Morgunblaðið - 18.03.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
M
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 33
Draumur úr þorpi
Draumstafir Kristjans Frimanns
Enginn sUtur þau bönd,
sem hann er bundinn átthögum sínum.
Móðir þín
fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út
í
heiminn
en þorpið fer með þér alla leið.
Jón úr Vör.
Ég er fæddur á Patreksfirði og
þegar ég var sex ára fékk ég
Grimms ævintýri í jólagjöf. Þessi
gjöf breytti lífi mínu, áður hafði
það verið sjórinn og fiskurinn sem
réð öllum mínum gjörðum en nú
birtist skyndilega ævintýrið í allri
sinni dýrð. Ekki þar íýrir, ég
hafði heyrt íslensk ævintýri og lif-
að mig virkilega inn í þau, nei það
voru myndirnar í bókunum fimm
sem heilluðu mig gjörsamlega.
Myndir við frábær ævintýri og svo
stórkostlega gerðar að ég greip
andann á lofti, ég trúði varla mín-
um eigin augum, er þetta virki-
lega til? Er þetta virkilega hægt?
Hvaðan koma þessar flottu mynd-
ir? Ég gleymdi mér í kvennabúri
soldánsins og týndi mér í gull-
geymslu Griffins þar sem gullnir
gripir eftir dverghaga smiði lágu á
víð og dreif. Eða þá í Svartaskógi
þar sem aðsópsmiklir ræningjar
fóru stórum eða dýr sem töluðu
mannamál og frelsuðu fagrar
meyjar úr ánauð. A jólanóttina
dreymdi mig að ég kastaði mér
fram af klettunum við Strandgöt-
una og sveif eins og dúnhnoðri í
sælu yfir sæinn, klettana og þorp-
ið uns ég lenti á þakinu heima og
skreið varlega niður hrjúfan stein-
vegginn að eldhúsglugganum örv-
inglaður af hamingju, smeygði
mér hljóðlega inn um gluggann til
að vekja ekki foreldra mína og
skaust inn í herbergið mitt. Þegar
ég hafði lokað dyrunum ofurvar-
lega brá ég af mér klofstígvélun-
um sem Jón skóari hafði soðið upp
úr gömlum venjulegum og bfls-
löngu fyrir sjósóknina, lagði þau
varlega á gólfið en þá sentust út
úr þeim litlir spriklandi kolar og
skelltu uggunum með damphljóði í
gólfið. Ég greip þá fjóra eða fimm,
stakk þeim í gamlan ullarvettling
og flýtti mér undir sængina þar
sem Grímsbræður biðu mín á
koddanum með ævintýrið um
handalausu stúlkuna. Ég hrökk
upp við það að mamma kallaði:
Kiddi, Kiddi, ætlarðu ekki á fæt-
ur, það eni komin jól!
Draumar „Þórunnar Hyrnu“
Dreymt ’92.
Mig dreymir að ég er nauðug
að gifta mig (ég þekki ekki strák-
inn en það hefur aldrei verið neitt
á milli okkar) það er allt hvítt, föt-
in - Kristján, bfllinn og loks her-
bergið og allt sem í þvi var. Það
eina sem ekki var hvítt voru gift-
ingarhringarnir, þeir voru úr tré
og sé ég þá þannig að hendur okk-
ar liggja saman í lok draumsins.
Dreymt ’99.
Fjrrri.
Ég horfi á fólk
tala saman á homi
tveggja gatna og
meðfram götunum
er síki sem eru
frostlögð. Á einu
síkinu stendur lítið
barn, sem í þann
mund er ég ætla að
bjarga því, fellur
niður um ísinn og
drukknar. Það
næsta sem ég man
er að systir mín
dettur ofan í skurð
(ekki frosinn) sem
er með mjög háa
bakka og hún
kemst ekki upp úr
og ég horfi bara á
hana síga hægt of-
an í og drukkna.
Seinni.
Ég og stelpa sem ég þekkti
þegar ég var yngri er að tala við
móður mína á einhverjum stað þar
sem allt er fullt af fólki og hún
bendir okkur á dyr sem við eigum
að fara inn um. Það er niðamyrk-
ur þegar ég opna dyrnar en svo er
allt í einu allt í kertaljósum og það
liggur stigi í hring niður og í
hverri tröppu eru kertaljós og blá-
ir fuglar. Þessir bláu fuglar eru
mjög áberandi, ég græt alla leið
niður. Þegar niður er komið er
þar allt í kertum og þessir bláu
fuglar labba þar um allt. Þar er
uppdúkað borð sem ég sest við
með barn í fanginu (ekki dóttir
mín).
Ráðning
Fyrsti draumurinn virðist
tengjast því skeiði í lífi þínu þegar
Kristur og trúin á Guð eru ofar-
lega á baugi (ferming) frekar en
beinni giftingu eins og ætla mætti.
Á þessum tíma virðist þú frábitin
skilmála við kristna kirkju en læt-
ur þig hafa það, venjunnar vegna.
Tréhringarnh' sýnast bending til
þín að rækta trú þína þá fari allt
vel.
Þú lætur þennan draum frá ’92
fylgja með draumunum nú, en
þeir gefa einmitt í skyn að þú
þurfir mjög á handleiðslu þess
sem draumurinn frá ’92 boðar.
Draumarnir tveir frá ’99 gefa í
skyn að þú sért í andlegum (sál-
rænum) þrengingum og sjáir ekki
haldbæra útgönguleið. Litla barn-
ið í fyrri draumnum ert þú, systir
þín speglar þig og frostið lýsir sál-
rænu ástandi. Seinni draumurinn
lýsir því tilfinningalega svartnætti
sem birtist á stundum. En kertin
gefa í skyn sterka löngun þína til
að breyta ástandinu, sömuleiðis
fuglarnir bláu sem túlka sál þína.
Uppdúkaða borðið lýsir þáttaskil-
um (þú ákveður að dúka líf þitt
upp á nýtt) og telpan í fangi þínu
við borðið ert þú sjálf.
• Þeir lesendur sem vilja fá drauma sfna
birta og ráðna sendi þá með fullu nafni,
fæðingardegi og ári ásamt. heimilisfangi
og dulnefni til birtingar til:
Draumstafír
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalandsins.
1 6.-1 9. MARS
Taktu forskot á vorsæluna!
Fáðu fallegar vorvörur á frábæru verði,
njóttu Ijúfra veitinga og þiggáu góba
þjónustu á Kringlukasti.
£fcfMUO£
Hemingway á sjúkrabeði. Hann hélt upp á nitján ára afmæli sitt á
sjúkrahúsinu.
Fyrsta kvikmyndin sem gerð var eftir skáldsögunni Vopnin kvödd er
frá árinu 1932, en þar voru Helen Hays og Gary Cooper í aðalhlutverk-
um. f kvikmynd sem gerð var árið 1956 voru Jennifer Jones og Rock
Hudson í aðalhlutverkum.
Fylgstu vel með sérkjörunum!
Nokkrar verslanir og þjónustuaðilar
veita dag hvern 15% viðbótarafslátt
af sérvaldri vöru eða þjónustu
ofan á Kringlukastsafsláttinn.
í dag koma þessar verslanir þér á óvart:
LYF & HEILSA
í þakklætisskyni sendi hann
honum dagbók Ágnesar frá þeim
tíma er hún hjúkraði Hemingway.
Það er ævinlega talað um „týnda
dagbók" Agnesar sem hefur þá
komið í leitirnar.
Henry Villard fékk til liðs við sig
James Nagel bókmenntafræðing.
Þeir grandskoðuðu dagbókina og í
sameiningu skrifuðu þeir bókina
Hemingway in Love and War. Þar
er bókin Vopnin kvödd undirstað-
an að viðbættu efni úr dagbókinni.
Sonur Henrys Villards, Dimitri,
skrifaði síðan kvikmyndahandrit
efir bókinni. Hann sýndi Richard
Attenbourough handritið, honum
leist vel á og í sameiningu gerðu
þeir kvikmyndina In Love and
War (í ást og ófriði) sem fyrr var
nefnd, og gagnrýnanda þótti út-
þynntur Hemingway.
En voru þau Agnes og Hemin-
gway elskendur?
Af og frá, sögðu vinir hennar.
Útilokað, sögðu Henri Villard og
James Nagel, sem kynntu sér vel
dagbók Agnesar. En þeir Dimitri
Villard og Richard Attenborough
voru á öðru máli - þeir töldu þau
hafa átt í eldheitu ástarsambandi.
Hemingway geymdi bréfin frá
Agnesi, eins og áður segir, en bréf-
in sem hann skrifaði henni voru
ekki lengur til.
Italski greifinn, sem Agnes trú-
lofaðist, hafði í afbrýðisemi heimt-
að að þau yrðu brennd.
NÝJAR VÖRUR
með sérslökum alslælti
20%-50%
tr
Upplýsingar i sima 588 7788