Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 35 Margbrotinn einfaldleiki ogskáldverðaaðeins þrírafþúsundi. Elska þau enelskalíkamakkar- ónusúpu elska gullhamra og blátt elska gömul sjöl elskaaðstandafyrir mínu elskaað klappa hundum. Ljóðið aðeinsþannigerþeim lióðið. Orættsvar við horfmni spum það veit ég ekki, ég veit þaðekkiogþví gríp ég í þessa framréttu hönd, Wislawa Szymborska persónu lýsing), í seinni hluta er ljóðmælandinn köttur. I „Tregaupp- gjöri“ er fjallað um gengna vini. Allt sem sagt er í þessu ljóði er jafnóðum dregið í efa innan sviga. „Vakan“ er annar sterkur texti, heimspekilegur einsog fleiri ljóð Szymborska. „Ærsialeikir" fjallar um engla og hvað þeir gera „utan engilsiðju/ og því ómennskari starfa“. Þeir lesa ekki skáldsögur, ekki ljóð heldur horfa á þöglar kvikmyndir. Ljóðmæl- andi vonar að þeir gleðjist: Stjörnu- spekingur deyr BÆKUR Ljóð ENDIR OGUPPHAF eftir Wislawa Szymborska, þýðandi Geirlaugur Magnússon, Bjartur, Reykjavík, 1999, 63 bls. WISLAWA Szymborska er pólsk skáldkona og Nóbelsverðlaunahafi árið 1996. Endir og upphaf er níunda ljóðabók hennar, kom út á frummál- inu 1993 og nú á íslensku. Geirlaugur Magnússon þýðandi bókarinnar rit- ar einnig ítarlegan og fróðlegan for- mála. í honum eru allnokkur ljóð úr öðrum bókum Szymborska. Szymborska hóf útgáfuferil sinnl952. Hún hefur verið bendluð við pólitískt andóf í ljóðagerð sinni, en það stenst ekki vel; ljóð hennar eru ekki pólitísk í þrengsta skilningi þess orðs. Nær lagi er að kalla þau „ritgerðarljóð" einsog hún er í for- mála sögð sjálf hafa gert. Einfald- leiki er einkenni á ljóðum hennar, talmálsstíll, efi og spurn. „Eg veit ekki“ eru orð sem hún sagðist meta mikils í ávarpi sínu á Nóbelshátíð 1996. Og þeim bregður reyndar fyi-ir í þessu ljóði hér: Sumir elska ljóð Sumir- en ekki nærri allir. Sannlega ekki fjöldinn fremur en þeir fáu. Læra þau ekki í skóla þó verði BÆKUR F r æðirit KORTLAGNING HUGANS eftir Ritu Carter í þýðingu Sverris Hólmarssonar. Mál og menning 1999,225 bls. Prentuð á Ítalíu. KORTLAGNING hugans er glæsileg bók með aðgengilegum skýringarmyndum. Texti er skýr og vel fram settur, og þótt efnið sé all- flókið þá tekst höfundinum að gera það spennandi. Rita Carter er á baksíðu sögð vera blaðamaður sem fjalli einkum um læknisfræðileg efni og skrifi með almenna, fróðleiksfúsa lesendur í huga. Hún er einnig sögð njóta aðstoðar fjölmargra sérfræð- inga við þessa leiðsögn um lendur mannshugans eins og þær blasa við af sjónarhóli hinna nýju heilavísinda og er eins þeirra sérstaklega getið, Christopher Frith. Fleiri upplýsing- ar fylgja á baksíðu, einkum þær að með nýjustu tækni í myndatöku á mannsheilanum hafi opnast nýjar víddir í rannsóknum á huga manns- ins. Hægt sé að sýna hugsanir og minningar - og jafnvel hugarástand- á myndum á sama hátt og röntgen- myndir sýni bein. Það megi til dæmis sjá heila fólks lýsast upp á ákveðnu svæði þegar það heyrir brandara, senda frá sér dauft skin á öðru svæði við dapurlega minningu og Ijóma á því þriðja þegar hugurinn er að. kljást við ný orð. Eg var að lesa margt nýtt í þessari bók, um rann- sóknir og tækni sem ekki er til hversdagslegra nota enn sem komið er heldur á tilraunastigi en samt finnst mér Rita Carter alloft falla í þann pytt að fullyrða um of, enda gengst hún við því í inngangi bókar- innar. Þar kemur fram að sumt af því sem í bókinni getur að lesa sé í raun- inni flóknara en hún láti í veðri vaka og sumt af því eigi áreiðanlega eftir Yrkisefnin eru af ýmsum toga. í titilljóði bókarinnar er ort um stríð eða öllu heldur eftirköst þess: „Það verður/að ryðja veginn/svo líkvagn- arnir/komist leiðar sinnar." („Endir og upphaf‘, 23.) Þau eftirköst teljast ekki fréttnæm, „Myndavélarnar horfnar/ til annarra styrjalda" og smám saman grær ekki aðeins yfir menjar stríðsins heldur einnig or- sakir þess og afleiðingar: „í grasinu sem nú hylur/orsök og afleiðingu/ liggur líklega einhver/ tyggur strá/ og gónh' upp í skýin“ („Endir og upp- haf“. 25.) Ljóðið „Köttur í auðri íbúð“ fjallar um kött eftir að eiga- ndinn er dáinn; þetta er í senn húm- orískt og harmrænt ljóð, fyrri hlut- inn frásagnarkenndur (þriðju að reynast rangt. Það stafi af því að margar af niðurstöðunum séu svo nýjar að ekki sé enn búið að sann- reyna þær. Mér finnst það heiðarlegt af höfundi að gera strax í upphafi hreint fyrir sínum dyrum á þennan hátt en það þýðir jafnframt að taka verður margt í bókinni með fyrir- vara. Leyndardómar heilans og mann- legrar hugsunar hafa löngum heillað vísindamenn og hefur heilinn því verið rannsakaður á hveijum tíma í samræmi við þær aðstæður sem þeir hafa búið við, allt frá höfuðbeina- fræði, höfuðlagsrannsóknum og krufningum íýrri alda að nútíma tækni sem fært getur okkur ítarlegri upplýsingar um innviði og starfsemi heilans en okkur hefur getað órað fyrir. Margar sjúkrasögur koma til tals í bókinni. Þær auðga frásögnina veru- lega og gera hana léttari aflestrar. Einnig er komið inn á ýmiss konar skapbrigði og hugsanir, kynhegðun og kynjamun og hvernig hans gætir í rannsóknunum. Á bls. 73 er til dæm- is smáklausa um rannsóknir amer- ísks líffræðiprófessors um hvort heili í samkynhneigðum körlum sé ólíkur heila annaira kai'lmanna. Hann komst að þeirri niðurstöðu að ákveð- inn hluti heilans, kjarninn í undir- stúkunni svonefndu.væri mun minni í hommum en það rennir stoðum undir þá kenningu að samkynhneigð eigi sé líffræðilegar rætur. Rita Carter er eins og fyrr segir blaðamaður, sem ritar um læknis- fræðileg efni fyrir brezk blöð á borð við Independent, New Scientist, Daily Mail og Daily Telegraph. Það er hrein unun að lesa bók sem er svo vel þýdd eins og Kortlagning hug- ans, en Sverrir Hólmarsson hefur leyst það vandasama verkefni af hendi með stakri prýði. Katrín Fjeldsted Ég get jafnvel ímyndað mér þá klappa saman vængjunum ogtárfalliúrauga þó ekki væri nema af hlátri Það smáa, lítilsverða, ósögulega, það sem telst ekki til tíðinda er gjarnan leitt til móts við það sögu- lega, stóra, svo sem í ljóðinu „Mætti vera nafnlaust" þar sem efast er um „að það sem máli skiptir/ skipti meira máli en það sem engu skiptir“. Það er fyrst og fremst einfaldleikinn sem gerir þessi ljóð að mjög sterkum textum, einfaldleiki sem leynir á sér, bæði í stíl og efnistökum. Sýning framlengd SÝNINGU Jónasar Braga „Bárur“ í sýningarsal Gallerí Hár & List, Strandgötu 39, Hafnarfirði, hefur verið framlengd til áramóta. Jónas sýnir skúlptúra og mynd- verk sem hann hefur unnið úr kristalgleri og öðrum glerefnum sem eru meðhöndluð á sérstakan hátt. Sýningin er opin á afgreiðslu- tíma verslana. ERLENÐAR BÆKUR S p c n n ii s a <í a „STARSTRUCK" eftir Val McDermid. HarperCoIlins 1999.240 síður.< VAL McDermid er spennusagna- höfundur fædd í Skotlandi og á að baki nám í bókmenntum við Oxford - háskóla. Hún hefur sent frá sér á annan tug skáldverka en tæplega helmingur þeirra fjallar um hressi- legan einkaspæjara að nafni Kate Brannigan. Sú nýjasta heitir „Star Struck“ og kom fyrir skemmstu út í vasabroti hjá HarperCollins-útgáf- unni, en í henni kynnist Brannigan heimi bresku dagsápuóperanna þeg- ar hún fær það verkefni að vera líf- vörður eins aðalleikarans í vinsælli dagsápu. Þeim kynnum er lýst eins og kannski við mátti búast af kald- hæðnislegri lítilsvirðingu því það er gamansamur tónn í einkaspæjaran- um, sem segir frá í lyrstu persónu, en það vantar talsvert upp á að sagan sé nægilega spennandi til þess að halda athyglinni óskiptri og endirinn er næsta fyrirsjáanlegur. McDermid og sápurnar McDermid starfaði í fjölda ára sem blaðakona og má sjá af lestri bókarinnar að hún hefur talverða reynslu sem slík. Hún segir í eins- konar formála að hún hafi undir það síðasta unnið hjá blaði sem hafði í gegnum tíðina sífellt meiri áhuga á breskum sápuópemm og leikurum þeirra. „Aí'raksturinn er sá að ég hef gleymt meii'u en nokkur heiðarlegur maður vill vita um einkalíf hinna frægu.“ Kate Brannigan er ein af þremur persónum sem hún skrifar um, en hinar tvær eru glæpasérfræðingur- inn Tony Hill, sem birtist í sálfræð- itryllunum „The Mermaids Singing11 og „The Wire in the Blood“, og Lindsay Gordon, en um hann fjalla bækur eins og „Union Jack“ og „Report for Murder. Þess má geta að bækur McDermid hafa unnið til verðlauna í Bretlandi, m.a. hlotið Gullna rýtinginn, verðlaun samtaka glæpasagnarithöfunda í Bretlandi. Brannigan rekur spæjaraskrif- stofu í Manchester ein síns liðs en hún hefur ritara á sínum snærum og Gizmo er tölvuséní sem hún leitar til þegar í nauðirnai' rekur. Hún er á fertugsaldri og býr með tónlistar- blaðamanni, reyndar búa þau í sitt- hvorri íbúðinni í sömu blokkinni sem hentar henni ágætlega og hún á fjölda vina úr ýmsum áttum, sem oft þurfa að leita ásjár hjá henni - og hún hjá þeim. Morð á stjörnuspekingi Einn daginn rekur á fjörur hennar stórstjörnu úr sápuóperunni „North- erners“. Gloria Kendal heitir hún op- inberlega því það er ekkert spenn- andi að vera sápuleikari og heita sínu raunverulega nafni, Doreen Satt- erthwaite. Hún hefur fengið hótun- arbréf í pósti þar sem bréfritari hyggst stytta líf hennar umtalsvert af einhverjum ástæðum. Gloria ræð- ur Brannigan til þess að gæta sín á tökustað og annarstaðar. I ljós kem- ur að stjarnan þurfti ekki að hafa neinar áhyggjur, því Brannigan er ekki lengi búin að láta sér leiðast við upptökur á sápunni þegar stjörnu- spekingur leikaranna finnst myitur. McDermid er gríðarlega lengi að koma sér að efninu og hún setur fjölda hliðarsagna inn í aðalsög- uþráðinn sem lengir óþarflega frá- sögnina og koma þar við sögu smá- krimminn Dennis, sem er inn- brotsþjófur meðal annars, Cassie, sem er kynskiptingur, angi af mafí- unni í Manchester-borg og svert- ingjadrengur sem afhendir stefnur fyrir Brannigan og sífellt er verið að handtaka. Með svolítið meiri snerpu hefði eflaust mátt bæta söguna nokk- uð. Hins vegar er ávallt gamansamur tónn í sögunni er sprettur ekki síst af því að Brannigan er kona og hefur skemmtilegt innsæi í þá karlaveröld sem hún sem spæjari þarf að kljást við. Arnaldur Indriðason Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00 1981-l.fl. 25.01.00-25.01.01 kr. 316.927,00 1986-l.fl. B 10.01.00- 10.07.00 kr. 28.086,50 < 1989-1.fl. A 2,5 ár 10.01.00- 10.01.01 kr. 26.462,60 o 1989-2.fl. A 10 ár 15.01.00- 15.01.01 kr. 23.943,80 X < > *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 30. desember 1999 SEÐLABANKIÍSLANDS Hermann Stefánsson Heilinn heillar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.