Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 25
ERLENT
Ford kaupir Land
Rover af BMW
Hugsanlegt að BMW hafi gefið eftir um 220
milljarða kr. með sölunni til Alchemy
Dearborn, London. AP, AFP, Reuters.
FORD-verksmiðjurnar bandarísku hafa sam-
þykkt að kaupa Land Rover af BMW fyrir um
200 milljarða ísl. kr. Forstjóri Alchemy
Partners, sem keypti framleiðslu Rover- og
MG-bflanna að öðru leyti, tilkynnti í gær, að
búast mætti við miklum uppsögnum hjá
verksmiðjunum.
BMW seldi áhættufjárfestingarfyrirtækinu
Alchemy framleiðslu Rover- og MG-bílanna í
fyrradag en þá var talið að BMW ætlaði að
halda áfram smíði Land Rover og nýja Mini-
bflsins en sá rekstur hefur gengið vel. í gær
var hins vegar tilkynnt að Ford myndi taka
við Land Rover og yrði gengið frá samningum
um það síðar á árinu. Með kaupunum bætist
Land Rover við lúxusbílaflokkinn hjá Ford,
Jaguar, Volvo, Aston Martin og Lincoln.
Jac Nasser, aðalframkvæmdastjóri Ford,
kvaðst binda miklar vonir við samninginn en
salan í Land Rover hefur verið um 160.000
bílar á ári. Eru tvær Land Rover-gerðir seld-
ar í Bandaríkjunum, Range Rover og Discov-
ery, og stefnt er að því að selja þar hinar tvær
gerðirnar einnig, Freelander og Defender.
Sagði Nasser að Ford og BMW hefðu átt í
viðræðum í nokkrar vikur.
„Botnlaus peningahít"
Alchemy hefur tekið við smíði Rover- og
MG-bílanna að flestu öðru leyti og hefur
BMW, samkvæmt heimildum breskra blaða,
heitið að verja um 220 milljörðum ísl. kr. til
endurskipulagningar fyrirtækisins í formi eft-
irgjafar skulda. Telja sérfræðingar, að sú
upphæð sé alveg fyrir utan kaupverðið en
ekki hefur verið upplýst hvert það er. Telja
raunar margh’ að Alchemy hafi ekki greitt
neitt fyrir Rover og fyrrnefnd upphæð hafi
verið notuð til að greiða fyrir yfirtökunni.
BMW sé með öðrum orðum að borga Alchemy
fjTÍr að taka við rekstrinum.
„Það getur ekki freistað margra að taka við
Rover, jafnvel ekki að gjöf, enda er það botn-
laus peningahít,“ sagði Christian Breit-
AP
Frá höfuðstöðvum Land Rover-verksmiðj-
anna í Solihull á Englandi.
sprecher, sérfræðingur í bílaiðnaðinum hjá
Deutsche Bank.
BMW skýrði einnig frá því í gær að fyrir-
tækið ætlaði að koma með nýja og sportlega
gerð af Mini-bflnum vorið 2001, sem smíðaður
verður í verksmiðjunni í Oxford, og halda
áfram smíði á Rover 75-lúxusbflnum sam-
kvæmt samningum við Alchemy. Þá ætlar fyr-
irtækið að ljúka við byggingu vélaverksmiðju
í Hams Hall og hefja vélaframleiðslu þar.
Miklar uppsagnir
Jon Moulton, forstjóri Alchemy, sagði í við-
tali við breska ríkisútvarpið, BBC, í gær, að
búast mætti við miklum uppsögnum hjá Rov-
er og hann hefur gefið í skyn að fækkað verði
um allt að helming í Longbridge-verksmiðj-
unni skammt frá Birmingham. Þar starfa nú
9.000 manns.
Segir Moulton að stefnt sé að því að gera
fyrirtækið arðbært og jafnvel vaxandi en það
verði óhjákvæmilega minna. „Við viljum sjá
hagnað af því eftir tvö eða þrjú ár,“ sagði
Moulton.
Verkalýðsleiðtogar áttu fund í gær með
Stephen Byers viðskipta- og iðnaðarráðherra
og Tony Blair forsætisráðherra. Sögðu þeir
að Blair væri jafn reiður og þeir yfir þróun
mála og hefði hann lofað að ríkisstjórnin
myndi gera allt sem í hennar valdi stæði, til að
milda áfallið. Minnti Byers á að ríkisstjórnin
hefði samið um það við BMW á síðasta ári að
koma Rover til hjálpar með rúmlega 17,7
milljörðum ísl. kr. og þá hefði BMW heitið á
móti að gera Rover-verksmiðjurnar að fyrir-
mynd annarra í bflaiðnaðinum. Sagði Byers
að BMW hefði nú gengið á bak orða sinna.
Að aka BMW 316 er engu líkt. Þessi tilfinning er afrakstur þrotlausrar vinnu
vísindamanna og færustu hönnuða sem hafa náð að tvinna saman vísindi
og ástríðu á einstakan hátt. Við bjóðum þér að komast á flug - í BMW 316.
BMW 316 kostar frá 2.380.000 kr.
Grjótháls 1
sími 575 1210
Engum líkur
Spennið beltin
fyrir flugtak.
* BMW316