Morgunblaðið - 03.06.2000, Side 64

Morgunblaðið - 03.06.2000, Side 64
.64 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ %Í&ASÚhreinsunin gsm 897 3634 Þrif á rimlagluggatjöldum. Súrefnisvörur Karin Herzog Oxygen face Fangaóu athygl HL Dispieay götuskilti Margar gerðir, tilboðsveró í maí Háteigsvegi 7 SfmiS11 1100 ^mb l.i is L ALLTA/= GITTHVAÐ A/ÝT7 Yfirburðir vísinda SKAK M n n t e C a r I o MONTECARLO SKÁKMÓTIÐ 1968 ATVINNUSKÁKMENN á Vesturlöndum hafa átt undir högg að sækja á undanförnum árum. Erfiðara er fyrir þá en áður að hafa lífsviðurværi af skáklistinni og er það ekki síst sökum þess að aragrúi sterkra skákmanna frá löndum austan járntjalds hafa eftir fall þess flykkst á skákmót og oftar en ekki staðið uppi sem sigurvegarar. Þó að skýra megi þennan styrk— leikamun á milli vesturs og austurs með margvíslegum hætti má full- yrða að fyrsti sovéski heimsmeist- arinn í skák hafi átt drýgri þátt í þessu en margur annar. Mikhail Botvinnik hét hann og á árunum 1948-1963 var hann heimsmeistari fyrir utan tvö ár. Halda má fram að hann hafi verið heimsmeistarinn sem innleiddi nútímaleg vísindaleg vinnubrögð hjá skákmönnum, enda leit hann á skák fyrst og fremst sem vísindi. Rannsóknir hans á skák voru annálaðar fyrir ná- kvæmni, sjálfsgagnrýni og vinnu- semi. Það er jafnan svo í skákheimin- um að heimsmeistari á hverjum tíma hefur mikil áhrif á þróun skákarinnar og hvernig skákstíl samtíðarmenn hans temja sér. Að þessu leyti markaði Botvinnik dýpri spor en aðrir, þar sem óhemju fjöldi skákmanna hefur tamið sér svipuð vinnubrögð og hann, enda hafa skákvísindin aldrei verið jafn mikilvæg og einmitt um þessar mundir. Þrátt fyrir að Botvinnik hafi ver- ið kunnastur fyrir mikla leikni í áætlanagerð og stöðumati hafði hann einnig góða innsýn í taktík eins og eftirfarandi skák gegn ung- verska stórmeistaranum Lajos Portisch á móti í Monte Carlo 1968 ber glöggt vitni um. Hvftt: Mikhail Botvinnik Svart: Lajos Portisch Enskur leikur 1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. g3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Bg2 Be6 Hér er venjulega leikið 5...Rb6 6. Rf3 Rc6 7. 0-0 Rb6 8. d3 Be7 9. a3 a5?! 10. Be3 0-011. Ra4 Þetta afbrigði enska leiksins er í raun drekaafbrigði Sikileyjarvam- ar með skiptum litum, en Botvinnik tefldi það allnokkrum sinnum á sín- um skákferli. Svartur lagði tölu- vert á stöðuna með níunda leik sín- um þannig að nauðsynlegt var að tefla nú af varfærni.ll. ...Rxa4?! Þetta eykur hraða liðskipan hvíts. Betravar 11. ...Rd5 og hvítur stendur aðeins betur. 12. Dxa4 Bd5 13. Hfcl He8 14. Hc2! Snjall leikur sem ekki hefur ver- ið auðvelt að átta sig á. Með þessu undirbýr hvltur í rólegheitum tvö- földun á c-línunni sem eykur þrýst- inginn á svörtu stöðuna. 14. ...Bf8 15. Hacl Rb8? Hér var 15. ...e4 nauðsynlegt. Eftir textaleikinn hrynur svarta staðan til grunna með undraverð- um hraða. 16. Hxc7!! Bc6 17. Hlxc6! Með þessari skiptamunsfórn nær hvítur yfirráðum á hvítu reit- unum. Sú staðreynd er forsenda hróksfórnarinnar í 18. leik ásamt markvissri samhæfni hvítu mann- ana. 17. ...bxc6 18. Hxf7! Þar stóð hnífurinn í kúnni! Svartur getur ekki þegið hróks- fórnina þar sem éftir 18. ...KxP7 19- Dc4+ Kg6 20. Dg4!+ Kf7 21. Rg5+ er hann gjörsamlega varn- arlaus. 18. ...h6 19. Hb7 Dc8 20. Dc4+ Kh8 21. Rh4! Nú getur svartur ekki komist hjá því að þiggja hrókinn, en þá verður stutt í endalokin. 21. ...Dxb7 22. Rg6+ Kh7 23. Be4 Þrátt fyi-ir að hvítur hafi einung- is einn léttan mann íyiir tvö hróka er samvinna manna hans slík að unun er að sjá. Nú hótar hann að máta með 24.Re7 + Kh8 25.Dg8. 23. ...Bd6 24. Rxe5+ g6 25. Bxg6+ Kg7 26. Bxh6+! Glæsilegur lokahnykkur á frá- bærri skák. Svartur gafst upp þar sem eftir 26. ...Kxh6 27. Dh4+ Kg7 28. Dh7+ Kf6 29. Rg4+ eru honum öll sund lokuð. Jafnframt gengur 26. ...Kf6 ekki upp þar sem eftir 27. Df4+ Ke6 28. B17+ Ke7 29. Dg5 er svartur mát. Skákmót í Mjódd í dag Taflfélagjð Hellh- heldur Mjódd- aimót Hellis í dag, laugardaginn 3. júní, og hefst mótið kl. 14. Mótið verður haldið í göngugötunni í Mjódd. Keppnin verður með því sniði að keppendur tefla fyrir fyrir- tæki. Tefldar verða 7 skákir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Við ski-áningum tekur Gunnar Bjömsson, hellir@simnet.is, símar 581 2552 og 861 9416. Einnig er hægt að skrá sig á mótsstað. Atkvöld á mánudag Taflfélagið Hellir-heldur eitt af sínum vinsælu atkvöldum mánu- daginn 5. júní og hefst mótið kl. 20. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mínút- ur til að ljúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með tuttugu mín- útna umhugsun. Sigurvegarinn fær verðlaun, mat fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá hefur einnig verið tekinn upp sá siður að draga út af handahófi annan kepp- anda, sem einnig fær máltið fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árang- urs á mótinu. Þátttökugjald er kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og jmgri). Skákmót á næstunni 3. 6. Hellir. Mjóddarmótið 5.6. Hellir. Atkvöld 9. 6. SH. Skákþing Hafnarfjarð- ar. Daýi Orn Jónsson Helgi Áss Grétarsson I IM G AiR Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Hafnarbraut 24, tvær eignir íbúð og verslun, þingl. eig. Elín Helgadóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands og Lífeyrissjóður verslun- armanna, þriðjudaginn 13. júní 2000 kl. 12.00. Jöklasel, 12,25 hektara lóð úr landi Kálfafellsstaðar, þingl. eig. Rekstrar- félag Jöklaferða ehf., gerðarbeiðandi Lánasjóður Vestur-Norðurlanda, þriðjudaginn 13. júní 2000 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Höfn, 3. maí 2000. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins f Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, þriðjudaginn 6. júnf 2000 kl. 11.00 á eftirfar- andi eignum: Gröf, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Skúli Ástmar Sigfússon, gerðar- beiðandi íbúðalánasjóður. Hrossafell 3, Skagaströnd, þingl. eig. Eðvarð Ingvason, gerðarbeiðandi Kaupfélag Húnvetninga. Ítla-Hlið, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Jóhann Hermann Sigurðsson, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins. Norðurbraut 10, Hvammstanga, þingl. eig. Helga Árnadóttir, gerðar- beiðandi Húnaþing vestra. Skúlabraut 15, Blönduósi, þingl. eig. Hekla Birgisdóttir, gerðar- beiðendur Blönduóssbær og Ibúðalánasjóður. Sýslumaðurinn á Blönduósi, Blönduósi 30. maí 2000. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins f Hafnarstræti 1, Isafirði, þriðjudaginn 6. júní 2000 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum: Álfabyggð 2, Súðavík, þingl. eig. Jónbörn Björnsson og Ásthildur Jónasdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður. Dagur ÍS-400, þingl. eig. Hánes ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Kristján Óli Pétursson og Stál-Orka ehf. Engjavegur 21, 0201, ísafirði, hl. Kristjáns J. Kristjánssonar, þingl. eig. Kristján J. Kristjánsson og fl„ gerðarbeiðandi íslandsbanki hf„ útibú 545. Fjarðarstræti 4, 0201, jsafirði, þingl. eig. Ása Kristveig Pórðardóttir og Jens Magnússon, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður. Fjarðarstræti 57,0302, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarðar- bæjar, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður. Kirkjuból 2, ísafirði, þingl. eig. Aðstaðan sf. Ómar Helgason og Aðstað- an sf. Helgi Helgason, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins. Ólafstún 14, Flateyri, þingl. eig. Hjálmur ehf„ gerðarbeiðandi íbúðalán- asjóður. Ránargata 4, Flateyri, þingl. eig. Þorvaldur Ársæll Pálsson, gerðarbeið- endur (safjarðarbær og sýslumaðurinn á (safirði. Stekkjargata 33, 0101, ásamt rekstrartækjum, (safirði, þingl. eig. Stekk- ir ehf„ gerðarbeiðendur Byggðastofnun og (safjarðarbær. Stórholt 7, 0202, ísafirði, þingl eig. Rakel Óladóttir og Jóhann Sól- mundur Andrésson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður. Sæból II, Ingjaldssandí, ísafjarðarbæ, þingl. eig. Elísabet Anna Pét- ursdóttir, gerðarbeiðandi Ágúst Guðmundur Pétursson. Sætún 12,0202, íb. 7, Suðureyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarð- arbæjar, gerðarbeiðandi (búðalánasjóður. Urðarvegur 24, ísafirði, þingl. eig. Halldóra Jónsdóttir og Eiríkur Brynjólfur Böðvarsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður, Kreditkort hf„ Lifeyrissjóður verslunarmanna og Vátryggingafélag (slands. Sýslumaðurinn á ísafirði, 2. júní 2000. FÉLAGSLÍF Sunnudagur 4. júní kl. 10.30 Fjallasyrpan 2. ferð, Esja. Gengið upp frá Esjubergi á Há- tind 909 m og niður hjá Þverárk- oti. Verð. 1.200 kr. f. félaga og 1.400 kr. f. aðra. Miðar í farmiða- sölu. Brottför frá BSÍ. Útivistar- dagur i Nanoq Kringlunni í dag, laugardaginn 3. júní, kl. 10—18. Gott tækifæri til að undirbúa sumarfríið, fá ferðaáætlun, velja Útivistarferðir og útbúnað. Fjölbreyttar hvítasunnuferðir: 9.- 12. júní Skaftafell. Gist að Svína- felli. 10.—12. júní Goðaland — Básar. Kjörin fjölskylduferð. 10.—12. júní Fimmvörðuháls — Básar. 9.—14. júní Færeyjar. Jónsmessunæturganga yfir Fimmvörðuháls og Jónsmessu- helgi í Básum 23.-25. júní. Pantið strax. Útivist — ferðafélag Hallveigarstíg 1,101 Reykjavík Sími 561 4330. Fax 561 4606 http://www.utivist.is Heimasíða Útivistar: utivist.is FERÐAFÉLAG ® ÍSIANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Esjudagur 4. júní. Gönguferðir við allra hæfi yfir Esju, á Esju, í fjöru og skóg, skoðuð jarðfræði og blóm. Kynnið ykkur auglýsingu. Hvitasunnuferð á Hvannadals- hnúk er að fyllast, pantið strax. Kynnið ykkur áætlun um Jóns- messuna. www.fi.is og textavarp RUV, bls. 619. Fasteignir á Netinu mbl.is GiTTHX^XO NÝTl-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.