Morgunblaðið - 30.12.1999, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 30.12.1999, Qupperneq 70
70 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 ~ ^ MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ■ Grettir Hundalíf Ljóska HERERFALLEeASTAY HVAÖA FRÆNKA HANDSKRIFAí) L_L 5KYLDI PAt) VERA SENDIBREFTIL^' MÍNOSÍ HORNUNU STENDURFRÁ FRÆNKU... HEYRDU! PETTA ER ENNEIN ÁMINNINO FRÁ ÞESSUM Á6ENGA KAUPMANNI WFD STENDUR „FRÆNKA VÆRIBÚINA? BORGA EF HÚNVÆRI ÞÚ' Smáfólk .iíV Já. Nú. Bíddu aðeins. Ég skal gá. 00 YOU HAVE A COUSIN IN ARIZONA7 Áttu einhver frændsyskin í Arizóna. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni I 103 Reykjavík # Sími 569 1100 0 Símbréf 569 1329 2000-áfengis- o g vímuefnavandinn Frá Jóni K. Guðbergssyni: SÍÐUSTU daga hafa heyrst raddir þess efnis að lager ATVR komi ekki til með að anna eftirspum fyrir ára- mót og þá aðallega vegna kampavíns. Að sögn Höskuldar Jónssonar, for- stjóra ATVR, er það ekki rétt og lík- legt er að einhverjir hafi komið þess- um orðrómi af stað til þess að skapa væntingar á markaðinum. Sam- kvæmt sölutölum ÁTVR er veltan á vini um 1,3 milljarðar á mánuði og jafnvel eitthvað meira vegna sérstöðu komandi áramóta. Þá má ætla að landsmenn belgi sig út af um 1,7 millj- ónum lítra áfengis í desembermánuði. Að sögn formanns 2000-nefndai- rík- isstjórnarinnar hefur íslenskt þjóðfé- lag brugðist vel við að hafa allan bún- að 2000-hæfan. Áætlað er að 2000-vandinn hafi kostað þjóðfélagið allt frá tveimur upp í tíu milljarða. Þá er það ljóst að þjóðfélagið er reiðubúið að leggja í töluverðan kostnað til þess að halda tölvubúnaði í lagi á nýrri öld og til þess að koma sér upp myndarlegum vínlager fyrir jól og áramót. En hvað erum við tilbúin til þess að leggja á okkur vegna áfengis- og vímuefnavandans, sem líklegt er að við tökum með okkur inn í nýja öld? Neysla unglinga á áfengi og fíkniefnum hefur aukist og neyslu- tengd afbrot sömuleiðis. Ríkisstjóm- in hefur nýverið ákveðið að leggja meira fé til málaflokksins en betur má ef duga skal. Þeh- sem starfa á akrinum hafa verið knúnir til þess að leita á náðir landsmanna til þess að fjármagna baráttuna og leyfi ég mér að fullyi'ða að án þess framlags væri staðan mun verri en hún er í dag. Um leið og ég óska, fyrir hönd Götusmiðj- unnar, landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, langar mig til þess að þakka öllum þeim aðilum sem styrktu starfsemi okkar fyrh' stuðn- inginn. Að lokum viljum við hvetja alla foreldra til þess að vera börnum sínum til efth'breytni um áramótin og að hafa eftirfarandi í huga þegai' ára- mótaheit era strengd: að gefa sér tíma með baminu, að hlusta á álit bamsins og hvetja það til þess að hafa sjálfstæð markmið og skoðanir, og að hvetja bamið til hvers kyns heil- brigðrar tómstundaiðju. JÓN K. GUÐBE RGSSON, framkvæmdastjóri fræðslu- og fjölskyldudeildar Götusmiðjunnar. Trú og list Frá Jóhönnu B. Wathne: SAMRUNI trúar og listar er mikill, og því áhiifaríkari verða verkin sem njóta krafta trúarinnar. Þegar Guðsnafn er nefnt verða all- ir menn góðir, en efnisheimurinn dregur okkur til athafna. Listin á að bæta heiminn. Kærleiksboðskapur trúarinnar er æðsta samkennd mannsins, og höfð- ar því til allra samskipta manna. Menningarlegt gildi listarinnar getur verið mikið, sé því beint rétt. Börn og ungmenni em svo mót- tækileg fyrir hinu sýnilega og myndlistin því svo sterkur boðberi. Listin á að bera ljós en ekki myrk- ur, af því höfum við nóg í þessum heimi, hið fagra og góða á listin að bera fram. Það er enginn menningarauki að frambera afskræmislíkingar af þeim sem hafa sigrað í veraldarsportinu, og hrúga saman á flötinn, ekki á list- in heldur að vera grínboðskapur, slíkt á aðeins heima í teiknimyndum. Listin á að vera sigurboðskapur yfir myrkrinu, það á að sýna ljósið sigra myrkrið. Ekki boðar heldur neina gleði að framleiða myndir sem sýna aðeins litbrigði, allir geta glatt sig við lit- brigði himins og jarðar í öllum sínum fjölbreytileik, þar er allt fullkomið. Listin á að standa utan við allt hið lága. Efnisval listarinnar skal vanda, vanda eins og fagurt mál, sem geym- ist í vitundinni sem dýr fjársjóður. Myndlistin á að vera boðskapur, ekki bætir áhrifalaust fálm. Listina á að virða og heiðra, með slíku hugar- fari eiga þeir einir að leggja fyrir sig myndlist. JÓHANNA B. WATHNE, Lindargötu 61, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.