Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 19
LANDIÐ
Leikskólinn í Aðaldal er fullfrágenginn.
Börnin eru ánægð í nýja leikskólanum.
Nýr leikskóli í Aðaldal
Laxamýri - Nýtt hús fyrir leikskóla
í Aðaldal er nú fullfrágengið og hef-
ur aðstaða fyrir börn á leikskóla-
aldri verið mjög bætt frá því sem
áður var.
Nýbyggingin tekur um tuttugu
börn í dagvistun og hefur leikskól-
inn verið fuliskipaður í vetur. Mikið
er til af leikföngum og öðru því sem
börn þarfnast og vinnuaðstaða með
barnahúsgögnum gefur mikla
möguleika til föndurs og teikni-
vinnu. Húsið hefur verið girt af og
gefst kostur á að leika sér í ieik-
tækjum úti við þegar svo viðrar,
auk þess fá börnin að fara í íþrótta-
salinn við Hafralækjarskóla til þess
að hreyfa sig. Þá heimsækir
tónlistarkennarinn krakkana og er
þá spilað og sungið þannig að margt
er sér til gamans gert í leik og námi.
Maraþon-
fótbolti
Vestmannaeyjum-Unglingar úr 10.
bekk Hamarsskóla í Vestmannaeyj-
um spiluðu maraþonfótbolta í Týs-
heimilinu aðfai-anótt öskudags frá kl.
23 til 11 að morgni. Krakkamir eru að
safna í ferðasjóð og höfðu gengið í hús
og safnað áheitum. Er ljósmyndari og
tíðindamaður Morgunblaðsins mættu
rétt fyrir kl. 11 var hópurínn orðinn
nokkuð framlágur og ánægjan af
knattspymunni fokin út í veður og
vind en sæng og þeim efst í huga. Þau
gáfu sér þó tíma til hópmyndatöku
áður en hlaupið var heim á vit drauma
um skemmtilegt skólaferðalag.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Morgunverðarfundur um samstarf
sveitarfélaga á Snæfellsnesi
Mörg verkefni
framundan hjá Efl-
ingu Stykkishólms
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Nýkjörin stjórn Eflingar Stykkishólms á sínum
fyrsta fundi ásamt framkvæmdastjóra félagsins,
Jóhönnu Guðmundsdóttur.
Stykkishólmi - Efl-
ing Stykkishólms er
félag atvinnulífs í
Stykkishólmi og var
stofnað árið 1995. Að-
alfundur félagsins var
haldinn fyrir
skömmu. I skýrslu
stjómar kom fram að
félagið stóð fyrir
mörgum verkefnum
sem nú era orðin fast-
ur liður í starfsem-
inni, s.s. rekstri upp-
lýsingarmiðstöðvar
ferðamála, íjölskyldu-
hátíðinni Dönskum
dögum, skipulagn-
ingu sumartónleika í Stykkishólms-
kirkju og sameiginlegum auglýsinga-
og kynningamálum. A síðasta ári var
tekist á við stærsta verkefnið til þessa
sem var atvinnuvegasýning fyrir allt
Vesturland sem haldin var í Stykkis-
hólmi sl. sumar.
Nú er undirbúningur sumartón-
leika á sumri komanda langt kominn
og verða þeir haldnir í samstarfi við
kór Stykkishólmskirkju. Þá verða
Danskir dagar á sínum stað, þriðju
helgi í ágúst. Verið er að vinna að
verkefni með Staðardagskrá 21,
Stykkishólmsbæ og Helgafellssveit,
sem tengist merkingu gönguleiða,
gróðursetningu og útgáfu gönguleiða-
korts fyrir Stykkishólm og nágrenni.
Stjóm Eflingar skipa nú: Svanborg
Siggeirsdóttir formaður, Kristín
Benediktsdóttir, Ósk Bergþórsdóttir,
Man'a Guðmundsdóttir og Þórður
Magnússon. Félagið hefur skrifstofu-
og fundaraðstöðu í húsnæði Skipavík-
ur hf. og er með framkvæmdastjóra í
hálfu starfi sem er Jóhanna Guð-
mundsdóttir.
Akveðið hefur verið að endurvekja
morgunverðafundi, þar sem rædd
verða ýmis mál er varða Stykkishólm
og íbúa hans. Fyrsti fundurinn verður
á Fosshóteli Stykkishólmi föstudag-
inn 24. mars kl. 8 og verður þar rætt
um samstarf sveitarfélaga á Snæfells-
nesi. Frammælandi verður Óli Jón
Gunnarsson bæjarstjóri.
' i
vmms§m
Byrjaðu á
%
■
■mÆÍ
kantinum!
IBtLlÍÍ
- m
m f
k. 'F', . ■ M.. *
\1R;
V
Æ
Pizza, supa o§ salatbar
fyrir þr|á á
aðeins kr. 2000
é
"■ «
Hjá Pizza Hut er nú hægt að fá
gómsæta veislumaltíð á mjög girnilegu
verði. Þú færð pizzu meó gómsætum
ostakanti meo tveimur áleggs-
tegundum að eigin váli. Þetta er kjörið
tækifæri til aó koma og bragda 0
nýja ostafyllta kantmum og gæda sér
á súþu og salati með.
Allt þettc færdu á aðeins 2000
krónurí
Kaupir eina - feerð brauðstangir frítt
Kaupir eina - færð aðra frítt
Þeir sem panta pizzu í heimsendingu fá frían skammt
af brauðstöngum. Athugið að þetta tilboð gildir aðeins
innan póstnúmera 101 til 108.
Ef þú kaupir pizzu til að taka með heim og stóran skammt
af brauðstöngum þá færðu aðra pizzu fritt með.
m
SPRENGISANDI & HÓTEL ESJU • SÍMI 533 2000