Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 6
6ÆPAX£RFI
LAUGARDAGUR 3. JUNI 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kviknaði
í bíl við
eftirför
LÖGREGLAN í Reykjavík
veitti ökumanni í annarlegu
ástandi eftirför frá Gnoðarvogi
og upp í Grafarvog um klukkan
eitt í fyrrinótt. Ökumaður
sinnti ekki stöðvunarmerkjum
lögreglu og keyi'ði utan í tvo
bíla og ljósastaur á leiðinni.
Lögreglan reyndi að komast
fram fyrir bílinn til að stöðva
hann, en þá keyrði maðurinn
utan í lögreglubílinn.
Loks náðist að stöðva bílinn
við Gullinbrú, en þá hafði
kviknað eldur í honum og náðu
lögreglumenn ökumanninum út
úr logandi bílnum. Hann fékk
gistingu í fangageymslu lög-
reglunnar, sem segir miidi að
engin slys hafí hlotist af þess-
um ofsaakstri mannsins.
Handteknir
með fíkniefni
LÖGREGLAN á Patreksfírði
handtók á fimmtudag fimm
unga menn sem voru að koma
akandi frá Reykjavík til Pat-
reksfjarðar með fíkniefni ’og
landa.
Mennirnir voru handteknir á
Barðaströnd og voru þeir færð-
ir á lögreglustöðina á Patreks-
fírði í beinu framhaldi af hand-
töku. Við leit í bifreið þeirra
fundust meðal annars 5 grömm
af hassi, 2-3 grömm af amfeta-
míni, 5-6 e-töflur og landi.
Mennirnir voru yfírheyrðir í
gærkvöldi og telst málið upp-
lýst.
49 skemmti-
ferðaskip til
Reykjavíkur
FYRSTA skemmtiferðaskip
sumarsins, Maxim Gorki,
leggst að bryggju við Kom-
garðinn í Sundahöfn fyrir há-
degi í dag. Með skipinu eru um
360 farþegar. Næsti viðkomu-
staður Maxim Gorki er Noreg-
ur. í sumar eru áætlaðar 49
komur skemmtiferðaskipa til
Reykjavíkur og búist er við að á
milli 24 og 25 þúsund farþegar
af þeim komi í land í Reykjavík.
Á síðasta ári komu 37 skemmti-
ferðaskip til Reykjavíkur og um
18.000 farþegar komu í land.
Umboðs- og þjónustuaðili
Maxim Gorki eru Samskip.
Talsmaður Landssímans telur hæpið að koma fram byggðastefnu með verðskrá
Raunkostnaður ræður
verði á leigulínum
VERÐLAGNING á leigulínum
Landssímans til gagnaflutninga þarf
að taka mið af raunkostnaði og segir
Ólafur Stephensen, talsmaður Lands-
símans, að kostnaður, hvort heldur er
vegna fjáfestinga eða rekstrar stofn-
línukerfísins, sé háður fjarlægðum og
því séu takmörk sett hvaða heimildir
séu til að innheimta sama verð fyrir
gagnaflutningsþjónustu á löngum lín-
um og stuttum. Hann segir að Lands-
síminn sé þannig bundinn af tilskip-
unum Evrópusambandsins, sem eru
hluti af EES samningnum, en þær
kveða á um að verðlagning skuli taka
mið af raunkostnaði.
í nýrri úttekt Atvinnuþróunarfé-
lags Eyjafjarðar á möguleikum svæð-
isins til fjar- og gagnavinnslu kemur
fram að ;,óheppileg verðlagning
Landssíma Islands á gagnaflutnings-
þjónustu fyrir landsbyggðina" geti
orðið flöskuháls fyrir þróun fjar- og
gagnavinnslu á landsbyggðinni og að
gífurlega erfitt verði fyrir fyrirtæki á
landsbyggðinni að standast sam-
keppni við sambærileg fyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu, nema ríkið geri
þeim það fjárhagslega kleift í formi
peningalegra byggðaaðgerða.
Ólafur tekur undh' það og segir að
líklega sé það miklu nærtækari
möguleiki að stjómvöld leysi þessi
mál með einhverjum byggðastyrkjum
heldur en að koma á slíku jafm-æði í
verðlagningunni í gegnum verðskrá
hlutafélags sem á jafnframt að standa
sig í samkeppni við önnur fyrirtæki.
Svigrúm einokunarfyrirtækis
ekki lengur fyrir hendi
„Pað bregður kannski nokkuð Ijósi
á þetta að skoða þá staðreynd að
markaðurinn fyrir þessa þjónustu er
að stærstum hluta héma á Suðvestur-
hominu og hér á þessu stærsta mark-
aðssvæði er orðin mjög hörð sam-
keppni. Hér er t.d. komið fyrirtækið
Lina.net sem er að veita þessa þjón-
ustu líka.
Við þessar aðstæður er ekki lengur
fyrir hendi það svigrúm sem einokun-
arfyrirtæki hafa til að niðurgreiða
kostnað við einn hluta kerfisins með
yfirverði á öðram. Ef þjónustan ætti
að kosta það sama hversu löng sem
línan væri yrðum við að hækka verðið
á stuttu línunum og þar með þjónust-
unni hér í þéttbýlinu.
Keppinautamir hér á höfuðborgar-
svæðinu væra ekki bundnir af slíkum
kvöðum og afleiðingin yrði sú að við-
skiptavinir okkar færa í stóram stíl til
þeirra, sem aftur þýddi að Síminn
myndi missa tekjur og neyðast til að
hækka verðið á þjónustunni enn írek-
ar.“
Að sögn Ólafs era því bæði lagaleg-
ar og markaðslegar ástæður sem
standa í vegi fyrir því að Landssíminn
geti haldið uppi verði styttri lína til að
niðurgreiða kostnað við þær lengri.
Verðlaun veitt í teiknisamkeppni meðal 6 til 11 ára barna
Lo0smyndAvww.mountainlakesbooks.co.uk
Flestir, sem klífa Matterhorn,
fara eftir Homli-hrygg sem er
vinstra megin á myndinni. Jök-
ull og félagi hans gerðu tilraun
til að fara upp norðurvegginn,
þ.e. fyrir miðri mynd, sem er fá-
farin klifurleið og mjög erfið.
Tannlæknirinn
teiknaður
Morgunblaðið/Golli
Verðlaunahafarnir Bragi Jónasson, 9 ára,
Sara Sigurðardóttir, 6 ára, og Einar Helgi
Guðlaugsson, 8 ára, ásamt Bolla Valgarðssyni
framkvæmdastjóra Tannlæknafélags íslands.
ÞRJIJ böm hlutu í gær
verðlaun í teikni-
samkeppni Tannlækna-
félags Islands meðal
barna á aldrinum 6 til
11 ára. Keppnin var
haldin í tengslum við
evrópska teiknimynda-
samkeppni sem
Evrópusamtök tann-
lækna halda í samráði
við Alþjóðasamtök
tannlækna.
Á fimmta hundrað
mynda barst frá gmnn-
skólanemendum alls
staðar af landinu og
veitti dómnefnd skipuð
fulltrúa Tannlæknafé-
lagsins, Listaháskóla
Islands og Félagi ís-
lenskra mynd-
listarkennnara þremur
myndum verðlaun.
Meðlimir dómnefndar-
innar segja að þeim
hafi verið mikill vandi
á höndum því þeim hafí
borist svo mikill ijöldi af fallegum
myndum.
Fyrstu verðlaun hlaut Sara Sig-
urðardóttir, 6 ára nemandi í Korpu-
skóla, Korpúlfsstöðum í Reykjavík,
önnur verðlaun hlaut Bragi Jónas-
son, 9 ára ncmandi í Seljaskóla í
Reykjavík ogþriðju verðlaun hlaut
Einar Helgi Guðlaugsson, 8 ára
nemandi í Árskóla á Sauðárkróki.
Mynd Söru verður framlag Islands í
lokakeppnina sem haldin verður i
París í haust, en þar verða viðstadd-
ir verðlaunahafar frá hveiju Evr-
ópulandi ásamt foreldrum sínum.
Varð frá að
hverfa en hyggst
reyna aftur
TILRAUN íslenska Ijallgöngu-
mannsins Jökuls Bergmanns til að
klífa norðurvegg svissneska alpa-
tindsins Matterhorn fyrstur Islend-
inga mistókst á sunnudag vegna
slæmra aðstæðna og veðurs. Jökull
mun þó hafa hug á að gera aðra til-
raun eftir viku til tíu daga.
Helgi Benediktsson, verslunar-
maður í heildversluninni Sportís,
sagði að Jökull væri nú sennilega
staddur við klifur í hliðum Mont
Blanc en Helgi talaði við Jökul síðla
á fimmtudag. Sagði hann Jökul og
franskan félaga hans, Gregory
Facon, hafa verið komna um þijú
hundruð metra upp í tind Matter-
horn, þ.e. verið komna í svona 3.600
metra hæð og því átt eftir um 900
metra á toppinn. Þeir hefðu því átt,
dágóða ferð enn fyrir höndum er
þeir tóku þá ákvörðun að snúa við.
„Þeir voru með hjartað í buxun-
um vegna þess að það var allt að
hrynja í kringum íþá,“ sagði Helgi.
„Snjórinn var mjög laus í sér og
raunar hellingssnjór, sem er
óvenjulegt, því það er fimmtíu
gráða halli á þessari brekku og
snjórinn tollir venjulega illa. Það
var því svo sem ekkert annað fyrir
þá að gera en hætta við.“
Helgi sagði að ofurhugarnir
hygðust hins vegar reyna aftur eft-
ir nokkra daga ef veður og aðstæð-
ur leyfðu.
Mynd Söru Sigurðardóttur, 6 ára, hlaut fyrstu verðlaun.
Braga Jónassonar, 9 ára,
hlaut önnur verðlaun.
Mynd Einars Helga Guðlaugs-
sonar hlaut þriðju verðlaun.
ISTISO 9001
SiS8
BM-VAUÁ
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050
ISO 9001
ISO 9001 er alþjóðlegur staðall
um gæðakerfi sem tryggir þér
fyrsta flokks vöru. Kynntu þér
sérstöðu okkar á www.bmvalla.is
www.bmvalla.is