Morgunblaðið - 30.12.1999, Side 84

Morgunblaðið - 30.12.1999, Side 84
Fyrir 65 ára og eidri M Traus íslenska murvorui Síðan 1972 |B Leitið tilboða! ■I steinpi MORGUNBLAÐW, KRINGLANl, 103 REYKJAVÍK, SÍMI569H00, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ASKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Þrír menn í gæsluvarðhaldi vegna e-taflna ÞRÍR menn á aldrinum 17 til 25 ára voru í gærkvöldi úrskurðaðir í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunn- ar í Reykjavík vegna e-töflumáls sem komið er upp og er til rannsókn- ar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins leikur grunur á að e-töflur, sem lagt var hald á við rannsókn málsins, hafi verið ætlaðar til dreif- ingar um áramótin. Héraðsdómur úrskurðaði tvo mannanna, sem eru 17 og 19 ára, í gæsluvarðhald til 12. janúar en þann elsta til 19. janúar. Sá hinn sami kom við sögu í máli Bretans Kios Briggs sem var til meðferðar hjá dómstólum á þessu ári. Lögreglan lagði hald á verulegt magn e-taflna við húsleit hjá einum hinna handteknu í fyrradag en gat ekki gefið upp hversu mikið magn væri um að ræða að svo stöddu. I framhaldi af húsleitinni voru mennirnir handteknir og gerð krafa um gæsluvarðhald yfir þeim í gær. Okeypis netþjónusta Islandssíma hefst í dag Tal hf. kynnir samruna síma- og netþjónustu TVEIR 23 ára gamlir menn búsettir í Reykjavík hafa viðurkennt við yfir- heyrslur rannsóknardeildar lögregl- unnar í Hafnarfirði að hafa staðið að umfangsmikilli peningafölsun með því að útbúa allt að 100 fimm þúsund króna seðla heima hjá öðrum þeirra með háþróuðum heimilistölvubúnaði. Jafnumfangsmikið peningafölsun- armál hefur ekki komið til kasta lög- reglu hérlendis áður, en allt að 12 ára fangelsi liggur við slíkum brotum. A milli 40 og 50 seðlar sem menn- irnir höfðu útbúið voru tilbúnir til að fara í umferð, en mennirnir höfðu reynt að koma sjö seðlum í umferð í „Við sjáum nú í lok ársins að verð hefur lækkað um 50% á ýmsum svið- um fjarskiptaþjónustu og öðrum jafnvel enn meira,“ segir Eyþór. ■ Engin lognmolla/42 ■ Þráðlaus fjarskipti/43 Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson NIJ styttist óðum í áramótin og þá verður skrautlegt um að litast ef að líkum lætur og veður skaplegt, enda um mikil tímamót að ræða að margra mati. Isfirðingar tóku forskot á sæluna, eins og myndin sýnir. Tveir menn prentuðu eitt hundrað fimm þusund króna seðla Stærsta peningafölsun- armál hérlendis upplýst Hafnarfirði. Þar af tókst þeim að koma fjórum seðlum í umferð. Mennirnir eyðilögðu alla seðlana sem voru í framleiðslu áður en lög- regla lagði hald á þá en upplýstu við yftrheyrslur hversu mikið þeir höfðu framleitt. Tveir hinna fjöguira seðla sem tókst að koma í umferð hafa komist í vörslu lögreglunnar. Þriggja vikna gömul starfsemi Mennirnir höfðu stundað peninga- fölsunina í þrjár vikur áður en starf- semi þeirra var upprætt og voru handteknir síðastliðinn mánudag eft- ir að árvökul afgreiðslustúlka í versl- un þar sem annar mannanna ætlaði að framvísa seðli gerði viðvart. Stúlkan brá seðlinum upp í ljós og greindi þá að seðillinn var falsaður, en þess má geta að seðlarnir voru svo raunverulegir að nánast ógemingur hefði verið að dæma um hvort þeir væru falsaðir eður ei öðruvísi en að grandskoða þá i sterku Ijósi. Lögr-eglan lagði hald á tölvu og prentara sem mennirnir notuðu við fölsunina en þar var um að ræða mjög háþróaðan búnað. Mörg smærri fölsunarmál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á und- anfömum ámm og hefur nær undan- tekningarlaúst tekist að rekja þau. Oftast er það árvökult afgreiðslufólk sem kemur upp um falsarana þegar þeir framvísa seðlunum en hitt er þó ekki síður alvarlegt að grunlaust fólk sem veitt hefur falsseðlum viðtöku í góðri trú og framvísað þeim áfram hefur þar með gerst brotlegt við lög. Allt að 12 ára fangelsi fyrir peningafölsun Peningafölsun er litin mjög alvar- legum augum í íslenskum lögum og segir m.a. í 150. gr. almennra hegn- ingarlaga að hver sem falsar peninga í því skyni að koma þeim í umferð sem ósviknum gjaldeyri skuli sæta fangelsi allt að 12 árum. Grunlaus að- ili sem veitir falsseðli viðtöku án þess að vita hvers kyns sé getur einnig hlotið allt að eins árs fangelsi ef hann framvísar falsseðli og upp kemst. Að sögn rannsóknarlögreglunnar í Hafnai’firði gerðu mennirnir tveir sér enga grein fyrir því hve alvarleg- um augum háttsemi þeirra var litin. Rannsókn málsins er að mestu lokið hjá lögreglunni í Haí'narfirði og verð- ur málið bráðlega sent ákæruvaldinu til áframhaldandi meðferðar. Lögreglan beinir því eindregið til fólks að sýna árvekni í peningavið- skiptum og bregða seðlum óhikað upp í Ijós til að ganga úr skugga um að vatnsmerkið sé á sínum stað og gera lögreglunni viðvart haíi það grun um að um falsseðla sé að ræða. Morgunblaðið/Jim Smart Efsti seðillinn á myndinni er ekta en hinir tveir eru falsseðlar í vörslu lögreglunnar í Hafnar- firði. Gæði falsseðlanna eru mjög mikil og því erfitt fyrir fólk að sjá í gegnuin blekkingar falsara nema að grandskoða seðlana og beina þeim upp í ljós til að sannreyna hvort vatns- merkið sé á sínum stað. uag* sSSw mtm Lífeyrissjóðir 81% aukn- ing í erlend- um hluta- bréfum FJÁRFESTINGAR lífeyris- sjóða í erlendum hlutabréfum hafa aukist um 81% fyrstu tíu mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. I frumvarpi fjármálai’áð- herra um rýmkaðar heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga er- lendis sem og rýmkaðar heim- ildir þeirra til fjárfestinga í verðbréfum útgefnum af öðrum en ríkinu er kveðið á um að líf- eyrissjóðum verði heimilt að ráðstafa allt að 50% af hreinni eign sjóðanna erlendis, en þetta hlutfall er nú 40%. Þá er gert ráð fyrir að fjárfestingar í hluta- bréfum og öðrum verðbréfum en ríkisverðbréfum megi nema 50% af heildareignum sjóðanna í stað 35% nú. I mánaðarriti Kaupþings, Þróun og horíúm, kemur fram sú skoðun að rýmk- aðar heimildir til hlutabréfa- kaupa kunni að draga það á langinn að ávöxtunarkrafa inn- lendra skuldabréfa lækki að nýju. Frjálsari heimildir sjóð- anna til fjárfestinga ættu á hinn bóginn að stuðla að heilbrigðaii verðmyndun á markaði. Þar kemur einnig fram að flestir líf- eyrissjóðir hafi nokkurt svig- rúm til að bæta við sig í erlend- um verðbréfum á þessu ári. ■ 81% aukning/B2 TAL hf. ætlar strax eftir áramótin að kynna nýja tækni sem byggist á samruna síma og Netsins og mun jafnframt bjóða upp á ókeypis að- gang símnotenda sinna að Netinu. Þetta kemur fram í viðtali við Þórólf Árnason, forstjóra Tals, sem birt er í blaðinu í dag, en þar kemur fram að viðskiptavinir GSM-þjónustu Tals eru nú um 36 þúsund. I dag mun Íslandssími hf. hefja ókeypis netþjónustu við almenning en Islandssími og íslandsbanki áttu forystu um að bjóða almenningi ókeypis aðgang að Netinu. í gær pþöfðu 15.000 manns skráð sig fyrir þeirri þjónustu, að því er fram kem- ur í viðtali við Eyþór Arnalds, fram- kvæmdastjóra Íslandssíma, sem birt er í blaðinu í dag. Þórólfur segir að Tal ætli að hasla sér völl í netþjón- ustu. „Nú strax eftir áramótin mun- um við kynna notendum okkar nýja tækni, sem byggist á samruna síma og Netsins. Um er að ræða nýjung sem nefnist Tal-Internet, þar sem við munum veita öllum okkar við- skiptavinum ókeypis aðgang að Net- inu með Tai-Net-áskrift. Þráðlaus fjarskipti eru lykillinn í okkar fram- tíðarsýn og við teljum að Tal-áskrift að Netinu verði alveg jafn sjálfsögð og Tal-áskrift að síma er í dag. Hver ..einstaklingur mun fá sitt eigið net- fang,“ segir Þórólfur m.a. í viðtalinu. Eyþór Arnalds, framkvæmda- stjóri Islandssíma, segir í viðtalinu að innkoma Íslandssíma á fjarskipta- markaðinn hafl þegar sparað síma- og tölvunotendum hundruð milljóna. ÞOKKUM VlÐSKIPTIN A OLDINNI SEM ER AÐ LIÐA H • n • u a © u FRÓN - KEMUR VIÐ SÖGU Á NÝRRI ÖLD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.