Morgunblaðið - 18.03.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 59
Bein útsending frá
úrslitaeinvígi
Atskákmóts Islands í da g
FRÉTTIR
Sænsku hjónin Eva og Georg Klein
í fyrirlestraferð
Almennur fyrirlestur
um krabbamein
SKAK
S k j á r e i n n
ATSKÁKMÓT ÍSLANDS
10. - 18. mars 2000
STÓRMEISTARARNIR Helgi Ól-
afsson og Jóhann Hjartarson munu
tefla til úrslita um titilinn Atskák-
meistari Islands í dag, laugardaginn
18. mars. Einvígið verður sýnt í
beinni útsendingu á sjónvarpsstöð-
inni Skjár einn. Útsendingar Skjás
eins eru óruglaðar, þannig að allir
skákáhugamenn ættu að geta fylgst
með útsendingunni sem stendur frá
klukkan 13-15:30.
Helgi Ólafsson hefur tvisvar sinn-
um orðið íslandsmeistari í atskák,
árin 1996 og 1997. Þetta er hins veg-
ar einn af fáum titlum sem Jóhann
Hjartarson á enn eftir að bæta í
safnið. Hann tefldi þó einnig úrslita-
einvígið í fyrra, en varð þá að sjá af
titlinum í hendur Helga Ass Grétars-
sonar. Það er því ekki að efa, að ein-
vígið verður spennandi. Jóhann hef-
ur að sjálfsögðu fullan áhuga á að
bæta titlinum í glæsilega afrekaskrá
sína, en Helgi gæti hins vegar jafnað
met Þrastar Þórhallssonar með því
að sigra í einvíginu og verða þannig
Islandsmeistari í atskák í þriðja
sinn.
Því miður er allt of lítið um skák í
sjónvarpi og allir skákáhugamenn
fagna því þessu framtaki Skjás eins.
Það er hins vegar umhugsunarefni,
að önnur sjónvarpsstöð vildi taka
milljónir króna fyrir útsendinguna
þegar leitað var til hennar. í ljósi
þess flóðs af misgóðu íþróttaefni sem
sjónvarpsstöðvarnar greiða offjár
fyrir að sýna skýtur það skökku við
að fjárfletta eigi Skáksambandið fyr-
ir að sýna frá íþrótt sem við Islend-
ingar höfum líklega náð bestum
árangri í á alþjóðlegum vettvangi.
Engin stórmeistara-
jafntefli, takk!
Þann 10. mars síðastliðinn lauk of-
urmótinu í Linares með sigri þeirra
Vladimir Kramniks og Garry Kasp-
arov. Þeir hlutu hvor um sig 6 vinn-
inga af 10 mögulegum, en aðrir
keppendur voru jafnir í þriðja til
sjötta og neðsta sæti með 4’/2 vinn-
ing.
Mótshaldaranum á Linares, Rent-
ero að nafni, er ákaflega illa við að
samin séu baráttulaus jafntefli eða
að þau séu yfirleitt samin. Ef kepp-
endur gera sig seka um að semja lit-
laus jafntefli fá þeh' jafnan harðort
ávítunarbréf í hendurnar og eru
jafnvel sektaðir fyrir framferðið!
Þrátt fyrir þetta aðhald var hlutfall
jafntefla í ár hátt, eða í kringum 80 af
hundraði. Langflest þeirra voru þó
litbrigðarík sem hefur án efa róað
hið heita skap mótshaldarans.
Merkilegasta jafnteflisskákin var
á milli sigurvegaranna tveggja í átt-
undu umferð. Þriðji stigahæsti skák-
maður heims pressaði þar þann
stigahæsta sem þurfti á allri sinni út-
sjónarsemi að halda.
Hvítt: Vladimir Kramnik
Svart: Gary Kasparov
l.Rf3 Rf6 2.c4 c5 3.g3 d5 4.d4
dxc4 5.Da4+ Bd7!?
Hér virðist 5...Rc6 nærtækara.
Kasparov ku hafa notað mikinn tíma
á fyrstu leikina sem ber merki um að
hvítum hafi tekist að koma honum á
óvart, en slíkt þekkist varla þegar
hann á í hlut.
6.Dxc4 Bc6!? 7.dxc5 Bd5 8.Da4+
Bc6 9.Dc4 Bd5 10.Dc2 e6 ll.Bg2
Be4 12.Dc4 Bd5 13.Dh4!
Hafnar þráleik enda hefur hvítur
ögn þægilegri stöðu.
13...Bxc5 14.Rc3 Bc6 15.0-0 Be7?
Ónauðsynlegt var að ákveða strax
stöðu biskupsins. 15...Rbd7 hefði
verið skynsamlegra og eftir til að
mynda 16.Bg5 h6 17.Hadl Db6
18.Bxf6 Rxf6 19.Ra4 Db4 er staðan í
jafnvægi.
16.Hdl Da5 17.Bd2 Rbd7
18.g4!
Snjall leikm- sem hefur tvö megin-
markmið. í fyrsta lagi að berjast af
krafti fyrir miðborðinu með hótun-
inni g4-g5 og að rýma góðan reit fyr-
ir drottninguna á g3.
18.. .h6 19.Dg3 Da6 20.h4 Dc4
21.Bf4 Db4 22.a3 Dxb2 23.Rd4 g5!
Ekki er mér ljóst hvers vegna
svartur var að flana með drottning-
una marga leiki og enda svo í stór-
hættu á b2. Af þeim ástæðum varð
hann að grípa til róttækra aðgerða
til að verða sér úti um mótspil sem
og textaleikurinn gerir. Eftir hið ein-
falda 23...Bxg2 vinnur hvítur drottn-
inguna með 24.Hdbl
24.Rxc6!
Hvítur gat ekki þegið peðsfómina
þar sem eftir 24.hxg5 hxg5 25.Bxg5
Bxg2 26.Hdbl Be4 stendur svartur
með pálmann í höndunum. Með
textaleiknum hefur hvítur afar
hættuleg færi og í framhaldinu þarf
svartur að tefla af mikilli hugvits-
semi.
24.. ..gxf4 25.Dd3 bxc6 26.Bxc6
0-0 27.Bxa8 Re5 28.Dd4 Hxa8
29.Dxe5 Hc8 30.Hacl
Frábær björgunarleikur. Svarta
drottningin nær í framhaldinu að
valda það miklum usla í nágrenni
hvíta kóngsins að jafntefli verður
óumflýjanleg.
31.Rxd5 Dxe5 32.Rxe7+ Kg7
33.Hxc8 Dxe2 34.Hg8+ Kf6 35.Hd7
Del+ 36.Kg2 De4+ 37.Kh2 Dc2!
38.Kg2 De4+ 39.Kh2 Dc2 40.g5+
hxg5 41.Hxg5 Dxf2+ og jafntefli var
samið, enda sleppur hvítur ekki úr
þráskákinni.
Amber skákmótið
hafið
Níunda Amber-skákmótið í Móna-
kó fer fram 16.-28. mars. Eins og
venjulega eru tefldar atskákir og
blindskákir. Þátttakendur eru: Jer-
oen Piket, Ljubomir Ljubojevic,
Predrag Nikolic, Joel Lautier,
Viswanathan Anand, Anatoly Karp-
ov, Vassily Ivanchuk, Loek Van
Wely, Veselin Topalov, Vladimir
Kramnik, Boris Gelfand og Alexei
Shirov. Einni umferð er lokið á mót-
inu og er Kramnik efstur með 2 vinn-
Enski boltinn á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= e/TTH\SA£> NÝTl
og nýju líffræðina
inga, en hann sigraði Piket í báðum
skákunum.
Björn Jónsson
sigrar hjá TG
Marsmánaðarmót Taflfélags
Garðabæjai’ var haldið á mánudag-
inn. Björn Jónsson sigraði á mótinu,
Jóhann H. Ragnarsson varð annar,
Leifur I. Vilmundarson þriðji og
Kjartan Thor Wikfeldt lenti í fjórða
sæti.
Hraðskákmót Hellis 2000
Hraðskákmót Hellis verður haldið
mánudaginn 20. mars og hefst kl. 20.
Teflt er í Hellisheimilinu Þöngla-
bakka 1. Tefldar verða 7 umferðir
tvöföld umferð eftir Monrad-kerfi.
Heildarverðlaun eru kr. 10.000
sem skiptast þannig að sigurvega-
rinn fær 5.000 kr. Ónnur verðlaun
ei-u kr. 3.000 og þriðju verðlaun eru
kr. 2.000.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn, en kr. 500 fyrir aðra.
Unglingar greiða kr. 200 og kr. 300
séu þeir ekki félagsmenn. Mótið er
öllum opið. Da_ði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
KRABBAMEIN og nýja líffræðin
nefnist almennur fyrirlestur sem
Georg Klein flytur í Odda, stofu 101,
kl. 14, á morgun, sunnudag, í boði
rektors Háskóla Islands. Sænsku
hjónin Eva og Georg Klein dvelja á
Islandi næstu daga í boði ýmissa að-
ila og halda nokkra fyrirlestra.
Að loknum fyrirlestrinum á
sunnudag verða umræður um líf-
fræði og líftækni og taka þátt í þeim
auk fyrirlesarans þau Þorsteinn Vil-
hjálmsson, Vilhjálmur Árnason,
Guðmundur Pétursson, Guðmundur
Eggertsson, Guðrún Agnarsdóttir
og Sigurbjörg Þorsteinsdóttir.
Mánudaginn 20. mars heimsækja
Klein-hjónin rannsóknastofur Há-
skóla Islands og Krabbameinsfé-
lagsins og kl. 16 flytur Georg Klein
fyrirlestur í sal Ki’abbameinsfélags-
ins í Skógarhlíð um þróun krabba-
mejns.
Á miðvikudag verður farið í heim-
sókn til íslenskrar erfðagreiningar
og kl. 14 þann dag flytur Eva Klein
fyrirlestur í húsi Krabbameinsfé-
lagsins.
Fimmtudaginn 23. mars heim-
sækja þau Tilraunastöð Háskóla ís-
lands að Keldum og þar flytur Georg
Klein fyrirlestur kl. 12.30 og heim-
sókninni lýkur á föstudag hjá Urði,
Verðandi, Skuld og með fyrirlestri í
stofu 101 í Odda kl. 16 á föstudag.
Þar fer fram samræða Georgs Klein
og Þorsteins Gylfasonar um vísindi,
skáldskap og siðferði og er hún opin
almenningi.
Eva og Georg Klein hafa bæði ver-
ið prófessorar í krabbameinsfræðum
við Karólínsku stofnunina í Stokk-
hólmi, hann frá 1957 til 1993 og hún
frá 1979 til 1993. Eftir að þau létu af
embættum sínum fyrir aldurs sakir
hafa þau haldið áfram rannsókna-
störfum á stofnuninni. Hann hefur
birt meira en 1000 greinar um fræði
sín, og hún um 450. Nefna má að
samtals hafa fjórir íslenzkir vísinda-
menn lokið doktorsprófi undir hand-
leiðslu þeirra hjóna.
*
L