Morgunblaðið - 18.03.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stormur víða um land í gærkvöld og nótt
Oveðurshryðjur
sagðar óvenjulegar
STORMUR var um allt vestanvert
landið í gærkvöld með 20-25 metra
vindhraða á sekúndu og rigningu
eða slyddu. Samkvæmt upplýsing-
um Veðurstofunnar var búist við að
vindhraði næði hámarki upp úr
miðnætti en spáð var mjög hvössu
veðri eða stormi víða um land í nótt
og fram eftir degi.
Eyjólfur Þorbjörnsson, veður-
fræðingur á Veðurstofu íslands,
segir aðspurður að óveðurskaflarn-
ir sem gengið hafa yfir á landinu að
undanförnu séu frekar óvenjulegir
á þessum árstíma. Það sem ein-
kenni þessar sviptingar í veðrinu að
undanförnu séu djúpar lægðir og
snarpar veðurbreytingar úr suð-
vestri til norðurs með miklum vind-
um.
Búist var við að áttin yrði suð-
vestanstæðari þegar liði á nóttina
með snörpum storméljum í nótt og
fram eftir degi. Draga mun smám
saman úr vindi þegar líður á kvöld-
ið samkvæmt spá Veðurstofunnar.
Snörp stormél taka við
af rigningu og hlýindum
Veðrinu í gær og nótt fylgdu
mjög sterkar vindhviður og fór
vindhraði yfir 30 metra á sekúndu á
nokkrum stöðum seint í gærkvöldi.
Eyjólfur sagði að spáð væri áfram
kólnandi veðri fram í næstu viku. Á
morgun er spáð suðvestanátt, 10-
15 m/s. og snjókomu sunnan og
vestan til og að hiti verði kringum
frostmark.
Á mánudag er gert ráð fyrir élja-
veðri og 1-6 stiga frosti.
Milli kl. hálffimm og fimm í fyrri-
nótt gekk á með þrumuveðri og eld-
ingum á höfuðborgarsvæðinu. Eld-
ingum laust niður í tvo ljósastaura í
Rauðagerði í Reykjavík og í Hafn-
arfirði rétt fyrir klukkan fimm.
Nokkuð var um að fólk hringdi í
Veðurstofuna og lögreglu vegna
þrumuveðursins og eldinganna.
Þrumur og eldingar
í annað sinn á einni viku
Eyjólfur Þorbjörnsson segir
þetta þrumuveður ekki mjög
óvenjulegt. „Það læðast oft inn eld-
ingar og þrumuveður í þessum út-
synningi á veturnar, sérstaklega
um sunnan- og vestanvert landið,“
segir hann. Eyjólfur minnti á að
fyrir um viku hefði eldingu slegið
niður á Keflavíkurflugvelli sem olli
því að fjarskipti féllu niður.
Stjorn Blaðamannafélagsins
Vill kanna skilyrði
til endurupptöku
STJÓRN Blaðamannafélags íslands
samþykkti á fundi í gær að fela lög-
manni sínum að kanna hvort skilyrði
séu til endurupptöku dómsmáls sem
eigendur Gallerís Borgar höfðuðu
gegn blaðamanni og ritstjóra Press-
unnar.
Um áramótin 1990 til 1991 birti
vikublaðið Pressan greinar þar sem
því var haldið fram að fólsuð málverk
væru í umferð hér á landi. Tiltók
blaðið nokkur verk þar sem vafi lék á
um uppruna en voru merkt þjóð-
þekktum málurum á borð við Sigurð
Guðmundsson, Ásgrím Jónsson,
Kristínu Jónsdóttur og Kjarval.
Höfðaði Gallerí Borg meiðyrðamál
gegn blaðamönnunum tveimur og
voru þeir sakfelldir í héraði árið 1992
og fyrir Hæstarétti þremur árum
síðar.
Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamannafélagsins, sagði í gær að
þótt félagið væri ekki aðili málsins,
hefði mikil umræða í þjóðfélaginu að
undanförnu orðið til þess að stjórnin
fór þessa leið. Sagði Hjálmar, að
þegar greinargerð lögmanns félags-
ins lægi fyrir yrði tekin afstaða til
framhalds málsins.
Ólafur Ingi Jónsson forvörður,
sem mjög hefur komið við sögu við
rannsókn á uppruna málverka að
undanförnu, sagðist í gær fagna
frumkvæði stjórnar Blaðamannafé-
lagsins. „Ég hef hvatt til þess að
þetta yrði gert,“ sagði hann. „Þegar
blaðamennirnir voru sakfelldir var
ekki tekin afstaða til sakargifta
þeirra, heldur einblínt á hagsmuni
fyrirtækisins. Það leikur mikill vafi á
uppruna þessara málsverka sem
þama var um rætt,“ sagði Ólafur
Ingi.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Tengivagninn
fór á hliðina
TENGIVAGN fauk út af þjóðvegin-
um nærri Þelamörk síðdegis í gær,
en hann var aftan í flutningabíl sem
var á suðurleið. Hvasst var á þess-
um slóðum í gær. Vagninn er mikið
skemmdur ef ekki ónýtur. Bæði
hlið vagnsins og þak brotnuðu með
þeim afleiðingum að brak úr honum
og farmurinn lá úti um víðan völl.
Framsal á veiðiheimildum frá 1984
80% kvótans
hafa skipt um
hendur
EINUNGIS19% þeirra aflaheimilda
sem úthlutað var þegar kvótakerfinu
var komið á árið 1984 eru í höndum
þeirra sem stunduðu útgerð á viðmið-
unarárunum sem úthlutunin byggð-
ist á. Stærstur hluti, eða 81% þeirra
veiðiheimilda sem úthlutað var árið
1984, hefur því skipt um hendur.
Landssamband íslenskra útvegs-
manna hefur kannað hversu stór
hluti veiðiheimilda hefur skipt um
hendur við íramsal, við eignabreyt-
ingar á fyrirtækjum og vegna að-
gerða stjórnvalda sem auka veiðirétt
smábáta. Könnunin nær til þess tíma
sem liðinn er síðan botnfiskveiðar í
íslenskri fiskveiðilögsögu voru tak-
markaðar með kyóta árið 1984.
I könnun LIU kemur íram að
69,5% aflaheimilda (þorskígilda) hafa
skipt um hendur vegna eignabreyt-
inga, þ.e. vegna sölu á aflaheimildum
og eignarhlutum í fyrirtækjum frá
árinu 1984. Þá kemur fram að smá-
bátum hafi í upphafi verið reiknuð
3% af þorskafla en þeir hafi hins veg-
ar fengið til sín 27% af þorskafla-
heimildum vegna aðgerða stjóm-
valda; aukningin samsvari tilfærslu á
11,7% aflaheimilda til smábáta þegar
litið sé til allra heimilda.
Villandi umræða
í fréttatilkynningu frá LÍÚ segir
að könnunin hafi verið gerð vegna
villandi umræðu í samfélaginu um að
þeir sem stundi útgerð í dag geri það
í krafti úthlutaðra aflaheimilda fyrir
16 árum eða árið 1984. í könnuninni
var borið saman hverjir fengu úthlut-
að rétti til veiða í upphafi og hverjii'
hafa þennan rétt nú.
„Nýlega hefur verið staðfest opin-
berlega að framleiðniaukning í ís-
lenskum fiskveiðum hefur verið þre-
falt meiri en í öðrum atvinnugreinum
undanfarin ár. Þetta er fyrst og
fremst tilkomið fyrir áhrif fiskveiði-
stjórnunarkerfisins," segir í fréttatil-
kynningunni.
Rússneskur sérfræðingur ræðir stnórnmál
Fjallar um þróun
utanríkismála
VYACHESLAV A. Nikonov, forseti
Polity-stofnunarinnar í Moskvu,
heldur erindi um stjómmálaástandið
í Rússlandi, væntanlegar forseta-
kosningar og þróun utanríkismála á
sameiginlegum fundi Samtaka um
vestræna samvinnu og Varðbergs í
Sunnusal Hótels Sögu á hádegi í dag.
Nikonov er dóttursonur Vyacheslavs
Molotovs, sem um langt skeið var ut-
anríkisráðherra Jósefs Stalíns Sov-
étleiðtoga 1939 til 1949 og aftur í
þrjú ár eftir dauða Stalíns 1953, og
heitir í höfuðið á afa sínum.
Nikonov er einn af kunnustu
stjórnmálasérfræðingum Rússa og
hefur mikla reynslu í rússneskum
stjórnmálum. Hann er með doktors-
gráðu í sögu frá Ríkisháskólanum í
Moskvu frá árinu 1989 og lauk síðar
annarri doktorsgráðu frá sama
skóla. Hann var ræðuritari hjá mið-
stjórn sovéska kommúnistaflokksins
1988 til 1991 og hóf þá störf við emb-
ætti forseta Rússlands. Hann var
þingmaður í Dúmunni frá 1994 til
1996 og m.a. formaður undirnefndar
þingsins í öryggis- og varnarmálum.
Nikonov hefur verið forseti Polity-
stofnunarinnar í sjö ár og skrifað
fræðibækur og fjölda greina í fjöl-
miðla.
Fjórar orkuveitur á Suðurlandi og Reykjanesi
Kanna stofnun sameigin-
legs raforkufyrirtækis
HITAVEITA Suðurnesja, Selfoss-
veitur, Bæjarveitur Vestmannaeyja
og Rafveita Hafnarfjarðar hafa nú til
skoðunar möguleika á að sameinast
um stofnun eins raforkufyrirtækis.
Að sögn Ásbjörns 0. Blöndal,
veitustjóra Selfossveitna, er undir-
búningsvinna enn á frumstigi en
hann segir að því stefnt að ákvörðun
um hvort af stofnun fyrirtækisins
verður verði tekin fyrir árslok.
Hugmyndir þessar og staða undir-
búningsvinnunnar voru kynntar á
aðalfundi Sambands sunnlenskra
sveitarfélaga á Kirkjubæjarklaustri
ígær.
„Það er verið að vinna að ákveð-
inni hugmynd í ljósi þess að boðað
hefur verið að á næstu tveimur til
þremur árum verði innleidd sam-
keppni í framleiðslu og sölu á raf-
orku,“ segir Ásbjöm. „I stað þess að
umrædd fyrirtæki efli sitt starf á
eigin vegum fyrir komandi sam-
keppni er nú verið að skoða hug-
myndir um að taka höndum saman,
jafnvel með þátttöku fleiri."