Morgunblaðið - 03.06.2000, Qupperneq 81

Morgunblaðið - 03.06.2000, Qupperneq 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 81 FRÉTTIR Útivistardagur í Nanoq FERÐAFÉLAGIÐ Útivist og verslunin Nanoq í Kringlunni efna til útivistardags í dag, laugardag- inn 3. júní á opnunartíma kl.10 til 18 og er það liður í samstarfí þess- ara aðila um að hvetja landsmenn til útivistar og ferðalaga. Útivistarfélagar munu hafa að- setur í versluninni með ferðaáætl- un, kort og aðrar upplýsingar um Útivistarferðir í sumar. Jafnframt því að skoða ferðamöguleika get- ur fólk hugað að viðeigandi ferða- útbúnaði. Útivist skipuleggur á þriðja hundrað styttri og lengri ferða árlega og margar þeirra, t.d. gönguferðir yfir Fimmvörðuháls, eru með vinsælustu gönguferðum sem bjóðast. Útivist á skála og rekur tjaldstæði í Básum á Goða- landi sem er sannkölluð útivistar- paradís, en sumarvertíðin þar hófst þegar í maí. í tilefni 25 ára afmælis félagsins verða fjórar af- mælishelgar í Básum í sumar, 23. til 25. júní (Jónsmessan), 7. til 9. júlí, 5. til 7. ágúst (verslunar- mannahelgin) og afmælisveisla 25. til 27. ágúst. Þá á Útivist skála á Fimm- vörðuhálsi og skála á nýrri göngu- leið frá Sveinstindi um Skælinga í Eldgjá. M.a. verður hægt að fá upplýsingar um hvítasunnu- og Jónsmessuhelgina, helgarferðir á Fimmvörðuháls og sumarleyfis- ferðir af ýmsu tagi. Nefna má að félagið starfrækir jeppadeild sem er með sérstakar ferðir. Auk ferða um áðurnefndar gönguleiðar má nefna ferðir á Hornstrandir, um Laugaveginn, á Lónsöræfi, Gerp- issvæðið, Torfajökulssvæðið, skíðagönguferð yfir Vatnajökul, 8 daga rútuferð um hálendið, Vest- fjarðaferð o.fl. Athugasemd frá skólameistara MA Nemendur o g fartölvur Víkingar berjast í Ar- bæjarsafni í TENGSLUM við nýja sýningu Ár- bæjarsafns um sögu Reykjavíkur koma félagar úr víkingafélaginu Rimmugíg í heimsókn á safnið og sýna bardagalistir víkinganna sunnudaginn 4. júní. Einnig verða eftii-líkingar áhalda og verkfæra til sýnis. Gestir fá tækifæri til að skjóta af boga. Einnig verður boðið upp á hefð- bundna dagskrá, prjónaskapur og roðskógerð verða sýnd í baðstofu. Leikföng íyrir börnin verða við Kornhús og hestar eru komnir á svæðið. I Dillonshúsi verður kaffi- hlaðborð. Hópferð For- eldrafélags misþroska barna í Viðey HÓPFERÐ verður farin í Viðey 4. júní nk. með grillveislu og leiðsögn um staðinn. Hist verður á bílastæð- inu við Sundahöfn kl. 12.50 og ferjan tekin út í eyju kl. 13. Farið verður í skálann og til staðarhaldara kl. 14. Að því loknu verður grillað og farið í leiki. Heimferð verður eftir þörfum en á þessum tíma eru hafnar áætlun- arsiglingar út í Viðey. í fréttatilkynningu eru foreldrar hvattir til að mæta með alla fjöl- skylduna. Fargjaldið með ferjunni kostar 400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir börn. Sýnir í Lónkoti HANDAN um dyntótta vinda er yf- irskrift sýningar Óla G. Jóhannsson- ar á sjö stórum blekteikningum í Lónkoti við Málmeyjarsund í Skaga- firði. Myndefnið er sótt í náttúru- stemmningar sem heillað hafa marg- an íslenskan myndlistarmanninn, segir í fréttatilkynningu. Sýningin er opin frá fyrsta 1.-12. júní. Myndirnar eru ekki til sölu þar sem þær verða til sýnis í Kaup- mannahöfn á haustdögum. Vitni vantar LÖGREGLAN í Reykjavík óskar eftir vitni að umferðaróhappi. Þann 31. maí sl. um kl. 16.16 varð umferðaróhapp á gatnamótum Háa- leitisbrautar og Miklubrautar. Var það á milli bifreiðarinnar JZ-986, sem er Toyota hvít fólksbifreið, og RR-312 sem er Toyota rauður jeppi. Ági-einingur er um stöðu umferð- arljósanna þegar óhappið átti sér stað. Þeir sem geta gefið frekari upplýsingar eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar í Reykjavík. LEIÐRÉTT Ranglega nefndur I Sjómannadagsblaðinu sem fylgdi Morgunblaðinu 1. júní sl. var sagt frá heiðrunum á sjómannadag- inn 1999. Þar var Steinar Axelsson, matsveinn, ranglega nefndur bæði í texta og myndatexta og sagður heita Sveinn. Rangt verð á stjörnumáltíð I frétt sl. fimmtudag var rangt far- ið með verð á stjörnumáltíð á McDonald’s. Rétt er að máltíðin kostar 499 kr. á tilboði. TRYGGVI Gíslason skólameistari Menntaskólans á Akureyri hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatil- kynningu: „Vegna frétta í fjölmiðlum um far- tölvunotkun í framhaldsskólum vill Menntaskólinn á Akureyri taka fram eftirfarandi: Skólinn er þróunarskóli í upplýsingatækni. Undanfarin ár hafa kennarar og nemendur unnið í samræmi við sérstaka áætlun um notkun upplýsingatækni í skóla- starfi. Einn þáttur áætlunarinnar er að kanna hvernig unnt er að nota far- tölvur í kennslu og námi með það að markmiði að bæta skólastarf. I vetur hafa kennarar m.a. undirbúið að nemendur geti á næsta skólaári not- að fartölvur í námi sínu. Menntamálaráðherra hefur verið hvatamaður að eflingu upplýsinga- tækni í skólum. Hefur hann viljað greiða götu nemenda að eignast far- tölvur. í haust gengst menntamála- ráðuneytið fyrir því að nemendum í þremur framhaldsskólum verði gef- inn kostur á að kaupa fartölvur sam- kvæmt sérstöku útboði sem mennta: málaráðuneytið stendur að. í Menntaskólanum á Akureyri verður nemendum í efri bekkjum skólans boðið að taka þátt í þróunarverkefn- inu „Fartölvur í kennslu og námi“. Mun skólinn beita sér fyrir því að nemendur, sem taka vilja þátt í þró- unarverkefninu, geti annaðhvort leigt fartölvur gegn vægu gjaldi ellegar keypt fartölvur á kaupleigu- samningi í samræmi við fyrrgreint útboð menntamálaráðuneytisins. Nýnemum í Menntaskólanum á Ak- ureyri verður ekki gert að að skyldu að eignast fartölvur, en þeir fá til- sögn í tölvunoktun og fræðslu um upplýsingaveitur og gagnabanka og upplýsingatækni í námi.“ Langur laugardagur Kvenmokkasínur Teg. Nancy 3597 Litir: Svartir og bláir Stærðir: 35-42 Verð áður-5^95;- Verð nú 4.495,- Sendum í póstkröfu STEINAR WAAGE Domus Medica, sími 551 8519 Menningar- samkoma húmanista HÚMANISTAHREYFINGIN og félagsmiðstöðin Miðberg standa fyr- ir fjölþjóðlegri samskipta- og menn- ingaruppákomu í dag, laugardaginn 3. júní, i félagsmiðstöðinni Miðbergi, Gerðubergi 1, kl. 16. Á þessari uppákomu koma fram listamenn frá ýmsum heimshornum og verður fluttur söngur, ljóðalestur og dans úr ýmsum áttum, auk þess sem umræðuhópar munu ræða spurningar s.s. „Af hverju eiga út- lendingar að aðlagast íslensku þjóð- félagi?“ „Hvers konar þjóðfélag vilj- um við; þjóðfélag einsleitni eða fjölbreytni?" Inngangur er ókeypis og er öllum heimill aðgangur. Lýst eftir bifreið RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Keflvík lýsir eftir ökutækinu AT-595 sem er af gerðinni Honda HR-V, rauð að lit, tveggja dyra, árgerð 2000. Ekkert hefur sést til bifreiðarinn- ar síðan aðfaranótt sunnudagsins 28. maí sl. Þeir sem geta gefið upplýs- ingar varðandi bifreiðina eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Keflavík. Sjómanna- dagsblað Grindavík- ur komið út SJÓMANNADAGSRÁÐ Grindavíkur hefur gefið út Sjó- mannadagsblað Grindavíkur ár- ið 2000 en þetta er 12. árgangur blaðsins. í blaðinu er m.a. hug- vekja séra Jónu Kristínar Þor- valdsdóttur og kveðja til sjó- manna frá Árna M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra. Greint er frá heiðrunum á sjómanna- degi frá 1980 og svipmyndir eru frá sjómannadeginum í fyrra. Rætt er við Þórarin Ólafsson skipstjóra og fyrrverandi út- gerðarmann og „Melurinn“ rifj- ar upp liðna tíð með Dagbjarti Einarssyni útvegsbónda í Grindavík. Sverrir Vilbergsson hafnarstjóri er með vertíðai-- spjall og Kvótasukkið nefnist grein eftir Val Guðmundsson auk þess sem fjallað er um sjó- ferðabæn í öll skip, strand kútt- er Anne fyrir 75 árum og af- hjúpun minnisvarða fyrir 20 árum. Sjómannadagsblað Grindavíkur er 84 síður, prýtt fjölda mynda. Forsíðumyndin er frá Grindavíkurhöfn og tók Hinrik Bergsson hana en hann er jafnframt ritstjóri blaðsins. HÁTIÐARFATNAÐUR ISLENSKRA KARLMANNA TILBOÐ 10% afsláttur í tilefni af 1000 ára kristinitöku á fslandi bjóðum við hátíðarfatnað íslenskra karl- manna á sérstöku tilboðsverði fram að hátíðarhöldum 3. júlí. Hátíðarföt með vesti 100% ull, skyrtu og nælu kr. 26.900 Áður 39.900 Stærðir 46—64 sautján herradeild, Laugavegi, sími 511 1718, herradeild, Kringlunni, sími 568 9017.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.