Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Aðalfundur Landsbanka íslands hf.
Arang'urstengd laun
um næstu áramót
Morgunblaðið/Jim Smart
Merkja raátti óánægju meðal starfsmanna Landsbankans á aðalfundi fé-
lagsins í gær, m.a. með að starfsmenn fengju ekki kaupauka líkt og m.a.
starfsmenn Búnaðarbankans hafa fengið.
LANDSBANKI íslands mun inn-
leiða árangurstengingu launa í
starfsemi bankans um leið og að-
stæður skapast til þess og stefnt
er að því að svo verði eigi síðar en
frá og með 1. janúar á næsta ári.
Þetta var meðal þess sem fram
kom 1 máli Halldórs J. Kristjáns-
sonar, bankastjóra Landsbanka Is-
lands hf., á aðalfundi bankans í
gær.
Varðandi umræðu um kaupauka
vegna afkomu bankans sagði Hall-
dór rétt að taka fram að stjórn-
endur Landsbankans telja brýnt
að árangurstenging launa miðist
við hlutlægan mælikvarða og mæl-
ingar. Um réttlátt og gagnsætt
kerfi verði að vera að ræða og
stjórnendur Landsbankans telji að
tilviljunarkenndar kaupauka-
greiðslur sem ekki byggist á slík-
um skýrum kerfum brjóti niður til-
raunir til að byggja upp
raunverulegar árangursmælingar í
störfum fyrirtækja og gangi gegn
langtímahagsmunum starfsmanna.
Landsbankinn telji því ekki rétt
eða mögulegt að ákveða slíkar
greiðslur við núverandi aðstæður.
„Rétt er að minna á að Lands-
bankinn greiðir hæsta hlutfall
tekna sem arð til hluthafa meðal
viðskiptabankanna. í þessu efni
ber einnig að hafa í huga að flestir
starfsmenn Landsbankans eru
hluthafar í bankanum," ságði Hall-
dór. Á síðasta ári var samið við
Royal Bank of Scotland um að
veita ráðgjöf við að innleiða alhliða
árangursstjórnun í bankanum.
Merkja mátti óánægju meðal
starfsmanna á aðalfundinum í gær,
m.a. með að starfsmenn Lands-
bankans fengju ekki kaupauka líkt
og m.a. starfsmenn Búnaðarbank-
ans hafa fengið. Margir greiddu
einnig atkvæði gegn tillögu um
hækkun á þóknun til bankaráðs-
manna Landsbankans, úr 54.000
krónum á mánuði í 66.000 krónur,
en tillagan var samþykkt með
þorra atkvæða.
Stjórn starfsmannafélags
Landsbanka íslands hefur tekið þá
ákvörðun að tjá sig ekki opinber-
lega um afstöðu starfsmanna til
launakerfis í bankanum að sinni,
að sögn Ingveldar Ingólfsdóttur,
varaformanns stjórnar starfs-
mannafélagsins. Aðalfundur
starfsmannafélags Landsbanka ís-
lands verður haldinn næstkomandi
þriðjudag og má búast við að þar
verði launakjör starfsmanna tekin
til umfjöllunar.
Á aðalfundi Landsbankans voru
ársreikningar bankans samþykktir
samhljóða, svo og tillaga um
greiðslu 10% arðs og meðferð
hagnaðar. Hagnaður ársins 1999
nam 1.520,1 milljón króna og verða
alls 650 milljónir greiddar í arð til
hluthafa, sem samsvarar um 43%
af hagnaði og 10% af nafnvirði
hlutafjár félagsins. Því sem eftir
stendur af hagnaði skal ráðstafað
til hækkunar á eigin fé Lands-
banka Islands hf. Bankaráð var
endurkjörið og í því eiga sæti
Helgi S. Guðmundsson, formaður,
Kjartan Gunnarsson, varaformað-
ur, Birgir Þór Runólfsson, Guð-
bjartur Hannesson og Jónas Hall-
grímsson.
Erlend aðild að íslenskum
fjármálastofnunum æskileg
I ræðu sinni á aðalfundi Lands-
bankans fjallaði Helgi S. Guð-
mundsson formaður bankaráðs
m.a. um hugsanlega sameiningu
viðskiptabanka á Islandi. Samein-
aður banki hefði sterka stöðu á
Islandi, að sögn Helga, en hins
vegar væri slíkur banki mjög lítill í
samanburði við fjármálastofnanir
á evrópska efnahagssvæðinu. „I
þessu sambandi er rétt að benda á
að í öllum smærri ríkjum Evrópu
hafa yfirvöld heimilað verulega
samþjöppun á heimamarkaði þann-
ig að hægt sé að mynda einingar
sem eru samkeppnisfærar á al-
þjóðlegum mörkuðum. Þannig er
hlutur þriggja stærstu bankanna í
Danmörku, Finnlandi, Hollandi,
Svíþjóð, Portúgal og írlandi á bil-
inu 70-80%,“ sagði Helgi og bætti
við að í þessu sambandi væri rétt
að líta til þess að mjög hollt yrði
fyrir bankakerfið og íslenska fjár-
málakerfið að erlendir aðilar
kæmu með einhverjum hætti inn í
íslenskar fjármálastofnanir, t.d.
sem 8-10% hluthafar.
Umbylting útibúakerfis
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, fjallaði m.a.
um bankaþjónustu á Netinu í ræðu
sinni á aðalfundinum. Samkvæmt
könnun sem gerð var í janúar sl.
fara 12% viðskiptavina bankans
sjaldnar en mánaðarlega í útibú,
að sögn Halldórs og á grundvelli
könnunarinnar má gera ráð fyrir
því að nálægt 20% viðskiptavina
fari nánast aldrei í útibú árið 2003.
Landsbankinn spáir því að nær
50% af notendum muni nýta sjálf-
virka greiðsluþjónustu af ein-
hverju tagi árið 2003.
„Fjármálaþjónusta er sú at-
vinnugrein sem verður fyrir hvað
mestum áhrifum af vefnum. Sam-
kvæmt alþjóðlegum könnunum er
gert ráð fyrir að þriðjungur not-
enda muni nýta WAP-tengingu
vegna fjármalaþjónustu innan
þriggja ára. Á Norðurlöndum er
reiknað með því að innan tveggja
ára mun Vs af sölu verðbréfasjóða
eiga sér stað á vefnum.“ Halldór
sagði þessa öru þróun annars veg-
ar kalla á verulega umbreytingu
útibúakerfis bankans og hins veg-
ar skýrari stefnumótun í netvið-
skiptum almennt.
Halldór gerði grein fyrir rekstr-
arniðurstöðu ársins 1999 og
rekstrarmarkmiðum fjrrir yfir-
standandi ár, í ræðu sinni. Stefnt
er að því að lækka kostnaðarhlut-
fall bankans í um 68% á þessu ári
en kostnaðarhlutfallið var um 70%
fyrir síðasta ár. Stefnt er að 13-
16% arðsemi eiginfjár eftir skatta
á þessu ári, að sögn bankastjóra,
en arðsemi eiginfjár á síðasta ári
nam 15%, sem var í samræmi við
markmið.
Til að ná fram rekstrarlegum
markmiðum og stýra sókn á næstu
árum verða viðskiptaáherslur
skerptar og að sögn Halldórs
verða m.a. stigin frekari skref í al-
þjóðavæðingu Landsbankans á
næstunni með opnun starfsstöðvar
1 London. Starfsstöðin mun veita
stuðning við sérbankaþjónustu og
eignastýringu bankans og verða
vettvangur fyrir þátttöku í alþjóð-
legri framtaksfjármögnun.
Nú
jjS* tU vioger^
g Wirm
í OHOIGE
GRAND CRU
Cf* tMVMVfl fll
#ott vm með grittmu i swmm*
Allar vínþrúgur á tilboði • Opið laugardag milli kl. 11 og 16 og sunnudag milli kl. 13 og 17
Munið netverslunina ATH! Allir sem panta á Netinu þennan mánuð
fá vöruna senda heim þeim að kostnaðarlausu.
^tavíngeg.^ WWW.VÍtdÍSt.ÍS Þægilegra getur það ekki orðið.
Laugarvegi 178 • Reykjavík • Sími 562 5870
Víngerðin hefst hjá okkur