Morgunblaðið - 11.02.2000, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Snörp umræða á Alþingi um málefni RARIK
Ekkert ákveðið
um flutning
SNÖRP umræða varð um málefni
Rafmagnsveitna ríkisins, RARIK, á
Alþingi í gær. í umræðum utan dag-
skrár lagði Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra áherslu á að ríkis-
stjórnin hefði einungis ákveðið að láta
kanna hagkvæmni þess að sameina
Rafmagnsveitur ríkisins orkufyrir-
tækjum á Akureyri, en til þess að svo
megi verða þarf að breyta rekstrar-
formi fyrirtækjanna. Pá lagði hún
áherslu á að einungis ætti að kanna
hagkvæmni þess að flytja höfuðstöðv-
ar RARIK til Akureyrar, engar
ákvarðanir hefðu verið teknar í því
efni.
Fjallað var um málið að beiðni
Arna Johnsen, þingmanns Sjálfstæð-
isflokksins. Sagði Ami að framganga
iðnaðarráðherra hefði valdið óþarfa
misskilningi, uppnámi og ruglingi í
fréttaflutningi, sem og óvissu og tor-
tryggni bæði starfsmanna og not-
enda.
Hann sagði að ríkisstjórnin hefði
samþykkt að heimila iðnaðarráðu-
neytinu viðræður við Akureyrarbæ
um könnun á mögulegri eignaforms-
breytingu á RARIK með aðkomu Ak-
ureyringa og flutningi höíúðstöðva
fyrirtækisins til Akureyrar. Því ósk-
aði hann eftir því sökum „stórfellds
misskilnings í fréttaflutningi“, eins og
hann komst að orði, að ráðherra stað-
festi nú að einungis væri um að ræða
heimild til viðræðna um hugmynd, og
að engin stefnumarkandi ákvörðun
hefði verið tekin.
Sagði Ami m.a. að ef flytja ætti
höfuðstöðvar RARIK út á land lægi
beinast við að höfuðstöðvamar fæm
til Suðurlands. Nær 90% af allri orku-
framleiðslu íslendinga ættu sér jú
stað á Suðurlandi án þess að Sunn-
lendingar hefðu haft af því nein sér-
stök hlunnindi umfram aðra. Loks
væri það gmndvallaratriði að RAR-
IK sem landsbyggðarfyrirtæki hefði
fulla aðild að viðræðum um stefnu-
mótun og framtíðarskipan fyrirtæk-
ALÞINGI
isins, alveg sama hver ætti í hlut. Um
allt annað yrði ósætti.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra lagði á það áherslu að ein-
ungis hefði verið ákveðið að kanna
hagkvæmni þess að sameina RARIK
orkufyrirtækjum á Akureyri en til
þess að svo mætti verða þyrfti að
breyta rekstrarfbrmi fyrirtækjanna.
Þá sagði hún að einnig væri verið að
kanna hagkvæmni þess að flytja höf-
uðstöðvar RARIK tO Akureyrar.
Hefði tillaga þessa efnis borist frá
bæjarstjóra Akureyrar og ríkis-
stjórnin ákveðið á fundi sínum 2. febr-
úar síðastliðinn að verða við henni.
„Orðum hæstvirts málshefjanda
um óeðlilegan íramgang minn í þessu
máli vísa ég til föðurhúsanna. Ef um
misskilning er að ræða í þessu máli,
þá er hann tilkominn vegna mistúlk-
unar bæjarstjórans á Akureyri, en
ekki þeirrar sem hér stendur," sagði
Valgerður. Sagði hún að næsta skref
væri að gera verk- og tímaáætlun fyr-
ir athugunina og að fá óháðan ráð-
gjafa til þess að vinna að henni.
Gagnrýnt að starfsmenn skyldu
heyra af málinu í fjölmiðlum
Ymsir þingmenn urðu til að gagn-
rýna að starfsmenn RARIK hefðu
fyrst frétt af hugmyndum um hugs-
anlegan flutning höfuðstöðva RARIK
í fjölmiðlum. Kom fram í lokaorðum
Valgerðar Sverrisdóttur við umræð-
una að hún gerði sér vel grein fyrir
því að þetta mál væri viðkvæmt gagn-
vart starfsmönnum RARIK og að
hún hefði gjaman viljað kynna það
fyrir þeim áður en það fór í fjölmiðla.
Rannveig Guðmundsdóttir, for-
maður þingflokks Samfylkingai-,
sagði það hins vegar athyglisvert að
stjómarflokkamir væra nú komnir í
hái- saman vegna vinnubragða. í
sama knérann hjó Sighvatur Björg-
yinsson, Samfylkingu, sem benti á að
Ámi Johnsen ætti sæti í stjóm RAR-
IK og sú staðreynd, að hann færi
fram með þeim hætti sem raun bæri
vitni, staðfesti að iðnaðarráðherra
hefði ekki haft samráð við stjóm
RARIK í málinu.
Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs töldu hér rætt um
þrjú óskyld mál; flutning höfuðstöðva
RARIK út á landsbyggðina, hvernig
tryggja mætti rekstur RARIK og síð-
an breytt rekstrarform fyrirtækisins.
Sagði Steingrimur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, að sú spurn-
ing hlyti að vakna í þessari umræðu
hver væra eiginlega framtíðaráform
stjómvalda, hvort stefnt væri að all-
sherjar einkavæðingu orkufyrirtækj-
anna í landinu.
Hjálmar Ámason, Framsóknar-
flokki, gerði að umtalsefni að hvergi í
Evrópu hefði byggðaþróun orðið með
sama hætti og hér, þar sem um 60%
íbúanna byggju á suðvesturhominu.
Sagði hann gott ef spoma mætti við
þeirri þróun með flutningi ríkisstofn-
ana út á land.
Ólafur Öm Haraldsson, þingmaður
Framsóknarflokks, sagði hins vegar
kjördæmatog um hvar stofnanir
skyldu staðsettar ekki til góðs og tók
hann undir gagnrýni Guðmundar
Hallvarðssonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokks í Reykjavík, á ummæli
landsbyggðarþingmanna í þessari
umræðu. Hafði Guðmundur sagt að
það væri eins og framtíð 60 starfs-
manna RARIK í Reykjavík og fjöl-
skyldna þeirra skipti engu máli.
Landsvirkjun fái heimild til aðildar að fjarskiptafyrirtækjum
Frumvarpið gagnrýnt
fyrir óljóst orðalag
LANDSVIRKJUN fær heimild til
aðildar að fjarskiptafyrirtækjum
verði frumvarp, sem Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra mælti fyrir á Alþingi í gær,
að lögum. Gagnrýndu nokkrir þing-
menn framvarpið fyrir það, hversu
óljóst það væri orðað og hve erfitt
væri að átta sig á markmiðum þess.
Framvarpið er ekki stórt í sniðum,
en það gerir tillögu um að við 2. mgr.
2. gr. laga um Landsvirkjun verði
bætt heimild til aðildar að fjarskipta-
fyrirtækjum. í athugasemdum við
framvarpið kemur fram að Lands-
virkjun eigi og reki fjarskiptakerfi
vegna starfsemi sinnar. Það kerfi geti
komið að gagni fyrir fleiri aðila, m.a.
þá sem starfa að öryggismálum og að
ýmsir hafi nú þegar óskað eftir sam-
starfi við Landsvirkjun um fjar-
skiptastarfsemi þar sem fjarskipta-
kerfi fyrirtækisins yrði notað. Til að
af slíku geti orðið þurfi Landsvirkjun
hins vegar lagaheimildenda sé eðli-
legt að slík starfsemi verði rekin utan
hefðbundins rekstrar fyrirtækisins.
Hjálmar Amason, þingmaður
Framsóknarflokks og formaður iðn-
aðamefndar Alþingis, lagði áherslu á
öryggisþáttinn við umræðumar og
sagði að tilgangurinn væri einkum að
leyfa öðram afnot af fjarskiptakeifi
sem Landsvirkjun hefði komið sér
upp til að geta tryggt öragg fjarskipti
milli starfsstöðva á miðhálendinu.
Margrét Frímannsdóttir, þingmað-
ur Samfylkingar, benti hins vegar á
að rekstur þessa hluta kerfisins hefði
þegar verið boðinn út og því væri
erfitt að átta sig á málinu öllu saman.
Aðrir tóku í sama streng. Lúðvík
Bergvinsson, þingmaður Samfylking-
ar, sagði m.a. að ekki væri hægt að
átta sig á því hvort meiningin væri sú
að Landsvirkjun hæfi sjálf rekstur á
fjarskiptafyrirtæki eða hvort fyrir-
tækið myndi aðeins leigja öðram fyr-
irtækjum afnot af ljósleiðara sínum á
miðhálendinu. Svaraði Hjálmar Áma-
son því til að auðvitað væri ekki á döf-
inni að Landsvirkjun færi að afgreiða
símtöl eins og fjarskiptafyrirtæki al-
mennt, heldur væri meiningin að
bjóða fyrirtækjum, sem vildu fara um
þessa þjóðbraut, afnot af henni.
Orðalagið veitir í raun
mun víðtækari heimild
Margrét Frímannsdóttir lagði
áherslu á að í lagatextanum fælist
ekki aðeins heimild „til að nýta bún-
að“, eins og kæmi fram í athugasemd-
um við frumvarpið, heldur væri í raun
verið að gefa mjög víðtæka heimild
með þessu orðalagi.
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, tók undir þetta og gagn-
rýndi framvarpið á þeim forsendum
að útvíkka ætti með þessum hætti
rekstur ríkisfyrirtækis. Sagði hann að
með þessu orðalagi veittu lögin
Landsvirkjun jafnvel heimiid til að
kaupa 99% hlut í t.d. Landssímanum,
og væri fyrirtækið þá sennilega það
eina sem hefði bolmagn til slíkra
kaupa.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, velti þvi fyrir sér hvort
meiningin væri að víkka út starfssvið
Landsvirlqunar til að gera fyrirtækið
að vænlegri söluvöra þegar ríkis-
stjórnin tæki ákvörðun um að búta
það í sundur og selja hæstbjóðanda.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra sagði hins vegar óþarfa tor-
tryggni ríkja hjá þingmönnum. Tók
hún þó fram að ef þingmönnum fynd-
ist ákvæði frumvarpsins ekki nógu
skýr væri sá möguleiki alltaf fyrir
hendi að skerpa á gildissviði þess í
umfjöllun í iðnaðamefnd Alþingis.
Sagði ráðherrann að málið snerist
einfaldlega um það að stofna nýtt fyr-
irtæki um þennan rekstur Lands-
virkjunar, m.a. á ljósleiðaranum, og
myndi það fyrirtæki lúta almennum
reglum í sambandi við skatta og
skyldur, ólíkt Landsvirkjun sjálfri, en
eins og kunnugt væri byggi fyrirtæk-
ið við ýmis skattfríðindi.
Morgunblaðið/Kristinn
Myndlistarnemarnir ráðast til inngöngu í húsið við Lindargötu.
Myndlistarmenn á hrakhólum
Lögðu undir sig hús
E imskipafélagsins
fyrir misskilning
HÓPUR listamanna og mynd-
listarnema í Listaháskóla íslands
lögðu fyrir misskilning undir sig
auða byggingu við Lindargötu 49 í
eigu Eimskipafélags Islands hf. í
fyrrakvöld. Tilgangurinn er að
velq'a athygli á því aðstöðuleysi sem
hústökufólkið telur að listamenn
búi við.
Hústakan er f þágu lista að sögn
fólksins og segir í yfirlýsingu
þeirra að ákveðið hafi verið að taka
húsnæðið án Ieyfis, en sú ákvörðun
er þó ekki rökstudd frekar í yfir-
lýsingunni.
í yfirlýsingunni segir að Iistafólk
vanti stöðugt aðstöðu fyrir sköpun
sína og sé gjörðin ennfremur fram-
lag hústökumanna til Reykjavíkur
-menningarborgar árið 2000.
Hústökufólkið hafði komið sér
fyrir inni í húsnæðinu um klukkan
22 í fyrrakvöld og er fyrirhuguð
myndlistarsýning í húsinu á morg-
un.Iaugardag.
Ákvörðunin um taka húsið var
tekin um siðastliðna helgi en til
stendur að rífa húsið, líklega á
þessu ári.
Héldu að Reykjavíkurborg
ætti húsið
Hústökufólkið stóð í þeirri trú að
Reylqavíkurborg ætti húsið þegar
ráðist var til inngöngu, en áttaði sig
á misskiiningnum siðdegis í gær og
létu eigendur vita hvað gerst hafði.
Eimskipafélag fslands hf. keypti
húsið af Reykjavíkurborg fyrir fá-
einum árum og er hótelbygging
fyrirhuguð á lóðinni. Hústökufólkið
viðurkenndi að líklega hefði betra
verið heima setið en af stað farið ef
vitneskjan um eigendasögu hússins
hefði verði þeim kunn.
Þegar Eimskipsmenn upp-
götvuðu að hústökufólk hafði
hreiðrað um sig á Lindargötunni
sögðust þeir ekki ætla að hlaupa
upp til handa og fóta vegna hátt-
seminnar á næstunni en vildu lítið
tjá sig um málið.
„Tilgangurinn að
koma höggi á Björk“
GUÐMUNDUR Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
hefur skrifað opið bréf til Fram-
sóknarflokksins. í því sakar hann
þingmann flokksins um að reyna
að koma höggi á Björk Guð-
mundsdóttur til að bjarga fylgi
Framsóknarflokksins í tengslum
við að Björk hefði sýnt því áhuga
að fá að byggja hljóðver í Elliða-
ey-
I bréfinu segir: „Nýkjörinn
þingmaður Framsóknarflokksins
setti fram einkennilegar fullyrð-
ingar í viðtalsþætti um síðustu
helgi. Þar tók hann m.a. fram að
Björk hefði sótt það ákaft að fá
eyjuna. Það era fortakslaus
ósannindi. Ég áttaði mig ekki á til-
gangi þingmannsins, en síðar hef-
ur komið fram að tilgangurinn var
að koma höggi á Björk vegna þess
að hún tók undir með 80% þjóðar-
innar um að hún vildi að ráðherrar
Framsóknarflokksins færa að
landslögum við ákvarðanatöku við
byggingu lóns við Eyjabakka.“
Ólíklegt að Björk
vilji kaupa eyna
Síðar í bréfinu segir: „...eftir
það sem á undan er gengið tel ég
ólíklegt að Björk muni fást til þess
að ræða kaup eða leigu á Elliðaey
né hafi áhuga á að endurbyggja
niðurníddar fasteignir á eynni.“