Morgunblaðið - 03.06.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 39
laugsson gefur til kynna í nýrri
mynd sinni um Jón Magnússon.
Síðan hafa komið fram hugmyndir
um að galdur hafí verið raunveru-
leiki í huga 17. aldar manna. Þetta
er kannski spurning um skilgrein-
ingu á galdri, hvað galdur sé?
Hver er þín skoðun?
„Hverju trúa menn í raun og
veru þegar heilt samfélag er
gegnsýrt af innleiddri hugmynda-
fræði um vélar djöfulsins og niður-
rif hans í mannlegu samfélagi?
Trúa menn eða vilja þeir trúa?
Hverju trúðu menn á tímum gyð-
ingaofsóknanna - eða á dögum
mccarthyismans í Bandaríkjunum?
Að verið væri að grafa undan til-
veru þeirra, ekki satt? Og með því
að höfða til fagurra hugmynda á
borð við hreina guðstrú, þjóðernis-
ást eða hinn fullkomna germanska
mann, er hægt að fremja ótrúleg
ódæði, eins og dæmin sanna. En
hverju trúa menn í raun og veru,
og hvað er raunverulegt í huga
þeirra? Galdur var á sinn hátt
raunverulegt fyrirbæri í lífi 17.
aldar manna - hann er það jafnvel
enn.
Galdur er viðleitni einstaklings-
ins til þess að hafa áhrif á líf sitt
og afkomu. Hér á Islandi byggir
hann á fornu þekkingarkerfi, og er
í fornum heimildum kallaður „vís-
indi“ og „kunnátta“. Margt af því
sem fólk var saksótt fyrir á brenn-
uöld voru gömul húsráð og lækn-
ingaviðleitni í bland við einhvers-
konar andhita eða bænir.
Maðurinn er á öllum tímum að ák-
alla einhverja krafta til liðsinnis
sér - það gerist líka í viðurkennd-
um trúarbrögðum. Ég þekki lækni
sem alltaf signir sig áður en hann
gengur inn á skurðstofuna og
fremur sínar kúnstir þar. Er það
ekki galdur? Að minnsta kosti er
það andhiti í bland við lærða
tækni."
Samþætting- trúar og vísinda,
þekkingarviðleitni og tjáning
- Telurðu að enn eimi eftir af
hugarfari galdraaldarinnar í sam-
félagi okkar nú á tímum? Að það
hafí verið til alvöru galdur, raun-
vcrulegur galdur sem jafnvel sé
ennþá til - leynist einhvers staðar
í gamalli þekkingu?
„Það er ótalmargt í siðum okkar
og athöfnum sem á sér rætur í
frumstæðum hugmyndum um
tengsl mannsins við æðri krafta.
Þegar þú stendur framan við
sjónvarpið og æpir á knattspyrnu-
manninn sem er við það að skora
mark í úrslitaleik, ert þú að fremja
sömu athöfn og konumar af agni-
ættbálknum sem dansa í kringum
eldinn og hrópa nöfn eiginmanna
sinna á meðan þeir heyja baráttu
við andstæðinga sína inni í skógin-
um. Þær eru að fremja heillagald-
ur - þú myndir sjálfsagt segja að
þú værir bara „að hvetja þína
menn“. Þegar fólk stígur dansinn
á skemmtistöðum borgarinnar um
hverja helgi í maka- og ævintýra-
leit, er verið að fremja forna frjó-
semisathöfn. Munurinn er bara sá
að nú er umgjörðin önnur - lökkuð
dansgólf og speglum prýddir vegg-
ir í stað hinna fornu trjálunda,
bumburnar eru orðnar að raf-
magnshljóðfærum. En það er bita-
munur en ekki fjár. Galdur er í
mínum huga samþætting trúar og
vísinda, þekkingarviðleitni og tján-
ing. Að sumu leyti listrænn gjörn-
ingur. Þekkingarviðleitni og tján-
ingarþörf verður vonandi alltaf
liður í atferli okkar manna. Að lifa
innihaldsríku, skaparfcii og
skemmtilegu lífi, það er galdur.“
Qlroaí
LISTIR
Verk eftir Berglindi Björnsdóttur.
s
Islenskur ljósmynd-
ari sýnir á Manhattan
Fyrirlestrar í LÍ
BERGLIND Bjömsdóttir ljós-
myndari opnar nú um helgina
fyrstu einkasýningu sína í Gall-
ery Alexie, á Manhattan í New
York. Berglind hefur áður tekið
þátt f nokkrum samsýningum
bæði á fslandi og í Banda-
ríkjunum. Hún útskrifaðist vorið
1994 með BA-gráðu í Ijósmyndun
frá Arizona State University -
School of Art.
Myndimar era flestar svart-
hvítar og unnar á hrjúfan ljós-
myndapappír. Þær era sfðan
brúntónaðar. Rammarnir era
flestir gamlir gluggar úr Hlíðar-
endakirkju í Fljótshlíð og era
þeir rúmlega 100 ára gamlir. Þeir
mynda, ásamt myndefninu, eina
heild. Einnig verða á sýningunni
myndir unnar með svokallaðri
„Polaroid image transfer“-tækni,
ásamt tölvuprentuðum myndum.
Sýningin stendur til 24. júní.
FYRIRLESTRAR og myndbanda-
sýningar verða í Listasafni íslands
um helgina. Torfi Frans Ólafsson
tæknistjóri sýningarinnar @ eða At-
ið ræða um sýninguna á Listasafni
Islands í dag, laugardag, kl. 15.
Sunnudaginn 4. júní mun Margrét
Elísabet Olafsdóttir listheimspek-
ingur fjalla um sýningamar íslensk
og eríend veflist og íslensk og erlend
myndbönd.
I fyrirlestrinum verður reynt að
gera grein fyrir áhrifum stafrænnar
tækni á sjónlistir og fjallað um sjón-
ræna skynjun á tímum gagnvirkrar
myndgerðar. Veflistin og verk
Steinu Vasulku, Myndhvörf, verða
m.a. tekin sem dæmi.
Sýningarnar eru hluti af sýning-
unni Nýr heimur stafrænar sýnir.
Myndbandasýningar
Myndbandasýningar verða kl. 12
og kl. 15. Sýning á verkum Bruce
Naumann verða í dag, laugardag:
Art Make Up, Silver og Art Make
Up, Black.
Bruce Nauman fæddist í Fort
Wayne, Indiana í Bandaríkjunum
1941. Stundaði nám við University of
Wisconsin í Madison, þar sem hann
lagði stund á stærðfræði ásamt list-
námi og við University of Califomia í
Davis.
Myndbönd hans frá sjöunda og
áttunda áratugnum em meðal frum-
legustu og áhrifaríkustu verka sam-
tímalistarinnar.
Sýning á verki Wolf Vostell, TV
Cubisme, Liege, 1985, verður á
sunnudag.
Wolf Vostell 1932-1997. Fæddist í
Leverkusen, Þýskalandi. Stundaði
nám í málaralist, leturgerð og svart-
list í Wuppertal og við École des
Beaux-Arts í París. Var einn af
stofnendum Fluxus í Wiesbaden. Yf-
irlitssýningar á verkum hans hafa
verið í Musée dArt Modeme de la
Ville de Paris, Nationalgalerie í Ber-
h'n og á Spáni.
Steina Vasulka: 11 verk Steinu
Vasulka verða sýnd stanslaust frá kl.
11-12 og 12.20-15.
15.20-17: Warp 2000, Trevor 1999,
Pyroglyphs 1995, Lilith 1987, Violin
Power 1976, The West 1983, In the
Land of the Elevator Girls 1988, A
So Desu Ka 1989, Urban Episodes
1980, VoiceWindows 1986, Bad 1979.
Steina Vasulka er einn af brautr-
yðjendum í heiminum í notkun staf-
rænnar tækni í myndhst. Hún hóf til-
raunastarf í þeim efnum þegar á
sjöunda áratugnum og hefm- á síðari
ámm hlotið margvíslega viðurkenn-
ingu austan hafs og vestan fyrir ný-
sköpun í myndhst.
-----------------
Sýning á
vegg skrif-
stofurýmis
SÝNINGARSTJÓRAR hjá gallerí-
@hlemmur hafa ákveðið að hefja
sýningar á vegg í skrifstofurými
staðarins.
Fyrsta sýningin er á tveimur
verkum Sonju Georgsdóttur. Verkin
em frá þessu ári, unnin með tússi á
gömul National Geografic-landa-
kort.
Sonja Georgsdóttir útskrifaðist úr
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1995, og úr School of Visual Arts
1998. Hún er búsett og starfar í New
York.
Sýningin stendur til 30. júlí.
-------—
VERO MODA'
.......ll""1...........L
EXIT
11,11............................. :........1 •ll'.......................
Laugavegur 97
Opið laugardag kl. 10-17 og sunnudag kl. 13-17
seljum beint af lager
verð sem þú hefur aldrei séð áður