Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 70

Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 70
MORGUNBLAÐIÐ -; 70 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 UMRÆÐAN * Menn eiga að segja satt HOFUNDUR þess- arar greinar hefur gagnrýnt breska flug- félagið Go hér í Morg- unblaðinu fyrir að auglýsa 10 þús. kr. fargjöld til London án þess að þau væru til. Nú er Go hætt að auglýsa þessi 10 þús. kr. fargjöld og hefur hækkað upphæðina í 14 þús. kr. Ekki þarf að leita lengi á vefsíðu Go til að sjá að þessi nýju „lágu“ fargjöld eru sama marki brennd og þau fyrri; Tómas Jónsson það er auðveldara að finna nál í heystakki. Meirihluti fargjalda sem bjóðast með Go til London kosta nefnilega á bilinu 19- 24 þús. kr. Talsmaður Go hér á landi svaraði fyrri grein minni um þetta mál af miklum klaufaskap og hefur síðan ekkert til hans heyrst. En nú er nýr talsmaður Go kominn fram á sjónarsviðið og lætur til sín taka í grein í Morgunblað- inu þann 30. maí. Flug s I þessari umfjöllun skiptir engu máli, segir Tómas Jónsson, hvort tilkoma Go er góð fyrir ferðamennsku hér eða ekki. Hinn sjálfskipaði talsmaður Go, Jón Aðalbjörn Bjarnason, segir að ég geti auðveldlega fundið ódýr fargjöld hjá Go með því að hringja í flugfélagið til London. Ég get fullvissað Jón um að ég er þegar búinn að prófa það, gerði það um miðjan maí. Reyndar finnst mér skrítið að þurfa að hringja til út- landa til að kaupa flugferð frá ís- landi, en hvað gerir maður ekki til að spara? Hjá Go var mér tjáð í símanum að enn væri möguleiki á einstaka fargjaldi fyrir 10 þús. kr. Ég gat hins vegar ekki ráðið nokkru um brottfarar- eða komudag á þessu verði. Símtalið skilaði mér því ekk- ert betri niðurstöðu en margra daga leit á vefsíðu Go, svo ráðlegg- ingar Jóns Aðalbjörns eru tóm Tímamóta matarolía fró franska # fyrirtækinu Lesieur ...í salöt ...á grillið ...til steikingar ...í bakstur 111 %M I 1 „ISI04 er bylting í matarolíum og hefur einstaklega jókvæó óhrif ó kólesterólhlutfall í blóói *y/ Birgit Eriksen, næringarfræðingur Landsspítalanum Háskólasjúkrahúsi Kynning kl. 11-15 í dag í NÝKAUPI; Kringlunni, Eiðistorgi og Garðabæ Gerðu samanburð vib ólífuolíur! Einstök efnasamsetning ISI04 matarolíunnar byggir á því að mettuðum, einómettuðum og fjölómettuðum fitusýrum ásamt E-vítamíni, er blandað saman í æskilegum hlutföllum. ISI04 er því mun heilsusamlegri en hefðbundnar matarolíur eins og t.d. ólífuolía. tjara. Jón Aðalbjörn spyr mig í grein sinni hvernig ég hafi fundið út að innan við 10% fargjalda Go hafi staðið íslendingum til boða á tíu þús. kr. en ekki 50%, eins og talsmenn Go lofuðu. Reyndar hefði Jóni verið nær að spyrja aðaltalsmann Go að þessu, því ekki hef ég fengið nein svör frá honum, en ég skal reyna að endur- taka þetta til að Jón skilji það. Að- altalsmaður Go, Jón Hákon Magn- ússon, sagði sjálfur í grein í Morgunblaðinu, að rúmlega 700 íslendingar væru búnir að kaupa fargjöld hjá Go á tíu þús. kr. og fargjöld á þessu verði væru svo til uppseld. Par sem Go býður um 10.500 sæti milli íslands og Lon- don í sumar er deginum ljósara, að rúmlega 700 af þessum sætum er vel innan við 10%. Ég gerði ekkert annað en að benda lesendum Morgunblaðsins á þá þversögn hjá Go-mönnum að fyrst sögðu þeir að 50% af þessum 10.500 sætum stæðu íslendingum til boða á 10 þús. kr. en síðan upplýstu þeir að eftir 700 sæta sölu væri bara allt búið. Ég efa ekki, að Jón Hákon Magnússon, talsmaður Go, muni gefa Jóni Aðalbirni viðhlítandi skýringar á þessu misræmi. I þessari umfjöllun skiptir engu máli hvort tilkoma Go er góð fyrir ferðamennsku hér eða ekki. Þetta snýst um það að þegar fyrirtæki býður þjónustu til sölu á tilteknu verði er lágmarkskrafa að fólk geti keypt þessa þjónustu án þess að þurfa að leggja á sig margra klukkutíma vinnu. Þetta snýst einnig um það að menn segi satt. Höfundur er fþróttanuddari. Hátalarar. bmnn Armúli 38,108 Bayfcjawíli, Siml: 588-581» pappírstætarar Örugg framleiðsla SKKlI'STOI-l\ OKLU J. ÁSTVntDSSON HF. Skipholti 33,105 Reykjavik, simi 533 3535 Margar stæröir Leiöandi merki Þysk gæöi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.