Morgunblaðið - 03.06.2000, Qupperneq 46
hausverk auglýsingastofa
46 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Land & Synir Á móti sói
DJAMMAÐU MEÐ FM957 í SUMAR
Sumardjamm FM957
Fylgstu með hvar víð verðumS
EGILSSTAÐIR
SELFOSS
BORGARNES
REYKJANESBÆR
AKUREYRI
AKRANES
REYKJAVÍK
BISKUPSTUNGUR
VESTMANNAEYJAR
Á MÓTI SÓL
GREIFARNIR
SÓLDÖGG
LAND & SYNIR
SUMARDJAMM
LAND & SYNIR
GREIFARNIR
LAND & SYNIR
SÓLDÖGG
Heilagar
draumsýnir
Draumstafir Kristjáns Frímanns
NÚ þegar sólin strýkur græðandi
geislum sínum um hali og sprund,
jörðin dafnar og nóttin skiptir um
ham er hér lítil saga af sólguðnum og
syni hans.
Einn af guðunum tólf á Ólymps-
fjalli var Apollo, guð sólar, skáld-
skapar, spádóma og ímynd fegurðar.
Hann barnaði Coronis, eina af ást-
konum sínum, en hún vildi ekkert
meir með guðinn hafa og kaus annan
hjásvæfil. Þá fregn færði honum hvít
kráka sem Apollo fordæmdi í reiði
sinni svo hún varð bikasvört og er æ
síðan. Því næst þreif hann boga sinn,
æddi út í leit að Coronis og skaut
bamshafandi prinsessuna til bana.
Tók svo hníf sinn, risti líkið á hol og
rykkti syni sínum út sem enn var á
lífi og færði kentárnum Chiron til
fósturs. Sonurinn óx upp og varð
Asklepíos, guð heilunar og lækninga.
Tákn hans var stafur sem snákur
hringaði sig um og með hann sér til
fulltingis birtist hann dauðlegum
mönnum í svefni og læknaði. Hof
hans hét Abaton, staðsett í Epídáros
þar sem menn komu að leita lækn-
inga og urðu að undirgangast ritúal
(athöfn) hreinsunar áður en þeir
lögðust til svefns í hofinu helga í von
um að guðinn birtist þeim í draumi
og veitti þeim lækningu. Ritúalið eða
inkúbasjónin (úr latínu: Að leggjast
fyrir á heilögum stað) hófst með
baði, þá íhugun og loks svefni í hof-
inu helga þar sem ríkti alger ró. Þeg-
ar sjúklingunum heppnaðist svefn
opnaðistþeim draumalandið þar sem
Asklepíos gekk við staf sinn úr ein-
um draumi í annan, snart mennina
með stafnum, ræddi við þá um
krankleika þeirra og læknaði af
hvers kyns kvillum og sjúkdómum.
Sagan segir að um 500 fyrir Krist
hafi hof hans, Abaton (sem seinna
breyttist í Apotek), verið staðsett
víða um hinn siðmenntaða heim svo
sem í Aþenu, á Knídos, Kos og fleiri
stöðum þar sem pílagrímar frá öllum
heimshornum mættu til að leita sér
lækninga.
Draumur „Uglu“
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi fyrir nokkrum árum
undarlegan draum. Mér fannst ég
vera heima inni í mínu herbergi og
nýfarin að sofa (en ég var erlendis
þegar mig dreymir þetta) þegar mér
finnst ég vakna upp og er að hamast
við að kveikja Ijós, en sama hvemig
ég reyndi gat ég ekki kveikt ljós og
að lokum náði ég mér í vasaljós. Svo
labbaði ég fram á gang og sá þá föð-
ur minn liggja í stiganum með höfuð-
ið niður á við. Ég spurði hann hvað
hann væri að gera, hann sagðist vera
tengdapabbi minn og hvort pabbi
minn væri ekki dáinn. Ég svaraði að
svo væri (en hann lést síðastliðið
haust), þá sagði hann , já og mamma
þín fer 22". Hann nefndi engan mán-
uð eða þvílíkt en ég spurði hann
hvert hún væri að fara en fékk ekk-
ert svar, þar sem mamma kom allt í
einu og spurði hvort ekki væri allt í
lagi, en ég beindi á hana Ijósinu og
öskraði á hana. Fannst ég svo allt í
einu vera aftur inni í herberginu
mínu að berjast við að kveikja Ijós en
gat það ekki. Hljóp þá fram á gang
og sá pabba á sama stað liggjandi í
stiganum en þó sá ég hann ekki eins
skýrt og áður. Hann segir mér að
koma og skoða. í fjarska heyri ég
mömmu tala við einhvern, hvernig
ég hafi komið fram við sig og er eins
og hún sé hálf grátandi. Svo fannst
mér ég svífa upp og út, horfi á húsið
mitt og næsta umhverfi og svíf upp
að stjömubjörtum himni, allan tí-
mann fannst mér ég verða að vakna
þar sem mér fannst vont að heyra
mömmu óánægða og gráta og mundi
þá allt í einu hvað hann pabbi hafði
sagt.
Ráðning
Ef ég skil drauminn rétt hefur þig
dreymt hann á örðugum tíma í lífinu
og að hann snýst um framtíð þína
fram undir 2030. Af draumnum að
ráða er sú framtíð þegar rannin að
einum þriðja en mikið vatn á enn eft-
ir að falla. Orka þín eða lífsljós virð-
ist hafa verið flöktandi alllengi en
slokknað næstum við fráfall föður
þíns. Týran (vasaljósið) sem þú átt
eftir af orku þinni fer nú að mestu
forgörðum í þrástag við umhverfi og
ættingja þar sem þínir nánustu
verða blórabögglar í argaþrasi þínu
um vangetu þeirra og hinna en eigið
sjálf þitt lokar sig frá. En liggur ekki
hundurinn grafinn þar? Að líta á
sjálfan sig (svo fannst mér ég svífa
upp ...) sönnum augum og opna
þann möguleika að þú sjálf eigir
stærsta þáttinn í hveraig spilin voru
lögð og þeirri staðreynd að þau megi
stokka upp á nýtt (kveikja ljós) og
gefa nýja gjöf (nýja Ijósið tengist
móður þinni) til þrjátíu ára eða svo,
jafnvel lengur?
Þeir lesendur sem vi(ja fá drauma sína
birta og ráðna sendi þá með fullu nafni,
fæðingardegi og ári ásamt heimilis-
fangi og dulnefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is_