Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 1 5
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Golli
Lilja Eyþórsdóttir leikskólastjóri kynnti þróunarverkefnið Leggjum orð í belg.
Morgunblaðið/Golli
Krakkarnir á Klettaborg sungu fyrir gestina í tilefni dagsins.
Borgaryfirvöld vilja ganga frá
kaupum á Keldnalandi
Nýtt atvinnu-
svæði fyrir
þekkingariðnað
Keldnaland
BORGARYFIRVÖLD vonast
til að ganga frá samningum
um kaup á Keldnalandi af rík-
inu fljótlega á næstu vikum.
Þetta kom fram í samtali
Morgunblaðsins við Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra, en um er að
ræða 120 hektara land í kring-
um Keldur auk skika austan
Vesturlandsvegar.
„Við leggjum mikla áherslu
á að ljúka þessum samningum
sem fyrst þannig að það sé
hægt að fara að þróa þetta
svæði,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún. „Ég held að það sé sam-
eiginlegur vilji borgar og ríkis
að skoða þetta svæði sem nýtt
atvinnusvæði í tengslum við
uppbyggingu hugbúnaðar- og
tæknifyrirtækj a.“
Að sögn Ingibjargar Sól-
rúnar eru fyrst og fremst há-
skólastofnanir á svæðinu, sem
eigi góða samleið með fyrir-
tækjum í þekkingariðnaðin-
um. Svæðið norðan Víkurveg-
ar gæti jafnvel hentað sem
framtíðarsvæði fyrir Tæknis-
kóla íslands, sem er í leigu-
húsnæði við Höfðabakka 9.
Ingibjörg Sólrún sagði að
þrátt fyrir að fyrst og fremst
væri litið á svæðið sem fram-
tíðaratvinnusvæði, yrði lögð
áherslu á að eitthvað af því
færi undir íbúðabyggð.
„Það skiptir hins vegar
verulegu máli að við eignumst
gott svæði fyrir þekkingariðn-
aðinn, en hann þarf allt ann-
ars konar umhverfi en hefð-
bundin iðnaðarstarfsemi og
færi vel með íbúðabyggð og
þessu græna yfirbragði.“
Ingibjörg Sólrún sagði að
kaupverð væri ekki ákveðið,
en væntanlega myndi borgin
undirgangast einhverjar
kvaðir varðandi skipulagn-
ingu svæðisins sem hefðu lík-
lega áhrif á verðið. Líklega
myndi hluti af Keldnalandi
ganga upp í greiðslu ríkisins
fyrir 1.650 milljóna króna
eignarhlut borgarinnar í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Ríki
og borg gerðu samning árið
1998 um að ríkið tæki yfir
sjúkrahúsið og endurgreiddi
borginni eignarhlut þess um-
fram 15% sem Reykjavíkur-
borg mun eiga áfram.
Ný mislæg gatnamót
Miklar gatnagerðarfram-
kvæmdir standa yfir við Keld-
ur, en aðgengi þangað hefur
verið slæmt. Stórhöfðinn
verður lengdur þannig að
hann tengi Höfðahverfið og
Keldnalandið, einnig er unnið
að gerð undirganga undir
Vesturlandsveginn gegnt
golfskála Golfklúbbs Reykja-
víkur og að þeim loknum
verða Keldnalandið og Graf-
arholtið orðin samtengd.
Að sögn Stefáns Hermann-
ssonar borgarverkfræðings
hefur verið ákveðið að hefja
framkvæmdir við gerð mis-
lægra gatnamóta við Vestur-
landsveg, Víkurveg og Reyn-
isvatnsveg á þessu ári.
Framkvæmdir við mislæg
gatnamót Vesturlandsvegar
og Suðurlandsvegar myndu
því frestast til ársins 2002 eða
2003, en upphaflega hefði átt
að hefja þær á þessu ári , en
vegna uppbyggingar í Grafar-
holtshverfi hefði verið ákveðið
að hefja fyrst framkvæmir við
nyrðri gatnamótin.
Vantar 2-300 sumar-
menn hjá borginni
Reykjavík
REYKJAVÍKURBORG hef-
ur aðeins fengið til starfa um
helming þess fjölda sumar-
starfsmanna sem sóst var eftir
og vantar á þriðja hundrað
manns til sumarstarfa í hreins-
unar- og garðyrkjudeild.
„Okkur vantar. að minnsta
kosti 70 manns bara hjá garð-
yrkjustjóra og við gætum al-
veg þegið 100 til viðbótar,"
sagði Jóhann Pálsson garð-
yrkjustjóri í samtali við Morg-
unblaðið og í máli hans kom
fram að erfitt gæti orðið að
halda borginni í sparifótunum í
sumar að óbreyttu.
Sigurður Skarphéðinsson
gatnamálastjóri sagði að geng-
ið hefði verr en áður að ráða
fólk til sumarstarfa. „Það er
mikil eftirspum eftir vinnuafli
og hún er í sögulegu hámarki á
höfuðborgarsvæðinu,“ sagði
Sigurður. „Það leiðir til þess
að allir eiga meira og minna i
erfiðleikum með að finna þá
starfsmenn sem þeir þurfa.
Okkar starfsemi er að miklu
leyti árstíðabundin og við er-
um þess vegna verr staddir en
margir aðrir því við erum van-
ir að taka inn mikinn fjölda
sumarstarfsmanna að vor-
lagi.“
Leitað til verktaka
Pétur Kr. Pétursson, starfs-
mannastjóri borgarverkfræð-
ings, sagði að staðan í ráðn-
ingamálum væri sú að borgina
vantaði samtals 2-300 sumar-
starfsmenn í garðyrkju- og
gatnadeild; hins vegar væri
hreinsunardeild borgarinnar
þokkalega sett með afleys-
ingafólk. „Undanfarin sumur
höfum við ráðið 260-300 manns
á hvora þessara deilda," sagði
Pétur. Um það hvernig borg-
arstofnanir færu að því að
leysa sín verkefni þegar svo
mikinn fjölda starfsmanna
vantaði sagði hann að væntan-
lega yrði að fela öðrum þau
störf sem annars væru unnin
af skólafólki, þ.e. verktakafyr-
irtækjum.
Pétur sagði að vissulega
hefðu orðið ýmsar sveiflur á
því hvernig gengi að ráða sum-
arstarfsfólk. „Okkai- vandamál
er að við þurfum að bjóða upp
á störf þegar samdráttur er og
undanfarið höfum við þurft að
bjóða sem mest af sumarstörf-
um fyrir skólafólk og jafnvel
taka umfram þörf. Það hefur
kannski hrætt suma frá að
sækja um hjá okkur að við vor-
um um tíma með skertan
vinnutíma vegna þess hve við
þurftum að ráða marga og
þess vegna sækir fólk kannski
um þar sem það telur að rneiri
vinnu sé að hafa. En við reikn-
um með að unnið sé 10 tíma
flesta daga í sumar."
Pétur sagðist ekki minnast
þess að áður hefði gengið jafn-
illa og nú að ráða í sumarstörf.
„Hins vegar höfum við líka
lent i því að eftirspum eftir
vinnuafli sé í lágmarki og þetta
ástand er eiginlega öfug speg-
ilmynd af ástandinu sem var
1993-1994 þegar við tókum
margfalt fleiri í vinnu en við
gátum með góðu móti tekið,“
sagði Pétur Kr. Pétursson.
Mál-
örvun í
leik-
skóla
Grafarvogur
LEIKSKÓLINN Klettaborg í
Dyrhömrum í Reykjavík hef-
ur undanfarin tvö ár unnið
að þróunarverkefni sem
nefnist Leggjum orð í belg
og hefur að markmiði að
bæta málfarslegt umhverfi
barnanna í leikskólanum og
leggja áherslu á máltjáningu
og -skilning í því skyni að
byggja traustan grunn að al-
mennu námi þeirra seinna
meir. Unnið var að því að
þjálfa börnin í fijórri máln-
otkun við allar aðstæður en í
starfinu var gengið út frá
getu og hæfni hvers og eins.
Lögð var sérstök áhersla á
að börnin notuðu málið og
spannaði verkefnið allt dag-
legt starf leikskólans; leik,
borðhald og samskipti.
Rik áhersla var lögð á að
börnin töluðu f setningum en
ekki eins atkvæðis orðum og
að þau notuðu það til að
leysa ágreining, tjá þarfír
sinar og setja mörk f sam-
skiptum.
Við þróunarverkefnið,
sem var í umsjón Lilju Ey-
þórsdóttur leikskóiastjóra og
Kolbrúnar Vigfúsdóttur
verkefnissljóra, voru þróað-
ar vinnuaðferðir til að
styrkja og efla málumhverfið
f leikskólanum. Þær aðferðir
fólust m.a. í því að leggja
áherslu á opnar spurningar,
samræðustundir fyrir eldri
börn og umræðu um hluti og
atburði með yngri börnum.
Verkefnið naut styrkja frá
þróunarsjóðum Leikskóla
Reykjavíkur og menntamála-
ráðuneytisins og var þessum
aðilum afhent skýrsla um
starfið sl. miðvikudag.
Héraðs-
dómur og
banki á
Thorsplani
Hafnarfjördur
Á THORSPLANI í Hafnar-
firði standa nú yfir fram-
kvæmdir, en þar er verið að
reisa þriggja hæða hús fyrir
Landsbankann og Héraðs-
dóm Reykjaness.
Landsbankinn verður með
aðstöðu á jarðhæð hússins en
héraðsdómur á annarri og
þriðju hæð. Gert er ráð fyrir
að framkvæmdum Ijúki næsta
vor og að húsið verði afhent
fullbúið í apríl á næsta ári.