Morgunblaðið - 03.06.2000, Síða 62

Morgunblaðið - 03.06.2000, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓNÍNA GUÐRÚN EGILSDÓTTIR OG GÚSTAF JÓNSSON + Jónína Guðrún Egilsdóttir fædd- ist f Reykjahjáleigu í Olfusi 8. nóvember 1920. Hún andaðist á sjúkrahúsi Suður- lands á Selfossi 19. maf 2000. Jónína var önnur í röð sex systkina. Foreldrar hennar voru Egill Jónsson f. 11.9.1887, bóndi í Reykjahjá- leigu, d. 16.5. 1930, og kona hans, Svan- borg Eyjólfsdóttir, f. 19.4. 1891, d. 12.7. 1974. Systkini Jónínu eru: Hallgrím- ur, f. 13.7.1919, d. 7.5. 1996, garð- yrkjubóndi í Hveragerði, k. Sigur- laug Guðmundsdóttir, f. 24.2. 1919. Eiga tvo syni. 2) Guðrún, f. 4.11. 1922, vann við vélpijón í heimahúsum. M. Óskar Jónsson, f. 10.10. 1921, d. 18.9. 1997. Eiga þrjár dætur. 3) Steinunn, f. 17.5. 1924. Bamsfaðir: Stefán Jónsson, f. 15.8. 1915. Eiga eina dóttur. M. Þórhallur Guðmundsson, sjómað- ur, f. 22.7. 1921. Eiga þijú börn. 4) Eyjólfur, f. 6.8. 1925, starfsmaður NLFI í Hveragerði. K. Irmgard Lisa Egilsson, f. 26.4.1916 í Þýska- landi, d. 27.3.1984.5) Egill Svavar, vélstjóri, f. 1.10.1929, d. 9.8.1989. Gústaf Jónsson fæddist á Bjam- arstöðum í Bárðardal 20.8. 1910, sjötti í röð átta systkina er á legg komust. Hann andaðist á Kristnes- hæli 28.7. 1969. Foreldrar hans voru Jón Marteinsson, bóndi, f. 11.1. 1867, d. 4.1. 1961, og kona hans, Vigdís Jónsdóttir, f. 30.4. 1873, d. 6.3. 1953. Systkini Gústafs em: 1) Jón f. 4.10. 1899, d. 27.4. 1993. 2) Þorsteinn, f. 10.5. 1901, d. 21.10. 1989. 3) Friðrika Guðrún, f. 5.9. 1902, d. 16.7. 1989. 4) Mar- teinn, f. 3.2. 1904, d. 11.1. 1935. 5) Kristín f. 16.3. 1908. M. Jón Tryggvason bóndi á Einbúa í Bárðardal og síðar á Möðruvöllum í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði, f. 22.7. 1895, d. 12.12. 1984. Áttu níu börn. 6) María, f. 2.8. 1915. 7) Þu- ríður, f. 2.8.1915, d. 5.2.1999. Fóstursystkini Gústafs eru: a) Yngvi Marinó Gunnarsson, f. 23.6. 1915, d. 9.7. 1996. Átti einn son með Ingigerd Nyberg, f. 12.10. 1921. K. hans var Ástheiður Fjóla Guðmundsdóttir, f. 27.6.1940. Þau skildu. Áttu ijögur börn, það elsta átti hún áður. b) Hjördís Kristjáns- dóttir, f. 28.2. 1930. M. Sigurgeir Sigurðsson, f. 8.7. 1931. Eiga þrjár dætur. Árið 1960 tóku Þorsteinn og Þuríður tvö böm í fóstur, systkini, sex og níu ára, og ólu þau upp til ful- lorðinsára. Jónína og Gústaf gengu í hjóna- band 6. júní 1940. Börn þeirra eru: 1) Egill f. 13.10. 1940, áður bóndi í Rauðafelli, oddviti Bárðdælahrepps um árabil, bifreiðarstjóri og bók- haldari. Býr nú í Hveragerði og stundar tvö síðasttöldu störfin. K. Helga Haraldsdóttir kennari, f. 7.7. 1937. 2) Vigdís, f. 15.9. 1941, áður bóndi í'Rauðafelli, nú búsett íHvera- gerði. Barnsfaðir: Jón Sævin Péturs- son, f. 9.12. 1940. Sonur þeirra er Gústaf Pétur, f. 1.6. 1969, sjómaður. Bam hans með Gullveigu Unni Ein- arsdóttur, f. 11.2. 1969: Eva Rún, f. 23.1. 1992. K. Svanhvít Helga Sig- urðardóttir, f. 20.10. 1976. Búsett í Grindavík. 3) Jón, f. 9.3. 1946, bóndi í Rauðafelli. K. Lotta Wallý Jakobs- dóttir, f. 10.10. 1950. 4) Björn, f. 18.5. 1950. Verkfræðingur. K. Her- borg Ivarsdóttir hjúkrunarfræðing- ur, f. 9.12. 1948. Börn þeirra: a) Barbara, f. 7.5. 1973, gift Gunnari Gunnarssyni lögfræðingi, f. 16.11. 1972. Barn þeirra: Eiður Rafn, f. 5.4. 1996. b) Ævar Rafn, f. 10.5. 1976. c) Gústaf Smári, f. 3.4. 1984. Öll búsett í Reykjavík. 5) Eysteinn, f. 10.7. 1954, vélstjóri. Samb.k. var Salvör Jóhannesdóttir, f. 30.10. 1957. Þau slitu samvistir. Dóttir þeirra: Jónína Guðrún, f. 2.8. 1986. Búa í Reykja- vík. 6) Svanborg, f. 21.7.1959, skrif- stofumaður. M. Vörður Ólafsson húsasmíðameistari, f. 29.7. 1961. Börn þeirra: a) Arna, f. 18.6.1984. b) Björk, f. 18.9. 1985. c) Birna, f. 24.3. 1994. Búa í Reykjavík. Minningarathöfn um Jónínu Guð- rúnu Egilsdóttur fór fram frá Kot- strandarkirkju í Ölfusi laugardag- inn 27. maí. Utför hennar verður gerð frá Lundarbrekkukirkju í dag. Jarðsett verður í heimagrafreit á Bjarnarstöðum. + Elskulegur faðir, bróðir og frændi okkar, PÉTUR JÓNSSON frá Hallgilsstöðum, Hörgárdal, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, miðviku- daginn 31. maí. Aðstandendur. Jarðarför bróður okkar, GUÐMUNDAR BENEDIKTSSONAR myndlistarmanns, Laufásvegi 18a, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 5. júní kl. 15.00. Unnur Benediktsdóttir, Jón Benediktsson og fjölskyldur. + Elskuleg móðir okkar, ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR, Líndasmára 37, Kópavogi, lést þriðjudaginn 23. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Ásrún Björk Gísladóttir, Vilborg Aðalsteinsdóttir, Tryggvi Þór Aðalsteinsson, Kristín Aðalsteinsdóttir. Jónína Guðrún naut ekki lengi áhyggjulausra bernskuára. Níu ára gömul missti hún föður sinn. Þá var elsta barnið 10 ára og það yngsta á fyrsta ári. En móðir hennar, Svanborg Eyj- ólfsdóttir, var einörð og þrekmikil og lét ekki bugast. Með hjálp góðra manna og eldri barnanna eftir því sem þeim óx fiskur um hrygg ,tókst henni að halda hópn- um sínum saman. Henni tókst að koma sér upp húsi í Hveragerði , en þar var þá að þróast þéttbýli. Þar komu tækifæri til ígripavinnu, hvort sem það hétu karlmanns- eða kvenmannsverk. Hún átti nokkrar kindur og þurfti ekki að biðja neinn að slá fyrir sig með orfi og ljá, það gerði hún sjálf.eins og flest annað. Þegar börnin stálpuðust fóru þau strax að vinna , á heimilinu og utan þess eins og getan leyfði. Jónína fór í kaupavinnu á sumrin og í vistir á vetrum. Hún minntist sérstaklega góðra húsbænda þar sem hún hafði verið, þeirra Guð- rúnar og Gests í Hróarsholti í Flóa og Jórunnar og Viíhjálms á Lauga- bökkum í Ölfusi. Þessi heimili voru henni sem skóli. Veturinn 1938-39 var hún í vist á Akureyri. Sumarið eftir þegar hún var 18 ára réði hún sig í kaupavinnu að Bjarnarstöðum í Bárðardal. Það sumar voru örlög hennar ráðin. Hún skrapp að visu suður um haustið,en um veturnæt- urnar kom hún aftur og fór ekki eftir það. Vorið eftir gengu þau í hjónaband, hún og bóndasonurinn, Gústaf Jónsson.Hann hafði verið yngsta barnið í 5 ár þegar tvíbura- systur hans fæddust og rændu hann þeim fríðindum,sem lítill hrokkinhærður glókollur hafði not- ið fram að því. Hann hafði unnið á búi foreldra sinna, eignast nokkrar kindur og sparað saman. Hann hafði farið á alþýðuskólann á Laugum, þótti góður námsmaður, skrifaði skýra og læsilega rithönd og var fljótur,bæði að skrifa og reikna. Hann hafði fengið brjóst- himnubólgu milli fermingar og tví- tugs og verið hætt kominn og heilsan var aldrei sterk. Hann hefði efalaust getað orðið góður skrifstofumaður, en jörðin togaði í hann, hugur hans stefndi til bú- skapar, þessi staður og þessi sveit áttu hann. Gústaf var hæglátur og dulur, fremur fámáll og seintekinn, en brosið var hlýtt og handtakið fast og sagði manni að þar færi maður sem tjaldaði ekki til einnar nætur. Unga kaupakonan var ör- lyndari, hún söng við vinnuna og gerði að gamni sínu og sólin skein liðlangt sumarið ’39. Efnin voru engin. Kreppuárin nýafstaðin, mæðiveiki í fjárstofninum en síð- ustu tvo áratugi höfðu staðið yfir miklar framkvæmdir sem öll fjöl- skyldan á Bjarnar- stöðum stóð saman að. Búið var að byggja íbúð- arhús, heimilisrafstöð, fjós fjárhús og hlöður með samstilltu átaki allra systkinanna, sem lögðu fram vinnu sína. Fimm systkin auk Gústafs voru enn heima og einnig fóstursystkinin Marteinn var látinn og Kristín gift burtu. María fór á sjúkrahús og var ekki heima aftur fyrri en 1946.en heimili hefur hún alltaf átt á Bjarnarstöðum For- eldrar og systkini áttu allt saman. Túnrækt var hafin en heyfeng varð að talsverðum hluta að taka á engj- um við erfiðar aðstæður langt frá bæ. Ungu hjónin hófu búskapinn í einu svefnherbergi og á einni raf- magnshellu í enda stóra eldhússins með aðgang að bakarofni og varð að vera eftir samkomulagi hvenær straumur fékkst á tækin. Matborð- ið var endi á stóra eldhúsborðinu og í nýsmíðaðri fremur frumstæðri eldhúsinnréttingu var úthlutað hill- um í efri og neðri skápum. Ein og síðar tvær kýr af fimm og síðar sex í fjósinu urðu þeirra kýr og önnur af tvennum gömlum þrístæðutorf- húsum urðu til að byrja með fjár- hús Gústafs með áfastri hlöðuboru, einnig úr torfi og grjóti. Fyrir- komulagið gat ekki orðið árekstra- laust og eftir á er erfitt að sjá hvernig það yfirleitt gat gengið. En þetta var bara svona á hinum bæjunum líka. Ungu konunni þótti umhverfið lítt aðlaðandi, ekki sást til neinna bæja og hennar lífshætt- ir og skoðanir ekki mikils metnar af tengdafólkinu. En hún elskaði manninn sinn og hann var það bjarg sem tilvera þeirra á þessum stað byggðist á. Hann ætlaði að láta þetta ganga og öll smámuna- semi og daglegt nagg var honum víðs fjarri.Svo fæddust börnin eitt af öðru og urðu sólargeislar og augasteinar afa og ömmu og ekki síður föðursystkinanna en það æxl- aðist þannig að fimm þeirra giftust ekki en bjuggu félagsbúi á móti Jónínu og Gústaf lengst af. Það hafði líka kosti. Föðursystirin, Friðrika var allra barna móðir þótt hún sjálf æli ekki barn. „Ænku“- nafnið fékk sérstakan hljóm í munni barnanna og fleiri börn tóku það upp eftir þeim. Þegar börnin fæddust þurfti ekki að leita langt eftir aðstoð. Frænkurnar sáu um heimilið og mörg flíkin var sniðin og saumuð og sokkaplögg unnin á litla fætur. Smátt og smátt batnaði efnahagurinn og sumarið 1959 var nýtt íbúðarhús risið af grunni og gengið frá stofnun nýbýlis sem hlaut nafnið Rauðafell. Húsið stendur á grunni gamla torfbæjar- ins sem Gústaf fæddist í. Þor- steinn, bróðir Gústafs var styrkur hans og stoð við framkvæmdirnar en áður var Gústaf búinn að byggja fjárhús og hlöðu. Yngsta dóttirin Svanborg fæddist þetta sumar. Gústaf hafði verið oddviti Bárðdælahrepps um nokkurt skeið og fram undan virtust nú bjartari tímar. Þá fór Gústaf að kenna til í baki og voru það úrskurðaðir berklar. í hönd fór sjúkrahúsdvöl. Elsti sonurinn, Egill hafði byrjað nám í Laugaskóla og sóttist vel. Hann staðnæmdist nú heima og tók við störfum föður síns. Allir vonuðu að þetta væri aðeins él sem gengi yfir. í mars 1961 útskrifaðist Gústaf af sjúkrahúsinu á Akureyri og kom heim. En fljótlega kom í Ijós að hann var ekki samur mað- ur. Enginn hafði þá heyrt talað um Alzheimer sjúkdóminn. Ellihrörn- un nefndu læknarnir þetta. En hann var bara rúmlega fimmtugur. Skjólveggur fjölskyldunnar var hruninn. Það var ekki mikið rætt eða kvartað en það getur hver litið í eigin barm. Fjölskyldan brást við eins og Svanborg Eyjólfsdóttir á sínum tíma. Eldri systkinin slógu skjaldborg um heimili sitt og fjölskyldu. Egill lagði nám sitt á hilluna og tók að sér hlutverk heimilisföðurins. Jón- ína var áfram húsmóðirin en eftir skamma skólagöngu settust einnig Vigdís og Jón að heima. Vigdís var við hlið móður sinnar í húsmóður- störfum og við bústörfin jafnframt ,ásamt Jóni en Egill fór að vinna önnur störf og var meira afleys- ingamaður við búið sem óðum stækkaði. Saman héldu þau áfram að byggja og rækta jörðina. Yngri systkininum var hjálpað til mennta og þau fóru að heiman. Sonur Vig- dísar, Gústaf Pétur, ólst einnig upp í Rauðafelli við mikið eftirlæti. Gústaf var fyrst heima um nokk- urra ára bil en þegar sjúkdómur- inn ágerðist fékk hann vist á Kristneshæli þar sem hann and- aðist. Hann var jarðsettur í heima- grafreit á Bjarnarstöðum. Árið 1992 hafði Egill kynnst núverandi sambýliskonu sinni, Helgu Har- aldsdóttur. Þá flutti hann í Hvera- gerði og þau stofnuðu sitt heimili þar. Jón og Vigdís tóku þá við búinu. Um það bil ári síðar flutti til Jóns sambýliskona, Lotta Jakobs- dóttir. Árið 1994 fluttu svo mæðg- urnar, Jónína og Vigdís í Hvera- gerði og keyptu sér þar hús. Þar vann Vigdís á Hótel Ork, en hefur nú skift um vinnu. Mæðgurnar bjuggu saman uns Jónína þurfti heilsu sinnar vegna að dveljast á elliheimili, fyrst á Eyrarbakka en síðan í Hveragerði. Við jarðarför Gústafs sumarið 1969 var stödd öldruð frænka hans búsett í annari sveit. Hún stóð við hornið á heima- grafreitnum á Bjarnarstöðum og horfði heim til bæjar og bygginga í Rauðafelli og síðan horfði hún á synina sem báru kistu föður síns og á mæðgurnar sem á eftir gengu. „Það má segja, það grær í sporun- um hans,“ sagði hún þá. Þau orð eiga líka við nú er Jónína hefur kvatt. Það grær líka í sporunum hennar þótt margt sé nú breytt og sporin liggi víðar en áður. Hún hafði lokið miklu dagsverki og var sátt við að fara. Við Sigurgeir sendum fjölskyldunni einlægar samúðarkveðjur og þökkum liðna daga. Guð blessi minningu hjónanna í Rauðafelli. Hjördís Kristjáns- dóttir. Það var gæfa fyrir mig að fá að kynnast henni Jónínu. Leiðir okkar lágu saman þegar ég sem tíu ára smástelpa fór í sveit norður í Bárð- ardal þar sem Jónína var húsmóðir á bænum Rauðafelli. Margs er að minnast og leitar hugurinn ósjálf- rátt til baka til allra samverust- unda okkar í Bárðardal. Ávallt var vel tekið á móti mér og hugsað um mig af kostgæfni. Erfltt reyndist mér að fara að heiman sumarlangt en þó ekki svo að sumrin urðu á endanum nokkuð mörg. Ég hugsa til þessa tíma með hlýhug og sé Jónínu fyrir mér sýslandi í eldhús- inu yfir pottum. Hún var alltaf til- búin að setjast niður og ræða mál- in við mig ef eitthvað bjátaði á. Allmörg ár eru liðin síðan ég var í sveit á Rauðafelli og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Ég hef hitt Jónínu af og til og alltaf mætti mér hlýtt handtak, geislandi augu og gleði. Það veitti mér mikla ánægju að Jónína var viðstödd brúðkaup mitt og Gizurar í sept- ember síðastliðnum. Elsku Jónína, ég kveð þig og þakka fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég bið Guð að blessa og styrkja ástvini þína og ég færi ykkur samúðarkveðjur mínar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Bylgja.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.