Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 73
Vonandi verður þannig staðið að
endurbótum hennar að hún hljóti
ekki sömu örlög og Kútter Sigur-
fari á Akranesi, sem nú er stór-
skemmdur af fúa. Við skoðun þess-
arar sýningar er maður minntur á
hve sárlega vantar safn sem lýsir
sögu gömlu Hafnarinnar og sjó-
menningu fyrri tíma. Safn, sem
hýsir sameiginlegan arf, sem skap-
aður var af mörgum kynslóðum við
ysta haf. Menningarborgin Reykja-
vík hefur ekki langan tíma til um-
hugsunar. Aðgerða er þörf.
Varðveisla menningararfs
í áranna rás hefur glatast marg-
ur gripurinn sem geymdi sögu sjó-
sóknar íslendinga. Má þar nefna
t.d. gömlu síðutogarana og vertíð-
arbátana, sem héldu uppi atvinnu-
lífmu í Reykjavík og reyndar víða
um land. Of langt er að telja hér
upp allt það sem forgörðum fór, oft
í hugsunarleysi eða af vanþekkingu
á menningararfmum. Enn eru þó
til margir góðir gripir, ýmist í eigu
hins opinbera eða í einkaeigu. Við
Súðarvog er Sjóminja- og smiðju-
munasafn Jósafats heitins Hinriks-
sonar, stórmerkilegt og vel uppsett
safn, sem hann kom upp af miklum
áhuga og framsýni. í eigu safnsins
er einnig nokkuð af gömlum mun-
um í geymslu, sem bíða eftir að
verða settir upp. Vegna kaupa
Hampiðjunnar á Vélaverkstæði J.
Hinrikssonar, og endurskipulag-
ningar húsnæðisins, þarf safnið að
flytja úr húsinu innan skamms.
Erfingjar Jósafats og eigendur
safnsins nefndu á sínum tíma óf-
ormlega við nokkra aðila, þar á
meðal Reykjavíkurhöfn, að þeir
vildu afhenda safnið þeim sem
treystu sér til að búa vel að því.
Norðfirðingum hefur nú hlotnast
sá heiður að fá safnið til sín. Eins
og þetta dæmi og mörg önnur
sanna hefur í mörgum byggðarlög-
um úti á landi verið tekið vel til
hendinni varðandi varðveislu sögu
viðkomandi staða. Menningarborg-
in Reykjavík hefur nú misst af
þessari perlu, en vonandi ber hún
gæfu til að koma upp öðru slíku
safni við Reykjavíkurhöfn. Ég held
að slíkt safn ætti hvergi betur
heima en við gömlu Höfnina.
Staðsetning
sjómenningarsafns
Staðsetningu heildarsafns sjó-
minja, fiskvinnslu og sögu Reykja-
Mikið úrval af
failegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Rcykjavík, sími 551 4050
r
L.
UMRÆÐAN
víkurhafnar tel ég besta á Mið-
bakka, t.d. í Tollhúsinu,
Hafnarbúðum og á svæði gömlu
verbúðanna. Slíkt safn þarf að vera
lifandi og geta boðið upp á sýning-
ar á gömlum vinnubrögðum og að-
stöðu. Einnig gætu þar verið sýn-
ingar eða kynningar ýmissa aðila,
t.d. Landhelgisgæslu, hafnarstjórn-
ar, björgunarsveita og fyrirtækja
sem tengjast sjávarútvegi. Ker
með ýmsum nytjafiskum og öðru
sjávarfangi væru örugglega gott
fræðsluefni fyrir unga fólkið, en
fræðsla um slíkt efni er af skornum
skammti í dag. Lifandi sjóminja-
og fiskvinnslusafn við gömlu Höfn-
ina myndi færa mikið og gott líf í
gamla Miðbæinn. Slíkt sjómenn-
ingarsafn á heima þar. Listasöfn
og tónlistarhús eru ekki háð því að
vera við höfn, þeim má örugglega
finna annan stað. Menningarborg-
inni Reykjavík er skylt að forða þvi
að arfur liðinna kynslóða verði
strikaður út og settur í glatkistuna.
Vonandi stendur Reykjavík áfram
undir nafninu menningarborg, þótt
árið 2000 líði í aldanna skaut.
Höfundur er rafvirki og áhugamaður
um sjóminjasafn við Reykjavíkurhöfn.
Endurvinnið
á fal eqan '•
hátt! 1
Sýnikennslð í krukkumálun
í daq frá 13:00 -16:00
Mtuilöiifi
mu!
Opið virka daga 10-16
og laugardaqa 10-16 Lanð&OllsWðar 111 Sími 568 6500
• . www.fondra.is
ALLTÁ EINUMSTAÐ
r
ag og sunnudag
10 Stjúpur
kr.399
Blandaðir litir
10 Fjólur
kr.499
10 Flauelsblóm
499
10 Alyssur
„499
táraplötur-ál-stál > SINDRI
Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is