Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 26

Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Fjöldi eigna á veraldarvefnum: www.midborg.is LAUGAVEGUR - til sölu eða leigu Höfum fengið í einkasölu u.þ.b. 300 fm nýbyggingu á homi Laugvegs og Snorrabrautar. Um er að ræða hús á þremur hæðum sem skiptist þannig að á 1. og 2. hæð er gert ráð fyrir verslunar- eða þjónusturými og á 3ju og efstu hæð er gert ráð fyrir skrifstofum. Húsnæðið selst eða leigist í einu lagi. Húsið er staðsett á besta stað á Laugavegi við mikið umferðarhorn og hefur mikla auglýsingamöguleika. Húsið verður tilbúið til afhendingar þann 1. júní næst- komandi, allar nánari upplýsingar veitir Karl á skrifstofu Miðborgar. Við lokum um áramót Lokað verður á skrifstofum og þjónustustöðum VÍS á gamlársdag 31. desember. Neyðarþjónusta vegna eignatjóna er veitt allan sólarhringinn, alla daga ársins. VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSIANDS HF - þar sem tryggingar snúast um fólk Ármúla 3,108 Reykjavík, þjónustuver 560 5000, www.vis.is ERLENT Heimsbyggðin býr sig undir risateiti Singapore. Reuters. BANDARÍSKA vesturstrandar- borgin Seattle hefur aflýst öllum opinberum hátíðarhöldum um ára- mótin vegna meintrar hryðjuverka- hættu, en í fjölmörgum borgum heimsins er undirbúningur í fullum gangi fyrir það sem gæti orðið stærsti áramótagleðskapur allra tíma. Aldrei hefur selzt eins mikið af kampavíni og freyðivíni. Allt að þrjár milljónir kristinna pílagríma hafa sett stefnuna á Landið helga um áramótin, til að minnast fæðingar Jesú Krists fyrir tveimur árþúsundum. Öryggisráð- stafanir eru miklar til að fæla of- stækismenn frá því að reyna að not- færa sér tækifærið til að ná til sín athygli með ofbeldisaðgerðum. Pitt-eyja fyrst Þjóðir Eyjaálfu og Austurlanda fjær verða fyrstar til að fagna nýju árþúsundi. Pitt-eyja, sem tilheyrir Nýja-Sjálandi, verður fyrsta byggða ból jarðar til að líta fyrsta sólris þriðja árþúsundsins, nokkr- um sekúndum fyrir kl. 5:45 að stað- artíma, sem er um kl. 16 að íslenzk- um tíma, en heimsbyggðin mun ekki geta fylgzt með þessum at- burði, þótt sjónvarpsstöðin TV3, sem er í kanadískri eigu, hafði uppi áform um beina útsendingu frá Pitt-eyju. íbúar þar eru 20. Nýsjá- lenzk stjórnvöld greindu frá því í gær að ekkert yrði úr áformunum af tæknilegum ástæðum. Stærðfræðilega séð hefst þriðja árþúsundið og 21. öldin samkvæmt tímatali kristinna manna ekki fyrr en 1. janúar 2001. Jóhannes Páll II páfi hefur lýst aldamótaárið heil- agt. Kaþólska kirkjan hóf að minn- ast þess á jóladag og viðburðum af þessu tilefni lýkur ekki fyrr en 6. janúar 2001. Hvað sem því líður finnst flestum jarðarbúum það mest heillandi að fagna þegar ártalið breytist úr 1999 í 2000. Margt í boði Fyrir partýþyrst fólk sem gjarn- an leggur land undir fót hefur úr- valið aldrei verið fjölskrúðugra. New York býður til gríðarlegrar útihátíðar á „gatnamótum heims- ins“, þar sem 42. breiðstræti mætir Broadway og 7. breiðstræti. Búizt er við að yfir þrjár milljónir manna, allir klæddir hvítu, safnist syngj- andi og dansandi út á götur Rio de Janeiro og Copacabana-ströndina. I stórborgum Evrópu hafa víða verið reist sérstök mannvirki til að þjóna sem þungamiðja hátíðarhaldanna á hverjum stað. í París bíða ellefu risahjól þess að sýna mannfjöldan- um sem þar safnast saman nýárs- næturútsýnið yfir Champs Elysées og miðborgina. Þótti mildi að hjólin skyldu hafa staðið af sér jólaóveðrið sem m.a. reif upp með rótum um helming allra trjáa í borgarlandinu. I Berlín er reiknað með því að minnsta kosti ein og hálf milljón manna taki þátt í dagskránni sem þar hefur verið skipulögð, en há- punktur hennar verður gríðannikil ljósasýning í kring um Sigursúluna. 2000-vandinn óvissustærð Enginn veit hvort „2000-vand- inn“ muni hamla hátíðarhöldunum á einhvern hátt. Hitt er þó víst að mikið hefur verið fyrir því haft að hindra að illa fari. Að mati banda- rískra sérfræðinga hefur nú við lok ársins 1999 verið samtals eytt í kring um 250 milljörðum banda- ríkjadala, andvirði 18.000 milljörð- um króna, í að leysa vandann. Reuters. Þúsaldarklukkan á þessari skrifstofubyggingu í Tel Aviv í fsrael telur niður stundirnar til áramóta og þegar myndin var tekin lifðu enn 73 klukkustundir, ein mínúta og átta sekúndur af árinu. a — út um allan heim! í tilefni af þúsaldamótunum bjóða Sjóvá-Almennar landsmönnum nær og fjær upp á beina útsendingu á Netinu frá síðustu flugeldasýningu 20. aldarinnar í Reykjavík. Allir þeir sem eru með nettengingu geta því fylgst með látunum af þaki húss Sjóvá-Almennra í Kringlunni. ■= Bentu vinum og vandamönnum erlendis á að fylgjast með viðburðinum á www.sjova.is á eftirfarandi staðartímum: 24.00 í London, 1.00 í Kaupmannahöfn, 3.00 í Moskvu, 8.00 í Beijing, 9.00 í Tokyo, 13.00 á Nýja-Sjálandi, 16.00 í San Francisco, 18.00 í Chicago og 19.00 í New York. SJOVAOgJALMENNAR Traustur þáttur í tilverunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.