Morgunblaðið - 30.12.1999, Síða 76

Morgunblaðið - 30.12.1999, Síða 76
^76 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM .Frá Broadway í Perluna Anne Runólfsson er hálfíslensk söng- kona sem hefur náð miklum frama í söngleikjum í New York. Hún hefur meðal annars verið staðgengill Julie Andrews í Victor/Victoria og núna á gamlárskvöld skemmtir hún gestum Perlunnar ásamt Agli Olafssyni. ANNE Runólfsson á reyk- vískan fööur, Kjartan Runólfsson, en fæddist og . ólst upp í Kalifomíu. Hún kom fyrst til íslands þriggja ára og svo aftur fjórtán ára, en þá dvaldist hún hjá systur sinni og frænku. „Þessi ferð er sennilega minnis- stæðust. Eg var hérna allt sumarið og án foreldranna. Viðbrigðin voru 'auðvitað mikil að koma hingað frá Kaliforniu; ég man sérstaklega eft- ir brennisteinslyktinni og öllu hreina vatninu, kökunum sem mér fundust svo góðar, íslenskum pönnukökum, skyrinu og svo auð- vitað hinum séríslensku pylsum með öllu. Mér fannst líka skringi- legft að það var ekkert sjónvarp í júlí og hve sumarið var kalt,“ segir Anne, „það var bjart allan sólar- hringinn og maður vissi varla hvc- nær ætti að fara að sofa og hvenær ætti að vakna.“ Hvenær ákvaðstu að verða söng- kona? „Eg gerði mér einmitt fyrst grein fyrir því að ég gæti sungið þegar ég var á þessum aldri, u.þ.b. fjórtán ára. Þá fór ég að læra söng og syngja í söngleikjum. Mér fannst það svo ofsalega gaman að ég söng í söngleik eftir söngleik og var sí- fellt í áheyrnarprófum." Söngurinn kom ekki niður á náminu Truflaði þessi þátttaka ísöng- leikjum ekki skólagönguna? „Nei, ég lagði alltaf mikinn metn- að í námið, var iðin og vildi fá góðar einkunnir. Mér tókst að standa mig mjög vel í skóla og stunda leiklist- ina um leið, en oft var það þannig apótek bar • grill Nýársfagnaður i. janúar 2000 S sökum forfalla eigum við laust á nýársfagnað okkar 1. janúar nk kl. ig.30 Matseðill c&o Fordrykkur Sushi & Kampavín Grillaður humarog hörpuskelsfrauð Túnfiskur með Wasabe og koriender cffo Andabringa með sólberjasósu & spínati á Charlottuconfit Millennium desert c>& '<fl apúbek Borðapantanir í síma 5757 goo Netfang: apotek@veitingar.is zvww.veitingar.is Morgunblaðið/Jim Smart að svefninn var af skornum skammti. Þegar ég kom heim af æf- ingu klukkan tíu um kvöld þurfti ég að vinna heimavinnuna til klukkan tvö. Þetta var því nokkuð erfitt, en vel þess virði. Eg fór síðan í UCLA- háskólann og hélt söngnáminu áfram þar, en lauk ekki námi, þar sem ég vildi einbeita mér að söng- leikjum." Þá ákvaðstu að freista gæfunnar ogflytja til New York, höfuðborgar söngleikjanna. „Já, það var árið 1986, þegar ég var tvítug. Mig hafði alltaf dreymt um að flytja þangað og reyna að komast að á Broadway. Ég minntist á þennan draum við vin minn, sem hvatti mig til að láta slag standa. Ég keypti því flugmiða til New York, aðra leiðina, og tók mcð mér fjórar ferðatöskur og 200 dollara. Ég varð strax ástfangin af borg- inni, dvaldi þar í eitt ár, en fór aftur til Kaliforníu til að leika í Les Mis- érables. Árið 1990 flutti ég svo aft- ur til New York, enda hafði það alltaf verið ætlunin." Löngunin verður að vera sterk Er erfitt að ná frama íNew York? „Til þess að gera það þarf að vera ógurlega metnaðarfullur, dug- legur og hæfileikaríkur. Löngunin verður að vera geysisterk. Ég var gríðarlega metnaðargjörn og ekk- ert annað komst að hjá mér en að ná lengra og lengra. Það er hins- vegar stórskrýtið hvernig þessi metnaður hverfur með aldrinum; a.m.k. í mínu tilfelli. En á þessum aldri miðuðust allar gjörðir mínar við að ná lengra.“ Ríkir þá ekki mikil samkeppni á Broadway? „Jú, svo sannarlega. Þangað flykkjast allir þeir sem dreymir um að ná frama í leiklist iimi og margir heltast úr lestinni. Fæstir eru jafn heppnir og ég, en auðvitað eru margir heppnari eins og gengur og gerist. Þrátt fyrir alla þessa sam- keppni er andrúmsloftið fágað og ég á marga vini og vinkonur í fag- inu. I söngleikjaheiminum bera söngvarar og söngkonur virðingu hvert fyrir öðru. Ég hringi til dæm- is gjarnan í vinkonu mína og bendi henni á áheyrnarprufu sem mér hefur verið boðið í. Það er nefni- lega þannig að leikstjórarnir hafa oftast fullmótaða hugmynd um hvernig leikara þeir vilja og engar tvær leikkonur eru eins, þannig að samkeppnin er ekki alveg bein.“ Julie Andrews eftirminnilegust Þú hefur unnið með mörgu frægu fólki, eins ogJulie Andrews, Lizu Minnelli, Raquel Welch og José Carreras. Hver er eftir- minnilegasti samstarfsmaðurinn ? „Ég held ég verði að segja Julie Andrews. Hún er ekki ósvipuð þeim persónum sem hún er þekkt fyrir að hafa leikið, eins og til dæmis Mary Poppins. Hún er góðhjörtuð, vingjarnleg og örlát. Hún er sann- arlega stórkostleg manneskja. Það var mikil heppni að fá að vinna með henni og verða vinkona hennar í kjölfarið. Ég hef Iært mikið af henni, jafnt af því að tala við hana sem horfa á hana á sviði. Hún legg- ur sig fram manna mest, þótt hún teljist vera svokölluð stjarna." Það er ekki tekið út með sældinni að leika ísöngleik. Hversu oft er sýntí viku? „Átta sinnum. Mánudagar eru einu frídagarnir og á miðvikudög- um og laugardögum er tvær sýn- ingar. Þetta er erfitt, reyndar held- ur of erfitt að mínu mati.“ Hvert er erfiðasta hlutverk sem þú hefur leikið? „Aðalhlutverkið í Victor/ Victoria, vegna þess að allt verkið snýst um aðalpersónuna og þess vegna mæðir auðvitað mest á aðal- leikkonunni. Hlutverk Roxane í Cyrano er líka rnjög erfitt. Þar er söngurinn mjög erfiður og búning- arnir þungir. Maður þurfti að burð- ast með fimm aukakíló, sem var mjög erfitt.“ Stundum eru þekktar leikkonur fengnar til að lcika aðalhlutverk í söngleikjum, ekki vegna sönghæfi- leika heldur frægðar, og hoppa þannig beint inn á Broadway. Er það ekki gremjuefni fyrir þær sem hafa unnið hörðum höndum ísöng- leikjum? „Jú, það verður að segjast eins og er. Eiginmaður minn, sem er fram- leiðandi á Broadway, hefur reynt að útskýra fyrir mér að þessi þekktu nöfn séu nauðsynleg til að söngleikirnir séu yfir höfuð settir upp og beri sig. Auðvitað er það skiljanlegt, en samt frekar svekkj- andi. Stundum fer maður á söng- leik og hugsar með sér: „Ég held ég gæti nú staðið mig betur“ eða jafn- vel „ég veit um að minnsta kosti tíu manns sem gætu staðið sig betur“,“ Rudy Guiliani gaf þau saman Hvernig er að búa íNew York? „New York er stórskemmt.ileg borg og hentar mér alveg sérstak- lega þar sem ég vinn í leiklistar- heiminum. Þar er alltaf eitthvað á seyði og fólkið sem kemur þangað er gjarnan hæfileikaríkt og skemmtilegt. Glæpatíðnin hefur lækkað, þökk sé borgarstjóranum Rudy Guiliani, og það er ekkert mál að fara í göngutúr með barnið og hundinn í Central Park.“ Hefurðu hitt borgarstjórann? „Já, reyndar vill svo til að hann gaf okkur saman, mig og eigin- manninn. Þannig vildi til að fjöl- miðlar í New York höfðu verið að stríða borgarstjóranum opinber- lega samkvæmt hefð og í samræmi við hefðina átti borgarstjórinn að svara með sniðugu tiltæki. Það gerði hann með því að dansa í kven- mannsfötum við Julie Andrews í sýningunni Victor/Victoria, sem við vorum að vinna við. Eiginmaður minn skipulagði þessa uppákomu, en hann var framleiðandi sýningar- innar. Samstarfsmaður hans kom því síðan i kring að Guiliani kom heim til okkar og gaf okkur saman. Reyndar vildi svo óheppilega til að sama kvöld átti sér stað skotárás á efstu hæð Empire State- byggingarinnar og þess vegna tafð- ist borgarstjórinn töluvert, en kom á cndanum og þurfti að skilja hundruð Ijósmyndara og frétta- manna eftir við ráðhúsið, þar sem þeir biðu eftir að fréttamannafund- ur hæfist. En Guiliani kom, fram- kvæmdi hjónavígsluna og fór svo beint á fundinn." Ánægð með að vera á íslandi Að allt öðru. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að eyða áramótunum á fslandi? „Reykjavíkurborg bauð mér í tengslum við að hún er ein af menn- ingarborgum Evrópu árið 2000. Ég syng með Agli Ólafssyni í Perlunni á gamlárskvöld, en ég söng með honum þegar ég kom hingað til lands íyrir þremur til fjórum árum. Þá aðstoðaði hann mig við að setja upp kabarettsýningu. Mér finnst frábært að syngja með honum. Þetta boð um að koma hingað um áramótin var langáhugaverðasta boðið sem ég fékk og mér þótti til- valið að sækja landið heim í fyrsta skipti að vetri til. Ég fór í gönguferð með mannin- um mínum og við hrifumst mjög af fegurð borgarinnar á þessum árs- tíma. Jólaskreytingarnar eru af- skaplega fallegar. Reykjavík er frá- bær borg; hún er gædd flestum kostum stórborgar í smæð sinni og rólegheitum. Öllum þörfum er full- nægt þótt borgin sé smá. Ég er mjög ánægð með að eyða ára- mótunum hérna.“ Kæmi tilgreina að búa hérna í framtíðinni? „Ég veit það ekki, ég yrði að minnsta kosti að læra íslensku, sem hefur reyndar staðið til hjá mér í langan tíma. Ég syng reyndar nokkur lög á íslensku í Perlunni á gamlárskvöld. Dagskráin verður blanda af íslenskum og erlendum lögum."
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.