Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjálfsbjörg:
Mótmælir ummælum Daviðs
Sjálfsbjörg. landssamband fatl-
aöra, hefur sent frá sér fréttatil-
kynningu þar sem félagiö mótmælir
þeim ummælum Daviös Oddssonar
forsætisráöherra í síöustu viku aö
peningar samtaka öryrkja hafi ver-
iö notaöir til aö birta áróöursaug-
Það er ekki lengur nein spurning hvar Davíð keypti ölið.
Fræðsludagur Ljósbrots í Rimaskóla
Heilsa o g
lífsgæði
Susanne Torpe
HEILSA og lífsgæði
er yfírskrift dag-
skrár fræðsludags
Ljósbrots sem er í dag og
hefst klukkan 12 á hádegi
og lýkur klukkan 15.30.
Fræðsludagm-inn er hald-
inn í Rimaskóla á vegum
Menningarhóps Grafar-
vogsráðs. Haldin verða
átta erindi alls á þessum
íræðsludegi. Susanne
Torpe menningarfulltrúi
er umsjónarmaður
fræðsludagsins. Hvert
skyldi vera markmið
fræðsludagsins?
„Markmiðið er að fræða
fólk um ýmsa þætti sem
lúta að heilsu og vellíðan
fólks. Fræðsludagurinn
hefst á þremur erindum
um umhverfismál. Fyrst
talar Heiðrún Guðmundsdóttir líf-
fræðingur hjá Landvemd, hún tal-
ar um verkefnið Vistvernd í verki,
sem er líka þekkt sem GAP, og
varpar fram spurningunni: Hvað
get ég gert? A eftir henni talar
Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir
fulltrúi Sorpu, hún ræðir um
flokkun sorps sem hlutverk okkar
allra. Pá heldur dr. Hjalti Guð-
mundsson landfræðingur erindi
um Staðardagskrá 21 fyrir
Reykjavík. Eftir umhvei-fismálin
verða á dagskrá erindi um nær-
ingu og hreyfingu. Jóhanna Torfa-
dóttir matvælafræðingur talar um
næringaþörf barna 1 til 6 ára.
Guðrún Nielsen íþróttakennari
ræðir um hreyfingu fyrir aldraða
og fulltrúi frá World Class mun
fjalla um ávinning heilsuræktar
fyrir alla aldurshópa. Milli klukk-
an 14 og 15 verður rætt um lífs-
hamingju. Jón Bjömsson sálfræð-
ingur flytur erindi sem hann
nefnir Á leiðinni til Soría Moría og
Anna Valdimersdóttir sálfræðing-
ur heldur erindið Gerðu þér góða
mynd af sjálfum þér. Umræður
verða eftir erindin og að þeim
loknum verður boðið upp á yoga-
kennslu fyrir börn og fullorðna
undir umsjón Þórðar Marelsson-
ar. Þess má geta að reynt verður
að hafa notalega kaffihúsast-
emmningu á þessum fræðsludegi,
skátafélögin í hverfmu selja kaffi
og vöfflur og sjá líka um dagskrá
fyrir börn þeima sem taka þátt í
fræðsludeginum.“
- Er það af einhverju sérstöku
tilefni sem boðað er til þessa
fræðsludags?
„Já, það er vegna menningar-
verkefnisins Ljósbrot sem fer
fram allt árið en í mars er þema
Ljósbrots Heilsa og lífsgæði eins
og fyrr sagði. Menningarhópur
Grafarvogsráðs hefur fengið styrk
frá Reykjavík menningarborg
2000 til Ljósbrots-verkefnisins.
Þegar hefur verið haldið opið hús
á Korpúlfsstöðum með menning-
ardagskrá á vegum Ljósbrots, í
maí er fyrirhugaður íþróttadagur,
í október verða bókmenntir á dag-
skrá og í nóvember ætlum við að
bjóða upp á dagskrá með tónlist,
leiklist og dansi. Dag-
skráin í Rimaskóla í
dag er eina fræðslu-
dagskráin sem Ljós-
brot stendur fyrir á
þessu menningarári.“
- Hvenær var Menn-
ingarhópur Grafarvogsráðs stofn-
aður?
„Fyrir tveimur árum um það
bil, nokkru eftir að Grafarvogsráð
og Miðgarður - fjölskylduþjón-
usta í Grafarvogi var stofnað. Mið-
garður var í upphafi tilraunaverk-
efni en heldur starfsemi sinni
áfram um ótiltekinn tíma. Mið-
garður var stofnaður til þess að
► Susanne Torpe fæddist 8.
mars 1974. Hún lauk stúdents-
prófi 1993 í Horsens Amts-
gymnasium í Danmörku. Arið
1996 tók hún BA-próf í norræn-
um tungumálum og bókmennt-
um frá Háskólanum í Arhúsum
og 1999 lauk hún cand. mag.
prófi í „æstetik og kultur“, fag-
ur- og menningarfræði, frá sama
skóla. Hún starfar nú við
kennslu, einnig sem menningar-
fulltrúi í Miðgarði og loks er hún
starfsmaður við bókmenntahátíð
Reykjavík - menningarborg
Evrópu árið 2000. Susanne er í
sambúð með Björgvini Hall-
dórssyni byggingafræðingi.
stuðla að lýðræði meðal íbúanna
og samvinnu milli félaga, stofnana
og íbúa á Grafarvogssvæðinu. Hjá
Miðgarði starfa margir sérfræð-
ingar, svo sem félagsráðgjafar,
leikskólaráðgjafar, sálfræðingar
og fleiri. Það er einstakt að fyrir
Grafarvogshverfið að hafa svona
starf'semi innan hverfisins, það
stuðlar sannarlega að lýðræði
meðal íbúanna eins og Miðgarði
var ætlað að gera.“
- Hvernig er menningarhópur-
inn samansettur?
„I honum eiga sæti fulltrúar frá
Gufunesbæ, Foldasafni, Tónlist-
arskólanum í Grafarvogi, Fjölni,
íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi,
Utskáldunum, Grafarvogskirkju,
skátafélögunum Vogabúum og
Dalbúum, svo og íbúasamtökum
Grafarvogs og almennum íbúum
hverfisins."
- Leita íbúar Grafarvogs mikið
tilMiðgarðs?
„Já, þjónustan sem Miðgarður
býður upp á er mikið notuð og það
er þægilegt fyrir íbúana að hafa
þessa starfsemi í nágiænninu -
þurfa ekki að sækja í miðbæ
Reykjavíkur."
- Nú ert þú menningarfulltrúi -
reynir þú að fá íbúa hverfisins til
þess að koma á framfæri sinni list?
„Já, það er mjög mikilvægur
hluti af starfi mínu að gefa íbúum
Grafarvogs tækifæri til að koma
fram með og sýna það
sem þeir eru að gera á
menningarsviðinu. Til
dæmis var handverks-
sýning á Korpúlfsstöð-
um í janúar þar sem
sýnd voru verk hand-
verksmanna úr hverfinu. Þann
sama dag sýndu nemendur
Korpuskóla dans og Þjóðlagasveit
tónlistarskólans flutti tónlist. Á
næsta atriði á dagskrá Ljósbrots -
íþróttadeginum í maí sem ég fyrr
gat um, fær fólk tækifæri til að
kynna sér það íþróttastarf sem
boðið er upp á í hverfinu, sem er
margvíslegt.“
Miðgarður
stuðlar að
lýðræði Graf-
arvogsbúa