Morgunblaðið - 03.06.2000, Side 96
Hefur þitt fyrirtæki
efni á aö eyða tíma
starfsfólksins i bið?
Það er dýrt að láta starfsfólkið biðai
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS69IIOO, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Schröder
heimsótti
- íslenska
skálann
ARAGRUI fólks safnaðist saman
fyrir utan íslenska skálann á heims-
sýningunni í Hannover á fimmtu-
dag þegar Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands, heimsótti
hann. Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði að kanslarinn
hefði sýnt íslensku þjóðinni mikla
virðingu með því að heimsækja ís-
lenska skálann og tók fram að _
Schröder hefði reyndar hvatt ís-
lendinga til þess að taka þátt í sýn-
ingunni er hann var enn for-
sætisráðherra Neðra-Saxlands þar
sem sýningin er haldin.
Heimssýningin var opnuð á
fimmtudag og aldrei hafa fleiri
þjóðir tekið þátt í henni. Mikið var
um dýrðir þegar sýningin hófst og
svifu 100 þúsund blöðrur til himins
þegar Johannes Rau, forseti Þýska-
lands, opnaði hana með því að
klippa á borða.
■ ísland er/48
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sýnir Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, íslenska skálann.
Ferðamaður bjargaði
bflstjdra og tveimur
börnum
Vorum
öll í lífs-
hættu
LITLU munaði að illa færi þegar
opnum jeppa hvolfdi í fjöruborð-
inu í Reynishverfi í fyrrakvöld.
Eigandi bflsins var þarna á ferð
ásamt tveimur börnum sínum og
tékkneskum ferðamanni, Ondrej
Kovalina, sem hann hafði tekið
upp í bflinn skammt frá Reykjavík.
„Við vorum öll í lífshættu og
það er guðsmildi að við sluppum
ómeidd,“ sagði Kovalina í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Til allrar
hamingju tókst mér einhvern veg-
inn að stökkva út úr bflnum þegar
hann var að fara á hvolf, en þau
hin voru föst í beltunum."
Kovalina sagði þetta hafa verið
afar skelfilega reynslu en hann
væri mjög þakklátur fyrir hversu
vel fór að lokum og hlakkaði til að
halda ferð sinni um landið áfram.
Hann hefur dvalið hér á landi í
nokkra daga, en hann stundar
nám í sálfræði í Prag.
Spenna á byggingamark-
aði bitnar á viðhaldi
VERULEG spenna er á bygginga-
markaðnum á höfuðborgarsvæðinu
og mikil eftirspurn eftir iðnaðar-
mönnum. Formaður Meistarafé-
lags húsasmiða í Reykjavík telur
að ástandið bitni mest á viðhalds-
^verkefnum og fólk geti þurft að
Díða fram á haustið.
„Það er mikið hringt af fólki
sem vantar menn í vinnu. Það er
litlu hægt að bjarga enda er það
eina sem við getum gert að senda
fólki lista yfir fyrirtæki sem hafa
skráð sig,“ segir Baldur Þór
Baldvinsson, formaður Meistarafé-
lags húsasmiða í Reykjavík.
Hann telur að stærri fyrirtækin,
þau sem eru að byggja og selja og
taka að sér stærri verkefni, séu vel
mönnuð. Iðnaðarmannaskorturinn
bitni frekar á viðhaldsverkefnum.
„Fólk tekur of seint við sér. Það er
kannski með ónýta glugga eða þak
og fer að athuga málin þegar góða
veðrið kemur. Og allt þarf að gera
’strax, helst í gær,“ segir Baldur.
Telur hann að fólk verði að sætta
sig við það að bíða fram á haustið.
Eyjólfur Bjarnason, bygginga-
tæknifræðingur hjá Samtökum
iðnaðarins, telur að þótt fólki þurfi
að bíða eitthvað með viðgerðir sé
yfirleitt hægt að bjarga málum
þegar neyðarástand kemur upp.
Mikið er byggt af íbúðum og at-
vinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu auk þess sem framkvæmdir
standa yfir við Vatnsfellsvirkjun,
stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar og álvers Norðuráls á
Grundartanga. Framkvæmdir við
nýju verslunarmiðstöðina í Smár-
anum, Smáralind, eru rétt að hefj-
ast en þegar þær ná hámarki taka
þær til sín vinnuafl í líkingu við
virkjun.
Nokkurt launaskrið
Eyjólfur Bjarnason segir að að-
alframkvæmdatíminn sé að byrja
og ekki hægt að fullyrða um
ástandið í sumar. Hann bendir þó
á að lóðir fyrir um 1500 íbúðir
verði byggingarhæfar á þessu ári
en það sé svipað og á síðasta ári,
þannig að spennan stafi af öðru
en íbúðarhúsabyggingum. Hann
tekur ekki undir það sjónarmið
að of mikið sé að gera hjá bygg-
ingafyrirtækjunum. Telur það
eðlilegt ástand að þau hafi verk-
efni þrjá mánuði fram í tímann en
ekki aðeins 2-3 vikur eins og oft
hafi verið.
Verktakar auglýsa mikið eftir
iðnaðarmönnum og einnig er tölu-
vert af erlendum iðnaðarmönnum
að störfum hér á landi. Finnbjörn
A. Hermannsson, formaður Tré-
smiðafélags Reykjavíkur, telur að
eitthvert launaskrið hafi orðið um-
fram kjarasamninga, en tröllasög-
ur í þeim efnum eigi sér ekki stoð í
raunveruleikanum. Kaupið sé
þokkalegt en þó engin ástæða fyrir
atvinnurekendur að væla yfir því.
Segir Finnbogi að vinna við
viðhald bygginga hafi verið verr
borguð en við nýbyggingar. Telur
hann að þetta hafi jafnast, menn
taki nú verkefnin að sér fyrir
sama verð og kostar að vinna við
nýbyggingar. Baldur Þór Bald-
vinsson segir að verð einstakra
verkefna hafi spennst upp vegna
skorts á iðnaðarmönnum. Nefnir
sem dæmi að fyrirtæki kunni að
freistast til að bæta á sig verki
vegna þess að mikið sé á það
þrýst og þurfi þá að láta vinna
það að verulegu leyti í yfirvinnu.
Það leiði að sjálfsögðu til hærra
verðs.
Missti vald á bilnum
í flæðarmálinu
Að sögn lögreglunnar í Vík í
Mýrdal virðist ökumaðurinn hafa
misst vald á jeppanum í flæðarmál-
inu þannig að hann valt og endaði
á þakinu. Okumaðurinn og annað
barnið voru með bflbelti spennt og
náðu ekki að losa þau, en hitt bam-
ið var í bflstól í framsæti. Kovalina
náði hins vegar að losa belti sitt og
stökk út úr bflnum þegar honum
hvolfdi.
Sjór gekk yfir bflinn og hélt
ökumaðurinn höfði barnsins sem
sat í bflstólnum upp úr sjónum
þegar öldur gengu yfir. Kovalina
tókst að losa ökumanninn og barn-
ið sem sat í aftursætinu úr bflbelt-
unum og draga þau undan bflnum.
Hann náði einnig að losa bflstólinn
úr framsætinu og kom hann barn-
inu upp úr sjónum 1 stólnum.
Allir sluppu með smávægileg
meiðsl og segir lögreglan mikla
mildi að ekki fór verr. Bfllinn náð-
ist á land og er ekki mikið
skemmdur.
Fyrirtækið Moody’s hækkar lánshæfísmat íslenskra banka
Islandsbanki-FBA með
hæstu einkunn banka
MITSUBISHI
^/irxriu/^tinjeíjxuma
A
HITSUBISHI
- demantar í umferö
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service tilkynnti í
gær að það hefði hækkað lánshæfis-
mat Íslandsbanka-FBA í kjölfar
sameiningar bankanna. Jafnframt
var tilkynnt hækkun á lánshæfismati
Landsbanka íslands og Búnaðar-
banka íslands.
Lánshæfiseinkunn hins nýja
banka, Íslandsbanka-FBA, hækkar
úr A3 í A2 fyrir langtímaskuldbind-
ingar. Einkunn vegna skuldbindinga
til skamms tíma hækkar úr Prime-2 í
Prime-1 og einkunn fyrir fjárhags-
legan styrkleika hækkar í C úr D hjá
FBA og úr D+ hjá íslandsbanka.
Moody’s tilkynnti jafnframt að lang-
tímaeinkunn og einkunn fyrir fjár-
hagslegan styrkleika yrðu skoðaðar
áfram með frekari hækkun í huga.
Moody’s hækkaði einkunn
Landsbankans fyrir fjái-hagslegan
styrk í D+ úr D. Aftur á móti var
engin breyting gerð á einkunn bank-
ans fyrir skuldbindingar til langs
tíma, A3, og skammtímaskuldbind-
ingar, Prime-2.
Einkunn Búnaðarbankans fyrir
fjárhagslegan styrk var einnig
hækkuð hjá Moody’s í D+ úr D.
Hins vegar var engin breyting á
lánshæfismati fyrir langtímaskuld-
bindingar, A3, og einkunn fyrir
skammtímaskuldbindingar er áfram
Prime-2.
Lánshæfiseinkunnir Islands-
banka-FBA eru þær hæstu sem inn-
lent fjármálafyrirtæki hefur fengið,
samkvæmt upplýsingum frá íslands-
banka-FBA, og jafnframt er ein-
kunnin Prime-1 sú hæsta sem
Moody’s gefur skammtímaskuld-
bindingum.
Að sögn Bjarna Armannssonar og
Vals Valssonar, forstjóra íslands-
banka-FBA hf., er þessi hækkun á
lánshæfismati mikil viðurkenning
fyrir hinn sameinaða banka og
stefnu hans. Hækkun einkunnarinn-
ar styrki stöðu bankans á alþjóða-
markaði sem geti leitt til lækkunar
fjármagnskostnaðar og aukins
áhuga erlendra lánveitenda og fjár-
festa á bankanum.
■ Undir sama/24