Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 35

Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 35 ERLENT „Full þörf fyrir mosku á Islandi“ Morgunblaðið/Ásdís Ataul Mujeeb Rashed segir mosku ekki síður gegna hlutverki upp- lýsingamiðstöðvar en bænahúss. ATAUL Mujeeb Rashed, trúarleið- togi Lundúnadeildar trúboðs Ahmadiyyamúslima, var nýlega á ferð á Islandi að kanna grundvöll fyrir byggingu mosku hér á landi. „Þetta er fyrsta heimsókn okkar hingað og megintilgangurinn er sá að hitta Islendinga og kanna mögu- leika á að kynna íslendingum ísl- amska trú,“ segir Rashed og kveðst hafa hlotið góðar viðtökur. Hann segir að sér hafi verið tjáð að hátt í tvö hundruð múslimar búi á íslandi. Sumir þeirra séu flóttamenn sem flutst hafí hingað á undaförnum ár- um, en eins hafi fólk fætt og uppalið á Islandi tekið íslamska trú þótt ekki sé að finna nein samtök múslima hér á landi. „Við erum þess fullviss að það sé þörf á íslamskri trú hér eins og ann- ars staðar. Trúin er öllum ætluð,“ segir Rashed og kveðst hafa styrkst í þeirri sannfæringu við heimsókn sína hingað þar sem hann hitti m.a. íslenska múslima. Með Rashed í för var Ibrahim Ahmad Noonan, kaþólskur íri sem tekið hefur íslamska trú. Þeir segja báðir að það hafí komið þeim á óvart þar sem skammt sé til Bretlands, að engin moska skuli vera starfrækt á íslandi og telur Rashed þetta valda múslimum hérvissum erfiðleikum. „Þetta er erfíð aðstaða. Þeir eru múslimar, en til þess að iðka trú sína þurfa þeir á trúarmiðstöð, mosku, að halda, en hana vantar. í núverandi stöðu reynir fólk að gera það sem það getur en til að auka samfélagsandann er þörf á trúarmið- stöð,“ segir Rashed. „Mitt uppáhaldsorðatiltæki er að moskan virki eins og segull. Hún laðar að sér múslima." Aðspurður segir hann Ahmadi- yyaregluna ekki strangtrúaða. „Við erum ekki strangtrúarregla í þeirri óheppilegu merkingu sem orðið hef- ur tekið á sig,“ segir Rashed og kveður fylgismenn reglunnar engu að síður fylgja fast eftir grundvallar- boðorðum Kóransins. Konur njóti hins vegar meira frjálsræðis hjá þeim en meðal sumra annarra músl- ima. Ólæsi kvenna sé í lágmarki og þær vinni til að mynda margar hverjar við þáttagerð hjá sjónvarps- stöð trúarreglunnar. Ekki bara bænahús Þeir Rashed og Noonan notuðu tímann á íslandi til að ræða við full- trúa borgarstjóra Reykjavíkur og háskólayfirvöld og segja þeir fullan skilnmg hafa ríkt á för þeirra. „Við ræddum ítarlega við fulltrúa borgarstjóra um þessi mál“ segir Rashed og kveður vel hafa verið tek- ið á móti þeim. „A þessum stutta tíma sem við höfum dvalið hér held ég að allir þeir sem við ræddum við hafi haft fullan skilning á hugmynd- um okkar og virst okkur sammála um að hér ætti að vera moska. Moska er heldur ekki bara bæna- hús múslima heldur einnig staður sem veitir þeim sem fræðast vilja um íslamska trú upplýsingar. Við viljum mjög gjarnan að íslendingar séu í þeirri aðstöðu að geta leitað sér upp- lýsinga um íslamska trú,“ segir Ras- hed og kveður þetta erfitt fyrir land- ann í dag. Trúboð Ahmadiyyamúslima er að sögn Rasheds starfrækt í 160 lönd- um en höfðustöðvar reglunnar, sem hefur verið starfrækt frá því á 19. öld, eru í Pakistan. Rashed segir regluna hafa byggt um 8.000 moskur til þessa enda séu hátt í 40 milljónir manna virkir trúfélagar. „íslandi er lýst sem landi i nánum tengslum við náttúruna. Þetta er fallegt land sem hefur verið blessað með mörgum tilkomumiklum stöð- um. Hingað til hefur hins vegar eng- in moska verið byggð hér og teljum við að hún muni auka enn á fegurð staðarins. Arið 1924 vorum við fyrstir til að reisa mosku í London og það er ósk okkar að verða einnig fyrstir til hér. Við höfum því fullan hug á að sjá til þess að á næstu árum verði fyrsta moskan byggð í Reykjavík." Gijótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 Laguna Nevada - með meiri búnaði Næstu 10 kaupendur fá Laguna Nevada í sérstökurn sumarbúningi, með meiri og ríkulegri aukabúnaði en á sama góða verðinu og áður. í Renault Laguna Nevada er meira pláss fyrir ökumann og farþega en gengur og gerist í fólksbílum. Nevada er með 520 lítra farangursrými og svo ríkulcga búinn að það er hrein unun að keyra hann. Komdu þér í sumarskap með sumarbúnum Renault Laguna Nevada. RENAULT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.