Morgunblaðið - 30.12.1999, Side 22

Morgunblaðið - 30.12.1999, Side 22
J ■ ; 22 PIMMTUDAGUR 30. DESEMBER1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU SIF flytur stdran hluta starfsemi sinnar Skrifstofuhúsnæði IS í Hafnarfirði verður selt SÍF hf. hefur ákveðið að selja skrif- stofuhúsnæði það sem Islenskar sjáv- arafurðir hf. festu kaup á í Hafnar- firði sl. sumar, áður en samrunaferli félaganna hófst en samruninn var samþykktur á hluthafafundum félag- anna í gær. SÍF hf. flutti skrifstofur sínar til Hafnarfjarðar úr Reykjavík íyrir nokkrum árum á tvær hæðir í hús- eigninni við Fjarðargötu 13 til 15 sem í daglegu tali er kölluð Fjörður. Nú er hinsvegar verið að innrétta skrif- stofuhúsnæði í húsnæði SIF í Fom- ubúðum við höfnina í Hafnarfírði undir hluta af starfsemi félagsins. Samrunaáætlun SÍF og ÍS var samþykkt á hluthafafundum félag- anna í gær og segir Gunnar Om Kristjánsson, forstjóri SÍF, að tekin hafi verið ákvörðun um að selja þær tvær hæðir sem íslenskar sjávar- afurðir keyptu í húseigninni við Fjarðargötu, samtals um 850 fer- metra, enda hafi ÍS fest kaup á hús- næðinu áður en samrunaviðræður fé- laganna hófust. Höfuðstöðvar móður- félags SÍ F verða eftir sem áður áfram á Fjarðargötu en starfsemi dótturfé- lagsins SIF ísland flyst að mestu í Fomubúðir, s.s. sölu- og markaðsmál félagsins, fjármál, rekstarsvið o.þ.h. ÍS seldi í sumar skrifstofubygg- ingu félagsins við Sigtún í Reykjavík, sem er um 2.500 fermetrar, íyrir 375 milljónir og á að afhenda hana 1. mars á næsta ári. Salan á fasteigninni við Sigtún var liður í að minnka fjárbind- ingu félagsins í öðra en því sem teng- ist beinu markaðsstarfi en fyrrí sum- ar var húsnæði Vörahúss ÍS við Holtabakka og húsnæði Þróunarset- ui-s ÍS á Kirkjusandi selt auk þess sem umbúðalager var seldur. Sölu- verð þess var um 360 milljónir.. Um 5% verð- mætaaukning í útflutningi IS ÚTFLUTNINGUR íslenskra sjáv- arafurða á sjófrystum afurðum var 18.680 tonn 1. janúar til 18. desem- ber en var 18.100 tonn í fyrra. Heild- arverðmætið var 4.151 milljón króna í ár samanborið við 3.934 milljónir 1998. Þetta kom fram í ræðu Finnboga Jónssonar, forstjóra IS, á sjófrysti- fundi félagsins á Grand Hóteli Reykjavík nú í vikunni. Mest var flutt út af karfa eða 5.520 tonn samanborið við 7.400 tonn í fyrra. Útflutningur á rækju nam 3.120 tonnum en var 3.440 tonn 1998. 2.840 tonn vora flutt út af þorski en sambærileg tala í fyrra var 2.620 tonn. Einnig var aukning í útflutn- ingi á gulllaxi, fór úr 2.250 tonnum í 3.980 tonn, og grálúðu, fór úr 1.030 tonnum í 1.950 tonn. Ufsinn fór úr 500 tonnum í 570 tonn, ýsan úr 360 tonnum í 450 tonn og annar útflutn- ingur nam 240 tonnum en var 470 tonn 1998. V erðmætaaukning’ um217 millj.kr. Verðmætaaukning á milli ára nam samtals um 217 milljónum króna. Aukningin var 17% í þorskinum, fór úr milljarði í 1.175 milljónir. Karfinn dróst saman, fór úr 1.254 milljónum í 947 milljónir. Verðmæti rækjunnar fór úr 920 milljónum í 900 milljónir. Veruleg aukning vai- í verðmæti út- fluttrar grálúðu, fór úr 276 milljón- um í 578 milljónir. Gulllaxinn fór úr 166 milljónum í 211 milljónir, ufsinn úr 113 í 118 milljónir, ýsa úr 137 í 185 milljónir og annað úr 67 í 27 milljón- ir. Andmæla flottrolli SKIPSTJÓRAR 28 loðnuskipa hafa ásamt Farmanna- og fiskimanna- sambandi Islands sent frá sér álykt- un, þar sem því er mótmælt að leyft verði að veiða loðnu í flottroll. Sjáv- arútvegsráðuneytið hefur heimilað slíkar veiðar að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar. Er það meðal annars gert til að hvetja til loðnuleitar í upphafi árs, en nánast allur leyfilegur kvóti er óveiddur. Alyktun skipstjóranna og FFSI fer hér á eftir: „Fundur Farmanna- og fiskimannasambands íslands með skipstjórnarmönnum á loðnuskip- um, haldinn 29. desember 1999, mót- mælir harðlega ákvörðun sjávarút- vegsráðherra að leyfa loðnuveiðar með flotvörpu, þegar veiðar hefjast á ný eftir áramótin. Fundurinn telur að mikil óvissa ríki um ástand loðnu- stofnsins og áhrif flotvörpu á loðnu. Af þessum sökum beri að fara að öllu með gát þar til haldbærar athuganir og rannsóknir liggja fyrir um ástand stofnsins og áhrif flotvörpu á loðnu- veiðar.“ Afgreiðslutími banka, sparisjóða og dótturfélaga dagana 24., 30. og 31. desember og 3. janúar nk. LokaÖ á aðfangadag Vegna ákvæða í kjarasamningi bankamanna verða afgreiðslustaðir banka og sparisjóða framvegis lokaðir á aðfangadegi. Aldahvörf Bankar og sparisjóðir hafa lagt mikið á sig til að tryggja að tölvukerfi þeirra starfi með óbreyttum hætti þegar árið 2000 gengur í garð. Þrátt fyrir að prófanir bendi til þess að ekkert fari úrskeiðis telja bankar og sparisjóðir nauðsynlegt að sýna varúð til að tryggja hagsmuni viðskiptavina sinna. Afgreiðslustaðir banka og sparisjóða verða því lokaðir 31. desember 1999 og 3. janúar 2000. í staðinn verða þeir opnir til kl. 18:00 30. desember 1999. Einnig verða eignarleigufyrirtæki, greiðslukortafyrirtæki og verðbréfafyrirtæki lokuð þessa daga. Þá hefur verið ákveðið að loka netbönkum (heimabönkum) og fyrirtækjatengingum frá kl. 23:30 31. desember 1999 til kl. 12:00 1. janúar 2000. Hægt verður að nota hraðbanka, debetkort og kreditkort eins og vanalega. • Frábært verð ® Frábærir gististaðir • Frábærir íslenskir fararstjórar VIKUFERÐIR 8., 15. og 22. jan jlHl Verð m.v. 3 í ibúð á LAS CAMELIAS m.v. 2 i íbúð á LAS CAMELIAS (í) BÚNAÐARBANKINN trauilur bankl ÍSLANDSBANKI Landsbaaki Isiands SPARISJÓÐURINN -fyrirþigogþím M. lÍRÍÍL-liISÝN Láttu sólina gæla við þig á Kanaríeyjum í vetur. Lðgmúla 4: sfmi 585 4000, grant númer: 800 6300, Kringlan: sfmi 585 4070, Hafnarfirði: sfmi 565 2366, Keflavík: sími 4211353, Akureyrl: sfmi 462 5000, Selfoss: sfml 482 1666 • og hjá umboðsmtinnum um land allt. www.urvalutsyn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.