Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Birgir Andrésson, Ómar Stefánsson, Eggert Einarsson og Björn Roth opna sýningu í Listasafni ASI í dag. Morgunblaðið/Golli
Kransæða-
stífla í mynd-
listarlífinu
Fjórir myndlistarmenn halda sameiginlega
sýningu í Listasafni ASI sem opnuð er í dag
kl. 16. Þetta eru Birgir Andrésson, Björn
Roth, Eggert Einarsson og Omar Stefáns-
son. Hér fer á eftir samtal Þrastar Helga-
sonar við þá fjórmenninga þar sem m.a. er
fjallað um kransæðastíflu í æðakerfi ís-
lenskrar myndlistar, upphaf módernisma á
Grænlandi og dauða listaverksins.
Blm: Ómar, félagar þínir segja
mér að þú sért talsmaður þeirra,
maður orðsins í hópnum. Er þá ekki
best að þú segir mér út á hvað þetta
gengur?
Ómar: Neh, nú er ég alveg skák og
mát, kemur hann ekki með þessa
spumingu, út á hvað allt gengur!
Birgir: Nei, málið er það að við
vorum á Seyðisfirði í fyrra, sem
Bjöm Roth á eins og hann leggur sig.
Við vorum að sýna og á milli okkar
spannst umræða um hvað það er erf-
itt að sýna í Reykjavík því maður þarf
alltaf að panta.
Ómar: Maður þarf að panta sal og
bíða svo í tvö þrjú ár, það er svo lang-
ur tími að maður getur þess vegna
misst leyíið og samninginn á vinnu-
stofunni í millitíðinni. Þú veist, það er
ómögulegt að segja hvað gerist.
Þetta er því óþægilegt.
Birgir: Upp úr þessu þrasi kom sú
hugmynd að við sýndum saman
héma í ASI því ég átti pantaðan sal-
inn. Ég ákvað sem sé að bjóða þeim
að sýna með mér. Biggi býður. Sýn-
ingin ætti að heita það.
Blm: Er þessi ásókn í sýningarsal-
ina í borginni til merkis um að það sé
mikið að gerast í reykvískri mynd-
list?
Birgir: Nei, það vantar sýningar-
aðstöðu vegna þess að það er allt
stíflað. Góðir myndlistarmenn eiga
ekki möguleika á því að komast að
vegna þessarar stíflu, kransæða-
stíflu. Það er ekki mikið af sýningar-
sölum og þeir em allir fullir af ein-
hveiju drasli.
Ómar: Það er auðvitað fullt af ein-
hverjum útskotum þar sem þú getur
hengt upp eitthvað ítem, en ég hugsa
að það sé jafnvel heilmikil bið eftir
þeim líka.
Blm: Það vantar auðvitað fleiri al-
vöra gallerí hérna.
Birgir: i8 hennar Eddu er eina al-
vöra galleríið hérna í bænum um
þessar mundir, það er gallerí sem
sinnir galleríshlutverkinu.
Ómar: Það hafa kannski verið
fimm sex alvöra gallerí héma í gegn-
um árin.
Blm: Edda benti á það í viðtali við
Morgunblaðið fyrir skemmstu að ís-
lendingar gerðu ekki greinarmun á
galleríi, listmunaverslun og jafnvel
listasafni.
Birgir: Þetta er eins og að þekkja
muninn á hangikjöti og hangikjöti.
Þarna getur verið munur sem menn
finna en geta kannski ekki sett putt-
ann á. Alveg eins er með muninn á
listinni sem verið er að bjóða í galler-
íunum annars vegar og listasjoppun-
um hins vegar. Eg get alveg selt þér
eldhúsinnréttinguna mína fyrir form-
úu ef þú bara vilt kaupa hana. En þar
með er hún ekki orðin list.
Blm: Þið segið að það sé ekkert að
gerast hérna í myndlist, en sá sem les
menningarsíður Morgunblaðsins
gæti komist að annarri niðurstöðu;
þar verður ekki þverfótað fyrir
myndlistaramfjöllun, viðtölum og
dómum. Sá sem les aðeins Morgun-
blaðið gæti haldið að það væri mjög
mikið að gerast í íslenskri myndlist.
Björn: Það er svo mikið að gerast í
myndlistaramfjöllun Moggans að
meira að segja bókmenntafræðingar
blaðsins era sendir til að taka viðtal
við myndlistarmenn.
Birgir: Ja sko, maður sem les ein-
göngu Moggann gæti líka haldið að
það væri mjög mikið að gerast í ís-
lenskri pólitík.
Björn: Umfjöllunin í Mogganum
ber bara vitni um kransæðastífluna,
alla þessa aðskotahluti sem era að
stífla æðakerfi myndlistarinnar í
landinu.
Eggert: Húsnæðisæðakerfið.
Birgir: Málið er að við Islendingar
eram að verða að athlægi. Ómar
sagði okkur góða sögu um viðskipti
sín við ágæta bankastofnun hér í bæ
og hvernig í slendingar horfa á kúnst-
ina. Sko, ef ég ætlaði að kaupa mér
verðbréf myndi ég ekki ráðfæra mig
við Ómar Stefánsson, en ég myndi vel
geta hugsað mér að fá hann til að ráð-
leggja mér um kaup á myndlist. Á
sama hátt myndi ég ekki ráðfæra mig
við íslenskan bankastjóra um kaup á
myndlist þótt ég myndi leita ráða hjá
honum um verðbréfakaup. Sjáðu til,
hér á landi hefur alltaf verið horft á
kúnst eins og hvert annað glingur. Og
þetta er að eyðileggja íslenska kúnst,
dekrið og smjattið og raglið í kring-
um þessa handavinnu sem allir era að
föndra við. Hér er enginn greinar-
munur gerður á kúnst og glingri og
fyrir vikið era íslenskar bankastofn-
anir fullar af föndri. Og þegar alvöra
listamaður kemur inn í eina þeirra og
spyr hvort hægt sé að kaupa verk, þá
blæs bankamaðurinn sig út og segir:
„Ég er með efni í tvær þrjár sýning-
ar, maður.“ Þeir era búnir að vera að
kaupa öskupoka allan tímann og
spyrja svo: „Kúnst! Um hvað ertu að
tala, maður?“
Ómar: Ekki ét ég málverkin, sagði
hann.
Birgir: Spumingin er þessi: Hvers
vegna er Sinfóníuhljómsveit Islands
góð hljómsveit? Og svarið er: Vegna
þess að það hefur verið lögð rækt við
hana. En Islendingum er svo sem
sama. Þeir þekkja ekki muninn á sin-
fóníu og munnhörpuleik. Hvort
tveggja jafngott í þeirra eyram.
Blm: I tilkynningu Ómars um sýn-
inguna stendur að hún verði með
hefðbundnum hætti.
Ómar: Þar er vísað til þess að við
vinnum innan hinna hefðbundnu
greina myndlistarinnar, teikningar,
skúlptúr og málverk.
Birgir: Þetta er samt ekki einfalt
því jafnvel þó að Bjöm, Ómar og
Eggert vinni með hefðbundna miðla,
þá eru þeir svona dímonar í þeim.
Ómar: Það væri til dæmis grín að
tala um skúlptúra Eggerts sem hefð-
bundna því þeir tengjast í mesta lagi
einhverjum hefðbundnum módem-
isma sem hefur verið við lýði frá því í
byijun tuttuigustu aldar.
Eggert: Eg myndi segja að þetta
væri klassík, klassískur módernismi.
Ómar: Þetta er tóm klassík hjá
okkur, Birgir er til dæmis í punkta-
málverkinu hans Mondrian.
Birgir: Kannski er þetta rosalega
hallærisleg sýning hjá okkur.
Bjöm: Ég hef aldrei skilið hvað
hægt er að setja mikið undir hatt
módernismans. Hvað er þessi helvítis
módernismi?
Birgir: Nútíminn!
Ómar: Hann sprettur upp úr dada-
ismanum og kúbismanum þar sem
natúralíska málverkið er brotið upp í
frumeindir. Stendur það ekki þannig
í orðabókunum?
Eggert: Já, en afstraktið var í
rauninni málverk af landslagi og
fólki, bara málað öðravísi.
Björn: Móðir mín á eina af fáum
afstraktmyndum eftir Kjarval. Fyrst
kallaði hann hana Bæjarlækinn
heima. Og það er svo sem hægt að
merkja einhverja slíka stroku í henni.
En síðar vildi hann ekkert kannast
við þetta nafn og kallaði verkið Trefil-
inn hennar ömmu.
Birgir: íslendingar hafa alltaf skil-
ið módernismann út frá náttúranni
og það er fallegt. En „ó, borg, mín
borg“ er módemískasta setningin á
íslensku.
Björn: Við voram að tala um að
sýna næst á Grænlandi. Hvað ætli
Grænlendingum finnist um módern-
ismann?
Ómar: Þeir segja bara að þetta sé
eins og það sem frændi gerir uppi í ís-
helli. Módernisminn kom upphaflega
frá Grænlendingum. Myndir eftir
evrópska frammódemista era alveg
eins og myndir eftii- grænlenska
frumbyggja. Ég sá einhvern tíma bók
sem gerði samanburð á þessu og það
kom í ljós að módernistarnfr stálu
þessu öllu frá Grænlendingunum og
þjóðum í Kyrrahafinu þar sem starfs-
heitið listamaður er ekki til. Þetta er
bara frambyggjalist. Reyndar eru
margir famfr að kasta þeim kenning-
um á loft nú að við listamenn þurfum
bráðum að fara að leita aftur til
þeirra tíma þegar listamenn vora
ekki til. Það era nefnilega allir lista-
menn nú til dags. Menn fara bara í
tölvuna og fokka einhverju fomti
upp og prenta það út. Þar með er orð-
ið til listaverk. Það era allfr listamenn
og þar með era engir listamenn til
lengur. Það er að koma ný steinöld,
nýsteinöld.
En ég kann best að meta arkitekt-
inn Negroponti af öllum módemist-
um. Hann var að spekúlera í því
hvemig væri best að skipuleggja
borg. Gamla lagið var torg með
hringum utanum eins og í París og
fleiri borgum. En það kerfi var löngu
dottið út. Hann raðaði því léttum
pappakössum á gólfið og hleypti her
af skordýium í gegn. Þau ýttu köss-
unum hingað og þangað og riðluðu
allri uppröðun. Þar með var hann
kominn með nýtt borgarskipulag.
Svona uppfyndingar era öldutopp-
arnir í módernismanum.
Blm: Listamaðurinn er dauður, en
er listaverkið ekki líka dautt? Það
hefur að minnsta kosti verið talað um
dauða málverksins í langan tíma.
Bjöm: Vora það ekki Bragi Ás-
geirsson og Einar Hákonarson sem
komu sér ekki saman um það hvað
ætti að nota stóra pensla þegar þeir
vora að kenna við MHÍ; Bragi vildi
nota litla en Einar stóra.
Ómar: Þeir komu að mér þar sem
ég var að kópíera ljósmynd. Fyrst
kom Einar og hrópaði: Hvað er að sjá
þig, maður, þú málar eins og amatör,
þú átt að nota stóra pensla. Svo var
hann rokinn út í fússi áður en ég náði
að skipta um pensil, sem ég hafði
reyndar ekkert í hyggju að gera. En
svo kom Bragi rétt á eftir og sagði:
Hvað er að þér, þú átt að nota litla
pensla. Þetta var eiginlega málara-
námið við MHÍ í hnotskurn.
Blm: En hvað með þessa umræðu
um dauða málverksins?
Ómar: Hún er orðin meira en
hundrað ára gömul.
Birgir: En Ómar, málverkið er
líkalöngu dautt.
Ómar: Jájá, þetta eru bara upp-
vakningar sem ég er að sýna hérna,
framliðin málverk. Þetta era draugar
og ég hættur að geta sofið á nóttunni.
Blm: En verður listin ekki alltaf
skammlífari í hraða fjölmiðlasamfé-
lagsins?
Ómar: Það hefur verið tilhneiging
til að hrúga upp verkum með ein-
hverri svona sýningartekník sem
standa bara á meðan sýningin varir.
Eftir sýninguna nenna menn ekki
einu sinni að taka til eftir sig, verkinu
er bara hent í raslið. Listaverkið er
bai-a til á meðan einhver er til þess að
horfa á það. Myndlistarmenn nú era
eins og steinaldarmennfrnir sem
gerðu myndir í fjörusandinn.
Björn: En okkar sýning er voða-
lega róleg og létt. Þetta er bara góð
sýning.
Birgir: Já, þetta verður sennilega
besta sýningin um þessa helgi.
M-2000
Laugardagur 19.
mars.
Nýlistasafninu við
Vatnsstíg.
„Hvít“. Kl. 16.
Fyrsti hluti þríliða sýningarað-
ar. Sýnendur eru Ingólfur Arnars-
son, Andreas Karl Schulze, Robin
van Harreveld og Hilmar Bjarna-
son. www.nylo.is
Vetraríþróttahátíð ÍBR
Almenningsíþróttir hjá íþrótta-
félögum borgarinnar
íþróttafélögin í Reykjavík bjóða
upp á ýmiss konar hreyfingu í
mannvirkjum íþróttafélaganna
eða í nágrenni þeirra frá kl.
10:00-13:00.
Skautahöllinni í Laugardal kl.
17:00. Skautasýningin IS 2000
Alþjóðlegir meistarar og úrval
íslensks sýningarfólks sýna listir
sfnar. Miðasala frá kl. 14:00. Verð
kr. 500,- fyrir fullorðna og kr.
200,- fyrir börn.
Fræðasetrið í Sandgerði.
Mannlíf við opið haf.
Opnunarhátíð kl. 16.00.
Á dagskránni, sem lýkur form-
lega í lok júní, eru fjölmargir
menningarviðburðir og fyrirlestr-
ar um allt frá sæskrímslum til
jarðfræði, keltneskrar húsagerð-
ar, fornminja og vistfræði á landi
og láði, svo fátt eitt sé nefnt. Fyr-
irlestrarnir verða fluttir í Fræða-
setrinu. Mannlff við opið haf er
eitt af samstarfsverkefnum Menn-
ingarborgar og sveitarfélaga víða
um land.
Bfóhöllin, Akranesi.
Menningardagskrá kl. 20. Sjáv-
arlist.
Meðal viðburða næstu vikna eru
ljóðalestur, frumsýning á nýju ís-
lensku leikriti, myndlistarsýning-
ar, dagskrá í skólum, útivist og
írskir dagar svo fátt eitt sé talið.
Sjávarlist er eitt af samstarfsverk-
efnum Menningarborgar og sveit-
arfélaga víða um land.
Rimaskóli.
Fræðsludagur Grafarvogsráðs.
„Heilsa og lífsgæði - hvað get
ég gert?“ er yfirskrift dagskrár í
Rimaskóla þar sem fræðsla,
skemmtan og kaffihúsastemmning
ráða ríkjum frá kl. 12.00-15.00.
Fræðsludagurinn er liður í heils-
ársdagskrá Grafarvogsráðs er
nefnist Ljósbrot.
Viðburðarmiðstöð M-200,
Kringlunni. Kl. 14
Forskot á sæluna
JC Reykjavík kynnir málþing
Tært vatn - auður komandi kyn-
slóða. Málþingið verður haldið í
samvinnu við Vatnsveituna í
Gvendarbrunnum miðvikudaginn
22.03. www.vatn.is
Álftanesskóli, Bessastaðahreppi
Sýning á verkum nemenda og
kennara í Álftanesskóla.
Lokadagur listaviku í Bessa-
staðahreppi þar sem áherslan er
lögð á náttúruöflin; vatn, eld, loft
og jörð og framtíðarsýn fyrir
svæðið. Sýningin er opin frá
11.00-18.00. Listavikan er eitt af
samstarfsverkefnum Menningar-
borgar og sveitarfélaga víða um
land.
www.bessasthr.is
www.reykjavik2000.is
---------------------
Tónleikar
á Húsavík
TÓNLEIKAR Gunnars Kvaran
sellóleikara og Selmu Guðmun-
dsdóttur píanóleikara verða á morg-
un, sunnudag, kl. 16, í Sal Borgar-
hólsskóla á Húsavík
Á efnisskrá er m.a. verk eftir
Henry Eccles, Schumann og Chopin.
------------♦-♦--♦-----
Sýning-alok
Gerðarsafn, Kópvogi
Þremur sýningum lýkur á morg-
un, sunnudag, í Gerðarsafni. Það er
sýning Ljósmyndarafélags íslands,
Blaðaljósmyndarafélags og sýningu
Vigfúsar Sigurgeirssonar.