Morgunblaðið - 18.03.2000, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÁSKÓLABÍÓ
★ ★
HASKOLABIO
*
Hagatorgi, sími 530 1919
Einhver er að komast upp með morð og hver
sem gæti orðið næsta fórnarlamb. En hverfið
hefur aldrei verið líflegra. Snillingurin Spike
Lee með skemmtilega og spennandi mynd.
Álfabakka 8, simi 587 8900 oy 587 8905
★ ★ ★ 1/2
ÓFE Hausverl
★ ★ ★.’
Empirt?
BEACH
rá leikstjóra „Trainspotting"
jennutryllirinn með ieonardo
irio sem allir hafa beðið eftir!
Hrífandi saga um einstakan vinskap
og töfra sem enginn trúði. Ævintýri
sem þú gleymir aldrei.
uium.'.tt* uHit
iiafjit iaii'Jii
MT)M,
Frá leikstjóra
Shawshank Redemption
TOM HANKS
★★★ ^
OJ Dylí'jan
DENZEL WASHIN^W
THE HURRICANE
r iWvikmyiulir.ís
Green Mll_E
[ TlLNEFNINGAR TIL
L (^SKARSVERÐLAUNA
Denzel Washington
tékk Golden Globe
verðlaunin lyrir bestan
leik og er tilnefndur til
Óskarsverðlauna
www.samfilm.iswww.bio.is
Sigur Rós bar sigur úr bítum í fimm flokkum. Bubbi: hlaut heiðursverðlaunin í ár.
Sigur Rós sópaði að
sér verðlaunum
Sigurvegarar íslensku tónlistarverdlaunanna
Eru þau par?
Gellar og Prinze léku saman í myndinni „I
know what you did last summer". Hér eru
þau ásamt leikurunum Jennifer Love
Hewitt og Ryan Phiilippe sem einnig fóru
með hlutverk í myndinni.
NIJNA vitum við hvað Sar-
ah Michelle Gellar var að
gera, kannski ekki síðasta
sumar en í það minnsta
undanfarin mánuð. Slá sér
upp með hinum unga og
ferska leikara Freddie
Prinzejr.
Þau hafa sést ítrekað
saman að undanförnu og
því geta slúðurblöðin ekki
haldið aftur að sér lengur
og vi|ja kalla þau nýjasta
parið í Holiywood.
í nýjasta hefti tímaritsins
People er því að minnsta
kosti haldið fram að Gellar
og Prinze hafi sést knúsast
og kela á veitingastað fyrir
skömmu yfir laxasmárétt-
um og öðru gúðgæti. Ekki
núg með það heldur sagði
heimildarmaður blaðsins
The Stranger frá því að þau
hefðu sést kyssast, faðmast
og leiðast hönd í hönd.
En Gellar neitaði því staðfastlega
í febrúar að hún ætti í ástarsam-
bandi við Prinze „Við höfum aldrei
verið elskhugar og líkurnar á því
að ég léti sjá mig með ástinni minni
á einhverri frumsýningu eru litlar,
þess vegna fer ég með vinum mín-
um, t.d. Prinze,“ sagði hún.
ÞAÐ ríkir mikil tilhlökkun meðal tónlistarmanna
þegar líða fer að því að hin íslensku tónlistarverðlaun
verði veitt ár hvert. Spennunni var síðan aflétt á
fimmtudagskvöldið á Grand Hóteli þegar 18 silfruð
innri eyru voru veitt fyrir hina ýmsu flokka.
Það kom fæstum á óvart að hljómsveitin Sigur Rós
vann til flestra verðlauna enda hefur plata hennar
Ágætis byrjun selst mjög vel hér heima og sömuleiðis
hefur sveitin verið að gera það gott erlendis. Sveitin
var tilnefnd til átta verðlauna og í lok kvöldsins stóðu
þeir Jón Þór Birgisson, Kjartan Sveinsson, Georg
Hólm og Orri Páll Dýrason uppi með fangið fullt af
innri eyrum eða alls fimm stykki.
Þeir voru valdir hljómsveit ársins, áttu plötu, gítar-
leikara, lagahöfund og söngvara ársins. Maus vann til
tvennra verðlauna, Daníel Þorsteinsson var valinn
trommuleikari ársins og Birgir Örn Steinarsson
textahöfundur ársins. Sálin hans Jóns míns vann
einnig til tvennra verðlauna, átti lag ársins, Okkar
nótt, auk þess sem tónleikar þeirra hinn 12. ágúst
1999 þóttu tónlistarviðburður ársins. Einnig var Ey-
þór Gunnarsson með tvennu, var hljómborðsleikari
og djassleikari ársins.
Selma Björnsdóttir var tilnefnd sem flytjandi árs-
ins og vann þann titil, einnig var hún tilnefnd söng-
kona ársins en það var Emih'ana Torrini sem tók
verðlaunin í þeim flokki.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Samúel J. Samúelsson úr hljómsveitinni Jagúar,
blástursleikari ársins, að baki honum standa Birgir
Örn Thoroddsen sem afhenti honum verðlaunin.
Líf og friður í Hafnarfirði
Á björgun-
arbáti Guðs
BARNA- og unglingakór Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði flytur ásamt
hljómsveit söngleikinn Líf og frið-
ur eftir Per Harling í dag, laugar-
daginn 18. mars, og á morgun,
sunnudaginn 19. mars, og hefst
sýningin kl. 17 báða dagana. Þeir
sem taka þátt í sýingunni eru á
aldrinum 8-17 ára og hefur mikið
líf og fjör verið á æfingum undan-
farið.
Söngleikurinn er settur upp í til-
efni kristnitökuhátíðar í Hafnar-
firði og verður sýndur í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði. Sagan gerist í
Örkinni hans Nóa, björgunarbáti
Guðs og fjallar á spennandi og æv-
intýralegan hátt um líf og vonir
Morgunblaðið/Kristinn
Börn og unglingar syngja saman
í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
dýranna í örkinni. Tónlistin er létt
og skemmtileg og höfðar jafnt til
barna, unglinga og fullorðinna.
Stjórnandi söngleiksins og barna-
kórsins er Sigríður Ása Sigurðar-
dóttir tónmenntakennari og stjórn-
andi unglingakórsins er Örn
Arnarson en hann stjórnar jafn-
framt hljómsveitinni.