Morgunblaðið - 30.12.1999, Síða 33

Morgunblaðið - 30.12.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 33 LISTIR Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs á eins árs afmæli 2. janúar „Horfum glöð fram á nýtt og spennandi starfsára SALURINN í Tónlistarhúsi Kópa- vogs á eins árs afmæli 2. janúar nk. Að sögn Vigdísar Esradóttur, for- stöðumanns Salarins, hefur starf- semin verið blómleg þetta fyrsta starfsár og telur hún að það hljóti að lofa góðu fyrir framtíðina. „Hér hafa verið fluttir yfír 120 tónleikar á fyrsta starfsárinu; þar af hafa verið yfír 30 einsöngs- tónleikar, yfir 30 ein- leikstónleikar, 15 kór- tónleikar og annað eins af kammertónleikum, nokkrir djasstónleikar, lúðrasveitartónleikar, harmonikkutónleikar, afmælis-, minningar- og menningarvökur, einleikara- og burtfar- arprófstónleikar, tölvu- tónleikar, útgáfutón- leikar og svo mætti áfram telja. Auk þess hefur verið hér talsvert um ráðstefnur, mál- þing og móttökur, því við höfum lagt áherslu á að reyna að nýta húsið sem best. Góður hljómburður Salarins hentar vel hinu talaða orði ekki síður en tón- listinni," segir Vigdís. Hún segir aðsóknina hafa verið góða, þó áberandi besta að söng- og kórtónleikum en heldur minni að leikinni nútímatónlist. „Fólk hefur lokið lofsorði á hljómburðinn og all- an aðbúnað í Salnum, auk þess sem þetta er fallegt hús og and- rúmsloftið notalegt, svo við horfum glöð fram á nýtt og spennandi tón- listarár," heldur hún áfram. Þrjár nýjar tónleikaraðir í Tíbrá á vorönn A vorönn 2000 verða þrjár tón- leikaraðir í Salnum á vegum Kópa- vogsbæjar undir merkjum Tíbrár. Röð 1 hefur að geyma fímm einleiks- og samleikstónleika, í röð 2 er tónlist fyrir alla fjölskylduna og í röð 3, sem heitir Við slaghörpuna, eru fernir söngtónleikar, auk tónleikanna Tónlist, ljóð og mynd- ir. Alls eru þetta fjórt- án tónleikar og verða þeir fyrstu í röð 1 á ársafmælinu 2. jan- úar kl. 20.30. Þá leika þær Sif Tulinius fíðlu- leikari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari verk eft- ir Beethoven, Handel, Ysaýe, Jan- ácek og Ravel. Aðrir tónleikarnir í röð 1 verða 13. febrúar, en þá leik- ur Peter Máté á píanó verk eftir Bela Bartók, Mist Þorkelsdóttur, John A. Speight og Franz Liszt. 4. mars leikur Domenico Codispoti á píanó verk eftir Schumann, Jan- ácek og Chopin. 22. apríl er komið að hinu árlega páskabarokki, en þá syngur Sigríður Gröndal og Martial Nardeau, Guðrún Birgisdóttir og fleiri leika tónlist eftir Bach. Loka- Vigdís Esradóttir Tónlistarhús Kópavogs tónleikamir í röð 1 verða 30. apríl en þá leika tékknesku hjónin Koj- anova og Novotny fjórhent á píanó verk eftir tékknesk tónskáld, Schu- bert o.fl. Röð 2, sem ber yfirskriftina Tón- list fyrir alla fjölskylduna, hefst með harmonikkutónleikum rúss- nesku tvíburabræðranna Yuri og Vadim Fjodorov 29. janúar. Brúð- ur, tónlist og hið óvænta er yfir- skrift tónlistargjörnings brúðuleik- arans Bernd Ogrodnik 26. febrúar. Á söngtónleikum 25. mars flytja Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanólcik- ari fjölbreytta efnisskrá og 8. aprfl syngur Gradualekór Langholts- kirkju undir stjórn Jóns Stefáns- sonar. Allir tónleikarnir í röð 2 em á laugardagseftirmiðdögum kl. 16 og standa í um klukkustund án hlés. Röð 3, Við slaghörpuna, hefst með söngtónleikum Kristins Sig- mundssonar og Jónasar Ingi- mundarsonar. Vegna anna erlendis sér Kristinn sér aðeins fært að halda þessa einu tónleika að þessu sinni og verða þeir fimmtudag- skvöldið 6. janúar. Yfirskriftann- arra tónleikanna í röðinni er Tón- list, ljóð og myndir. Dagskráin er byggð á ljóðinu Óður steinsins eftir Kristján frá Djúpalæk. Ljósmynd- um af íslenskum steinum eftir Ágúst Jónsson verður varpað upp á tjald, Arnar Jónsson leikari les ljóð- ið og Jónas Ingimundarson leikur á píanó tónlist sem Atli Heimir Sveinsson samdi við ljóðið og mynd- irnar. Norrænir söngvar og lög eft- ir Obradors og Granados eru á efn- isskrá tónleika 22. febrúar, þar sem Ásgerður Júníusdóttir syngur og Jónas Ingimundarson leikur á píanó. 15. mars flytja Auður Gunn- arsdóttir og Jónas Ingimundarson íslensk sönglög og verk eftir Schu- bert og Brahms. Röð 3 lýkur svo með tónleikum 4. aprfl, þar sem Rannveig Fríða Bragadóttir mezzó- sópran og Jónas Ingimundarson flytja antikaríur og verk eftir Ross- ini og Britten auk söngva frá Vín. Kynningarbæklingur liggur frammi í anddyri Salarins en einnig geta áhugasamir hringt í Salinn í síma 5 700 400 og fengið bækling- inn sendan. Fastir áskrifendur að TÍBRÁR-röð fá aðgöngumiða sína senda heim í vikunni fyrir valda áskriftartónleika. Áskriftarsala er hafín í anddyri Salarins og Vigdís kveðst vilja vekja athygli á því að nú er hægt að kaupa sérstök gjafa- kort á tónleika í Salnum. Miðasala Salarins er opin alla virka daga kl. 9-16 og tónleikadaga frá kl. 19, nema laugardaga frá kl. 14. Opið er á venjulegum afgreiðslutíma milli jóla og nýárs. Frá Ishafínu til Afríku MYNDLIST Listasafn fslands BLÖNDUÐ TÆKNI Á PAPPÍR KARL EINARS- SONDUNGANON Til 15. janúar. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 11-17. Aðgangur 300 kr. Miðvikudaga ókeypis. HALLDÓR Laxness talaði um Karl Einfer sem áhrifavald í lífi sínu. Eftir fáein lausleg en ógleymanleg kynni af Karli Einarsson Dunganon taldi Halldór sig beinlínis háðan þessum seyðfirsk-færeyska þúsun- dþjalasmiði, bragðaref og sérvitr- ingi. Karl seldi honum meðal annars ljóð eftir ónefndan íslenskan öldung, eitt sinn þegar þeir hittust í Kaup- mannahöfn, og umsamdi Halldór ljóðið og nýtti í eina af skáldsogum sínum. Gat hann þess í smásögunni Völuspá á hebresku, úr safninu Sjö töframenn, að sjaldan hefði mönnum fundist sér takast betur upp í kveð- skapnum en einmitt í því ljóði. Eitt af sérkennum Karls, sem þeir nefna báðir, Halldór Laxness og Björn Th. Björnsson, var þörf hans fyrir að bregða sér í alls kyns líki með vægast sagt óhefðbundnum hætti. Þetta stóð í beinum tengslum við þá þörf hans að útvega mönnum eða selja, hvaðeina það sem hann taldi að þeim nýttist til aukins frama og hamingju. Oftar en einu sinni bauðst hann til að útvega Halldóri Nóbelsverðlaunin, og var þá við- kvæðið að hann áskildi sér þóknun upp á helmingaskipti tækist honum ætlunarverkið. Af þessum sökum gátu menn aldrei vitað fyrir víst hvort það sem hann lét frá sér fara í myndlist eða skáldskap væri hans eigið pródúkt eða keypt af öðrum. Til dæmis eru þeir til sem álíta að 256 mynda syrpa hans Oracles - en myndirnar sautján á kaffistofu Listasafns íslands eru einmitt úr hinni risavöxnu myndröð Véfréttir - sé ekki eftir Karl E. Dunganon, heldur litríkan alþýðuskreyti í Kaup- mannahöfn sem gekk undir heitinu Tatoverings Ole. Snilld Karls væri þá fólgin í þeim vel heppnuðu lodd- arabrögðum að smygla myndum keyptum af Óla húðflúrara inn í hirslur Listasafns íslands, rétt eins og öllu því vafasama kvonfangi sem honum tókst að smygla inn á ein- hleypa menn út um alla Evrópu með- an hann var á kafi í trúlofunarbrask- inu sem doktor Anakananda í Brussel. Nú skortir undirritaðan alla sam- anburðarþekkingu til að kveða upp úr um handbragð Karls heitins, en myndröðin er óumdeilanlega frá honum komin svo hún verður að telj- ast hans, rétt eins og trúa verðm’ höfundarstimpli allra þeirra listamanna sem segja verk sín vera sín þótt enginn sé til vitnis um að þeir hafi sjálfir staðið að gerð þeirra. í því sambandi er vert að minnast Rubens, hins ágæta flæmska barokkmálara, en stór hluti verka hans - þeirra verka sem honum eru eignuð - eru verk aðstoðar- manna hans og hjálpar- kokka. En frá svo ófrjóum vanga- veltum er vert að snúa sér að myndunum sautján. Þær eru allar af sömu stærð, gerðar með olíukrít, vaxlitum og bleki á pappír, en að endingu lakkaðar með glansandi lakki. Fyrir vikið verður yfirbragðið hálf- glansandi en litaraftið viðar- kennt, eins og listrænar af- urðir frumskógarbúa. Þessi heildstæði blær er afar sann- færandi. Hann gefur mynd- röðinni svipmót mannfræði- legra landkönnunarheimilda. Manni verður þegar hugsað til Hughrifanna frá Afríku eftir Raymond Roussel, fi’umskógarmynda Henri Rousseau og Afríkuteikninga hins vitskerta Carls F. Hill, sem hann vann með grófri krít, lokaður inni í herbergi sínu í Malmö. Um leið skynjar áhorfandinn ná- lægð Karls við sér 77 árum eldri Sölva Helgason og 25 árum yngri Þórð Valdimarsson. Það eru hin mam'sku einkenni sem þremenning- arnir eiga sameiginleg, ásamt graf- ískri festu - snilligáfunni - sem er eina haldreipi þeirra gegn óreiðunni, sem er ekkert minna en óskiljanlegt, grimmúðlegt og óhamið almættið í Manna- því um og dýraval, úr niyndröðinni Véfréttir, frá 1948-1955. Blönduð tækni á pappír, 19 x 12,5 cm, í eigu Listasafns íslands. líki sigri hrósandi villidýra og forynja. Um leið og þeir lýsa þessari ytri ólgu nátt- úrunnar sem hamslausu stríði höfuðskepnanna vísa þeir - vitandi eða óafvit- andi - til eigin ólgandi blóð- rásar sem er ekki síður hluti af hinni skefjalausu náttúru, og rekur þá áfram eins og harður húsbóndi. Og þrátt fyrir þennan ójafna leik sem ekki getur endað nema á einn veg förl- aðist Karli Einarssyni Dunganon - greifa af Sankti Kildu og doktor í sálrænni fjáröflun, fjar- stýrðu makavali og hvers kyns huglægum straum- miðunum - hvergi í lýsing- um á þeim sendingum sem ásóttu hann. Hver verður sinn djöful a ð draga, en fá- um er gefið að geta lýst þeim átökum með jafn- skýrum og skipulegum hætti og Seyðfirðingurinn Einfer - alías Óli húðflúrari - gerði á eftirstríðsárun- um. Halldór Björn Runólfsson Hvernig er best að nota afgangana úr kalkúnaveislunni? Svarið er á Netinu www.kalkunn.is Rétta slóöln aö llúffengrl nátiöarmáltiö
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.