást alltaf til þess að það sem mér þykir gott væri til þegar ég kom til þín og afa. Hvernig getur þú verið farin? Það á svo margt eftir að gerast sem þú þarft að sjá og taka þátt í með mér. En ég veit að þú verður alltaf hjá mér í hjarta mínu og minningu. Ég vil að lokum þakka þér fyrir allt í litlu ljóði. Bless, elsku amma mín, og megi Guð varðveita þig í faðmi sínum og hugsa vel um þig þar til við sjáumst aftur. Takk fyrir að hafa gætt mín og vemdað mig. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og gafst mér. Takk fyrir öll brosin til mín og að hafa huggað mig. Takk, elsku amma, fyrir að hafa elskað mig. Þín Erna Kristín. Elsku systir mín. Nú ert þú farin. Hvað get ég sagt nú á skilnaðar- stundu? Þú varst sérstök systir frá fyrstu ánim okkar. Ég var fjórum árum eldri en þú og sex árum eldri en hún Tóta litla systir. Þú varst ekkert lík okkur, alltaf létt og kát, þó komið gæti fyrir að við værum ekki sam- mála. Það hlaut að vera þar sem við vorum misgamlar. Þú varst svo lag- in í höndunum, gast allt gert, en við hinar systurnar vorum ekki eins lagnar. Áður en þú lærðir að lesa var búið að lesa fyrir þig Dísu ljós- álf, Alfinn álfakóng og fleiri bækur. Þú lærðir þær strax utan að og þeg- ar litlu krakkarnir í næstu húsum komu „last“ þú fyrir þau sögurnar. Þú sast með bækurnar og flettir alltaf á réttum stöðum. Krakkarnir sátu heillaðir af lestrinum. Þegar við urðum eldri og fórum að fara á skemmtanir vantaði mig eða Tótu oft pils eða blússu til að fara í, stundum samdægurs. Þá var ekkert mál að sauma það fyrir okkur á stundinni. Það voru ekki allar eins heppnar og við og alltaf var það nýj- asta tíska. Svona varst þú okkur eft- irlát. Þú bakaðir stundum brúntert- ur, við Tóta gerðum ekkert. Þið Tóta voruð í því um tíma að þvo upp eftir matinn og var þá aðalvandinn hvor ykkar átti að þvo og hver að þurrka. Það varð að komast að því hver hafði gert það daginn áður. Svona gekk þetta til fyrsta hluta ævi okkar. Við áttum góða æsku og unglingsár heima. Það voru alltaf margir í heimili, Oddný amma var hjá mömmu og pabba og ólumst við upp með henni. Stúlkur voru þar einnig, bæði í heimilisstörfum og á Pósti og síma. Svo var hún Jóna sem var alin upp með okkur eins og ein systranna. Við fórum allar að heim- an í skóla, Jóna fyi’st, síðan ég. Þú fórst í Kvennaskólann í Reykjavík. Seinna fórst þú til London til að læra að sníða föt og sauma. Bræður okkar voru miklu yngri en við því þú varst 12 ára þegar Jón Teitur fædd- ist og 16 ára þegar Þorkell fæddist. Þú varst alltaf svo góð við þá. Þegar þú giftir þig fluttir þú til Ák- ureyrar. Þá var Tóta gift og komin til Ameríku. Þið báðar farnar langt að heiman, en ég var enn á sömu þúfunni. Þessir síðustu mánuðir hafa verið þér og þínum erfiðir. Þú varst eins og hetja allan tímann. Þegar ég hringdi sagðir þú alltaf: Þetta er í lagi, ég tek pillurnar og geri það sem mér er sagt. Friðrik er líka búinn að standa þér við hlið eins og klettur og stelpurnar þínar, þeirra börn og eiginmenn. Það var ógleymanlegur dagur í sumar þegar við komum í 75 ára af- mælið þitt 24. ágúst. Þarna komu bestu vinir og kunningjar. Þetta var einn af þínum betri dögum. Þú lést að minnsta kosti ekki bera á öðru. Allir voru glaðir og ánægðir. Stelp- urnar létu sitt ekki eftir liggja og voru með veisluborð. Elsku systir, við Jón og okkar fjölskylda jDökkum þér fyrir allt sem þú varst okkur. Friðrik, Guð blessi þig, dæturnar, barnabörnin og tengdasynina og styrki ykkur í missi ykkar. Þess biðjum við. Oddný Kr. Þorkelsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.