Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 88

Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 88
J»88 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Jim Smart Tema Teater kemur með enn meiri gleði og hamingju í Kaffileikhúsið. Það er list að vera ljótur FLESTIR vilja líta vel út, geisla af heilbrigði á sál og sólbrúnum líkama og bera góðu genavali ægifagurt vitni. Enginn er lengur ófríður, menn eru bara misóheppnir með útlitið. Þessi Ijótleikafeimni og hégómagirni hefur farið fyrir brjóstið á meðlimum Tema Teater og tii þess að berjast fyrir umbótum hefur fjöllistahópur- inn ákveðið að leggja undir sig Kaffi- leikhúsið í Hlaðvarpanum í kvöld og halda ljótufatapartí. Ragnheiður Gestsdóttir, einn gestgjafa kvöldsins •: og meðlimur í Tema Teater, hvetur fólk af öllu hjarta til „að mæta í eins Ijótum fötum og það getur hugsað sér og vera líka ljótur í framan“. Ljótleikann verður líka að finna í veitingum kvöldsins en á boðstólum verða „löðrandi majónesbrauðtertur með skinkustrimlum og dísæt bolla, fullkomlega ömurlegt kvöld“ segir Ragnheiður og skellihlær. Meðal skemmtikrafta kvöldsins verða þrír plötusnúðar d.j. Islandica sem sgilar gömul og góð íslensk lög, d.j. Plebbi þeytir „plebbalegum" skífum og d.j. Þverröndóttir, sem hafa allra mest gaman af Cure og Pixies og þess háttar eðaltónlist dreifa gleði um mannskapinn líkt og sjálf jólin væru komin. Einnig verður karókítæki í húsinu með allri þeirri hamingju sem slíku fylgir. Síðast en ekki síst verða veitt verðlaun fyrir Ijótasta klæðnaðinn. Fjöllistahópurinn Tema Teater er skipaður fjórum ungum konum, þeim Ragnheiði Gestsdóttur, Sigríði Nönnu Heimisdóttur, Sigrúnu Þrast- ardóttur og Elsu Eiríksdóttur. Þær hafa sett upp sýningar, staðið fyrir uppákomum og fengist við flest það sem viðkemur list. Sunnudagskvöld er svo lokakvöld Listaklúbbsins. Þá er ekki skipulögð dagskrá heldur eru allir velkomnir og mega leika, syngja og dansa af hjartans lyst. Reynir Lyngdal, sigurvegi Stuttmyndadaga í fyrra, er einn þeirra sem fær að kreista hendur þeirra sem vinna til verðlauna í ár. Stuttmyndastuð DAGURINN í dag og dagurinn á morgun eru Stuttmyndadagar. Hátíðin opnar í Tjarnarbíói kl. 17:30 með tilheyrandi veislumat og drykkjum. Þessi geysivin- sæla stuttmyndahátíð sem er af- kvæmi Jóhanns Sigmarssonar kvikmyndagerðamanns er núna orðin níu ára. Umsjónarmenn hátíðarinnar að þessu sinni eru Jóhann Sigmarsson, Júlíus Kemp og Rebekka Silvía Ragn- arsdóttir. Kynnir í ár er engin önnur en „evróvisjón" drottn- ingin Ingibjörg Stefánsdóttir. I ár verða sýndar um fimmtíu myndir og verða úrslitin ekki ljós fyrr en klukkan slær hálf eitt á aðfaranótt mánudags. Þeir sem fá það erfiða hlut- verk að velja bestu myndir há- tíðarinnar eru Ólafur H. Torfa- son kvikmyndagagnrýnandi, Þorfinnur Ómarsson, fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs íslands og Reynir Lyngdal kvik- myndagerðamaður. Reynir vann fyrstu verðlaun í fyrra ásamt Katrínu Ólafsdóttur fyrir mynd þeirra „Slurpurinn & Co“. Þó svo að inn á milli mynda- skarans leynist ein og ein erlend mynd eru þær ekki með í keppninni. Besta erlenda mynd- in fær þó sérstaka viðurkenn- ingu. A næsta ári stendur til að gera hátíðina alþjóðlega. Einnig munu þeir Öskar Jón- asson leikstjóri, Sigvaldi J. Kárason klippari og Ingvar E. Sigurðsson leikari flytja fyrir- lestra á hátíðinni. ■ av "V LANGUR LAUGARDAGUR OPIÐFRÁW. 10-17 Dömudeild LAURAAIME hlýrabolir 990, LAURAAIME bolir 1.500 KVARTBUXUR 3.900*" KOOKAI síðermabolir 1.900 KOOKAI kjólar 3.500 NICEGIRL vörur 20% afsl. Herradeild JAKKAFÖT frá 12.900 JAKKAR frá 5.900 BUXUR frá 3.900 PEYSUR frá 3.900 | Skódeild DKNY strigaskór VAGABOND strigaskór p: SHELLY'S sandalar jt Kjallari G-star 20% afsl. Puma, Nike og Adidas strigaskór Mikið úrval Fríar veitingar Café 17 Laugavegi Sími 511 1717

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.