Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 70
70 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
~ ^
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens ■
Grettir
Hundalíf
Ljóska
HERERFALLEeASTAY HVAÖA FRÆNKA
HANDSKRIFAí) L_L 5KYLDI PAt) VERA
SENDIBREFTIL^'
MÍNOSÍ
HORNUNU
STENDURFRÁ
FRÆNKU...
HEYRDU!
PETTA ER
ENNEIN
ÁMINNINO FRÁ
ÞESSUM Á6ENGA
KAUPMANNI
WFD
STENDUR
„FRÆNKA
VÆRIBÚINA?
BORGA EF
HÚNVÆRI
ÞÚ'
Smáfólk
.iíV
Já. Nú.
Bíddu aðeins.
Ég skal gá.
00 YOU HAVE
A COUSIN IN
ARIZONA7
Áttu einhver
frændsyskin
í Arizóna.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni I 103 Reykjavík # Sími 569 1100 0 Símbréf 569 1329
2000-áfengis- o g
vímuefnavandinn
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
SÍÐUSTU daga hafa heyrst raddir
þess efnis að lager ATVR komi ekki
til með að anna eftirspum fyrir ára-
mót og þá aðallega vegna kampavíns.
Að sögn Höskuldar Jónssonar, for-
stjóra ATVR, er það ekki rétt og lík-
legt er að einhverjir hafi komið þess-
um orðrómi af stað til þess að skapa
væntingar á markaðinum. Sam-
kvæmt sölutölum ÁTVR er veltan á
vini um 1,3 milljarðar á mánuði og
jafnvel eitthvað meira vegna sérstöðu
komandi áramóta. Þá má ætla að
landsmenn belgi sig út af um 1,7 millj-
ónum lítra áfengis í desembermánuði.
Að sögn formanns 2000-nefndai- rík-
isstjórnarinnar hefur íslenskt þjóðfé-
lag brugðist vel við að hafa allan bún-
að 2000-hæfan. Áætlað er að
2000-vandinn hafi kostað þjóðfélagið
allt frá tveimur upp í tíu milljarða.
Þá er það ljóst að þjóðfélagið er
reiðubúið að leggja í töluverðan
kostnað til þess að halda tölvubúnaði í
lagi á nýrri öld og til þess að koma sér
upp myndarlegum vínlager fyrir jól
og áramót. En hvað erum við tilbúin
til þess að leggja á okkur vegna
áfengis- og vímuefnavandans, sem
líklegt er að við tökum með okkur inn
í nýja öld? Neysla unglinga á áfengi
og fíkniefnum hefur aukist og neyslu-
tengd afbrot sömuleiðis. Ríkisstjóm-
in hefur nýverið ákveðið að leggja
meira fé til málaflokksins en betur
má ef duga skal. Þeh- sem starfa á
akrinum hafa verið knúnir til þess að
leita á náðir landsmanna til þess að
fjármagna baráttuna og leyfi ég mér
að fullyi'ða að án þess framlags væri
staðan mun verri en hún er í dag. Um
leið og ég óska, fyrir hönd Götusmiðj-
unnar, landsmönnum gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs, langar mig til
þess að þakka öllum þeim aðilum sem
styrktu starfsemi okkar fyrh' stuðn-
inginn. Að lokum viljum við hvetja
alla foreldra til þess að vera börnum
sínum til efth'breytni um áramótin og
að hafa eftirfarandi í huga þegai' ára-
mótaheit era strengd: að gefa sér
tíma með baminu, að hlusta á álit
bamsins og hvetja það til þess að hafa
sjálfstæð markmið og skoðanir, og að
hvetja bamið til hvers kyns heil-
brigðrar tómstundaiðju.
JÓN K. GUÐBE RGSSON,
framkvæmdastjóri fræðslu- og
fjölskyldudeildar Götusmiðjunnar.
Trú og list
Frá Jóhönnu B. Wathne:
SAMRUNI trúar og listar er mikill,
og því áhiifaríkari verða verkin sem
njóta krafta trúarinnar.
Þegar Guðsnafn er nefnt verða all-
ir menn góðir, en efnisheimurinn
dregur okkur til athafna.
Listin á að bæta heiminn.
Kærleiksboðskapur trúarinnar er
æðsta samkennd mannsins, og höfð-
ar því til allra samskipta manna.
Menningarlegt gildi listarinnar
getur verið mikið, sé því beint rétt.
Börn og ungmenni em svo mót-
tækileg fyrir hinu sýnilega og
myndlistin því svo sterkur boðberi.
Listin á að bera ljós en ekki myrk-
ur, af því höfum við nóg í þessum
heimi, hið fagra og góða á listin að
bera fram.
Það er enginn menningarauki að
frambera afskræmislíkingar af þeim
sem hafa sigrað í veraldarsportinu,
og hrúga saman á flötinn, ekki á list-
in heldur að vera grínboðskapur,
slíkt á aðeins heima í teiknimyndum.
Listin á að vera sigurboðskapur
yfir myrkrinu, það á að sýna ljósið
sigra myrkrið.
Ekki boðar heldur neina gleði að
framleiða myndir sem sýna aðeins
litbrigði, allir geta glatt sig við lit-
brigði himins og jarðar í öllum sínum
fjölbreytileik, þar er allt fullkomið.
Listin á að standa utan við allt hið
lága. Efnisval listarinnar skal vanda,
vanda eins og fagurt mál, sem geym-
ist í vitundinni sem dýr fjársjóður.
Myndlistin á að vera boðskapur,
ekki bætir áhrifalaust fálm. Listina á
að virða og heiðra, með slíku hugar-
fari eiga þeir einir að leggja fyrir sig
myndlist.
JÓHANNA B. WATHNE,
Lindargötu 61, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.